Þjóðviljinn - 11.05.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.05.1947, Blaðsíða 8
Skozkur listmálari læhir í ljós hrifningti sína yíir iþlÓÐVILIIN áhuga íslendinga 1 XJm ])essar mundir heldur skozkur listmálari Waistel að uafni, sýningu í Ustamanna- skálamim. Sýning Jfessi er iyrir margra hluta sakir atHygfi's- veí ður viðburður í listaiíi'i okii- ar. Hér gefst olfkur kostur á aö kynnast verkum unj»s erlends listamanns, sem að áliti dóm- bærra nianna býr yfir ágætum hæfileikum. Fólki mun því leilva forvitni á að kynnast nokkuð manninum sjálfum, æfiferli hans og viðhorfum til listanna. í eftirfarandi grein er að finna ýmsar upplýsingar um Waistel, skozka iistmálarann, sem lield- ur sýningu í Listamannaskáian- um um þessar mundir. Waistel. Waistel er ungur maður, að- eins 26 ára; ættaður frá borg- inni Ayr í Suðvestur- Skotlandi. Nám hefur hann m.a. stundað við Edinburgh College of Art — einn kunnasta listaskóla í Bretlandi. Herþjónusta í styrjöldinni batt í svipinn endi á námsferil Waist els. Síðustu mánuði stríðslns dvaldist hann í London og á því tímabili gerði hann ■ nokkr- ar af teikningum þeim, sem eru á sýningunni. (Teikningar þess- ar hanga á veggnum til hægri þegar gengið er inn í skálann. öll önnur verk á sýningunni eru jjerð hér á landi). Kynnist Islendingum í London í London komst Waistel í! kynni við marga Islendinga þ. j .á. m. Björn Th. Björnsson, sem leggur stund á listasögu og list fræði. Viðkynning þeirra vakti áhuga Waistels á íslandi og í- búum þess, og þar kom að hann brá sér hingað norður ásamt konu sinni. Þetta var í ágúst- mánuði sl. sumar, eða fyrir 9 mánuðum, og Waistel er hér enn. Þegar fréttamaður Þjóðvilj ans spurði listamanninn, hvenær hann liyggst fara héðan aftur, svaraði hann að það mundi ekki verða fyrr en á hausti kom- anda — í fyrsta lagi. Nýjabrumið af sköpuninni Gróðurinn hafi enn ekki tam- ið línurnar. ,,Það mætti kannski orða það svo, að hér sé nýja- brumið enn elcki farið af sköp- uninni.“ . Waistel lætur í ljós hrifningu sína yfir myndlistaráhugá Is- lendinga; segir, að áliuginn sé miklu meiri hér á landi en t. d. í Englandi og Slcotlandi. Það sé því leitf til' þess að vita, hvé ták markaða möguleika íslenskur almenningur hefur að kynnast inntaki myndlistarinnar og þroska smekk sinn. F arandsýningar Tíðindamaðurinn spurði, hvort hann teldi, að það mundi reyn- ast mjög kostnaðarsamt að fá hingað farandsýningar frá öðr- um löndum t. d. frá Frakklandi, og gefa fólki þar með nokkra hugmynd um það, sem er að gerast í listalífinu úti um heim. Ekki kvaðst hann geta svarað þessu, en benti hinsvegar á, að slíkar sýningar eru stöðugt á ferðinni úr einu landi í annað og þá þyrfti það sennilega ekki að hafa teljandi mikinn auka- kostnað í för með sér, þótt við- komulöndum væri fjölgað um eitt. (Væri fróðlegt að vita, hvort Fél. ísl. myndlistarmanna eða Menntamálaráð hafa athug- að þann möguleika, sem hér er bent á ). Viðvíkjandi kostnað- inum við farandsýningar minnt- ist Waistel á það, að síðan stríði lauk hafi í London verið haldn ar sýningar á verkum ýmissa hinna þekktustu frönsku meist- ara svo sem Picasso, Matisse, Braque og Rouault og aðgang- ur að’ þessum sýningum vár að- eins örfáir aurar. Gæti þetta bent til þess, að kostnaður væri ekki mikill, þegar öllu væri á botninn hvolft. Aukinn áhugi fyrir myndlist í Bretlandi Waistel segir, að éhugi manna í Bretlandi fyrir myndlist og tónlist hafi aukizt mjög á stríðs árunum og sé nú margfalt meiri en hann var fyrir stríð. Ástæð- an til þessa mun fyrst og fremst vera sú, að í stríðinu hóf ríkið sjálft mikið og víðtækt starf til að efla viðgang þessara list- greina. Til dæmis gekkst það stóðu margar hverjar eingöngu af verkum hinna yngri manna, og vio val verkanna var ekkert tillit tekið til peningalegrar vel- gengi listamannanna heldur að eins sannra listhæfileika. Vald- höfunum var það nefnilega ljóst hvern móralskan stuðning hin stríðsþjáða þjóð gat sótt í fagr ar listir. Verk hans Hér verður ekki dæmt um listaverk Waistels; það heyrir 1 öðrum vettvangi til. Hinsvegar skal það fullyrt að allir munu eitthvað sækja sér til góðs á sýningu hans. Eins og fyrr segir, mun þessi ágæti erlendi íistamaður dvelj- ast hér hjá okkur frarn til j hausts, að minnsta kosti; og j svo mikla ánægju hefur hann | af dvölinni að hann er staðráð- inn í því að dveljast liér síðar meir bæði oft og lengi. Veri hann velkominn, hvenær sem er. Skemmtisfsður- inn Tivoii opnað- ur i Skemmtistaðurir; i Tivoli verð ur opnaðúr í kvöld. Komið hef- ur verið upp nýjum skemmti- tækjum s. s. liriUgekju nieð 16 hestum, bártíáhtingekju með jeppum og bifhjólum og skot- bökkum fyrir Véibýssur og skammbyssur. Aðgangseyrir hefur verið lækk aður úr 3 kr. ofan í 2 kr. fyrir fullorðna, en verður 1 kr. fyrir börn á 5-—12 ára aldri og ó- keypis fyrir börn innan 5 ára aldurs, eins og áöur. Nína Sæmundsdóttir með eina af höggmyndum sínum. Boðið heim í sumar Rikisstjórnin og Þjóðrækn- isfél. hafa boðið ungfrú Nínu Sæmundsdóttur myndhöggv- ara heim til Islands í sumar til tveggja vikna dvalár. Er þetta heimboð í framlialdi af heim- boðum til Vestur-Islendinga er hófust s.l. sumar. Ungfríi Nína Sæmundsdóttir hefur dvalizt í Los Angeles og mun vera þar allkunn sem myndhöggvari. Kunningjar hennar hér telja víst að hún Waistel lætur ákaflega vel yf- ir dvölinni hér. Það, sem hann rómar einna mest er hið tæra ioft og litbrigða náttúrunn- ar. Einnig segist hann hafa orðið fyrir miklum áhrifum af því afli, sem býr í formum lands Jagsins. Loftleððir hefja ferðir til Norður- landa og Englands í næsta mánuði Loftleiðir h.f. fá Skymasterflugvél ;í næsta mánuði og munu þá liefja í'arþegaflug til Norðurlanda, Englands og e. t. v. fleiri Evrópulanda. I>essa mynd inálaði Waistei af Birni Th. Björnssyni í London. fyrir miklum fjölda farandsýn- inga, sem voru sendar úr einni borg í aðra, stórar jafnt sem smáar. Sýningar þessar saman- Eins og almenningi er kunn- ugt, keypti Loftleiðir h.f. ,,Skymaster“-flugvél í Banda- ríkjunum s.l. vor. Flugvél þessi var áður notuð til hermanna- flutninga og þurfti því að breyta henni allmikið og inn- rétta hán'á til farþegaflugs, svo að hún uppfyllti ströng- ustu kröfur, sem gerðar < eru um þessar flugvélar í U. I S.A. til millilandaflugs. Á áliðnu sumri kom það í I ljós að fyrirtæki það sem sam- ið var við um að framkvæma breytinguna, gat ekki staðið við samninga um að afhenda vélina fullbúna, og varð þá að semja við nýja aðila um það sem eftir var af verkinu, sem var mjög miklum erfileikum bundið, vegna þess hve erfitt var að fá ýmislegt af því sem til breytingarinnar þurfti frá Douglas verksmiðjunum, nema með löngum afgreiðslufresti. Nú er breytingu flugvélar- innar það langt komið, að vissa er fengin fyrir því að hún geti komið hingað til landsins, full- búin, fyrst í júnímánuði. Þó enn sé ekki fyllilega á- kveðið um ferðir vélarinnar í framtíðinni, þá mun hún strax hefja farþegaferðir til Norður- landa, Englands og ef til vill annarra Evrópulanda. Félagið mun því fara að taka á móti pöntunum á fari, hjá þeim sem hafa í huga að ferð- ast til þessara landa á þessu sumri. Fargjöldum mun verða mjög í hóf stillt, þar sem í vélinni eru sæti fyrir 46 far- þega og hefur hún því mikla afkastamöguleika. Þess skal getið, að flugvélin mun hafa að setur á Reykjavíkurflugvellin- um. Skrifstofa Loftleioar h.f., Hafnarstræti 23, gefur allar nánari upplýsingar. muni halda hér sýningu á verk um sínum meðan liún dvelur hér. Samsöngur Karla- kórs iðnaðar- manna í dag' heldur KARLAKÓB IÐNAÐARMANNA fyrsta sam söng sinn í Gamia Bíó i'yrir styrktar f élaga. Á söngskránni verða meðal annars: „Uppruni Eldsins" eft er Sibelius og þáttur úr söng- leiknum „Ödípus konungur" eft ir Igor Stravinskv. Mun marga eflaust fýsa að heyra hið fyrsta söngverk, sem flutt hef- ur verið hér eftir þennan mikla frömuð nútíma tónlistar. Einsöngvari er Birgir - Hall- dórsson, en undirleik annast Anna Pjeturss og Björn R. Ein- arsson. Söngstjóri kórsins er Róbert Abraham. Opinber samsöngur kórsins verðúr á þriðjudag kl. 7,13 e. h., og eru aðgöngumiðar seidir í Bókaverzlun Siðfúsar Eymunds sonar og Bókabúð Lárusar Blöndals. Jóhann Svarfdælingnr heldur skemmtun Jóhann Svarfdælingur - (ís- lenzki risinn) segir ferðaþaRl.i og sýnir myndir i Tjarnarbíó í dag kl. 1,30 e. h. Meðal þeirra mynda, er hann sýnir í dag er mynd, sem ekki hefur verið sýnd áður. Er það mynd • af Kristjáni X. Danakonungi og fjölskyldu hans. Aðgöngumið- ar eru seldir við innganginn og kosta 5 krónur fyrir böra og 10 krónur fyrir fullorðna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.