Þjóðviljinn - 15.04.1947, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 15.04.1947, Blaðsíða 6
0 . r ÞJÓÐVILJINN - . : Þriðjudagur 15. apríl 1947 jllja Erenburg: 12 :: Bandaríkjiiförin 1946 Hvítir menn sem skipulögðu negraofsóknir, en í Suðurríkjunum er slíkt kallað ,,kynþáttaóeirðir“, drápu tvo negra og særðu tólf. Það eru ekki morðingjarnir sem eru látnir svara til saka, held- ur feður, bræður og synir hinna myrtu. Lögfræð- ingur í Jackson,.. sem yar að reyna að bjarga saklausum negra, sagði mér að raunverulega efaðist enginn ufn sakleysi svertingjans, en hvít- ir menn hefðu bófið vitní á móti honum; og rétturinn gæti ekki'iiekið :til greina framburð svertingja, ef hann væri . gagnstæður framburði hvítra manna, jafnvel ekki þótt vitað væri að hvítu mennirnir bæru ljúgvitni. Komi það hins- vegar fyrir að hvítir menn, sem drépið hafa svertingja án dóms og laga, lendi í fangelsi er sýknunardómur þeirra fyrirfram viss. " Höfðingi þrælaeigandaima og menn vígstöðvanna •• Höfðingi þrælaeigandanna er Bilbo öldunga- deildarþingmaður, rauðhærður lýðæsingamaður sem safnar áheyrendum með þrumandi ræðum um að „temja svertingjana“. Bilbo hefur stung- ið upþ á að allir svertingjar væru fluttir frá Bandaríkjunum til Líberíu. Það væri björgulegt ;; að sjá þrælaeigendurna þrælalausa! Það vita það líka allir að öldungadeildarþingmaðurinn sagði þetta einungis í gríni. Hann er öldungadeildar- þingmaður fyrir Missisippi, þar sem svertingjar eru engu færri en hvítir menn, þar sem það eru hvítir menn sem oftar skjálfa við tilhugsunina um að sá dagur hljóti að koma að hinn örvæntingar- J fulli, þjáði fjöldi verði leiður á að syngja halle- lúja meðan hann bíður e’ftir hinum reglubundnu hengingum. Töluvert af svertingjum hefur komið til Evrópu; margir þeirra börðust fyrir Bandaríkin gegn kynþáttaofstæki Þýzkalands. Það fór ekki fram hjá þeim að í París eða Róm horfði enginn á þá eins og þeir væru haldnir pest, og þeir sneru heim öllu bitrari í skapi. Örlagaríkir atburðir standa fyrir dyrum Suðurríkjanna: ann- aðhvort gefa eigendurnir eftir, eða negrarnir — mennirnir sem í gær stóðu í eldi vígstöðvanna — hefja baráttuna fyrir jafnrétti. Sjúkdómur sem náð hefur djúpt. Eg er sannfærður um að kynþáttahatri verður að lokum útrýmt í Bandaríkjunum; en því má ekki gleyma að þessi sjúkdómur hefur náð djúpt í hug venjulegs Bandaríkjamanns. Eg hitti eng- X an hvítan mann í Suðurríkjunum sem ekki var haldinn kynþáttaofstæki. Einn skeleggasti and- stæðingur þrælaeigendanna sagði eftirfarandi við mig, þegar við töluðum saman í fullri og einlægri hreinskilni: „Já, ég ver svertingjana, en samt sem áður eru þeir ekki menn í míittim augum. í gær lék ég mér við lcrakka vinnukonunnar okk- ar , sem er negri, og þá fannst mér ég ekki vera að leika mér við barn, heldur fallegan hvolp“. Kynþáttaofstækið hefur einnig sýkt hina ofsóttu. Eg hitti svertingja sem höfðu andúð á Gyðingum og Gyðinga sem voru sannfærðir um yfirburði hvítra manna yfir dökka. Bandaríkjamenn sækjast eftir' að drekka blöndu margvíslegra líkjöra. I kokteilamergðinni er einn sem líkist regnboganum — gulur, grænn og rauður, líkjörar sem ekki blandast hver öðr- um í glasinu heldur liggja í marglitum lögurn. Þeir renna ekki samán fyrr en í munni rneyt- andans. Það er hægt að lýkja þessum drykk við kynþættina í Bandaríkjunum. Hversu undarlegt að hugmyndin um „hreinræktum kynstofns“ skuli hafa eignazt ákafa formælendur meðal þjóð- ar sem orðið hefur sterk við blöndun ólíkra þjóðerna! Mönnum getur geðjast misjafnlega að kokkteilum, en það er .erfitt að hugsa sér af- greiðslumann blanda drykk fyrir gesfc sem krefst þess að drykkurinn sé hreinn, úr skauti náttúr- unnar, og jafnframt fullbyrlaður. Eg hef séð kynþáttaofstækismenn í Bandaríkjunum halda | ! »p • -1 '■/■■". ■ ■ • ■ -■.' - ■ ■> * * P -á ý ; ■ :»;■:: * - -' “ ';. t -• t. .^i^tiiaQuninniœiniifipinQpiiiœtiaian^ímtmiimumiimnnmnHmiiiuiKiiiiiiniin^ | 38. dagur u»b^iuniiuntiniiiiiiinnuiiiiisíppúiðiiifii.RpKHiiRÍniiii^HÍ:iiiiiiiii!iHrniiiiiiiniiiHtiuuo DULHEIMAR £Mr Pliyllls Hottome „Fimmtán ár og sex mánuði,“ hreytti matrón- an út úr sér með röddu sem hafði hreim af hvellri bjöllu, sem ætluð var til að rífa skólafólk upp úr svefni á morgnana. „Það er langur tími“, samsinnti Charles kurteis- lega, „og ég er viss um að yður hefur lærzt-að skilj- ast á þessum árum, hve mikilsvirði allur agi er á spítala eins og þessum“. Það byrjuðu að koma heldur ískyggilegir kippir kringum nasaholurnar á yfirhjúkrunarkonunni. „Það þarf enginn að efast um að ég viti það,“ sagði hún hryssingslega. „Eg veit hvar ég á að stíga fótunum, og þegar sporið er stígið, þá stend ég þar föstum fæti.“ „Þá er ég enn meira undrandi“ sagði Charles, „að þér skylduð gleyma skyldu yðar með því að ganga á móti fyrirskipunum dr. Everest. Eg hefi af á- settu ráði frestað í mánuð að tala um þetta við yður. Eg vildi kynna mér aila málavöxtu og láta allt persónulegt' hjaðna niður. Eg hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að Clarkson hefur aldrei verið heppilegur maður til að láta hann eirian hafa um- sjón með sjúkradeild að næturlagi. Arabinn var að deyja og þurfti á sérstakri hjúkrun að halda og dr. Everest hafði gefið sín fyrirmæli samkvæmt því. En það sem hlauzt af mótfyrirskipunum yðar, var eina og þér vitið mjög alvarlegt. Það setti sjúk- lingana og nokkuð af starfsfólkinu í raunverulega lífshættu." Charles veitti því órólegur eftirtekt, hvernig barm ur yfirhjúkrunarkonunnar þandist út, hann fór að hugsa um hvað hann gæti þanizt meira út án þess að brjósthöldin slitnuðu utan af henni. Það var eins og að horfa á flóðgarð augnablikinu áður en stíflan brestur. Yfirhjúkrunarkonunni tókst að halda sér í skefj- um meðan Charles talaði, en þá brauzt straumur- inn fram. „Það er ef til vill ekki undarlegt," sagði hún óða- mála“, að karlmennirnir komi til mín eftir fyrir- mælum þó ég vildi gjarnan vera laus við það. Eg er ekki að segja neitt, sem varpar skugga' á dr. Everest þó að þér séuð ekki fyrr kominn í nýju stöðuna en hún hleýpur með umkvartanir sínar til yðar. En ég veit vel hvað hún hefur í hyggju þó að ég geti ekki gert svo lítið úr mér að nefna það. Að því öllu munuð þér k'omast nógu snemma ef þér á annað borð verðið hér svo lengi. Það er satt að venjulega læt ég Maclean hafa aukavaktina en hvað gat ég gert við þvi, þó að móðir lians væri að deyja einmitt þegar við fengum nýjan hjúkrunarmann. Það er gert allt of mikið fyrir þennan blökkulýð. Hversvegna sérstaka næturvakt þegar ég hef eins fámennt starfslið og allir vita. Meðmæli Clarksons voru í góðu lagi og þér þurfið ekki annað en að líta á axlirnar á honum til þess að sjá að hann er maður fyrir hvaða tveim vitleysingum sem er“. „Og gætið að því, að ég gaf engar fyrirskipanir. Sendið ef þér viljið eftir Clarkson og látið hann voga sér að segja í mína áheyrn, að ég hafi sagt honurn að vera einum án aukavarðar. Eg get hafa sagt við hann eitthvað á þessa leið: „Jæjá, Clark- son, mér sýnizt þér hafa allt útlit til að geta verið einn á vakt í þessari sjúkrastofu sem hver.ri annarri. Jafnvel þótt þér hafið *ekki ennþá verið settur til að gæta hinna óðu að næturlagi — verðið þér þó að vera til taks í viðlögum. Eitthvað líkt þessu kann að hafa hrotið af vörum mér — og vcrið tekið al- varlegar en ég ætlaðist til. En ég gaf enga skrif- legá fvrirskipun móti aukaverði. Allar fyrirskip- anir á þessum spítala eiga að koma skrifaðar. Eg skrifaði enga fyrirskipun.” Yfirhjúkrunarkónan horfði sigri hrósnndi á Charles. Hann lmfði hugboð um, að þótt hún hefði ekki beinlínis ætlazt til, að neitt kæmi fyrir í sjúkra deild Jane síðustu vaktina, þá hafi hún séð fram á þann möguleika. „Ábending frá yður er vissulega skipun?“ sagði Charles hógværlega. „Er þetta ekki rétt?“ Yfirhjúkrunarkonan sefaðist. „Enginn gæti tekið sér það nær en ég, að þér skylduð úlnliðsbrotna, dr. Drummond“, sagði hún hátíðlega.,,Það hefði liðið j’fir mig, væri ég ekki steinhissa, varð mér að orði við systur Stanton næsta morgun. Auðvitað eruð þér alveg nýr í starfinu og vitið ekki, hvaða sjúkl- ingar það eru, sem þarf að hafa gætur á. En engu að síður, hefði ég haldið — þar sem nú dr. Everest var á staðnum -— að það hefði verið hægt að halda svarta Jerry kyrrum á sínum stað. Ekkert þessu líkt hefur nokkurntíma komið fyrir að ifíér ásjáandi, get ég fullvissað yður um. Ekki liggja sjúklingarnir kyrrir í rúminu, og ef þeir fá æðisköst þá brjótast þeir um undir ábreiðunum. Það er ekki að undra, þó að dr. Everest reyni að skella allri skuldinni yfir á mig. En það er eins og ég hefi alltaf sagt og mun alltaf segja — að hafa kvenlækni á geðveikraspítala er að freista forsjónarinnar. Það gladdi mig að heyra, að þér eruð mér sammála". mmhm&k \ inir JFétnrs litía seg$a sögnr Búmteppið ,,En aí hverju hleypa menn ekki hreinu loíti inn í verksmiðjuna?" greip eld- spýtnastokkurinn íram í. „Hreint loít er besti vinurinn, sem allir eiga. Það læknar þá, sem veikir eru og kemur í veg íyrir sjúkdóma. Þetta vita mennirnir líka. Af hverju sjá þeir þá ekki um, aö hreint loft komist inn í verksmiðjuna og eyði þess- ari eitruðu gufu?" „Þannig spurði ég líka", svaraði tepp- ið, ,,og einn veggurinn gaf mér einu sinni svar við spurningunni. Hann sagði, að þegar verið var að byggja verksmiðjuna, þá hafi eigandinn aðeins hugsað um það að hafa allt eins ódýrt og mögulegt væri. Nú er það svo miklu ódýrara að hafa fáa glugga og litla loftræstingu og þessvegna var byggt svona. Verksmiðjueigandinn er aldrei neitt í þessari loftlausu verksmiðju og andar ekki að sér þessari eitruou gufu, og honum er alveg sama, hvernig verka- mönnunum líður". „Hver byggði verksmiðjuna?" spurði eldspýtnastokkurinn. „Verkamenn", svaraði teppið. „Af hverju eru að spyrja að því?" „Og þessir verkamenn vissu, að félag- ar þeírra myndu veikjast og jafnvel deyja, ef glugga og loftræstingu vantaði?" „Líklega hafa þeir viíað það". „Og þeir feyfa sér að byggja svona hús? En hvað þeSsir menn eru heimskir og ein- j kénnilegir!” sagði kolamolinn. „Eg veit ekki sagði teppið og var| að hugsa sig um, en flaskan greip frámj í og sagði: „Þetta er allt skipulaginu að kenna".

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.