Þjóðviljinn - 10.01.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.01.1947, Blaðsíða 8
Tveir úngir sjömémh farast Ætlaði aS bjarga fékga smnm en feáSIsr drukkAuðu Tveir ungir sjómenn, þeir Einar Eyjólfsson, Jófríðarstaðaveg 15 Hafnarfirði og Steindór Sveinsson, Suðurgötu 73 Ilafnarfirði fórust í fyrri- nótt af togaranum Maí. Togarinn var að veiðum þegar Einar tók út og kastaði Steindór sér til sunds til þess að reyna að bjarga Einari. Náttmyrkur var, og töluverður sjór og hurfu þeir brátt sjónum skipverja. Maí féltk ömiur skip er þarna voru til þess að leita með sér, en sú Ieit bar ekki árangur. Einar Eyjólfsson var 22 ára, sonur Eyjóifs Kristjánssonar sparisjóðsgjaldkera í Hafnarfirði. Steindór Sveinsson var 23 ára, sonur Sveins Ög- mundssonar, og bróðursonur skipstjórans. Þeir höfðu báðir nýlokið prófi við Stýrimanna- skólann. Verbáðir við Faxaflóa frumvarp um að ríkið byggi verbúðir við Faxaflóa fluft að fillilutan Áka Jakobssonar atvinnumálaráðherra Mtiirhalds- ® & ? Sjávarútvfegsnefnd neðri deild- ar flytur^ samkvæmt tilmælum atvinnumálaráðherra, frumvarp til laga um hcimild fyrir ríkis- stjórnina til þess að koma upp verbúðum við Faxaflóa. — Frum varpið er svohljóðandi: 1. gr. Ríkisstjórninni er heim- ilt að láta reisa verbúðir fyrir fiskibáta utan af landi í þeim ver stöðvum við Faxaflóa, þar sem hafnarskilyrði eru fyrir hendi. Ennfremur er ríkisstjóminni heimilt að taka leigunámi hús- Pláss i þessu skyni og útbúa það til notkunar. 2. gr. Hafa skal samráð og samvinnu við hlutaðeigandi bæj ar- eða sveitarstjórn um tilhög- un og framkvæmd verksins svo og um þátttöku í kostnaði við framkvæmdir. Skorist bæjar- eða sveitar- stjórn undan því að taka þátt í kostnaði við að koma upp ver- InnliFot f ÁlfaliFekku Innbrot var framið i Verzlun- ina Álfabrekku við Suðurlands- braut i fyrrinótt. Álfabrekka er skúrbygging og hafði verið farið inn um bakdyr að því er virðist með þeim hætti að sparkað hafði ver.ið í hurð- ina þar til klampi, sem læsinga- járnið var fest í losnaði, en hurð inni var læst með smekklás. — ■Þaðan lágu dyr inn í aðalhús- ið, sem voru læstar með venju Jegri skrá og hafði læsingarjárn- áð verið brotið, að því er virðist íneð því að sparka í hurðina. Stolið var á þriðja hundrað Jkr., sem voru þar í litlum köss- tm, ennfremur 30—40 pökkum af Old Gold vindlingum, 25 smá Vindlum og 100—200 sykurmið- lum. Þá hafði þjófurinn hresst sig íneð því að drekka úr nokkrum coca-colaflöskum. búðum þessum, . er ríkisstjórn- inni heimilt að reisa þær að öllu j flokknum. á kostnað ríkissjóðs, en hlutað- eigandi bæjar- eða sveitarstjórn Framh. af 1. síðu. um stj’brnmálamanni, sem er jafn fyrirlitinn af þjóðinni og fjarri því að geta notið nokkurs trausts- Það er talið, að það sé fyrir bein og ákveð in tilmæli Ólafs Thors, að forseti hefur falið þessum manni stjórnarmyndun- — Stefán Jóh. Stefánsson er nú sá, er versta afturhaldið á ís- landi ætlar sér að nota til skemmdarverka sinna og til þess að geta hrifsað til sín völdin. Stjórn undir forustu Stefáns Jóhanns yrði aftur- haldsstjóm, hversu róttækum ,,stefnuskrám“ sem hún kynni að veifa framan í al- menning. Henni væri bæði trúandi til að viðhalda fjár- bruðli heildsalastéttarinnar og að ganga til auðmjúkrar þjónustu við auðvald Banda- ríkjanna. Stefán Jóhann gæti aldrei notið stuðnings rót- rækra og heiðarlegra manna innan Alþýðuflokksins. Hann yrði að sækja stuðning sinn til ' afturhaldsins í íhalds- flokknum og Framsóknar- ÐVIill Þrátt fyrir það, að sam- vinna við Alþýðuflokkinn um skal endurgreiða ríkissjóði hluta iríkisstjórn sé nauðsynleg og af kostnaðinum i þeim hlutföll- sjálfsögð, þá verður hun að um, sem ákveðið er í 2. gr. laga i vera undir forustu manns, nr. 29 23. apríl 1946, sé ekki umjsem kjósendur verklýðsflokk anna geta borið sameiginlegt traust til. En slíkt er óhugs- andi um stjórn undir forsæti Stefáns Jóh- Stefánssonar eft ir þann soralega feril, sem hann á að baki sér í íslenzkri pólitík- Öll róttæk öfl í landinu verða að sameinast um að hindra það, að íslenzka þjóð in upplifi enn það hneyksli ofan á öll önnur, að Stefán Jóh. Stefánsson verði forsætis J ráðherra á íslandi. algerar bráðabirgðaverbúðir að ræða. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Æ, F, R, Málfundur verður haldinn kvöld kl. 9 á Þórsgötu. — Fjölmennið stundvíslega, fé • lagar. Stjórnin. Stoffliar Wallace aýjan flokk Telnr stuðning Bandaríkjanna við afturhaldsstjómir og útgjöM til hernaðar vera ógnun I fyrstu greininni sem Henry A. Wallace skrifaði sem rit- stjóri liins frjálslynda vikurits: New Republic, segir hann að megínverkefni framfarasinnaðra manna í Bandaríkjunum sé að endurskapa Ðemókrataflokkinn, og sagði jafnframt: „verði ekki liægt að breyta Demokratafíokknum verðum xið að grípa til annarra ráða“. Tímarit þetta hyggst Wall- ace að nota sem tæki í bar- attunni fyrir friði ,,byggðum á samstillingu allra krafta til að útrýma fáfræði og skorti úr heiminum." Áðurnefnd ritstjórnargrein, undir fyrir- sögninni: Atvinna — friður frelsi, tók 5 blaðsíður og kom út 16- des. s.l. I grein sinni hvetur Wall- ace Bandaríkin til að stöðva hinn hættulega undirbúning styrjaldar,11 og talar nm stuðning Bandaríkjanna við „spilltar og ólýðræðislegar Verið að dæla sjónum út úr bögglapóststofunni í gær. (Ljósm. Sig. Guðm.) Sjór flæðir um gólf bögglapóst- stofunnar Það er nanðsynlegí9 að hGiai fái henÉngri fiiúsakynni liið hráúasta 1 gær flæddi svo mikill sjór inn í húsakynni böggla- póststofunnar í kjailara Pósthússins, að þvi nær allt gólfið var undirlagt. Þetta hefði getað orsakað miklar skemmdir á bögglum, en sem betur fór tókst að koma í veg fyrir þær að mestu. í þessu sambandi er rétt að ininna hlutaðeigandi yfirvöld á það, að núverandi húsakynni bögglastofunnar eru allskostar ófullnægjandi og að það má ekki dragast lengur að eitthvað sé gert til úrbóta. ríklsstjórnir og útgjöld til vopnaframleiðslu sem ógn- un.“ I sambandsmálum er stefna hans að berjast gegn krepp- unni sem Repúblikanaflokk- urinn er að leiða yfir þjóð- ina, bæta úr húsnæðisvand- ræðunum, koma á endunbót- um í 'heilbrigðismálum al- mennings og lækka vöruverð ið með því að brjóta vald hringanna eða að ríkið taki' að sér að starfrækja og full- nýta megimiðhgreiúarnar sem vanreknar eru. (ALN). í gærmorgun þegar starfs- menn bögglastofunnar komu til vinnu sinnar, var heldur ófagurt um að litast í húsa- kynnum hennar. Bögglapóststofan hefur, sem kunnugt er, til umráða kjallara Pósthússins, og að oft hefur orðið vart við raka þama niðri. En í gærmorgun voru svo mikil brögð að þessu að vatn, eða öllu heldur sjór, flaut um því nær allt gólfið, og hefði mátt 'búazt við mikl um skemmdum á bögglapóst- inum, ef þetta hefði t. d. átt sér stað að nóttu til, og eng inn verið viðstaddur til að bjarga honum úr vætunni. — En sem betur fór komu starfs mennirnir þarna að í tæka tíð til að hindra verulegar skemmdir af völdum flóðsins- Aðeins nokkrir bögglar munu hafa vöknað lítið eitt- Blaðamönnum var boðið að sjá verksummerki síðavi hluta dags í gær, og- voru þá enn stórir pollar á gólfinu, enda þótt vatninu hefði verið veitt burt öðru hvoru frá því um morguninn. Það er greini legt, að sjórinn seitlar þarna inn með öllum útveggjum, og er ekki hægt að gefa aðra skýringu á þessu skyndilega flóði en þá, að einangrun veggjanna gegn sjávarrakan um hafi uppá síðkast'ið versn að mjög. Að vísu hefur áður orðið vart við mikinn raka j þarna, sem fyrr segir, einkum þegaj stórstreymi hefur verið, eins og í gær, en aldrei fyrr hefur verið um slíkt flóð að ræða. Þetta olli að sjálfsögðu miklum erfiðleikum í starfi bögglastofunnar. Allt skipu- lag á bögglunum raskaðist sökum þess, að ekki varð hjá því komizt að hrúga þeim upp á einstaka þurrum blett- um, og skiljanlega torveld- aði þetta mjög afgreiðslu og útsendingu bögglanna. Húsakynni bögglastofunn- eru hinsvegar svo þröng, að svigrúm er þar að jafnaði allskostar ófullnægjandi til að leysa af hendi það mikla starf, sem hún verður nú að annast. Kunnugir fullyrða, að annríki bögglastofunnar hafi margfaldazt á síðustu árum, og þegar þess er gætt, hversu langt er síðan hún fékk þessi húsakynni til umráða og við hversu umfangslitla póststarf semi þau voru miðuð í upp- hafi, samanborið við það sem nú er, þá hlýtur mönnum að vera ljóst, að ekki má leng- ur á því standa, að böggla- stofunni séu fengin rúmgóð húsakynni, er fullnægi þeim kröfum, sem stóraukin póst- starfsemi gerir nú til hennar. Það er hið mesta nanð- synjamál, að bögglastofan geti hið bráðasta flutt úr þess Framh. á 7. síðl.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.