Þjóðviljinn - 01.06.1947, Qupperneq 1
12. árgangur.
Sunnudagur 1. júní 1947
119. tölublað
Lagaákvæðin um að faka 99sftIdarkiBÍinnf? vora
án sainvlnnii vid sfávarnÉveginn og ern ofraiiskvæinanleg
AlþýðusamÍMm d Norðurhtnds shorar á verhaiýössmniöh-
in o§ útvegsmenn aö sameinast wm 50 hr. reröhröiuna
og haráttu gegn töhu •»síídarkúisinsm~
Flugslysið í Héðinsfirðí:
Sjðnaryoltar aí slysstaðnum
telja víst ú íólkil bafi látizt
samstundis
Að Jíví er fregn frá Ólafsfirði hernuli í gær-
morgun, virðast vera skiptar skoðanir um það hvort
líkin sem fundust hjá flugvélarflakinu í Hestfjalli
hafi verið 25 að tölu eða aðeins 24, eins og fyrst var
álitið. Ólafsfirðingar, sem komu á slysstaðinn og
fluttu líkin til Ólafsfjarðar með vélbátnum, segja
flugvélina liafa lent í klettaskoru, í innan við 100
m. hæð frá sjó, og ha-fi hún ekki hrapað neitt eftir
áreksturinn. Var flugvélin í pörtum eftir sprenging-
una og líkin mikið sködduð. Þykir þ\i sýnilegt að
allir sem með henni voru liafi látizt strax er árekst-
urinn varð.
Þá telja sjónarvottar, að ekki sé hægt að ráða
það af ásigkomulagi vélarflaksins í hvaða átt hún
hafi flogið þegar slysið varð.
Vélbáturinn Egill, en skipstjóri á honum er
Jón Sigurpálsson í Ólafsfirði, náði Iendingu í svo-
kölluðum Vogum undir Hestfjalli og var skammt
þaðan að flakinu.
I gærmorgun var farið afur á slysstaðinn frá
Ólafsvík til að sækja farangur sem skilinn var eftir
á staðnum þegar líkin \oru sótt.
Eftir því sem nær dregur síldveiðimum verða
stöðugt háværari og eindregnari þær raddir sjc-
manna og úivegsmanna, að þeir geti ekki sæti sig
við lægra síldarverð í sumar en 50 kr. á mál og til-
svarandi saltsíldarverð.
S]ómenn og útvegsmenn eiga íyllstu réttiæt-
iskröfu á þessu verði. Ef miðað er við sarm-
virði á síldarafurðum þessa árs væri'hægt að greiða
a. m.k. 60—70 kr. fyrir málið, en meira að segfa
með því verði sem ákveðið hefur verið á. síldarSýs-
inu og er lægra en sannvirði, mun hægt að greiða
50 króna verð.
^§kilnin
haiidritniiiiiii
sÉFax?f
segir Ixel Larsen
Formaður danska Kommún-
istaflokksins, Aksel Larsen,
lét þá von í ljós í urnræð-
um í Ríkisþinginu í gær að
dönsk yfirvöld sæju sóma
sinn í að afhenda Islending-
um handrit fornsagnanna
sem fyrst. Aksel Larsen hef
ir alltaf verið ötull forvígis
maður þess, að íslendmgum
væri skilað handritunum. í
vor hefir hann ritað um
handritamálið í blað komm-
únista, „Land og Folk“,
Yfir 160 farast i
flugslysum
Síðustu tvo sólarhringa hafa
yfir 160 manns farist í flugslys
um víðsvegar um heim. Tvær
fjögra hreyfla Skymaster far-
þegaflugvélar hafa farizt í
Bandaríkjunum, önnur með 38
manns á la Guardiaflugvellin-
um við New York og hin með
53 menn í Maryiand. Bandarísk
herflugvél með 40 manns rakst
á f jallshlíð nærri Tokyo í Japan
og fórust allir og önnur fórst
í Alaska og 3 menn með, henni
en 12 komust af. Loks fórust
4 menn í tveim flugslysum í
Argentínu.
gegn dönskum fræðimömium,
sem ekki vilja að handrit-
unum sé skilað.
Ríkisstjórnin mun reyna aö*
hanga í lagaákvæðinu um
,,síldarverðskúfinn“, en sam-
kvæmt því á ekki að hækka
síldarverð nema í ca. 40 kr.
Þessi lagaákvæði voru sett
án þess að um þau væri leitað
samvinnu við sjómenn og út-
gerðarmenn og meira að segja
gegn mótmælum þeirra. Sósíal-
istaflokkurinn barðist einn gegn
því lagaákvæði á * þingi. En
mótmælaaldan gegn ranglæt-
inu sem í því felst að svipta
síldveiðimenn réttmætum arði
af erfiði sínu er enn að rísa, og
er orðin svo víðtæk meðal sjó-
manna og útvegsmanna, að
hún hefur sprengt af sér öll
fiokksbönd.
Eftir tvær óvenjurýrar síld-
arvertíðir láta sjómenn og út-
vegsmenn ekki bjóða sér 40 kr.
verð fyrir síldarmálið í sumar,
þegar vitað er að búið er að
selja síldarafurðir ársins fyrir
verð sem leyfir miklu hærra
verð á hráefninu.
Stofnþing Alþýðusambands
Norðurlands samþykkti ein-
róma ýtarlega ályktun um
sjávarútvegsmál og var í þessi
ályktun um síldarverðið:
„Alþýðusamband Norður-
lands vill beita sér fyrir því, að
síldarútvegurinn fái það verð
fyrir afla sinn, sem markaður-
inn fyrir síldarafurðirnar leyf-
ir. Bræðslusíldarverðið verði á
komandi sumri ekki læg/a en
a. m. k. 50 kr. fyrir málið og
saltsíldarverð tilsvarandi. Heit-
ir þingið á öli verkalýðssamtök
landsins og út'gerðarmenn að
skipa sér sameiginlega um þá
réttmætu kröfu.“
Bak við þessa samþykkt stend
ur ekki aðeins öll verkalýðs-
Framh. á 7. síðu.
ríkisstjórnarinnar
■ivikisstjórnin segist geí':i al-1
menningi miklar kjarabæíur
með því að „borga ríiður“ víai-
töluna yneð íi sem er tekiö af
almenningi með toilum og skött
um. Sú röksemdafærsla minnir
einna helst á verknað þann sem
lýst er á myndinni!
Paul Robeson
talar við
Trutnan'
Paul Robeson, söngvarinn
heimsfrægi, sem hefur num-
ið staðar á liinum glæsilega
iistferli sínum til þess að
helga sig baráttunni gegn
kynþáttaofsóknum, gekk ný-
lega á fund Trumans forseta
í Hvíta húsinu og lagði fyrir
hann eftirfarandi Itröfur fyr-
ir hönd hinna svörtu sam-
ianda sinna: Fangelsun
allra þeirra sem hafa tekið
þátt í aftökum án dóms og'
laga, atkvæðagreiðslu um
lög gegn slíkum morðum,
bann við þingsetu þeirra
þingmanna, sem einnig eru
meðlimir Ku Klux Klan.
— Ég hef samúð með yð-
ur, sagði Truman, en a. .
Robeson greip fram í: —
Á síðustu vikum hafa átt sér
stað 43 morð á svertingjum,
og ekki einn einasti hefur
verið tekinn fastur af þeim
ástæðum. . . .
— Já, en engir aðstand-
endur hafa lagt fram kvört-
un.
— Það er vegna þess að
þeir vita að þeir yrðu sjálfir
píndir í hel á eftir.
Þegar þangað var komið
æstist Truman. Robeson hélt
ró sinni:
— Herra forseti. Ef þér
gerið ekki nauðsynlegar ráð-
stafanir, munu kynsystkini
mín grípa til sinna ráða.
— Herra Robeson! Þetta
hljómar eins og uppreisn!
Herra Robeson, mér geðjast
ekki að þessu. Þér eruð ekki
á réttri leið. Bandaríkin eru
í dag síðasta hæli frelsisins.
— Herra forseti. Her-
menn vorir hafa barizt fyrir
réttinum til frelsis. Þeir
glæpir, sem nú gerast um
öll Bandaríkin, eru ekki ó-
svipaðir þeim sem felldur
var dómur yfir í Núrnberg. .
Samtalið hét lengi áfram
á þennan hátt, en Paul Robe
son fékk engu framgengt.
Þegar hann kom út úr Hvíta
húsinu til vina sinna sem
biðu hans sagði hann: ■—
Þetta var slæmt, mjög
slæmt samtal.....
Hin einstæða söngrödd
Pauls Robesons gæti tryggt
honum hið áhyggjulausasta
líf. En hann hefur kjörið
að berjast gegn kynþáttaof-
sóknum. Hann er heiðurs-
doktor við Hamilton háskól-
ann, og þegar hann var út-
nefndur sagði dr. Cowley:
„Paul Robeson er bandariskt
mikilmenni, og iíf hans er
glæsiiegt dæmi um mannúð
og mikilleik hinna lýðræðis-
sinnuðu Bandaríkja.“
Æ, F, R,
Félagar! Farið verður í
feroalag laugard. 7. júlí, far
ið verður á Hoffmannaf'öt
við Meyjarsæti. Þeir ro:ii
\ ilja talia þátt í þcssari fc •
cru beðnir að láta skrif t
una Þórsg. 1 vita sem alla
fyrst. Nánar augl. síðar.
Ferðanefndin.
o