Þjóðviljinn - 08.01.1947, Síða 4

Þjóðviljinn - 08.01.1947, Síða 4
4 Þ JOÐVIL JINN Miðvikudagur. 8. jan. -194-7. þJÓÐVILJINN Útgeíandi: Sameinlngarflokkur alþýöu — SósíalistaílofcKurinn Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjamason. Ritstjómarskrifstofur; Skólav örðust. 19. Símar 2270 og 7500 (eftir kl. 19.00 einnig 2184). Aígreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184. Auídýsingar: Skólavörðustíg 19 súni 6399. Prentsmiðjusími 2184. Askriftarverð; kr. 8.00 é mánuði. — Laususölu 50 aurar eint Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Hvað gera forustiimenii Alþýðuflokksins? Þegar Alþýðuflokkurinn var stofnaður í upphafi var honum var ætlað að verða baráttufl. ísl. alþýðu og stefna að því sem lokatakmarki að sósíalisma yrði komið á á íslandi. A fyrstu árum sínum vann flokkurinn mikið og nytsamt starf sem alþýða landsins minnist með ánægju. En þegar tímar liðu og forustumenn flokksins eignuðust meiri og meiri persónuleg ítök í hinu borgaralega þjóðfélagi, fór að bera á því að þeim var skipulag auðstéttarinnar ekki eins leitt og forðum, þeir tóku að linast í sókninni og gengu stundum í bandalag við efnastéttina til að tryggja völd hennar. Síðustu árin hafa ráðamenn Alþýðuflokksins oft komið fram sem hreinir fulltrúar auðstéttarinnar, enda eru þeir margir hverjir ótvíræðir meðlimir þeirrar stéttar. En þótt alþýðu landsins hafi oft reynzt þessir umboðs- menn sínir mikill vonarpeningur, er hitt þó engum efa bund ið að obbinn af kjósendum Alþýðuflokksins vill brjóta á bak aftur auðskipulagið og stefna að sósíalisma á íslandi. Enda hffa forustumenn flokksins ekki að sama skapi hafnað hinum upphaflegu skoðunum sínum í orði sem þeir hafa brugðizt þeim í raun. Það er t. d. athyglisvert að samþykkt síðasta flokksþing Alþýðuflokksins var í miklu samræmi við stefnuyfirlýsingu sósíalista, og ætti að vera auðvelt að samræma þær tvær stefnur í sameiginlega baráttu- stefnuskrá íslenzkrar alþýðu ef vilji er fyrir hendi. Til þessa hafa þó ráðamenn Alþýðuflokksins ekki verið til- kippilegir til þess, þótt þeir hafi á hinn bóginn reynzt full- trúum gróðamannanna mjög þarfir þjónar síðustu mán- uðina. Ef til vill hefur það aldrei skipt eins miklu máli og einmitt nú að ráðamenn Alþýðuflokksins bregðist ekki kjósendum sínum. Því nú er sannarlega allra veðra von í íslenzku þjóðlífi. Ef rétt er á málum haldið er framundan blómatímabil á íslandi, endurreisn atvinnuveganna getur haldið áfram stórum skrefum, efnahagur þjóðarheildarinn- sr getur komizt á öruggari grundvöll en nokkru sinni fyrr og velmegun alþýðunnar farið sívaxandi. En til þess að svo geti orðið verður að taka fjármál og verzlunarmál landsins föstum tökum og takmarka stórum völd þeirrar auðklíku sem merksýgur nú alþýðu landsins og hefur tekizt að stöðva nýsköpunina í bráð. En ef illa tekst til og efna- stéttin heldur völdum sínum og eykur þau, verður það til þess að ófremdarástand það sem nú ríkir helzt og fer versn- andi. Þá hefur nýsköpunarstarfið verið unnið fyrir gýg, en heildsalar og gróðabrallsmenn halda áfram að safna eignum landsmanna í sínar hendur. Þá mun sjálfstæði þjóðarinnar enn verða skert og sukki yfirstéttarinnar hald- ið uppi með bandarískum lánum þar til landið allt er orðið bandarísk eign. Um þetta hafa stjórnmálamennirnir deilt í þrjá mán- uði síðan stjórnin sagði af sér og enn er ekki útséð um afdrif þeirrar deilu. ForUstumenn Alþýðuflokksins mega vita það að öll þjóðin fylgist nú með athöfnum þeirra. Það getur oltið á þeim hvort tekst að mynda heiðarlega stjórn í landinu eða ekki. Ef þeir velja nú þann kost að ganga í bandalag við efnastéttina, hafa þeir runnið skeið sitt á enda og alþýða landsins mun sttúa við þeim bakinu með fyririitningu. Og þá mun þeim verða formælt mest af sínum eigin kjósendum, GALLHARÐUR RUMSKAR. Gallharður hefur ekki verið at kvæðamikill hér í dálkunum að I undanförnu en nú hefur sá gamli rumskað. Hann sendir mér langt bréf, svohljóð- andi: „Stórgróðahátíðin jólin er um garð gengin, sömuleiðis gamlárs kvöld, hin árlega -— snarpa orusta reykvískrar æsku við lög regluna sína. Margt gæti maður fundið að þessari miðsvetrarhátið, eða öllu heldur því formi, sem hún hefur færzt í á undanförnum árum. Það hefur verið rætt um hinn ringulslega undanfara jól- anna, miskunnarlausa auglýs- ingastarfsemi, blómstrandi skransölu og stjórnlaus jóla- gjafakaup, að ógleymdri þeirri jafnvægisröskun og ruglingi, sem allt þetta orsakar í lífi bæj- arbúa. En það, sem þessu bréfi er einkum ætlað að fjalla um, er jóladagskrá útvarpsins. Eg er nefnilega hundóánægður með hana og get ómögulega skilið á- stæðuna fyrir því, að útvarpið I skuli látið vera miklu leiðin- legra á jólunum en á öðrum tím um árs. ★ JÓLAKVEÐJURNAR. „Tökum fyrst jólakveðjurn- ar. Það er ekki nóg með að þær séu drepleiðinlegar og lausar við allan hátíðablæ, heldur eru þær um leið hörmulegur vottur um hégómagirnd mannanna. Eg er ekki í nokkrum vafa um, að sá sem sendir jólakveðju í út- varpi gerir það miklu frekar sjálfs sín vegna en viðtakand- ans. Það er barnaleg löngun til að heyra nafn sitt lesið upp í útvarpi, sem oftast liggur hér til grundvallar. Og hinir einu áhugasömu hlustendur þessa dagskrárliðar eru áreiðaníega sjálfir sendendur jólakveðjanna. Eg veit ekki, hvort þú hefur heyrt söguna um kvenmanninn, sem kom inn á auglýsingastofu útvarpsins, lagði þar inn jóla- kveðju austur á land, og lét fylgja með henni svarkveðju til sjálfrar sín frá fólkinu fyrir austan — en saga þessi er sönn. Eða þá sagan um manninn, sem lagði inn jólakveðju til fjöl- skyldu einnar á Akureyri og strax og hann var búinn að því, símaði hann norður og tilkynnti fólkinu, hvenær kveðjan yrði lesin upp, svo að það gæti verið viðbúið að hlusta á réttum tíma. Eg hygg, að saga þessi sé líka sönn. Nú vilja menn réttlæta jóla- kveðjurnar og segja, að þær séu mikilvægur liður í fjáröflun hins fátæka ríkisútvarps. Eng- inn efast um það. En er ekki fjáraflaplan þessarrar stofnun- ar orðið nokkuð hæpið, þegar hún byggir gróðann á því að kvelja hlustendur sína tímunum saman með tilbreytingalausum leiðindalestri — og það á sjálfri hátíð hátíðanna? Jú, svo sannarlega, og þessvegna þyk- ist ég mæla fyrir munn flestra útvarpshlustenda, þegar ég sting upp á því, að þessi bjána- legi dagskrárliður verði ekki lát inn kvelja okkur á fleira jólum. ★ JÓLATÓNLISTIN „Jólatónlist útvarpsins er líka ósköp þreytandi. Það er alltof mikill helgiblær yfir henni. Ekki þó svo að skilja, að ég sé andvígur fagurri kirkju- tónlist. Eg hef hina mestu un- un af henni, svona stund og stund í einu. En henni er bara veitt alltof stórt rúm í dag- skrá útvarpsins á jólunum. Það spillir alls ekki helgi hátíðar- innar, þótt léttari tónlist sé þá einnig flutt. Hátíðarskap er ekki sama og alvöruþungi. Og menn mega ekki vera svo þröng sýnir að álíta léttari tónlist, jafnvel jazz og dansmúsikk, eitt hvert óguðlegt fyrirbrigði. Það, sem veitir fólki saklausa skemmtun, getur aldrei spillt helgi neinnar hátíðar. Þess- vegna geri ég það að tillögu minni, að á næstu jólum flytji útvarpið okkur meiri léttari tónlist samfara kirkjutónlistinni — jafnvel jazz og dansmúsikk. * GUÐSÞJÓNUST- URNAR „Og þá eru það guðsþjónust- urnar, sem útvarpað er. Að visu bera forráðamenn stofnunarinn ar enga ábyrgð á innihaldi þeirra. En þær eru liður í dag- skránni og því geri ég þær hér að umtalsefni. Eg hef oft furðað mig á þeirri tilhneigingu íslenzkra presta að færa predikanir sínar í dularbún ing, þannig að þegar þeim er lok ið eru menn venjulega engu nær um gildi trúarinnar og hafa eiginlega hvorki skilið upp né niður í því, sem sagt var. Þessa gætir ekki hvað sizt á jólunum. Þar snýst allt um eitthvert ljós og meira ljós, fögnuð og meiri fögnuð. Hversvegna alla þessa „mystikk"? Hversvegna ekki að binda sig meira við raunveru- leikann og tala þannig til fólks ins að það skilji? Eða verða menn ekki að skilja til þess að trúa? Eg hlýt að láta í ljós þá skoðun mína, að áhrif lcrist- innar trúar á íslandi aukist ekkert, þótt byggðar séu fleiri kirkjur, ef boðskapurinn er þar fluttur á einhverju rósamáli. Nei, til þessa nægja gömlu kirkj urnar fyllilega, ef klerkarnir að- eins breyta um málflutning og fara að mæla fyrir guðsríki á til gerðarlausu og skiljanlegu tal- máli. Framh. á 7. síðu Sænska akademíið veldur vonsvik- um í Prag Ákafur lesÉraráÍBugi í TékkosUivakíu Fyrir mörgum árum komst Heinrlcih Mann svo að orði, að verkalýðurinn væri sjálf- kjörinn arftaki menningarinn ar. Þessi orð hans staðfestir Tékkóslóvakía í dag, þar sem vinnandi stéttirnar taka æ meiri þátt í opiniberu menn- ingarstarfi. Utan Sovétríkj- anna hef ég hvergi orðið var við meiri menntunarþroska en hér. Bókaverzlanir spretta upp hvarvetna, og bókamark aðurinn fer eftir framboði og eftirspurn. Það væru ekki jafn margar bókaverzlanir. ef eftirspurnin væri ekki eins gífurleg- í Prag er varla nokkur' gata án bókaverzlunar og það er stöðugt verið að opna nýj- ar. Eg geng á milli þeirra ti! áð komast eftir því. hvaða höfundar séu vinsælastir og mest lesnlr. Niðurstaðan var þessi: Alexej Tolstoj, Sjilikov, Simonov og Majakovski, Tékknesku höfundarnir Vez- •val, Hora. Halas, Volker, Oi- bracht, Majerova Orten, Hortoverki, Vancura og Jil- émmicki. Ennfremur Martin Andersen Nexö, Selma Lager löf. Georg Brandes og Stren- wels, John Steinbeck, Upton Sinclair, Dreiser, Preastley, Spender, Wells, Shaw og Chesterton, Aragon, Rolland, Valery og Emile Zola. Það er einnig spurt eftir öðrum höfundum, svo sem Thomas Mann, Arnold Zweig, Karl Krans og Schnitzler, en bækur þeirra eru sem stend- ur nærri ófáahlegár- Mörg bókaforlög undirbúa nýjar útgáfur af verkum þeirra. Schwejk alltaf jafn vinsæll Lesa menn bara „góðar“ 'bókmenntir? Auðvitað or líka hópur lesenda, sem óskar eftir skemmtilestri og ævin- týrabókum, en eftirspumin er Framh. á 7- síöv sem létu blekkjast til að styðja þá á fölskum forsendum. En alþýða landsins vonar þó í lengstu lög að forustumenn Alþýðuflokksins láti ekki hafa sig til svo illra verka, heldur geri sitt til að mynduð verði stjórn sem ber hagsmuni al- mennings fyrir brjósti og heldur ötullega áfram þvr við- reisnarstarfi sem nú er hafið.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.