Þjóðviljinn - 01.10.1947, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 1. október-1-84?-
-WOÖVlÍjdiNN-
Vírusar, kja
ViðtaI við
Fréttamaður hitti Þorbjörn
Sigurgeirsson að máli um
daginn á Rannsóknarstofu
háskólans, því að marga mun
fýsa að kynnast því, sem
'þessi góðlátlegi og glaðlegi
maður hefur í pokahorninu.
Bólueíni við inflúensu
,.Eg sá þig síðast sumarið
,JL94S kvöldið, áður en þú
flaugst til Bandaríkjanna. Þá
varstu með firnastóran doð-
rant undir hendinni, Virus-
forchungen minnir mig, að
hann hafa heitið. Hvernig
stóð á því, að þu fórst að fást
við vírusana? Þú ert ekki
lífeðlisfræðingur.“
,,Þú 'hefur rétt fyrir þér.
Eg er lítill lífeðlisfræðingur.
Þegar ég kom hingað heim
sumarið 1945“, segir Þor-
björn „sá ég ekki, að hér
væru aðstæður til þess, að
rnaður með mína menntun
og mín áhugamál nyti sín.
þareð öll- tæki til rannsókna
á mínu sviði eðlisfræðinnar
skorti algjörlega. Eg vildi
síður forpokast strax, svo að
ég tók feginshendi boði um
að gerast styrkþegi Rocke-
fellerssjóðsins, fara til Banda
ríkjanna og leggja stund á
vísusrannsóknir á vegurn
Keldnabúsins.“
,.Eg hef frétt, að Bohr
hafi fundið þig á kafi í vír-
usum og fundizt lítið leggjast
fyrir góðan dreng. Hann hafi
bjargað þér úr klóm þessara
,.skaðræðiskvikinda?“
,,Eg hitti Bohr ekki, fyrr
en löngu eftir að ég hafði
lagt vírusrannsóknir á hill-
una. Mér veittist erfitt að
slíta mig frá eðlisfræðinni
og kynntást mörgu vestra.
sem vakti athygli mína. Eg
skrifaði því Steinþóri Sigurðs
syni. Hann kom því í kring,
að ég fékk styrk að heiman
til þess að fást eingöngu við
þær greinar eðlisfræðinnar,
sem nú eru helztu viðfangs-
efni eðlisfræðinga. Annars
þótti, mér vírusarnir mjög
skemmtilegir og þýðingarmik
ið viðfangsefni. Rannsóknir
á þeim piga án efa mikla
framtíð fyrir sér.“
,.Hvar og hve lengi starf-
aðir þú að vírusrannsóknun-
um?“
,.Eg vann að þeim í fjóra
mánuði við Rockefellersstofn
unina í Princeton í New
Jersey. Eg hætti um nýár
1946. Hér getur þú séð árang-
urinn af þessum rannsókn-
um mímmr.“ Þorbjörn tek-
ur að gramsa í stórum tré-
kassa, fullum af blöðum og
kynlegum Ijósmyndum. —
Þarna voru myndir af alls
konar vírusbaktiríum, stækk-
uðum um 30.000 sinnum. Ljós
myndirnar voru mjög skýr-
ar, enda teknar með nýtízku
Imiflúensu vírasar, 30 þús. sinnum stækkaðir. Myndin er
tekin gegrmm eiectrónsmásjá
tæki, elektrónu smásjá. Þor-
björn rétti að mér einhvern
bækling. Eg sé hann heitir:
on tobaco-mosaic ' vírus by
Electron Microscoþe studies
Thorbjörn Sigurgeirsson and
S. M. Stanley. „Hver er þessi
Stanley?“ verður méf að
orði. „Er ekki einhver fræg-
ur lífeðlisfræðingur til nteð
því nafni?“
„Stanley hefur fengið Nó-
belsverðlaun í lífeðlisfræði.
Hann hefur aðallega fengizt
við vísindarannsóknir“ segir
Þorbjörn brosandi. Mér verð-
ur aftur litið á kassann. Þor-
björn virðist hafa urínið all-
mikið þessa fjóra mánuði,
sem hann fékkst við vírus-
rannsóknir, þótt hann væri
að rnestu leikmaður, er hann
hóf stai'fann.
„Hafa nokkrar nýjungar
komið fram á sviði vírus-
rannsóknanna á síðustu ár-
um?“
„Hið merkasta mun vera,
að bóluefni við inflúensu
fannst á ofanverðum stríðs-
árunum. Þetta bóluefni ætti
að fyrirbyggja manntjón af
völdum farsótta eins og
Spönskuveikinnar. Það er
fremur auðvelt að framleiða
þetta bóluefni, því, að virus-
arnir dafna í hænueggjum.“
„Er nokkuð farið að fást
við framleiðslu þessa bólu-
efnis hér?“
„Mér er ókunnugt um það,
en þáð ætti ekki að vera erf-
itt, ef tæki væru til, sem
hægt væri að nota við að
hreinsa vírusana.“
„Valda vírusar ekki mæði-
veikinni og garnaveikinni?“
Það kemur hálfgerður
vandræðasvipur á Þorbjörn.
Hann hikar við að svara, en
segir: „Eg hef því miður enga
þekkingu á því.“
„Er ekki hægt að fljúga
með nokkrar mæðiveikar
kindur til Ameríku og fá úr
því skorið, hvert sé kyn sótt-
arinnar?"
,,Það kæmi sennilega að
litlu haldi. Hér er um miklu
rneira verk að ræða en hægt
er að biðja vísindamenn að
skjótast í; Við þurfum að
eignast okkar eigin rannsókn
arstofu, sem athugar þessi
efni frá rótum. íslendingur,
Halldór Grímsson, dvelur nú
í Princeton og kynnir sér
vírusrannsóknir. Hann tekur
síðar við stöðinni á Keld-
um.“
Geimgeislar, leyndar-
dómar kjarnorkunnar
og afstaða vísindamanna
„Við skulum venda okkar ~
kvæði í kross. Hvað stai'fað- ;;
ir þú aðallega og hvar dvald- ”
ir þú, eftir að þú kvaddir J
vírusana?“
,.Eg dvaldi áfram í Pi'ince- t
ton. Eg var þar við háskól- "
ann við athuganir á kosmisk
um geislum (geimgeislum). ijl
Mig minnir, að það hafi ver
ið um síðustu áldamót, að +
vísindamenn urðu varir við ;;
geislaverkanir, sem engir +
vissú deili á. Þjóðverjinn ■£■
Hess mun hafa verið hinn J
fyrsti, sem sýndi fram á, a'ð ”
áður óþekktir geislar kæmu jj.
utan úr geimnum. Uppruni
þeirra er enn óleyst gáta. I
þessum geisliun finnast agn-
ir, sem geyrna meiri orku en
fur)dizt hefur nokkurs stað- ±
ar annars staðar og menn L
geta gert sér vonir um að ••
framleidd verði hér á jörð- ;•
inni. Geislarnir virðast ;;
stöðugum breytingum und- ”
irorpnir. Fyrir ofan gufu-
hvolfið mun vera 50 sinnum L
Framhald á 8. síðu.
AUGLTSING
Nr. 7, 1147
frá skömmtuaarstjóra.
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23.
sepember 1947 um sölu og afhendingu benzíns og
takmörkun á akstri bifreiða hefur viðskiptanefnd-
in ákveðið eftirfarandi:
Á tímabilinu frá 1. október til 31. desember
1947 skal mánaðarskammtur bifreiða af benzíni
vera sem hér segir í þeim flokkum er að neðan
greinir::
A 1 Strætisvagnar 1800 lítrar.
A 2 Aðrar sérleyfisbifreiðar svo og mjólkur-
flutningabifreiðar 900 lítrar.
A 3 Leigubifreiðar til mannflutninga 5—7 manna
400 lítrar.
A 4 Einkabifreiðar 5—7 manna 60 lítrar.
A 5 Einkabifreiðar 2—4 manna 45 lítrar.
A 6 Bifhjól 15 lítrar.
B 1 Vörubifreiðar yfir 5 tonna 600 lítrar.
B 2 Vörubifreiðar 4—5 tonna 500 lítrar.
B 3 Vörubifreiðar 3—4 tonna 400 lítrar.
B 4 Vörubifreiðar 2—3 tonna 350 lítrar.
B 5 Vörubifreiðar 1—2 tonna 200 lítrar.
B 6 Vörubifreiðar ]/ó—1 tonn 100 lítrar.
B 7 Vörubifreiðar (sendiferðabifreiðar) minni
en 14 tonn 45 lítrar.
Úthluta skal til bifreiðanna sem taldar eru í A
flokki benzínskammti fyrir þrjá mánuði í einu, þ. e.
til 31. des. 1947, en til bifreiðanna, sem taldar eru í
B flokki (Vörubifreiðanna) til aðeins eins mánaðar
í einu.
Reykjavík, 30. sepember 1947.
Skömmtunarstjórmn.
■■I-!-!-!"I-'l"l-,;'l.I"l-'I-'!-'l--;-.l.-l--l-.H-+++++++++.K-++-l-.i-.l--l-.i-++-K-++-l-4'
■.H..l..l-.M.-l"I"l"H"K"H"l-l"l"I"l"l"l-l-l"t"l"l"I"l-'i-l"I"l-l"H-K^H-H-:-l-H
Strætisv. iteykjavikur tiSkynnir:
Frá og með 1. okt. 1947 ekur heiltíma Sogamýr-
arvagninn sem hér segir:
Um Hvérfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut
að Rafstöð og til baka Suðurlandsbraut, Laugaveg,
Suðurl.br., að Rafstöð og til baka Suðurlandsbraut,
Breiðholtsveg, Sogaveg, Grensásveg, Suðurlandsbr.,
Laugaveg, Lækjartorg. Ekíð verður á 60 mín. fresti. t
Fyrsta ferð kl. 7 og síðasta ferð kl. 24.
Ath. Burfarartími frá Rafstöð er alltaf 5 mín.
fyrir hálfa tímann.
Ferðir liálftíma Sogamýrarvagnsins breytast
þannig:
B
Um Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut,
Grensásveg, Sogaveg, Blesugróf, og til baka um
Breiðhóltsveg, Langholtsveg, Holtaveg, Suðurlands-
braut, Laugaveg, Lækjartorg. Ekið á 120 mín. fresti.
Fyrsta ferð kl. 7,30, síðasta ferð kl. 23,30.
C
Um Hverfisg., Laugaveg, Suðurlandsbr. Grensás-
veg, Sogaveg, að Bústaðavegi og til baka uþi Breið-
holtsveg, Langholtsveg, Holtaveg, Suðurlandsbr.,
Laugaveg, Lækjartorg. Ekið þannig á 120 mín. fresti.
Fyrsta ferð kl. 8,30, síðasta. ferð kl. 22,30.
Ath. I þeim ferðum, sem ekið er í Blesugróf, er
burtfarartími þaðan alltaf 5 mín. fyrir heila tímann.
Frá vegamótum Bústaðavegar og Sogavegar fer 2
vagninn alltaf á heila tímanum. Síðasta ferð þaðan --
kl. 24.