Þjóðviljinn - 14.08.1947, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJmN
*
Fimmtudagur 14. ágúst 1947.
---------,------------------
þJÓÐVILJINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð: kr, 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
k---------------------------------------------------/
Hin dauða hönd s'em skapar krun
og sandræSi
Meðal íslenzkra stjórnmálamanna er Magnús prófes-
sor Jónsson kunnastur fyrir andstöðu gegn hvers konar
skipulagningu: I hvert sinn er íslenzkt löggjafarvald hefur
stigið spor í áttina til skipulagningar, eða aukinna af-
skipta ríkisvaldsins af almanna hag, hefur um langt skeið
verið Magnúsi að mæta, sem ótrauðum málsvara hins ó-
hefta einkaframtaks. Kunn er barátta hans gegn lögum
nm verkamannabústaði og gegn lögum um alþýðutrygg-
ingar o. fl. o. fl.
Það er ekki verið að benda á þessar staðreyndir hér
til að varpa rýrð á Mágnús Jónsson, hann hefur að þessu
leyti verið í fyllsta samræmi við stefnu síns flokks, og ef
til vill haldið henni skýrar fram á þessu sviði en flestir aðr-
ir. Svo kemur að því að Sjálfstæðisflokkurinn fær aðstöðu
til að stjórna valdamestu skipulagsnefnd, sem sett hefur
verið á Islandi, hinu nýbakaða f járhagsráði, þá er Magn-
ús valinn til forustunnar, maðurinn sem ekkert tækifæri hef
ur látið ónotað til að sýna andúð og andstöðu gegn hvers
konar skipulagningar.
Hvað veldur slíku vali?
Vill Sjálfstæðisflokkurinn með þessu móti tryggja sér
að þessi skipulagning fari svo illa og ömurlega úr hendi að
allir hljóti til hennar að vitna þegar talað er um eitthvað
sem með endemum má telja. Það væri ef til vill ekki svo
heimskulegt herbragð í baráttunni gegn skipulagningu og
fyrir hinu ótakmarkaða og óhefta einkaframtaki, en ein-
mitt þessi barátta er rauði þráðurinn í starfi og stefnu
flokksins. Ef þetta er tilgangur Sjálfstæðisflokksins þá
hefur hann valið prýðilegan mann til forustu í fjárhags-
ráði og þá svara fyrstu framkvæmdir ráðsins til hinna
fyllstu óska flokksins. •
Fjárhagsráð hefur sem sé hafið starf sitt með þeim
endemum að furðu gegnir. Sönnunarmerki sjást þegar á
nær öllu athafnalífi þjóðarinnar, ýmsar hinar mikilvæg-
ustu starfsgreinar þess mega heita stöðvaðar. Nú þegar
mest ríður á að haldið sé áfram húsabyggingum, af fullum
krafti, hefur fjárhagsráð svo að segja stöðvað allar bygg-
ingarframkvæmdir.
Hvað lengi þessi stöðvun stendur skal ósagt látið, en
verði framhaldið af starfi þessa ráðs líkt og byrjunin, má
búast við langri stöðvun. Sannleikurinn er sá að eins og
stendur-er allmikið til af byggingarefni í landinu. Einsætt
er að beina þessu byggingarefni fyrst og fremst til þeirra
íbúðarhúsa sem eru í smíðum, annarra bygginga sem nauð-
synlegar eru atvinnulífinu og eins stendur á um. Til þess-
ara bygginga á að veita efnisleyfi umsvifa- og tafarlaust,
sérhver töf á slíkum leyfum er ósæmileg. Öðru máli gegn-
ir um framkvæmdir sem enn eru ekki hafnar, þar ber að
sjálfsögðu að haga leyfisveitingum í samræmi við vand-
lega gerða heildaráætlun, en hver væntir þess að f járhags-
ráð undir stjórn Magnúsar Jónssonar geri slíkar áætlanir?
Það er nú komið á daginn, sem þingmenn sósíalista sögðu,
er lögin um fjárhagsráð voru til umræðu í vetur, í fram-
kvæmdinni sýna þau alla þá galla sem fylgt geta skipu-
lagningu en enga kosti hennar.
Tæki sem fjárhagsráð, í höndum andstæðinga hvers
konar skipulagningar verður ekkert annað en dauð hönd
á athafnarlífi þjóðarinnar, hönd sem skapar hrun og vand-
jræði, og stefnir sjálfstæði þjóðarinnar í beinan voða.
SÆMUNDUR
! NOKKUR I
VONDU SKAPI
Sæmundur nokkur Ölafsson
hefur skrifað mér bréfkorn ver-
andi í mjög vondu skapi. Eg
ætla að birta bréfkorn þetta.
Munu menn kannske að loknum
lestri þess álíta, að ég hafi af
illgirni hleypt Sæmundi á prent.
En það er misskilningur. Mér er
hreint ekki illa við Sæmund;
aðhyllist bara hina ágætu kenn-
ingu um málfrelsið. „Málfrelsið
lifi“. Það á að leyfa mönnum
að. verða sér til skammar í
blöðum, ef þeir endilega vilja.
Gef svo Sæmundi orðið:
★
„Herra ritstjóri.
Síðastliðinn laugardag (skrif
að í hinni vikunni) birtuð þér
í pistlum yðar undarleg ummæli
um Dýrasýninguna í Örfirisey
eftir „Stramma.“
Við ummæli þessi hafið þér /
ekkert að athuga þar sem þér
hafið ekki séð sýninguna að eig-
in sögn.
I tilefni af því, mælist ég til,
að þér birtið eftirfai-andi. •
Vill „Strammi“ gera grein fyr
ir því á hvern hátt „sýningin
er til skammar" og á hvern hátt
hún „lítilsvirðir" þann „mál-
stað“, sem henni er ætlað að
styðja?
★
22 TEGUNDIR
„Þá segir „Strammi": „Frá
gangurinn er svo flausturslegur
að manni blöskrar".
Yður herra ritstjóri og
„Stramma" ætti að vera kunn-
ugt urn^það að undirbúningi und
ir sýninguna var ekki lokið þeg-
ar Dagsbrúnarverkfallið skall á.
En hitt vitið þið, að sjálfsögðu
ekki að sjómenn vildu ljúka
við undirbúninginn í þegnskyldu
vinnu en flokksbræður ykkar í
Dagsbrún hindruðu þá frá því,
með því að hóta þeim ævilangri
útilokun frá vinnu.
Fyrir 10 kr. fá gestir að
dveljá á eynni daglangt og
horfa á 22 tegundir dýra, fugla
og fiska, hlusta é músik og út-
varp, njóta veitinga og dansa
á kvöldin í 3—5 klukkutíma eða
horfa á valdar kvikmyndir úr
dýralífinu. Börn innan 9 ára
greiða engan aðgangseyrir. Vill
herra „Strammi“ benda mér á
ódýrari og betri skemmtun en
þessar?
★
ILLA DULIN
ANDÚÐ?
„Landsmenn kunna vel að
meta sýninguna, sem sést bezt á
aðsókninni, sem er gífurleg
þrátt fyrir mjög óhagstætt veð-
urfar og mikið skemmfanalíf
annað í bænum. Herra
„Strammi", næst þegar þér skrif
ið um Þjóðþrifafyrirtæki, ættuð
þér, að „stramma yður upp og
skrifa undir yðar rétta nafn,
svo þér losnið við þann leiða
grun að vera ofbeldismaðurinn,
sem lenti í handalögmáli við
varðmanni á eynni fyrir nokkr-
um kvölaum og hótaði blaða-
skömmum, þegar hann hafði
látið í minni pokann fyrir verð-
inum, sem er friðsemdar og
spektarmaður, eða eruð þér, ef
til vill einn af .leynivínsölunum,
sem hafa vanið komur sínar í
eyna, að undanförnu?
Herra ritstjóri, þér sem hafið
valið yður það hlutverk, að vera
hið alsjáandi auga og þunna
móðureyra, sem við Reykvíking
ar eigum að treysta í hvívetna,
þér ættuð, að skoða Dýrasýn-
inguna í Örfirisey, og láta hina
illa duldu andúð yðar á sjó-
möiínunum og málefnum þeirra
þá ekki villa yður sýn.
Með þakklæti fyrir birtinguna.
*■ Sæmundur Ólafsson.“
KALT VATN
OG ASPÍRIN
Sæmundur, Sæmundur. Hvaða
læti eru þetta? Væri ekki ráð
að fá sér kalt vatn og aspirín?
,,. .hina illa duldu andúð á sjó
mönnum og málefnum þeirra".
Með hverju hef ég sýnt sjó-
mönnum andúð ? Með því að
birta bréf, er gagnrýnir sýning-
una, sem er engum sjómanni til
sóma, þó að málstaðurinn sem
hún á að styrkja sé alls sóma
maklegur? Því ég er nú sjálf-
ur búinn að skoða dýrasýning-
una í Örfirisey, og mér liggur
við að segja, að það sé illa
dulin andúð á fólki bara yfir-
leitt að gabba það þarna út til
að borga 10 krónur fyrir að
horfa á þessar „22 tegundir
dýra, fugla og fiska“, og það
jafnvel þótt maður fái „að
hlusta á músik og útvarp“ á
eftir.
Eg anza ekki blaðri Sæmund
ar um að Dagsbrúnarmenn hafi
hótað sjómönnum „æfilangri úti
lokun frá vinnu“, ef þeir ynnu
að undirbúningi sýningarinnar
meðan verkfallið stóð, og það
er bezt að láta „Stramma“ sjálf
an svara þeim tilgátum Sæmund
ar að hann hafi farið út í
Örfirisey til að berja vörðinn
þar eða selja sprútt.
HVENÆR VERÐUR
BÍRTUR LÍSTI
RENAULTÚT-
IILUTUNARINNAR
Á hverjum degi berast blað-
inu kvartanir um óréttlætið í út
hlutun Renaultbílanna.
Þessar kvartanir verða ekki
þaggaðar niður nema ef til vill
með því móti að yfirvöldin verði
við þeirri almennu kröfu að
birta nöfn þeirra manna sem
fengu bílana. Verði þeirri sjálf-
sögðu kröfu neitað er ekki
hægt að skilja það öðruvísi en
slæma samvizku yfirvaldanna,
og staðfestingu á orðrómnum
um hlutdræga úthlutun.
Morgunbíaðið stangast við staðreyndirnar
• i
lyggistg Austurlandsverksmiðjunnar
war lögfest gegn viija síldarverk-
smiijustjérnar og hrunstjórnar Stef-
áns iáhanns
Morgunblaðið er í hvínandi vandræðum með síldar-
verksmiðjuna á Austurlandi.
Blaðinu gengur bölvanlega að stangast við þessar stað-
reyndir.
AÐ mikill hluti Sjálfstæðisflokksins hindraði að sam-
þykkt væri frumvarp Austurlandsþingmannanna um að
hafizt yrði handa um byggingu 5—10 þús. mála síldar-
bræðslu á Norðausturlandi þegar á þessu ári
AÐ Sigurður Kristjánsson, Pétur Ottesen, Pétur Magn
ússon, Finnur Jónsson, Sveinn Benediktsson, Sigurjón Á.
Ólafsson o. fl. þingmenn stjórnarflokkaima reyndu eftir
mætti að hindra að lögfest yrði að lokið skyldi undirbún-
ingi verksmiðjunnar 1947 og bygging hafin 1948
AÐ Sveinn Benediktsson, Erlendur Þorsteinsson og
Júlíus Hafstein reyndu sérstaklega að hindra framgang
málsins með umsögnum sínum til Alþingis
AÐ Sósíalistaflokkurinn stóð einn ailra þingflokka ó-
skiptur og heill með málinu, bæði upphaflega með frumv.
Austurlandsþingmannanna og lagaákvæðinu sem samþykkt
var
AÐ Jóhann P. Jósefsson felur framkvæmd málsins,
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins, þó meirihluti hennar hefði beitt sér
eindregið gegn framgangi málsins á þingi.
Það þýðir lítið að ætia að skjóta sér bak: við Lárus
Jóhannesson, þingmann Seyðfirðinga, hann hefur að sjálf-
sögðu fylgt málinu, frá því hefur Þjóðviljinn skýrt dag-
lega síðustu dagana. En það þvær ekki þá skömm af Sveini
Ben., Jóhanni Þ. Jósefssyni og kumpánum að hafa beitt
sér móti málinu.