Þjóðviljinn - 01.10.1947, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.10.1947, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 1. október 1947 ÞJOÐVILJINN 3 Saga málsins Embættið var auglýst til umsóknar 5. des. 1946. Um- sækjendur voru fjórir, Jó- hann Sæmundsson trygginga yfirlæknir, Sigurður Sig- urðsson berklayfirlæknir, Ófeigur Ófeigsson læknir og dr. med. Óskar Þ. Þórðarson. Nokkru síðar var skipuð sér- fræðinganefnd til að dæma um vísindalegt gildi rita og rannsókna umsækjenda, og hvort þeir samkv, þeim teld- ust hæfir eða óhæfir til að gegna embættinu. Nefndin skilaði áliti til menntamála- ráðuneytisins og var málið síðan afhent læknadeild há- skólans til meðferðar, og er það sem hér fer á eftir að mestu endurprentun á síðari hluta Læknablaðsgreinar dr. Jóhannesar Bjðrnssonái-. — Álit læknadeildar háskólans Fundargerðir deildarinnar, er fjalla um málið, hljóða þannig- „Fundur 3. yvní 194.7. 3. Rætt um prófessorsom- bættið í lyflæknisfr. og sam- þykkt að mæla með að Ósk- ari Þ. Þórðarsyni verði veitt prófessorsembættið með 7 at- kvæðum gegn 4. Ennfremur ákveðið að fresta til næsta dags samning álitsgerðar til ráðherra. Jón Hj. Sigurðsson, Guðm. Thoroddsen, Tr. Ólafsson, Ól. Þorsteinsson, Björrí Sigurðs- son, Jón Sigtryggsson, Jón Steffensen, Hannes Guð- munsson, Bergsv. Ólafsson, Kristinn Stefánsson, Júl. Sig- urjónsson. (sign,). Framhaldsfundur var hald inn 4. júní 1947 og gengið frá ýtarlegri ályktun og hún samþykkt af öllum viðstödd- um: Deildin telur að samkvæmt reglugerð HáskóLans (9. gr.. 6. málsgr.) komi Ófeigur Ó- feigsson 'ekki til greina, þar eð dómnefndin er skipuð var til að dæma um hæfni um- sækjenda taldi hann ekki hæfan til þess að gegna pró- fessorsembættinu í lyflækn- isfræði. Læknadeildin telur hina þrjá umsækjendurna alla hæfa í stöðu þessa. (Því næst er birt álit deildarinnar á Jóhanni Sæmundssyni og Sigurði Sigurðssyni). Um þann umsækjanda sem deild- in taldi hæfastan segir: 4 óskar Þ. Þórðarson dr. med. hefur auk námkandi- datsþjónustu starfað að mestu leyti að lyflækningum og fylgigreinum þeirra á fjölmiörgum sjúkraluúsum. Hefur hann þannig aflað sér mjög ’víðtækrar og fjölþættr ar þekkingar á þessu sviði, og er starfstími hans á sjúkra- húsum miklum mun lengri en hinna umsækjendanna. Sérfrseðingsviðurkenningu í lyflækningum hlaut hann 6. Læknadeild háskólans átelur harðlega veitingu prófessorsembættisins I lyf- læknisfræði Eysteiim jónsson veitti Jóhanni Sæmunclssvni emhætt- ið9 þótt læknadeild teldi dr. Öskar Þ. Þórðars. hæfastan ’9Lesagi voii á einum sesn tekur embæííió fram ylir velsæmiðff9 segir dr. Jóhannes Hfóriisson i harðorðri Læknahladsgrein li Miklar umræður hafa orðið um veitingu prófessors- embættis í lyflæknisfræði, en Eysteinn Jónsson veitti Jóhanni Sæmundssyni embættis 8. júlí sl. enda þótt lækna- deild háskólans hefði samþykkt að telja annan umsækj- anda, 'dr. Óskar I>. Þórðarson, hæfastan til starfsins. I nýútkomnu Læknablaði birtir dr. Jóhannes Björns- son gögn er sýna gang málsins og telur læknadeild og há- skóianum óvirðing gjör meðð því að hafa þannig álit hans að engu. Þetta er mál sem almenning varðar, og birtir Þjóð- viljinn því með leyfi höfundar síðari hluta greinar hans. des. 1945. Jafnframt spítala- þjónustu hefur hánn verið mjög afkastamikill við vís- indastörf á sviði sérgreinar sinnar og fékk doktorsnafn- bót í læknisfræði við Kaup- mannahafnarháskóla 5. maí 1941 fyrir rannsóknir sínar á prothrombin. Af þessu er augljóst að dr. ( Óskar Þ. Þórðarson hefur þá sérstöðu fram yfir hina um- sækjendurna að hann hefur nú um langt skeið starfað að mestu óslitið að lyflækning- um á sjúkrahúsum og miklu lengur en hvor hinna umsækj endanna. Hefur hann þannig aflað sér óvenju fjölþættrar reynslu á þessu sviði. Hinir tveir umsækjendanna þeir Jóhanu Sæmundsson, trygg- ingaryfirlæknir og Sigurður Sigurðsson, berklayfirlæknir, hafa báðir síðustu 10 árin, eða því sem næst, gegnt opin- berum stöðum, og að vísu staðið prýðilega í stöðum sín um, en þeim störfur er þann- ig háttað, að þau verða tæp- lega talin hafa verulegt gildi til sérmenntunar í lyflækn- isfræði. Ennfremur hefur dr. Óskar Þ. Þói'ðarson tvímælalaust unnið meira að vísindalegum rannsóknum og á fleiri svið- um en hrnir umsækjendurn- ir, eins og ritgerðir hans bera ljósan vott. Að þessu athuguðu mælir deildin með því að dr. Óslcari Þ. Þórðarsyni verði veitt pró- fessorembættið í lyflæknis- fræði. Júl. Sigurjónsson, Jón Steff- ensen, Kristinn Stefánsson, Pergsv. Ólafssón, Björn Sig- urðsson, Jón. Hj. Sigurðsson, Ól. Þorsteinsson, Hannes Guð mundsson, Guðm. Thorodd- sen.“ /sign.). Læknadeild mótmælir misbeitingu veitinga- valdsins Þann 11. júlí er haldinn fundur í læknadeild Háskól- ans og er fundargerðin þann- ig: „Fundur í læknadeild 11. júlí 1947. I tilefni af veitingu prófes- sorsembættisins í lyflæknis- fræði, var þetta bókað og samþykkt með samhljóða at- kvæðum: Læknadeildin óskar eftir að háskólaráð átelji harðlega meðferð menntamálaráðherra á tillögu læknadeildar um veitingu prófessorsembættis- ins í lyflæknisfræði við Há- skólann. Læknadeildin hafði mælt með því að dr. Óskari Þ. Þórð arsyni yrði veitt embætfi þetta, með því að auðsætt þótti að hann hefði aflað sér reynslu í sérgrein þeirri- er hér ræðir um (lyflækning- um). Auk þess að hann hefur tvímælalaust unnið meira að vísindalegum rannsóknum en hinir umsækjendurnir, eins og rit hans bera vott um. Tel ur deildin illa farið að slíkur undirbúningur sé ekki meira metinn við skipun í embætti við Háskólar.n, enda mun það ekki vænlegt til að efla áhuga fyrir vísindastarfsemi. Júl. Sigurjónsson, Jón Steff- ensen, Jón Hj. Sigurðsson, Níels Dungal, Ól. Þorsteins- son, Helgi Tómasson, Guð. Thoroddsen, Jón Sigtryggs- son, Hannes Guðmundsson.“ bættis í lyflæknisfræði .... Svohljóðandi ályktun var samþykkt í einu hljóði: „I tilefni af samþykkt læknadeildar 11. f. m. lýsir háskólaráð því yfir, að það telur mjög mikilsvert, að um- sækjendur um kennarastöðu við Hiáskólann hafi hlotið sem beztan undirbúning und- ir hið væntanlega starf sitt. Háskólaráðið lítur ennfrem- ur svo á, að hver deild Há- skólans sé sínu sviði hæfast- ur aðili til að meta gildi und- irbúnings þess, er hver ein- stakur umsækjandi hafi hlot- ið, og að affarasælast muni reynast, að eftir tillögum deildarinnar sé farið við veit- ingu embættisins. Lækna- deildin telur, að við nýaf- staðna veitingu prófessorsem bættisins í lyflæknisfræði hafi verið gengið fram hjá þeim umsækjandanum, er beztan undirbúning hefði hlotið, og telur háskólaráð það miður farið, enda þótt það beri fullt traust til þess manns. er veitingu fékk fyrir embættinu. Ólafur Lárusson, Leifur Ás- geirsson, Ásmundur Guð- mundsson, Gylfi Þ. Gíslason, Júl. Sigurjónsson, Einar Ól. Sveinsson.“ (sign.). Háskólaráð mótmælir Þann 1. ágúst er eftirfar- andi skráð í gjörðabók skólaráðs: Úr gjörðabók háskólaráðs 1. ágúst 1947 2. Veiting' prófessorsem- Það, sem birt hefur verið að framan, skýrir í rauninni fyllilega gang þessa máls, en þar sem hér er um að ræða þýðingarmestu embættisveit- ingu í læknastétt í mörg ár, þykir mér rétt að bæta við nokkrum hugleiðingum. í hinum menntaða heimi er það föst regla að háskólakenn arar eru látnir dæma um hæfni þeirra manna sem sækja að háskólunum og tel- ur veitingavaldið það sjálf- sagða skyldu sína að hlíta þeim dómi. Þessi hefð í veit- ingum byggist á því, að há- skólar og starfslið þeirra nýt ur trausts og virðingar al- þjóðar, og einnig á því, að með þessu fyrirkomulagi há- þykir bezt tryggt, að til há- skólanna veljist ■ jafnan' hinir 'hæfustu vísindamenn hver á sinu sviði. Nú er því jafnan svo far'J, að háskólastöður eru eftirsótt ar. Ástæðan til þessa er ekki ábótavon, því laun háskóla- kennara eru ekki svo há, að menn með þeirra þekkingu og hæfileikum geti ekki hæg lega aflað sér tilsvarandi launa með öðrum störfum. Hitt mun ráða meiru, að inn an vébanda háskólans gefst vísindamönnum tækifæri til þess að vinna áfram að þeim verkefnum sem þeir hafa var ið miklum tíma ævi sinnar til þess að búa sig undir, og þar geta þeir notið samstarfs jafningja sinna. Af framanskráðu sést greini lega, að kennarar læknadeild ar Háskólans dæmdu Óskar Þ. Þórðarson, dr. med. hæf- astan til embættisins. Allir, sem til þekkja, vita að sá dómur var byggður á fagleg- um forsendum. Þar með er allur vafi tekinn af um að Háskólinn hafi beitt nokk- urn umsækjendanna rang- sleitni, og veitingarvaldið á ísl. fylgdi fordæmi annarra menningarþjóða og hlítti vilja æðstu menntastofnunar lands ins. En sú varð ekki raunin á, heldur er öðrum umsækj- enda veitt embættið, þótt hann, að dómi háskóla- kennaranna, væri talinn mun miður hæfur en dr. Óskar Þ. Þórðarson. Enginn mun halda því fram, að menntamálaráð- herra, hr. Eysteinn Jónsson, hafi betri skilyrði til þess að dæma um verðleika umsækj endanna en kennarar Háskól ans, og skal hér engum get- um að því leitt, hvaða öfl hafa því valdið, að mennta- málaráðherrann veitti ekki þeim umsækjanda embætt- ið, sem samkvæmt hinum faglega dómi var til þess' hæfastur. Það hefur lengi viljað brenna við að stjórnarvöld hérlendis, veittu háskólastöð ur þvert ofan í vilja Háskól- ans. Því miður hefur raunin. orðið sú, að þeir sem náð hafa fundið fyrir augum veiting- awaldsins, hafa ekki haft þá háttvísi til að bera, að sætta sig við úrskurð Háskólans. Þess er tæpast að vænta, að frá hendi stjórnarvalda verði breytt hér >um til batn- aðar, og úr hópi umsækjenda er eftir fyrri reynslu lengi von á einum, sem tekur em- bættið fram yfir velsæmið. í slíku athæfi lýsir sér mikil lítilsvirðing á æðstu mennta- stófnun hins íslenzka þjóðfé- lags. og er sú lítilsvirðing jöfn frá hálfu veitingarvalds- ins og þeirra manna, sem láta svo nota sig til þess að ger- ast leiksoppar þess. Fer ekki hjá því. að það valdi lækn- um sársauka, er það í fyrsta sinn hendir mann úr þeirra stétt. Með svipuðum veitingar- hætti verða ekki liðin mörg ár, bar til meirihluti'kennara við Háskólann verður kominn. að honum í óþökk Háskólans Framh., á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.