Þjóðviljinn - 19.08.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.08.1947, Blaðsíða 8
 Laugarvatnsskólinn brennur. Ljósm.: H. S. Viðskiptamálaráðherrann átti annríka helgi: nýja skömmi Selja má kornvöru „sem næsl vikuforðá"—vefnaðarvör- ur, búsáhöld og hreiniætisvörur „sem næst til brýn- ustu Rauðsynja"! Seljandi skrifi viðskiptin — Kaupandi kvitti fyrir Emil Jónsson viðskiptaráðherra var önnum kafinn um síð- ustu heigi. I þetta sinn var liann ekki að skammta hlutafélagi sínu, Rafha, innflutningsleyfi fyrir efni til að liefja íssltápagerð. Á sunnudaginn var gaf þessi ráðlierra út „reglugerð um takmörkun á sölu, dreifingu og tollafgreiðslu nokkurra vöru- tegunda.“ Fyrsta grein reglugerðarinnar hljóðar svo: „Frá og með deginum í dag er fyr-.c urn siiin, unz öðruvísi verður ákveð- ið, bannað að tollafgreiða i;verskonur vcfnaðarvöru, búsáhöid, hreinlætisvörur og kbrnvorur.“ í í. grein segir svo: „Viðskipta- nefnd skilgreinir með augiýsíngu nánar hvaða vörur falli undir 1. grein.“ Sama heigidag tilkynnti viðskiptanefnd að smásölum væri bannað að seija viðskiptamöanum sínum „meira magn en hér segir af þessum vöruíegundum: af kornvöru sem næst vikuforða, af vefnaðarvörum, búsáhöidum og hreinlætisvörum, sem nægir til brýnustu nauðsynja.“(!) „... Skal skrá nai’n og heimilis- fang hvers kaupanda er kviíti fyrir riðskipíhr....“ Skyldi nokkur ríkisstjóm í heiminum, önnur en hrun- stjórnin sem Stefán Jóliann Stefánsson veitir forstööu, hafa| sýnt annað eins ráðleysi, klaufaskap, fálm og vitieysu við skömmtun á vörum til íbúa landsins?! Með því að tína út eina skömmtunartilkynningu í dag skapar hún fyrst slíkt vörukaupaæði að ýmsar vörutegundir þrjóta og aðrar eru á þrotuni. Þegar svo er komið skipar hún að skrá skuli í búðunum öll viðskipti á vissum vörutegundum — í stað þess að gefa út skömmtunarseðla fyrir þeim vörum er hún ætlar að skammta. Þessi ríkisstjórn virðist ekki í upphafi hafa gert sér nókkra greln fyrir því livaða vörur hún cetlaði að skammta, — og síð- ur en svo vita það cnn. A'dar laennar aðgerðir í þessu ei'ni hafa verið fálm til að sliapa gluiidroða. Ef hún liefði snefil af sórna- andi: hveiti, rúg, rís með híði eða án ytra hýðis, bygg, mais, annað ómalað korn; mjöl úr hveiti, rúgi, rís, byggi, höfrum, maís; grjón úr hveiti, rís, byggi, höfrum og rís; mjöl úr baunum, ertum og öðrum belgávöxtum, kart- öflumjöl, malt, maltín, malt- extrakt, sterkja, sagógrjón, sagómjöl, klíð og glútín. „Sem nægir til brýnustu nauðsynja“ Eftirtaldar vörur mun mega seljg í skömmtum ,,sem nægir til brýnustu nauð- synja“ (magn ekki frekar til greint): grænsápa og önnur blaut sápa, sápuduft og sápu- Framhald á 4. síðu Kabarettinn Vegna þess að komu list- dansaranna til landsins seink aði, féll niður kdbarettsýning in er vera átti í gærkvöld og verður því fyrsta sýningin í kvöld kl. 9 í Sjálfstæðishús- inu. Starfssfúlka í glstihúsinu missti hand festu á björgunarkaðli ®g stérslasað- ist — Tvær efstu iælir skélahússins eyðilögðust en kennslustðfunum var bjargað Um kl. 2,30 e. h. s.I. sunnudag koni upp eldur í þak- hæð Laugarvatnsskólans. Eyðilögðust tvær efstu hæðir skólans, áður en slökkviliðum úr Reykjavík og frá Selfossi tókst að hefta frekari útbreiðslu eldsins. Tjónið varð gífur- legt, m. a. eyðilögðust íbúðir skólastjórans, Bjarna Bjarna- sonar, kennaranna, Þórðar Kristleifssonar og Guðmundar Ólafssonar og 16 starfsstúlkur er bjuggu á efstu hæð misstu eigur sínar. — Ein stúlkan, María Þorsteinsdóttir, svaf á rishæðinni, er eldsins varð vart, og bjargaði hún sér á kaðli, en sleppti honum of fljótt, féll til jarðar og slasað- ist mikið. Eldsins varð fyrst vart í þaki hússins og var þá strax reynt að ráða niðuriögum hans með þeim tækjum er fyrir hendi voru á staðnum. Þær tilraunir urðu þó árangurslausar og varð risliæðin alelda á hálfri klukkustund. Á efstu hæð bjuggu 16 stúlk ur, er unnu við gistihúsið ,og voru þær flestar við vinnu sína er þetta skeði. Ein stúlknanna lét sig síga til jarðar á kaðli en sleppti tökum á honum of fljótt. Brotnaði annar handleggur hennar opnu broti og mjög alvarlegu, en auk þess viðbeins- brotnaði hún og rifbrotnaði. Stúlka þessi heitir María.Þor- steinsdóttir og er héðan úr bænum. Hún var flutt í Land- spítalann og var líðan hennar talin slæm þegar blaðið átti tal við spítalann í gærkvöld. Engu var bjargað af eigum stúlkn- anna og hafa þær orðið fyrir miklu tjóni. Á næstu hæð fyrir neðan rishæð, voru íbúðir skólastjór- ans og kennaranna, Þórðar Kristleifssonar og Guðmundar Ólafssonar. Læsti eldurinn sig um þær, en húsmunum tókst að bjarga, að miklu leyti. Um 30 gestir voru í gistihúsinu og var . ^eigum þeirra bjargað. Slökkviliðin komu á vett- vang er eldurinn hafði geisað í 2—3 klukkutíma*. Voru tvær efstu hæðirnar þá brunnar og eidurinn kominn að skólastof- unum. Tókst slökkviliðinu að bjarga þeim, svo og húsum er áföst eru aðalbyggingunni. — Mikil úrkoma var á Laugar- vatni þennan dag og olli það skemmdum á því sem bjargað var úr eldinum. Fullvíst er talið að kviknað hafi í út frá rafmagnsleiðslum. Fimm stúikur slasast í bifreiða- árekstri milli Aknreyrar og Reistarár Aðfáranótt sunnudagsins sl. varð alvarlegur árekstur milli tveggja bifreiða á veginum milli Akureyrar og Reistarár. Allir farþegar bifreiðanna slösuðust, en 5 stúlkur þó mest og voru tvær þeirra fluttar með vitundarlausar í sjúkrahús. Árekstur þessi varð kl. 3 um Framh. á 2. síðu. tilfinningu, myndi hún reyna a.) liætta að verða sér til aðhlægis og skammar — og segja aí s'r, cn annars hefur ekki heyrzt get- ið en að hún sé hreykin al glundroðanum og vitleysunni sem henni hefur tekizt að skapa. „Sem næst vikuforsa“ Samkvæmt auglýsingu við skiptanefndar mun frá og með sl. sunnudegi aðeins mega selja mönnum „sem næst vikuforða“ af eftirfar- *■ JS Skemmtiferð að Heklu um næstu helgi. Þátt- taka tilkynnist fyrir fimmtudagskvöld í skrif- stofuna Þórsgötu 1, opið kl. 6—7 daglega. Sími 7510. Ferðanefndiu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.