Þjóðviljinn - 14.08.1947, Side 1
Pétur G. Guð-
mundsson
12. árgangrur.
Fimmtudagur 14. ágúst 1947.
191. tölublað.
Fulltrúi PóUands í örvgggisrá&inu igsir yfir fyllsia stuðtv
ingi Péllands ríð kröfur Eggpta
Pétur G. Guðmundsson, einn
ágætasti brautryðjandi verka-
lýðshreyfingarinnar á íslandi,
lézt í gærmorgun, eftir þunga
legu, nærri 68 ára að aldri.
Þessa vinsæla alþýðuleiðtoga
og baráttumanns verður minnzt
hér í blaðinu innan skamms.
Ný stjórnarskrá
fyrir Alsír
Undanfarna daga hefur ver-
ið til umræðu í franska þinginu
frumvarp stjórnarinnar um
nýja stjórnarskrá fyrir Msír.
Samkvæmt því mun Aísír fá
takmarkaðn sjálfstjórn. Hérað-
inu verður stjórnar aí sex
manna ráðuneytí,. verða 3 kosn
ir af löggjafarsamkundu þess
en 3 skipaðir af landsstjóra
Frakka. Til afgreiðslu mikil-
vægra mála er krafist samþykk
is 2/3 ráðherranna.
Forsætisráðherra Egyptalands, Nokrashi4
pasja, krafðist þess á fundi öryggisráðsins í
gær, að allur brezkur her í Nílardalnum og
brezkir embættismenn yrðu á brott úr land-
inu fyrir 1. sept. næstkomandi.
í svari til brezka fulltrúans, Sir Alexand-
ers Cadogans, ítrekaði egypzki forsætisráð-
herrann þau rök þjóðar sinnar að dvöl brezks
hers í landinu skerti fullveldi hennar og sjálf-
stæði, og samrýmdist ekki sáttmála samein-
uðu þjóðanna.
Fulltrúi Póllands í öryggisráðinu lýsti yf-
ir algerum stuðningi við kröfur Egypta, og
taldi tíma til þess kominn að viss stórveldi
hættu að halda löndum í öðrum heimsálfum
sem nýlendum eða hálfnýleiidum.
Sir Alexander Codogan svar-
aði rökum egypzka forsætisráð
herrans með því að leggja á-
herzlu á þá blessun, sem brezk
yfirráð hefðu fært Egyptalar.di.
Þegar Bretar fengu þar fyrst
yfirrá.ð, ríkti þar óskoruð harð
stjói'i og einræði, sagði Sir
Alexanaer. Brezk yfirvöld hefðiv
komið á iögum pg reglu í land
Frummrpið um uukin röid
brezku styórnmrinnar tsfgreitt
Brezka þingið í „sumarleyfi“ til 20. október.
— Talið að dollaraláninu verði öllu eytt fyrir
þann tíma
Brezka þingið hætti störfum og hóf tíu vikna „sum-
arfrí“ í gær, eftir að lávarðadeildin liafði samþykkt frum-
varpið um auliin völd lianda ríkisstjórninni vegna vand-
ræðanna í efnahagsmálum.
inu, afnumið þrælasölu, er þar
hefði tíðkazt, og tvívegis varið
landið fyrir þýzkum árásum.
Nú ríkti friður og regla í
Egyptalandi, og væri það ekki
sízt að þakka stjórn Breta þax
og áhrifum.
Kröfur egypzku stjórnarinnar
um sameiningu Súdans og
Efyptalands svaraði Codogan
því, að Bretar væru eindregið
mótfallnir þeirri lausn, og ættu
Súdanbúar að fá þess kost að
ákveða sjálfir stjórnarfar sitt
og stjórn.
Aðeins fulltrúar Egyptalandc
og Bretlands hafa tekið þátt í
umræðunum í öryggisráðinu,
þar til á fundi ráðsins í gær, að
fulltrúi Pólllands lét í ljós álit
stjórnar sinnar í málinu.
Lýsti pólski fulltrúinn yfir
fyllsta stuðningi Póllands við
kröfur Egypta á hendur Bret-
um.
Frsmhald á 7. siðti
Bæði í lávarðadeildinni og
fulltrúadeildinni komu fram
raddir og tillögur frá stjórnar-
andstöðunni um að óvarlegt
væri að fresta þinghaldi til 20.
okt. þar sem sýnilegt væri að
fyrir þann tíma yrði dollaralán
ið uppurið og gæti af því tilefni
risið vandamál, sem ekki væri
rétt að ráðið yrði fram úr án
þess að þingið væri að spurt.
Þessar tillögur voru felldar.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
töldu með öllu óþarft að gera
ráðstafanir til að hafa sumar-
leyfi þingmannanna styttra en
tíu vikur. Stjórnin væri fylli-
lega fær um að ráða fram úr
vandamálum, í sambandi við
dollaraskortinn, með því aukna
valdi, sem herini hefði nú verið
fengið.
Framhalc á 7. síðu
índrersku
ríkin Igsa yfir
sjálfstseði í
dtsg
í dag, 15. ágúst, verð
ur lýst yfir sjálfstæði
indversku ríkjanna
tveggja, Indlands og
Pakistsui, og verða þau
til bráðabirgða sam-
veldislönd innan
brezka heimsveldisins,
samkvæmt samkomu-
laginu er leiðtogar Ind-
verja gerðu við brezku
stjórnina um valdaaf-
sal Breta í Indlandi.
Snsáft skammtar
hrunstjérnin
kaffið
Hin nýskipaða viðskipta-
pefnd hefur ákveðið skömmt-
un á kaffi frá og með degin-
um í dag, 14. ágúst.
Skal stofnauki Nr. 10 á nú
gildandi matvælaseðlum
gilda sem innkaupalieimild
til 1. okt þ. á. fyrir 375
grömmum af brendu og möl-
uðu kaffi eða 450 grömmum
af óbrenndu kaffi.
Frá skipaskurð-
inum Moskva —
Volga,,
er gert hefur
Moskva á fáum
árum að einni
mestu hafnar-
borg Sovétríkj-
anna. Flutningar
eftir þessum
skipaskurði eru
mikilvægur liður
í endurreisnar-
framkvæmdum
hinnar nýju
fimm ára áætlun-
>ir á stóru lands-
svæði.
Ráðstefna flme-
ríkuríkjanna um
hermáiasamvinnu
í Rio de Janeiro, höfuðborg
Brasilíu, er í þann veginn að
hefjast ráðstefna stjórna Ame-
ríkuríkjanna um samræmingu á
„hervörnum" álfunnar.
Marshall, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lagði af stað í
frá Washington til ráðstefnu
þessarrar, en hún er haldin að
frumkvæði Bandaríkjastjórnar.
20 þúsund þýzkar
konur til Bretlands
Tuttugu þúsund þýzkar heim
ilislausar konur flytja á næst-
unni til Bretlands og fá þar
vinnuleyfi í vefnaðariðnaðinum,
í sjúkrahúsum, þvottahúsum og
sveitavinnu, samkvæmt samn-
ingi er brezka verkamálaráðu-
neytið hefur gert við alþjóðlegu
flóttamannastofnunina.
í stuttu máli
■ - . y,
Kjarnorkumálanefnd sam-
einuðu þjóðanna situr nú á
fundi í Lake Success. Nokkur
orðaskipti urðu í gær milli
franska fulltrúans og fulltrúa
Sovétríkjanna.
I gær var samþykkt í franska
þihginu, að segja upp 300,000
af starfsmönnum ríkisins upp
þjónustu.
Belgíska þingið liefur nú
samþykkt tollabandalagið við
Holland- og Luxemborg.
Ciayton, aðstoðarmaður
Marshalls, er enn á viðræðu-
fundi með sendiherrum Banda-
ríkjanna í London og París.
Ástralska sendinefndin á við-
skiptaráðstefnunni í Genéve
hefur fengið fyrirskipun um
að hefja samningaumleitanir
við fulltrúa Bandaríkjanna þar
um viðskipti milli landanna.
Þeim starfsmönnum ítalska
ríkisins, sem ekki vilja viður-
kenna stjórnarskrá lýðveldis-
ins verður vikið úr starfi.