Þjóðviljinn - 21.09.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 21.09.1947, Blaðsíða 8
137 ferðum hafa nýsköpunartogararn ir selt fyrir samtals tæpar 9 millj. kr. Nýsköpunartogararnir eru stórvirkustu tæki sem þjóð- in hefur eignazt til öflunar erlends gjaldeyris Frá því í marz s .1. vetur haía komið til landsins*" 11 nýsköpunartogarar. Haía 10 þeirra íarið samtals 37 söluferðir til Englands, frá 1—7 ferðir hver tog- ari og selt fyrir samtals tæpar 9 milljónir króna. Söluferðir, aflamagn og sölur þessara togara hafa verið sem hér segir: Ingólfur Arnarson 7 söluf. 1.787.136 kg. 1.831.109 Gylfi 6 — 1.397.268 — 1.437.869 Helgafell 6 — 1.384.653 — 1.586.817 Kaldbakur •5 — 1.283,581 — 1.372,381 Vörður 4 — 914.547 ----- 823.992 Kári 3 — 554.672 — 453.831 Egill rauði 2 — 363.823 — 442.624 Egill Skallagrímsson 2 -JJÉ 385.807 — 460.199 Bjarni Ölafsson . . 1 201.536 — 237.092 Akurey 1 — 216.916 — 267.527 kr. Samtals 37 söluf. 8.489.939 kg. 8.913.441 kr. Sigfus Valdimars- son sextugur Á morg'un verður Sigfús Valdi marsson, prentari, Hagamel 24, sextugur. Sigfús er hvers manns hug- ljúfi, vel látinn af starfsfélög- um sínum og öðrum kunnugum, hrókur alls fagnaðar og höfð- ingi heim að sækja. Eg þakka Sigfúsi samstarfið á umliðnum árum, og vona að það megi vara sem lengst. Félagi. gUÓÐVIUINN Gaman að spila fyrir fólkið hér heima segir Þórunn litla Jóhannsdóttir „Mér finnst gaman að spila fyrir fólkið heima.“ Þetta er sá dómur, sem Þórunn litla, dóttir Jóhanns Tryggva- sonar, feliir um áheyrendur sína á þeim fjórum hljómleik- um ,sem hún hefur haldið hér, síðan þau feðginin komu frá Englandi fyrir tæpum hálfum mánuði. Jóhann Tryggvason og Gísli Guðmundsson, form. Samkórs Reykjavíkur, kölluðu blaða- menn á sinn fund í gær og skýrðu þeim frá ýmsu varðandi framtíð litlu listakonunnar. Þau feðginin fara aftur út til London næstkomandi fimmtu- dag með flugvél, að öllu forfalla lausu .Þar munu þau halda á- fram námi við Royal Academy of Music, en næsta sumar ráð- gera þau að koma aftur heim og þá til að dveljast hér að minnsta kosti í ár. Þórunn litla mun í vetur hafa Öllum mun nú ljóst orðið oð* nýsköpunartogararnir eru stór- J virkustu atvinnutækin sem Is-1 lendingar hafa eignazt og á- kvörðunin um kaup þeirra ekki aðeins vel ráðin lieldur eitt hið mesta heillaspor er stigið hef- ur verið í atvinnumálum lands- ins. Nú vílja þeir eigna sér bæði „skýjaborgirnar“ og „froðuna“! Sú var þó tíðin að hrunstefnu postuiarnir áttu eklci nógu sterk orð til þess að fordæma kaup þeirra og nýsköpun at- vinnuveganna yfirleitt. Vísir kallaði kaup nýrra atvinnu- tækja LAUNRÁÐ, SVIKRÁÐ OG LANDRÁÐ — meðan ekki væri byrjað á því að lækka kaupið. Þegar Einar Olgeirsson í ræðu sinni á Alþingi 11. sept. 1944 boðaði nýsköpunarstefn- una í atvinnumálum þjóðarinn- ar, svaraði Alþýðublaðið í leið- ara 14. sept. m. a. með þessum orðum: „Ræða Eihars stóð ekki nema háifa hlukkustund. En svo lengi að minnsta kosti fékk þjóðin að lifa í paradís þeirra skýjaborga, sem hann var svo fljótur að byggja úr froðunni einni saman. En þar með var líka draumurinn búiiin, og í dag spyr þjóðin sjálfa sig hvern ig það sé mÖgulegt að slíkir trúðar skuii vera komnir inn á alþingi og hafa leyfi tii að leika þar slíkar hundakúnst- ir ?“ Nú vilja þeir maimræflar sem 1944 reyndu með ölium ráðum að hindra að tekin væri upp nýbygging atvinnuvegana — mennirnir, sem í dag liafa stöðv að nýbygg'ing atvinnuveganna að svo mikiu leyti sem það hef- ur staðið í þeirra valdi — sömu mennimir vilja nú eigna sér (!) heiðurinn af Jieirri nýsköpun sem þeim tókst ekki að drepa né stöðva. Óvenju fúlmannlegt athæfi: Þrír menn ræna foerja 14 ára tslpu, ógna henni með hníf og spilla eignum heimilisféiksins Fúlmeimska, óvenjuleg hér á landi var framin austur í sveit í vikunni sem leið. Þrír menn ruddust inn í bæinn Aurasel, rændu þar samtals 1600 kr., ógnuðu imglingstelpu með hnífi og spilltu og eyðilögðu eignir heimilisfólksins. asve Síðastliðinn miðvikudag var enginn heima að bænum Aura- seli, sem er í Fljótshlíðarhreppi austan Þverár. Þegar fólkið kom heim sá það að komið höfðu óboðnir gestir, tekið 3 bolla úr skáp og drukkið úr þeim kaffi og kakó og enn- fremur fengið sér brauð — og brátt kom í ljós að þeir höfðu I einnig stolið 400 kr. í pening- um. Daginn eftir, fimmtudag, voru hjónin í Auraseli fjar- verandi, við jarðarför, en 4 börn heima á bænum og gætti 14 ára stúlka yngri systkina sinna. Klukkan eitt um daginn, er hún var ein í bænum ruddust 3 karlmenn inn í bæinn, spurðu hvar peningamir væru, og tók i einn þeirra hníf og barði telp- una, en henni tókst að forða sér út og földu börnin sig með- an menn þessir voru inni í bæn- fyrravetur, Miss Ethel Kenne- dy. Hljómleikarnir þreyta hana ekki Ýmsir hafa látið í ljós þá skoðun, að það væri Þórunni ofraun að halda jafn langa og erfiða tónleika pg hún hefur gert, svo ung sem hún er. En faðir hennar fullyrðir, að ekki verði vart neinna þreytumerkja hjá henni eftir hljómleikana. Þvert á móti er hún þá kát og glöð, enda hefur hún mikla á- nægju af að koma fram opin- berlega; og aldrei verður vart eða ó- kennara og hún hafði í hinnar minnstu feimni framfærni hjá henni. um, en það var um liálfa klukku stund. Þegar hjónin á bænum komu heim kl. 8 um kvöldið kom i ljós að menn þessir höfðu rænt 1200 kr., brotið stóla og blóm, hellt vatni á gólfið og í olíuvél, snúið við fatnaði, skorið í sund- ur koddaver og framið fleiri slík spellvirki. Telpan hefur skýrt frá því að meðan mennirnir voru í.bænum hafi, hún séð ofan á bíl skammt frá bænum. Sýslumaðurinn á Rangárvöll- um, Björn Björnsson hóf rann sókn í máli þessu í fyrramorg un. R. í dag Fulltrúar 46 þjéða komu á alþjéða sýninguna í Prag tvo fyrstu dagana Eins og frá hefur verið sagt í fréttum, var opnuð al- þjóða vörusýning í Prag þann 5. þessa mánaðar. Tvo fyrstu dagana komu þangað fulltrúar frá 46 þjóðum, 23 Evrópu- þjóðum og 23 þjóðum utan Evrópu. Jóhann áformar að láta Þór- unni hvíla sig á tónlistariðkun- um um eins árs skeið, eftir að hann kemur heim rpeð fjöl- skyldu sína næsta sumar. Það árið ætlar hann að láta hana einbeita sér að venjulegu barna- námi. Fullkomlega eðlilegt barn Gísli Guðmundsson hefur þekkt Þórunni litlu í mörg ár, og hann segir, að hún sé full- komlega eðlilegt barn í fram- komu og sömuleiðis að því er allan þroska snertir. Ekkert bendir til þess, að hinir miklu tónlistarhæfileikar hennar, dragi nokkuð úr þroska hennar á öðrum sviðum. Þórunn mun halda hér tvenna hljómleika í viðbót að þessu sinni. Verða þeir næstkomandi þriðjudag og miðvikudag. Fyrri hljómleikarnir verða fyrir styrktarfélaga Samkórs Reykja víkur .Hinir síðari verða fyrir almenning. Samkór Reykjavík- ur mun í bæði skiptin syngja undir stjórn Jóhanns Tryggva- sonar. Jóhann biður blöðin að skilu þakklæti til almennings fyrir þá miklu velvild og alúð, sem þau feðginin hafa í hvívetna hlotið við þessa stuttu dvöl hér heima. Ferðaskrifstofa rikisins efnir til þriggja ferða í dag. Kl. 10,30 f. h. verður farið í Þjórsárdal. Komið að Stöng og Gjá og Heklueldar séðir frá Gauks- höfða í rökkrinu. Komið í bæinn í kvöld. Á sama tíma, eða kl. 10,30 f. h. verður lagt af stað héðan í Hekluferð. Ekið upp Rangárvelli að Næfurholti og gengið að hraunstraumnum. Þriðja ferðin er berjaferð að Tröllafossi og verður farið úr bænum kl. 1,30 e. h. I ræðu, sem innanríkisráð- herra Tékkóslóvakíu hélt við opnun sýningarinnar, A. Zmr- hal, hélt við opnun sýningarinn ar sagði hann, að Tékkósló- vakía mundi halda ákveðmni stefnu í utanríkismálum. Hún vildi auka viðskiptasambönd sín við slavnesku löndin, en á sama tirna viLdi hún efla verzl- unina við öll önnur lönd. Aðal- framkvæmastjóri sýningarinn- ar, dr. Flink, bauð gestina vel- komna. Hann kvað það ávallt hafa verið tilgang þessarar sýn ingar, að efla gagnkvæman skilning og vináttu milli hinna ýmsu landa heims, og hin mikla þátttaka að þessu sinni benti til, að sýningin mundi í því til- liti bera tilætlaðan árangur. Meðal gestanna tvo fyrstu daga sýningarinnar áttu þessi lönd flesta: Austurríki, Sviss, Belgía, Stóra-Bretland, Hol- land, Frakkland og Danmörk. Af löndum utan Evrópu höfðu þessi flesta gesti: Palestína, Bandaríkin, Egyptaland, Ind- land og Iran. Hjónaband. í gær voru gefin saman í lijónaband hjá borgar- dómara ungfrú Ragnheiður Árnadóttir (Jónssonar frá Múla) og Richard C. Nicholaus, starfsmaður veðurstofunnar á Keflavikurflugvelli. Iðnnemaþingið Framh. af 1. síðu. fyrir þann heiður, sem það sýndi sér með því að bjóða hon- um að vera viðstaddur þingsetn- ingu. Þá voru tekin fyrir kjörbréf fulltrúa og voru þau samþykkt með samhljóða atkvæðum. Sex- tíu fulltrúar víðsvegar að af landinu sitja þingið. Starfsmenn þingsins vora kjörnir: Fundarstjóri: Finnbogi Júlí- usson. Til vara: Ámundi Sveins- son. Ritarar: Ámi Þór Víkingur og Jón Einarsson. Til vara: Guðmundur Sigfússon.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.