Þjóðviljinn - 28.09.1947, Síða 8
íhaldsvinnubrögð í heilbrigðismálum:
Framkvæmd nýrrar heilbrigðissam -
þykktar fyrir Reykjavikurbæ tafin i
þrettán mánuði
Almeainur kveimafuiicftur skorar á stjérii
hæjarliis að afgreiða málið þegar i stað,
Ein þeirra merku fundarsamþykkta er almenni kvenna
fundurinn í Iðnó gerði sl. fimmtudagskvöld \ar um fram-
kvæmd heilbrigðissamþykktar Reykjavíkur. Er meðferð
bæjarstjórnar á máli þessu orðið slíkt reiginlmeyksli að
konur af öllum stjórnmálafiokkum fundu sig knúðar til
mótmæla.
Katrín Pálsdóttir spurðist nýlega fyrir um það á
bæjarstjórnarfundi hvað málinu liði, og mátti marka það
á svari borgarstjóra að íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjórn-
inni myndi ekki treysta sér til að sofa á málinu mikið
lengur.
Á síðastliðnu ári áttu að hef j
ast miklar umbætur í hreinlæt-
is- og heilbrigðismálum Reykja
víkurbæjar, enda alkunnugt að
hið mesta sleifarlag liefur ver-
ið á þeim málum og er enn.
Frumvarp að nýrri heilbrigðis-
samþykkt var lagt fyrir bæjar-
stjórn til afgreiðslu og læknis-
fróður maður ráðinn heilbrigð-
isfulltrúi. Var setning nýrrar
heilbrigðissamþykktar orðin
knýjandi nauðsyn, enda liggur
það nokkuð í augum uppi þegar
þess er gætt að núgildandi sam-
þykkt er orðin 42 ára gömul!
Samt bregður svo undarlega
við að mánuð eftir mánuð fæst
heilbrigðissamþykktin nýja ekki
afgreidd í bæjarstjórn. Heil-
brigðisfulltrúinn, sem skipaðux
var í embættið fyrir 13 mánuð-
um hefur enn ekki getað tekið
til starfa!
Á síðasta fundi bæjarstjórn-
ar bar Katrín Pálsdóttir bæjar-
fulltrúi Sósíalistaflokksins fram
fyrirspurn um hvað liði stað-
festingu heilbrigðissamþykktar
innar. Borgarstjóri varð fyrir
svör'um. Kvað hann málið
verða tekið fyrir á næstu •fund-
um bæjarstjórnar.
Guðjén ilSiprÍs
son efstur á
Á almenna kvennafundinum
í Iðnó sl. fimmtudagskvöld var
mál þetta tekið til umræðu.
Samþykktu konurnar áskorun
til bæjarstjórnar um að ganga
frá heilbrigðissamþykktinni og
lýstu megnri óánægju yfir sein
læti bæjaryfirvaldanna við með
ferð þessa máls.
Samþykkt kvennafundarins
var svohljóðandi:
„Fundurinn lætur í ljós undr
un og óánægju yfir því, að enn
skuli engin rnerki sjást þeirra
miklu umbóta, sem hefjast áttu
á síðastliðnu ári á hreinlætis-
og heilbrigðismálum bæjarins.
Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur, að ganga
nú þegar frá heilbrigðissam-
þykkt bæjarins og hlntast til
um, að hinn læknisfróði heil-
brigðisfulltrúi, sem bæjar-
stjórnin skipaði fyrir 13 mán-
uðum, geti þegar tekið til
starfa.“
Er þess að vænta að fram-
kvæmd málsins verði nú ekki
látin dragast lengur, bæjarbú-
um til vansæmdar og tjóns.
Haustmót Taflfélags Reykja-
\ íkur hófst fyrir skömmu. Tefld
ar hafa verið tvær umferðir í
meistaraflokki og hefur Guðjón
>f. Sigurðsson komið efstur úr
Jteim; hlotið 2 vinninga.
Úrslit í 1. umferð voru sem
hér segir: Steingrímur Guð-
mundsson vann Eggert Gilfer;
Guðjón M. Sigurðsson vann Sig
urgeir Gíslason; Guðmundur
Pálmason vann Óla Valdimars-
son; Benoný Benediktsson vann
Bjama Magnússon; Áki Péturs
son og Jón Ágústsson gerðu
jafntefli.
1 2. umferð urðu úrslitin þessi:
Eggert vann Jón; Áki vann Guð
mund; Óli vann Sigurgeir; Guð-
jón vann Benoný; Steingrím-
>ir óg Bjarni gerðu jafntefli.
Mjög hvasst var austur við
Þjórsá í fyrrakvöld ,og þeir sem
fóru um brúna þóttust sjá, að á
henni væru óvenju miklar sveifl
ur. Flutningabíll, hlaðimi löng-
um staui*um, hafði farið um
hana og rákust þá staurarnir á
4 hengistengur og beygði þær
jiokkuð.
Umsjónarmanni brúarinnar
var gert aðvart, en sökum
myrkurs taldi hann sig ekki
strax geta gert fullnægjandi1
rannsókn á því, hvort hér væri
um alvarlegar skemmdir að
ræða. Þess vegna ákvað hann
að geyma rannsóknina til
morguns, en í öryggisskyni bann
aði hann alla umferð um brúna.
I gærmorgun fór vegamála-
stjóri austur og í fylgd með
honum verkfræðingar. Þeir at-
huguðu brúna, og þegar þeir
höfðu gengið úr skugga um, að
styrkleiki hennar hafði í engu
rýrnað, leyfðu þeir aftur um-
ferð um hana.
Eins og auglýst hefur verið
mega ekki þyngri bifreiðar en
Leiðrétting. Höfvmdur grein-
arinnar íslenzkui' mórall, sem
birt var á 5. síðu blaðsins í gær,
er Steindór Ámason skipstjóri,
en ekki Steindór Jónasson eins
og misprentazt hefur. Höfundur
greinarinnar og lesendur eru
beðnir afsökimar á þessum leiðu
mistökum.
Ilmferð um Þjérsárbrú bönnuð í
í fyrrinétt
I gær kornst á kreik sá orðrómur, að Þjórsárbrú liefði
skeimnst mlkið í óveðrinu ,sem geysaði í fyrradag. En í
gærmorgun var lesin upp í útvarpið skýrsla frá vegamála-
stjóra, þar sein haim skýrði frá því að umferð um brúna
hefði að vísu verið bönnuð í fyrrinótt, en við raimsókn
voru litlar skemmdir sjáanlegar á henni.
6 tonn fara um brúna. Og það
er brýnt fyrir bifreiðastjónun
að aka varlega um hana,
Fyrirhugað er, að hefja bygg
ingu nýrrar brúar á næsta ári.
Hefur verið tekið tilboði frá
Englandi um smíði brúarinnar,
að tilskildu samþykki Fjárhags
ráðs, sem vænzt er að fáist
bráðlega,
WerSlasin fyrir
ijésmyndir
öómneí'nd Ljósmyndasýning-
ar Ferðafélags Islands hefur nú
skilað áliti og verðlaunað þær
myndir, sem hún taldi verð-
launahæfar. Alls eru veitt 10
fyrstu verðlaun til 5 einstak-
linga, 18 önnur verðlaun til li
einstaklinga og tvenn þriðju-
verðlaun til tveggja einstak-
iinga (fyrir héraðslýsingar).
Loks var f jórum þátttakendum
veitt flokksverðlaun og sjö
myndir hlutu viðurkenningu,
án verðlauna.
Páll Jónsson hlaut fjögur
fyrstu verðlaun og ein þriðju
verðlaun. Þorsteinn Jósepsson
hlaut þrenn fyrstu verðlaun og
ein önnur verðlaun, ein þriðju-
verðlaun og ein flokksverðlaun.
Kjartan Ó. Bjamason hlaut ein
fyrstu verðlaun, þrenn önnur
verðlaun og ein flokksverðlaim.
þJÓÐVILIINN
♦-----------------------11
Felumanninum
vefst tunga um
tönn
í fyrradag sendir „togara-
háseti“ mér aftur tóninn í
Alþýðublaðinu. Þar skrifar
liann langa grein uni mig og
*afa minn og undraði mig
mest, að hann skyldi ekki
skriía líka um langafa mlnn.
í þessari grein er hann stað !
inn að því aftur að vilja eltki !
segja hreint út, h\ort liann |
sé með eða móti frumvarpi
Hermanns og Sigurðar um
lengdan hvíldartíma á togur
um. Hann flýr til þeirra ó-
sanninda, að ég liafi spurt,
hvort hann væri með eða
móti „lengdum vökulögum"
yfirleitt. Eg spurði hann al-
drei þessarar spuriiingar.
heldur hvort hann væri með
eða móti FRUMVARPI HER
M.YNNS GUÐMUNÐSSON-
AR og SIGURÐAR GUÐNA
1
SONAR, sem lagt var fram
hundrað starfandi togarasjó j
menn hafa skorað á Alþingi i
að samþykkja.
En er þessari spurningu
ósvarað af hálfu „togarahá-
seta“, og enn einu sinni kref
ég hann afdráttarlaust svars
við henni. Hann má vita, að
mörg hundruð togaraháseta
bíða einnig þessa svars.
Eg hefi skrifað undir nafm.
„Togaranaseti" hefir kosið
að fela sig. Er hann ekld
bara eiun af sæmundunum?
Ól. Jenss.
«--------------------------♦
Gauðaslys á
Rangárvöllum
í fyrradag um kluiikan 6
varð bifreiðaárekstur í brekk-
urnii austau \ið Litlu-Strönd á
Kangárvöllum og beið þar einn
maður bana.
Áreksturinn varð með þeim
hætti sem hér segir: Bifreiðin
L-16, sem hlaðin var rafmags-
staurum, tveim hvoru megin,
kom austur veginn en á móti
henni bifreiðin L-49. Rákust
þær á í fcrekkunni og gengu
staurarnir inn í stýrishúsið á L
49. Bifreiðarstjórinn beið sam-
stundis bana. Hann hét Hró-
bjartur Jónsson, frá Miðgrund
í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Einn farþegi var með Hró-
bjarti í L-49 en hann sakaði lít-
ið.
Gísli Gestsson hlaut þrenn
önnur verðlaun. Leifur Kaldal
hlaut ein fyrstu verðlaun og
tvenn önnur verðlaun. Guðbjart
ur Ásgeirsson hlaut ein fyrstu
verðlaun, ein önnur verðlaim
og ein flokksverðlaun.
Við úthlutun verðlaunanna á
Framh. á 7. síðu
Menntaskélinn í
Reykjavík settur
ígær
Nemendur verða um
450 í vetur
Menntaskólinn í Reykjavík
var settur í gær. Á þessu skóla
ári verða nemendurnir alls uiu
450, þar af 60 í gagnfræðadeild,
þ.e.a.s. í 1. og 2. bekk.
Er þetta allmiklu hærri nem-
endatala en í fyrra, þ\í þá voru
í skólanum 400 nemendur.
Þær breytingar verða á tíma-
skipun kennslunnar frá í fyrra,
að í vetur mun öll kennsla í 3.
og 4. bekk (þ. e. 4. bekkjar deild
um) fara fram eftir hádegið.
í fyrra voru það 1. og 2. bekkur
(aðeins 2bekkjardeildir), sem
höfðu síðdegiskennslu. I vetur
hafa því 4 bekkjardeildir síðdeg
iskennslu í stað tveggja i fyrra.
Breytingu þessa varð að gera
til að mæta aukningu nemenda
fjöldans.
Nokkrar lagfæringar liafa ver
ið gerðar á skólahúsinu. Til
dæmis hefur verið sett í það
nýtt miðstöðvarkerfi.
Kennsla í Menntaskólanum
hefst að líkindum seint í næstu
viku.
Konur vilja þjéð-
aratkvæði um
áfengisbann
Almenni kvennafundurinn í
Iðnó snniþykkti einróma tillögu
frá Karólínu Siemsen, Katrínu
Pálsdóttur og Rósu Vigfúsdótt-
ur um að skora á Alþingi að
láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðflutningsbann á-
fengis.
Rannsékn á at-
vinnuásiandinu í
bænum ?J hefjast
Nýlega var skipuð nefnd að
tilhlutan bæjarstjórnar til að
rannsaka atvinnuhorfur í bæn-
um og gera tillögur um aðgerðir
til að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi í vetur.
Nefndin hefir ákveðið að afla
sér upplýsinga um tölu starfs-
fólks hjá atvinnurekendum í
bænum, miðað við 1. okt., og
þær breytingar, sem kunna að
verða á starfsmannahaldi
þeirra næstu þrjá ársfjórðunga,
eftir því sem næst verður kom-
izt. Þessa dagana sendir nefnd-
in út eyðublöð til atvinnurek-
enda í bænum, sem hún óskar
eftir að þeir fylli út og endur •
! scndi til skrifstofu hagfræðings
bæjarins, Austurstræti 10, þar
sem nefndin hefir aðsetur sitt
og unnið verður úr skýrslunum.