Þjóðviljinn - 10.04.1947, Blaðsíða 4
4
ÞJGÐVILJINN
Pnmntndágur 10. apríl 1047
þJÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusimi 2184.
Áskriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Furðulegur forsætisráðherra
Forsætisráðherra Islands hefur átt viðtal við nokkra
sænska blaðamenn. Blaðamennimir birta heimkomnir við-
töl í útbreiddustu stjórnmálablöðum Svíþjóðar. Þrjú þess-
ara blaða hafa ummæli eftir ráðherranum um viðkvæmustu
utanríkismál íslands, sem ráðherrann síðar lýsir yfir að
séu uppspuni, skáldskapur eða misskilningur blaðamann-
anna á því sem hann hafi sagt.
Ekki er að efa, að hefði svipað óhapp hent forsætis-
ráðherra einhvers annars ríkis, t. d. forsætisráðherra Dan-
merkur eða Noregs, að -þeir hefðu tafarlaust komið á fram-
færi í öllum helztu blöðum Svíþjóðar harðorðum og afdrátt-
arlausum mótmælum gegn missögnum hinna sænsku blaða-
manna.
íslenzki forsætisráðherrann, Stefán Jóhann Stefáns-
son, lýsti því yfir á Alþingi í gæt, að hann sæi ekki ástæðu
til að andmæla skrifum hinna sænsku blaðamanna með því
að birta mótmæli í Svíþjóð. Hann ætlaði að hafa annan
hátt á meðferð málsins. Forsætisráðherrann hafði „undir-
búið viðtal við sig í Alþýðublaðinu.“ Það átti að duga!
Líklega hefur enginn vænzt þess að Stefán Jóhann
yrði landi og þjóð til sóma sem forsætisráðherra, en þó hef-
ur framkoma hans verið jafnvel enn vesalmannlegri en
búizt var við. í þessu máli virðist honum standa á sama
hvort almenningur í Svíþjóð og raunar miklu víðar, telur
forsætisráðherra Islands hafa haft þau ummæli að samn-
ingurinn við Bandaríkin sé frávik frá pólitísku sjálfstæði
landsins, en íslendingar hafi orðið að semja við Bandarík-
in því annars hefðu Sovétríkin krafizt hér herstöðva. Á Al-
þingi (og í Alþýðublaðinu!) heldur forsætisráðherrann því
fram, að hann hafi aldrei viðhaft nein ummæli í þessa átt,
en hann telur ekki þörf að leiðrétta þau á þeim erlenda
vettvangi sem þau eru flutt á. '
I umræðunum á Alþingi um þetta mál benti Einar 01-
geirsson á að Finnur Jónsson hefði í þingræðu um flugvalla-
samninginn sett það mál í samband við togstreitu milli
vestræns og austræns, milli Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna, og hefði þáverandi forsætisráðherra, Ólafur Thors,
talið ástæðu til að mótmæla því í seinni ræðu. Einmitt Al-
þýðuflokkurinn og aðalblað hans virðist gleypa hráa þá
kenningu bandaríska auðvaldsins að allar útþenslutilraun-
ir og aðgerðir Bandaríkjastjórnar séu liður í þeirri „bar-
áttu gegn kommúnismanum“, sem orðið er eina stefnumál
Alþýðublaðsins. Hafi Stefán Jóhann ekki viðhaft þau um-
mæli við sænsku blaðamennina sem þeir tilfæra varðandi
„hættu“ af ímyndaðri kröfu Sovétríkjanna til herstöðva á
íslandi, hafa þeir að minnsta kosti túlkað sjónarmið, sem
er ofarlega í Alþýðuflokknum og í fyllsta samræmi við hin-
ar vitfirrtu æsingagreinar Alþýðublaðsins gegn „Rússum.“
★
Umræðurnar á þingi í gær eru ekki síðasta orðið í þessu
máli. Það verður að koma skýrt fram, skýrar en orðið er,
hvort íslenzka ríkisstjórnin ætlar að haga sér þannig, að
allur heimur sannfærist um að hún sé ekki annað en vesöl
UM STAÐFÆRINGAR
O. G. skrifar:
„Heiðraði Bæjarpóstur!
Þegar skopleikir eru þýddir, er
umhverfi leiksins stundum breytt
og atburðirnir jafnvel færðir yf-
ir á annað tímabil. Þetta getur
farið vel, því að fyndnin er oft-
ast dægurfluga, bæði staðbund-
in og tímabundm. Staðfæring á
rétt á sér á þessu sviði.
Eg veit, að mörgum muni
þykja ódjarflegt að nefna meðal-
hóf. En þó liggur mér við ið
segja, að ráðlegt sé að gæta hófs
' í staðfæringum. Nýlega rakst ég
á ævintýri Andersens um hæn-
una staðfært á ísl. og allt úr
lagi fært. Ætli íslenzk börn hafi
ekki flest séð hænsni? (Og ekki
hefur heyrzt, að þau séu neitt
óþjóðhollir fuglar). Það er ekki
víst, að börnin séu neitt kunn-
ugri bjargfuglunum, sem koma
við sögu í þýðingunni.
★
HÆTTULEGT FORDÆMI
„Annar þýðandi hefur staðfært
smásögu eftir Gorki. Eg hef
heyrt, að glöggt komi fram í rit-
um hans það, sem sérkennilegt er
■við rússneskt þjóðlíf. Ætli okkur
þættj gáfulegt, ef einhverjum
Englendingi dytti í hug að stað-
færa „Gamla heyið“ eftir Guð-
mund Friðjónsson, léti Brand
gamla heita Blackstone og eiga
heima í Wales? Óþarft er að
nefna fleiri dæmi um staðfær-
ingar, en vel mættu verk- snill-
inganna vera óhult fyrir þeim.
I Mörgum þeim, sem láta Ijós
sitt skína á prenti, er gefin mikil
hermigáfa. Fari einhver að nota
sjaidgæft orð, fornt eða nýtt,
hnýtur lesandinn, von bráðár,
um það í dálkum blaðanna, í
tíma og ótíma. Staðfæringar eru
hættulegt fordæmi. O.G.
★
NÝR DÁLKUR í
BLAÐINU
Athugulir lesendur taka eftir
nýjum dálki í Þjóðviljanum,
fyrsti dálkurinn á 7. síðu ber i
gær fyrirsögnina smáauglýsing-
ar, og mun gera það fyrst um
sinn. Ekki svo að skilja, að eng-
ar smáauglýsingar hafi birzt í
blaðinu fyrr, en þær hafa verið
út um hvippinn og hvappinn, á
. flestum síðum blaðsins. Nú þegar
þeim hefur verið fenginn fastur
samastaður, er hægt að ganga
að þeim vísum.
★
TIL MARGRA HLUTA
NYTSAMLEGT
Eg ráðlegg lesendum Þjóðvilj-
ans að hlaupa ekki yfir þennan
dálk þegar þeir lesa blaðið. —|
Þarna verður oft að finna ýmis-
legt það sem manni kcmur vel I
að vita, og þá er þarna tækifæri
til að koma á framfæri orðsend- ^
ingum, sem þúsundir manna í i
v a r
ffrá stjérii
ins í
er nú þegar, að þó að allt verði
Svo sem kunnugt er, gerðist
sá válegi atburður að morgni
laugardagsins 29. f. m., að
Heklugos brauzt út. Veður stóð
af norðri og lagði gosmökkinn
til suðurs á takmörkuðu svæði
um Fljótsh. innanverða og Eyja
fjallahreppa báða, en á þessu
svæði urðu skjót umskipti. Á
tæpum tveim klukkustundum
dyngdi þarna«iður stórgerðum
vikri og sandi svo að hvergi sá
hnjóta af jörð, hvorki á túnum,
engjum né högum, þar sem
mest kvað að, en annars stað-
ar hafa þarna orðið stórkost-
leg spjöll á landi. Alvarlegan
hnekki af þessum orsökum
hafa þannig hlotið um hundrað
býli undir Eyjafjöllum og um
15 bæir í Fljótshlíð og Rangár-
völliun.
Ekki þarf að fara roörgum
orðum um það, hvert þjóðar-
tjón það er ef þetta mikla á-
fall skyldi verða þess valdandi,
að byggð á þessu svæði leggð-
ist að einhverju eða verulegu
leyti niður, auk þess persónu-
lega tjóns og erfiðleika sem það
hefur þegar valdið ábúendun-
um á þessum slóðum. Augljóst
gert, sem auðið er, til þess að
halda lífinu í fénaði og hreinsa
til, svo að gróður megi fást af
þeim blettum, sem tiltækileg-
astir eru í sumar, þá verða
bændur eigi að síður tað stór-
fækka fénaði sínum. Lífskjör-
in þrengjast og hætt er við, að
mörgum finnist hann standa
svo hallur í þessari baráttu, að
hann gefist upp og hverfi frá
jörð sinni. En í þessari baráttu
getur drengileg aðstoð og sam-
hugur þeirra, sem ekkert tjón
hafa beðið, algerlega riðið
baggamuninn.
Fyrir því hefur stjórn Rang-
æingafélagsins í Reykjavík, á-
kveðið að gangast fyrir fjár-
söfnun til styrktar ábúendun-
I um á því svæði, sem tjón þetta
hefur orðið og mun á sínum
tíma afhenda sýslunefnd Rang-
æinga fé það, sem safnast, til
þeirrar ráðstöfunar, sem
hún telur koma að beztum not-
um. Vér megum ekki sætta oss
við það, að áfall slíkt sem þetta
eyði byggilegustu héruðum
landsins fyrir augum vorum,
án þess að reyna af fremsta
leppstjórn Bandaríkjanna. Þar veldur miklu framkvæmd
flugvallarsamningsins. Sjálfsagt finnst Stefáni Jóhanni
það heldur ekki mótmælavert, þó bandarískir blaðamenn
sem hingað koma og farið er með sem þjóðhöfðingja, full-
vissi Bandaríkjamenn um að flugvallarsamningur hinna
Jirjátíu og tveggja sé ekki annað en pappírsgagn, banda-
ríska hermálaráðuneytið muni eftir sem áður hafa raun-
Kr
veruleg völd yfir Keflavíkurflugvellinum.
En hvað lengi þolir þjóðin íslenzkri ríkisstjórn slíka
vesalmennsku ?
Reykjav.'k lesa. Þvi ekki að
senda ,,smáauglýsingum“ Þjóð-
viljans nokkurra orða augiýs-
ingu, ef þú týnir kettlingnum
þínum, ef þú vilt selja hús-
gögn eða kaupa, ef þig vantar
ibarnavagn og hefur ekki ráð á
að kaupa njuan á 600—800 kr.
eða venjulegan stól sem kostar
ekki alveg 250 krónur, eða vant-
ar jafnvel herbergi. Smáauglýs-
jngarnar kosta visst á orðið. Það
er hægt að fá sæmilega auglýs-
ingu innan við 10 krónur. Gerðu
tilraunina næst þegar þú þarft
að auglýsa, og segðu kunningj-
unum frá „smáauglýsingum“
Þjóðviljans.
★
ÁBURÐUR OG ÝLDU-
FÝLA
L. J. skrifar:
„Hérna um daginn var einhver
gcður maður að lýsa andstyggð
sinni á notkun kúamykju til á-
burðar á túmbletti í bænum. —
Hann benti á, að þetta væri
brot á lögreglusamþykkt Reykja-
víkur og væru margir sekir, n.
a. sjálft hið opinbera. Eg var I
öllu sammÞia þessium manni.
Ilúsdýraábui'ður á túnum bæjar-
. ins er vegfarendum til ama;
lyktin er flestum til óþæginda.
En hér í bænum er samt not-
aður ýmiskonar áburður, sem
hefur verri lykt en kúamykja.
Eg var t. d. rétt áðan að ganga
í gegn um hverfið milli Freyju-
götu og Bergst.str., syðst, þar
sem andrúmsloftið var þrungið
af einhverskonar ýldufýlu, sem
stafaði frá áburði, er hafði ver-
ið settur á einn lítinn túnblett.
Já, það er satt, að eftirlitið
með ólöglegum innflutningi ó-
dauns í bæinn er fremur slælegt.
L. J.“.
megni að sporna við. Hér er
ekki um það að ræða að bæta
mönnum það tjón, sem þeir
hafa þegar beðið, heldur hitt
að létta þessu fólki baráttuna
í landvörn, sem nú leggst
þyngra á það, en nokkra aðra
þegna þjóðarinnar. Þetta er*
bæði metnaðarmál og dreng-
skaparskylda. Og vér erum
þess fullvísir að skjót og drengi
leg hjálp getur alveg ráðið úr-
slitum í þessari baráttu.
Fyrir því heitir stjórn Rang-
æingafélagsins á alla Rangæ-
inga búsetta hér í höfuðstaðn-
um og hvar sem er annars
staðar, að leggja fram sinn
skerf til þessarar fjársöfnunar,
og sýna þannig í verki rækt
sína til ættarstöðvanna og hug
sinn til þeirra, sem þar berjast
nú sinni erfiðu landvarnarbar-
áttu. Og á sama hátt heitir hún
á alla góða íslendinga að styðjæ
þetta mál, því það er sorg og
skaði vor allra, þegar óviðráð-
anleg náttúruöfl kippa í svip-
inn grundvellinum undan starfi
og lífsafkomu einhvers hluta
þjóðar vorrar. Það er sæmd ís-
lendinga, að jafnan er svo lief-
ur staðið á, hefur nú hin síðari
ár mátt treysta þegnskap
þeirra og drenglund, að bregð-
ast vel við.
Dagblöðin í Reykjavík munu
góðfúslega veita fjárframlög-
um í þessú skyni viðtöku, og
má enginn hyggja að skerfur
hans sé svo lítill að hann geti
ekki einnig orðið að liði.
Virðingarfyllst,
Sveinn Sæmundsson,
Felix Guðmundsson,
Guðmundur Guðjónsson,
Sigurður Ingvarsson,
Gestur Gíslason.