Þjóðviljinn - 10.03.1948, Blaðsíða 4
ft
ÞJÓÐVILJINN
þlÓÐVILJINN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — S63Íalistaflokkurlnn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Quðmundsson (&b.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjaroason
Blaðamenn: AriKárason, Mtignús Torfi Ólafsson, JónasÁrnason
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu-
stig 19. — Simi 7600 (þrj&r línur)
Áskriftaverð: kr. 10.00 & mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint
rrentsmlðja Þjóðviljans h. f.
'Sósíalistaflokkurinn Þórseötu 1 — Sími 751,0 /þrjár línur)
f'
Viðskiptaráðherra eða kjaftakerling?
Það hefur aldrei þótt þægil^gt að verða uppvís að því
að fara með lygar, slúðursögur og slefu. ísleuzk tunga á
mörg orð um þessa manntegund, þeir eru nefndir lyga-
laupar, slefberar, kjaftakerlingar og öðrum álíka hressileg-
um skammaryrðum. Stundiun kemur fyrir, einkvun þar sem
pólitísk spilling er megn, að mjög háttsettir menn ávinna
sér þessa titla. Fyrir kemur að menn víla ekki fyrir sér
að ganga í þessa tegundaflokka þó þeir gegni þeim trún-
aðarstöðum fyrir land sitt og þjóð, að lygamar, slefan og
slúðursögurnar hrina ekki einungis á þeim sem einstakl-
ingum, heldur geta haft hinar öriagai’ikustu afleiðingar
fyrir þjóð þeirra og fyrir sambúð þjóða.
',k
Tékkóslóvakía hefur eftir stríð orðið eitt mesta við-
skiptaland fslendinga. Einmitt nú þessa- dagana munu
standa yfir viðskiptasamningar milli íslands og Tékkósló-
vakíu, sem ætlað er að tryggi framhaldandi viðskipfl þess-
ara þjóða svo nemi þremur til ■ f jórum tugum milljóna á
þessu ári. Tveir menn, sem mjög koma við íslenzka við-
skiptasamninga, fóru utan fyrir nokkru með fárra daga
millibili. Annar, Pétur Benediktsson sendiherra íslands í
Vestur-Evrópu og Austur-Evrópu, lagði af stað til Tékkó-
slóvakíu i því skyni að ganga frá hinum nýja viðskiptasamn-
ing. Hinn, viðskiptamálaráðherra fslands, Emil Jónsson,
lkgði leið sína til Noregs.
Almenningi á íslandi hafa enn ekki borizt fregnir frá
Tékkóslóvakíu frá Pétri Benediktssyni sendiherra, en vænt-
anlega verða þær á þá leið að gerður hafi verið víðtækur
viðskiptasamningur um sölu íslenzkra afurða fyrir tugi
milljóna króna og kaup á nauðsynjavörum íslendinga frá
Tékkum.
Hinsvegar taldi æðsti maður viðskiptamálanna á ís-
landi, Emil Jónsson, ástæðu til að flytja fréttir frá Tékkó-
slóvakíu strax og hann kom úr utanlandsförinni. í við-
tali við flokksblað sitt, Alþýðublaðið, segir ráðherrann að
stjórnarskiptum í Tékkóslóvakíu hafi „verið tekið með mikl
um óhug á Norðurlöndum11, og hvíli „skuggi þeirra við-
burða“ ,,nú yfir hinum norrænu þjóðum“. Svo segir ráð-
herrann orðrétt „Viðburðir eins og lögreglumorðið á tékk-
nesku stúdentunum, sem leyfðu sér að hafa skoðun, hafa
haft djúp áhrif“.
★
Maður skyldi ætla að jafn ábyrgur maður og íslenzkur
viðskiptamálaráðherra hefði heimildir sínar í lagi, að hann
léki sér ekki að því að ávinna sér titla eins og lygalaupur
og kjaftakerling um vinveitta þjóð, sem hefur jafnan sýnt
mikinn áhuga og skilning á norrænum málum, og er auk
þess ein bezta viðskiptaþjóð Islendinga. Það er fjarri Þjóð-
viljanum að telja óheimilt að gagnrýna atburði eða stjórn-
arfar erlendra ríkja þó þau byggi góðar viðskiptaþjóðir ís-
lendinga. En hinu eiga allar þjóðir heimting á, að ábyrgir
stjórnmálamenn erlendra ríkja lepji ekki upp lygasögur og
áróðursslefu til ófrægingar hlutaðeigandi þjóð.
★
Nánari fregnir hafa nú borizt af atburðunum í Tékkó-
slóvakíu, þar á meðal um þátt nokkurs hóps háskólastú-
denta í Praha. Á síðasta degi stjórnarkreppunnar höfðu
afturhaldssömustu stúdentar Prahaháskólans skipulagt
kröfugöngu til ríkisforsetans, sem þó hafði fyrr um dag-
inn sagt samskonar kröfuhópi ótvírætt afstöðu sína. Er
stúdentarnir nálguðust forsetabústaðinn voru þeir stöðvað-
ir af lögregluþjónum vegna þess að þá stóðu sem hæst
stjómmálaumræður er leiddu til lausnar kreppunnar. LÖg-
egluþjónarnir báðu stúdentana að fara heim, en í stað þess
Ástandlð á flugvallar-
hótelinu
„Víðfönill“ segir ljótt af á-
standinu á Hótel Ritz í eftirfar-
andi bréfi:
„Kæri bæjarpóstur.
Nú langar mig til að kvabba
svolítið á þér og af því það er
í fyrsta skipti þá vona ég að þú
verðir svo góður að koma þessu
á framfæri fyrir mig. Eg sendi
með fullt nafn og heimilisfang
og er tilbúinn að taka afleið-
ingunum af því sem ég segi.
Þannig er mál með vexli að
síðastliðið laugardagskvöld fór
ég á dansleik, sem haldinn var
á flugvallarhótelinu Ritz og
fannst mér margt þar með þeim
endemum að ég til nauðsynlegt
að það sé rætt opinberlega. Því
þar sem þetta er sá staður sem
erlendum ferðamönnum er ætl-
a.ð' að dvelja á, og ef þeir fá
sömu viðtökur og íslenzku gest-
irnir fengu á téðum dorsleik
held ég að ekki fari hjá því að
þeir sannfærist um það r.ð hér
búi skrælingjar.
★
Hálfs annars tíma hið
eftir afgreiðslu
„Þegar ég kom var klukkan
rúmlega 9. Eg valdi mér borð
af þeim fáu sem eftir voru ó-
frátekin og beið rólegur í hálf-
tíma. En þegar ég sá að ekki
voru líkur til, að neinn þjónn
kæmi til að afgreiða, hóf ég leit
að honum og gekk hún preið-
lega. Maðurinn hafði fremur
góð orð um að við fengjum af-
greiðslu bráðlega, en það dróst
nú hvorki meira né minna en til
kl. 10.30, eða einn og hálfan
klukkutíma.
*
Ekki mikil fjölbreytnin
».Og ekki var nú mikil fjöl-
breytnin í því sem hægt var að
fá: Coea-cola og Póló að
drekka, fyrir utan whiský, gin
og eitthvað fleira af áfengi. En
þegar líða tók á kvöldið, voru
allir gosdrykkir búnir og ekkert
að hafa nema óblandað áfongi.
Sígarettur fengust ekki allt
kvöldið, að Players undanskild-
um, engar eldspýtur og engir
vindlar. Þannig er nú búskapur
inn á flugvaliarhótelinu við
höfuðborg íslands. Klukkan 1
var þessari fínu samkomu svo
lokið og þótti flestum nóg að
borga 25 kr. fyrir þann sv.utta
tíma, — þótt að vísu hefði ver-
ið borgandi miklu meira fyrir að
koma þar ekki. Að endingu lang
ar mig til að spyrja hyort eng-
inn takmörk séu fyrir því hvað
má selja dýrt á þessi skröll.
Með kveðju, — Víðförull.“
Athugasemd várðandi
sölu saumavéla
Frá Samvinnutryggingunum
kemur'þessi athugasemd:
„Herra ritstjóri:
Fyrir skömmu síðan (þ. 28.
febrúar) birtist í blaði yðar í
dálkinum „Bæjarpósturinn"
bréf frá einhverjum er nefnir
sig ,,Þ‘f. Er þar gert að umtals-
efni að vér höfum selt nokkrar
saumavélar, er skemmdust í
flutningi tit landsins.
Til að fyrirbj-ggja misskiln-
ing, sem af skrifum þessum
kann að stafa, biðjum vér yður
reyndu þeir þrisvar að brjótast gegnum röð lögreglumanna,
er héldu byssum sínum fyrir framan. sig. I þriðju atrenn-
unni kvað við skot, einn stúdentanna særðist á fæti.
Þetta sár á fæti eins stúdents er f jöðrin sem Emil Jóns-
son viðskiptamálaráðherra Islands gerir ekki að fimm hæn-
um eins og H. C. Andersen, heldur verður það „lögreglu-
morðið á tékknesku stiúlentunum!" Plvort sem það var
slysaskot eða ekki sem lenti i fæti stúdentsins eru sjálfsagt
allir sammála um að viðskiptamálaráðherrann snuddar hér
við því að verða að athlægi og ávinna sér kjaftakerlinga-
nafnbót. Vart mundi ráðherrann telja að skuggi félli á Norð
urlönd þó skot hlypi í löpp á manni í Hafnarfirði, og vart
hneykslanlegt þó skyldurækin lögregla stæði í vegi áleit-
inna og æstra stúdenta er vildu ráðast heim að Bessastöð-
um, ef forsetinn og t. d. Emil Jónsson sætu við að leggja
síðustu hönd á myndun ríkisstjórnar á úrslitastund í lífi
íslenzku þjóðarinnar.
★
Vindbeigingur afturhaldsblaðanna um stjómarskiptin í
Tékkóslóvakíu og tilraunir hrunstjórnarinnar að vekja nýj-
an Finnagaldur hafa þegar misheppnazt algerlega. Almennt
er brosað að riddurunum í hræsnishjúpnum, sem sigað er
til æsinga um þessi mál og eiga eftir að skammast sín jafn
innilega og.þeir sem létu siga sér út í Finnagaldur. En ±>ak
við 'æsingarnar er hrunstjórnin skjálfandi á beinunum yf-
ir því að ekki takizt til fulls að fela bannið gega síldveiðun-
um og fyrirhugaðan niðuiskurð á f járlögum í liræsnissöngn
um um Tékkóslóvakíu. Og sá ótti er ekki ástæðulaus. ís-
lenzk alþýða veit af reynslu að þegai- „baráttan gegn kom-
múnismanum" er pískuð upp í algert brjálæði í afturhalds-
blöðunum, er verið að fela óþokkaverk hér heima.
Miðvikudagur 10. marz 1948.
að birta eftirfarandi athuga-
semdir.
1. Það er algild venja, hvar
sem er í heiminum, að váti’j’gg-
ingafélög selji skemmdar vör-
ur upp í skaðabætur.
2. Vélarnar voru seldar með
fullu samþykki verðiagsstjóra,
og er hér alls ekki um nelnn
svartan markað að ræða eins
og bréfritarinn (Þ) gaf í skyn.
3. Vélamar voru seldar að
meðaltali á kr. 1.053.00 eftir
þeim tilboðum, sem í þær feng-
ust, en útsöluverð á samskonar
vélum í KRON var um kr.
1.500.00.
4. Flestar vélamar vom mjög
lítið skemmdar og sumar svo,
að vart var hægt að greina
skemmdimar. Það voru aðeins
skápai'nir utan um vélarnar,
sem höfðu skemmzt.
Að lokum viljum vér tjá yður
hr. ritstjóri, að oss þykir það
miður, að þér skylduð birta
þetta nafnlausa bréf, án þess,
að hafa tal af oss og fá fullar
upplýsingar um málið. Teljum
vér að yður í nafni Samvinnu-
hreyfingarinnar hafi. borið
skylda til — að minnsta kosti
-— að gefa oss tækifæri til þess
að birta samdægurs svar vort
við aðdróttunum þeim, sem
fram komu í bréfi hr. „Þ“.
Þá viljum við geta þess, að
dráttur sá, sem orðið hefur á
þessu bréfi voru, stafaði af fjar
veru bréfritarans.
Virðingarfyllst,
pr.’pr. Samvinnutryggingar.
E. Einarsson.
Aths. Bæjarpóstsins: Því skal
ekki neitað að betur hefði á bví
farið, ef bréfið hefði verið sýnt
hlutaðeigandi aðiljum, áður en
það var birt. Samt sýnísc mér
ekki muna mikiu í þessu ti'felli,
j hvort svarið birtist stra.í eða
fám dögum síðar.
Skíðamót
Siglufjarðar
Framhald af 8. síðu.
heiður Rögnvaldsdóttir Sk.Sf. á
1.14.6 min. Fyrst í C-ílokki
kvenna varð Guðrún Alfonsd.,
Skíðaborg, á 1.25.0 mín.
Brunið fór fram í Skarðsdaln
um. Hófst uppi á Iillviðrishr.júk
og endaði rétt ofan við Skarðs-
dalsbæinn.
Svigmeistari Siglufjarðar
varð Ha'raldur Pálsson, Sk.Sf.,
á 2.58.6 mín. Fyrstur í B-flokki
varð Guðmundur Ánias., Skíða-
borg, á 2.58.8 mín. Fyrstur i
C-flokki varð Jón Sveinsson,
Skíðaborg, á 2.13.T mín. Svig-
meistari kvenna varð Aðalheið-
ur Rögnvaldsdóttir, Sk.Sf., á
1.31.0 mín. Fyrst í C-flokki varð
Guðrún Alfonsdóttir, Skíðaborg
á 1.40.4 mín.
Meðan á svigkeþpninni stóó
var norðaustan fjúk og vont
færi. Keppnin fór fram austan
í Snók. Eftir er að keppa í
stökki og göngu í öllum flokk-
um og boðgöngu. Þátttaka er
frekar lítil og veldur þar mestu
hin góða og stöðuga atvinna
sem verið hefur við síldarvinnsl-
una í vttur.