Þjóðviljinn - 17.03.1948, Side 4
ÞJÖÐVILJINN
Miðvikudagur 17. marz 1948.
<
l
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður GuðmunAsson (áh.)
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason
Blaðamenn: AriKárason, Magnús Torfi ÓJ.afsson, JónasArnason
Ritstjórn. afgreiðsla, auglýsingar. pre&tsmiðja Skólavörðu-
Btíg 19. — Sxml 7B00 (þrjár linur)
Askriftaverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausaeöluverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Sósíalistafiokknrinn 'Þórss'ötu 1 — Simi 7510 (þrjár línur)
Heljarstökk Gy!fa Þ. GísEasonar
Til skamms tíma hafa sumir ímynda-ð sér að Gylfi Þ.
Gíslason væri að einhverju leyti málsvari hinna fomu hugs-
sjóna Alþýðufloksins, þeirra hugsjóna sem fyrir löngu hafa
verið sviknar á hinn herfilegasta hátt af ráðamönnum
flokksins. Og prófessorinn hefur vissulega stundum komið
fram í því gervi, þótt hann hafi gætt þess að fylgja ævin-
lega Stefáni Jóhanni í stórátökum. En margt hefur bent
til þess að ráðamenn Alþýðuflokksins hafi af ráðnum hug
látið Gylfa Þ. Gíslason spila ofurlítið „til vinstri", til þess
að róa þá fjölmörgu kjósendur sem andstæðír eru hinum
svikulu forsprökkum; þar hefðu hinir óánægðu átt að sjá
leiðtoga, sem þó væri innan Alþýðuflokksins! Og það er
engum efa bundið að þetta herbragð hefur haft nokkur
áhrif, ýmsir hafa haldið að Gylfi Þ. Gíslason væri heiðarleg-
ur og sannur stjómmálamaður sem vert væri að styðja.
En á fundi Stúdentafélags Reykjavíkur hljóp Gylfi
Þ. Gíslason snögglega og eftirminnilega út ur því hlutverki
sem hann hefur leikið af nokkurri kunnáttu undanfarin ár
og kom nú fram sem vanstilltur og ákafur samherji svart-
asta afturhaldsins og dollaraagentanna. á Islandi við hlið
Jóhanns Hafsteins! Hann spratt þar upp sem forustumaður
í hiniun nýja galdri^íslénzku dollaraþjónanna, þar sem
reynt er að nota upplognar æsifregnir frá Tékkóslóvakíu til
þess að klekkja á íslenzkum sósíalistum og framfaraöflun-
um á íslandi. Og þessi virðulegi prófessor lét sér sæma að
fómá lærdómstitli síniun og embættisheiðri í svo óheiðarleg-
um málflutningi að slíks munu fá sem engin dæmi um mann
í hans stöðu. I munni hans urðu óstaðfestar og afsannaðar
Reutersfréttir hinar öraggustu heimildir, hann, prófessorinn
í hagfræði, gerði enga tilraun til þjóðfélagslegrar könnunar
og lézt ekki vita rnn nein átök milli sósíalisma og kapítal-
isma, og dró að lokum þær ályktanir að íslenzkir sósíalistar
væru þæði óþjóðhollir og ólýðræðislegir!
En Gylfi Þ. Gíslason lét sér ekki nægja að fóma fræði-
mannsheiðri sínum á alltari Tékkagaldursins. Hann hefur
sem kunnugt er tekið opinbera afstöðu með íslenzku þjóð-
inni í baráttunni gegn herstöðvasamningnum og hvergi feng
ið skoðanir sínár og orð birt um það mál nema hér í Þjóð-
viljanum. En einnig þeirri afstöðu var hann reiðubúinn að
fórna á stúdentafundinum til þess að þóknast hinum nýju
bandamönnum sínum, Bandaríkjaagentuntun. Eins og skýrt
var frá í blaðinu í gær, snerist hann opinberlega gegn því
•að borin væri upp sérstaklega tillaga um uppsögn herstöðva-
samningsins, en krafoist þess að hún væri borhi upp ásamt
tveim öðrum liðum. Og síðan greiddi hann hiklaust atkvæði
gegn tillögimni í heild. Svo djúpt er Gylfi Þ. Gíslason nú
sokkinn, svo herfilega hefur hann bragðizt því trausti sem
honum hefur verið sýnt.
Og enn átti Gylfi Þ. Gislason eftir að sýna enn betur
sinn innj’i mann. I seinni ræðu sinni, er hann stóð uppi al-
jgerlega. rökþrota, greip hann til þess óyndisúrræðis að lýsa
yfir því, með andlitssvip sem festast hefði átt á ljósmynd,
að Nordahl Grieg hefði trúað sér fyrir því nokkrum mán-
uðum eða jafnvel ári áður en hann lét lífið fyrir hugsjónir
sínar, að hann hefði snúið baki við þessum hugsjónum!
Hefði Nordahl Grieg þannig átt að' gera Gylfa Þ. Gíslason
að eina trúnaðarmanni sínura í veröldinni, opinbera honum
það sem öllum öðram var hulið! Frú Gerd Grieg kom hér
í blaðinu í gær með þá velviljúðu skýringu að frásögn Gylfa
stafaði af fákunnáttu í norsku, en öórum munu vetða
minnisstæð önnur hliðstæð dæmi, þar sem minning látinna
stórmenna hefur verið óvirt, eftir að þeir gátu ekki lengur
borið hönd fyrir höfuð sér.
★
Það er engum efa bundið að framkoma sú sem Gylfi Þ.
Cííslason ástundaði á stúdentafundinum hefur verið undir-
Gallharður um neðan-
ívarsmanninn G. J. Á.
Gallharður skrifar:
„Mig langar að segja nokkur
orð um neðanívarsmanninn G.
J. Á. Forskeytið neðanivars —
er tekið úr grein Stefáns
Haraldssonar í nýútkomnu hefti
Landnemans.
Þegar neðanívarsmaðurinn G.
J. Á. lætur sér nægja að segja
frá því, að Tyrone Power sé
„skotinn" í Lönu Turnerög far
ekki með fræðslustárfsemi sí’ta
út fyrir ástand ástamála í
Hollywood, skal ég láta hann
afskiptalausan. Og ekki skal
ég heldur skipta mér af honum,
þegar hann, í gerfi óupplýstfar
Reykjavíkurstelpu, tekur þátt
í „viltu geimi“ með nokkrum
,,giannagæjum“. Hann má jafn-
vel fara með sínar „rómó“-hug-
leiðingar í útvarpið, án þess eg
kalli hann leiðindaskarf á
prenti.
★
Tilhugalíf Ástralíu-
negra
„Og vegna þess að G. J. A.
hefur gefið hávísindalegar upp-
lýsingar um tilhugalíf Ástralíu-
negra, væri ég meira að segja
til með að fyrirgefa honum
jafn drastíska dellu og þá, nð
gera liinn látna heimskautafara,
Knud Rasmussen, vað núverandi
utanríkisráðherraherra Dan-
merkur. Tilhugalíf Ástralíu-
negra er fjarlægt rannsóknar-
efni og vafalaust tímafrekt til
úrlausnar fyrir umkomulausun
blaðamann hér uppi á íslandi,
þar af leiðandi kannski skiljan-
legt, að honum gefist ekki tóm
til að fylgjast svo vel með mál-
um í fyrrverandi sambandsríki
okkar, að hann vitl, að utanrik-
isráðherrann þar heitir ekki
Knud Rasmussen, eins og G.
J. Á. kallar hann í dag (sunnu-
dag) heldur Gustav Rasmu.i-
sen.
A
Tilefni skrifanna
„Eg skipti mér sem se.gt ekki
af neðanívarsmamiin’im G. J.
Á„ þótt hann taki þátc í þeirri
menningarstarfsemi Heimilis-
ritsins, að afla ísændingum
frétta um kelerí HolljTvoodleik-
ara, eða geri sig að tiltöiulega
saklausu fífli með því að skipa
látinn heimskaute.fám í em-
bætti utanríkisriéherra hjá
Dönum. —En þes.io.r síðustu
vikur hefur- það færzt mjÖg í
vöxt., að G. J. Á. lætur prenca
undir sínu nafni lygaþvætting
um heimspóli íkina, og fyiir
þetta vil ég, aö hann læri að
skammast uín. — Tilefni þess-
ara skrifa minr.a ei Iiinn heims
pólitíski þruglari og neðam'vars-
maður G. J. Á,
★
Kremlin
„Allt, sem stendur i neðan-
ívarsdálkunum „Meðai annara
orða. á að vera eftir G. J.
Á. samkvæmt upplýsingnm í
litium ramma. Sannleikurinn er
hinsvegar sá, að mikill mein-
hluti þess, sem þarna er sagt
um ástandið í alþjóðamálum, er
bein þýðing úr bandarískum
sorpritum, sem í einu og öilu
túlka liina fasistisku heimsvalda
stefnu kvaleranna í Wall
Street. En það er aðeins sára-
sjaldan að G. J. Á. prentar
þessar þýðingar sínar inn-
an gæsalappa. Venjulega tll-
einkar hann sér gæsalappalaust
þann vafasama heiður að vera.
höfundur þeirra. Þýðingamar
eru hinsvegar alltaf augljósar.
T. d. kemur vanþekking neðan-
ivai-smannsins á íslenzkri mál-
venju mjög' oft upp um haun.
Ákveðin orð og orðasambönd
eru þama gegnum gangaadi
sett fz-am eftir euskri málvenju.
Eg nefni s. d. aðalbækistöðvar
vonda karlsins Stalíns. Samlcv.
íslenzkri málvenju heita bær
Kreml, en neðanívarsmaðurinn
kallar þær alltaf Kremlin (sbr.
Hjaltalín, Vídalín, Espólín?).
★
Aðalatriðið
„Annars er þetta aukaatriíi.
Aðalatriðið er, að þama reymr
heimspólitískur rati með vax-
andi ákefð að spila sig heims-
pólitískan vitring, — og Þjóð-
viljinn hefur gcrt alltof liiið
til að kenna honum að skamm-
ast sín fyrir það. Slíkt má ekki
viðgangast. Það verður að le'ða
G. J. Á. fyrir sjónir, að háun
mundi votta mannorði sínu
mikla samúð ef hann hætti
öllum deri'ingi á heimspólitiska
vísu, en léti sér nægja að fyígj-
ast með keleríinu í Hollywood
og framvindu tilhugaiífsins hjá
Ástralíunegrum.
Gallharður".
ÆtSar íhaldið og Framsékn að samein-
ast um eyðileggingu húsaleigu-
laganna?
Meiríhluti heUbrigðis- og félagsmálanefndar efri deildar, Páll
Zóphóníasson, Gísli Jónsson og Lárus Jóhannesson leggja til að
frumvarpið uni breytingu á húsaleigulögunum verðí samþykkt.
Minni hluti nefndarinnar, Brynjólfur Bjarnason og Hanniba!
Valdimarsson, leggja til að frnmvarpið verði fellt.
í nefndaráliti minnihlutans segir m. a.:
„Þegar meiri hluti heilbrigðis-
og félagsmálanefndar hreyíði
því á nefndarfundi að heilbrigð-
is- og félagsmálanefndin tæki
að sér að flytja frumvarp til
breytinga á húsaleigulögunum,
kom það strax í Ijós, að við
undirritaðir nefndarmenn vild-
um ekki eiga híut að því emr
sem komið er.
í frumvarpinu, sem meiri
liluti nefndarinnar flytur, er
lagt til, að niður verði felldar
1., 2., 10. og 14. gr. húsaleigu-
laganna, og er aðalefni breyt-
inganna í því fólgið, að húseig-
endur megi almennt segja upp
leigusamningum um húsnæði.
Þetta er eitt þýðingarmesta á-
kvæði laganna, og væru þau
einskisverð, eftir að hömlur
þær, sem nú eru í lögum á upp-
sögn leigusamninga, væru niður
felldar. Þess vegna leggjum við
eindregið til, að frumvarpið
verði fellt.
Heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd hefur átt þess kost að
kynna sér álit milliþingancfnd-
ar/ er ríkiestjórnin skipaði sum
arið 1946 til þess að rannsaka
áhrif húsaleigulaganna og end-
urskoða þau, ef ástæða þætti
til. Nefnd þess var skipuð þeim
Baldvin Jóussyni héraðsdóms-
lögmanni, Agli Sigurgeirssyni,
héraðsdómslögmanni og Gunn-
ari Þorsteinssyni hæstaréttar-
málaflutningsmanni. Áliti skil-
aði hún 24. febrúar 1947.
Lagði meiri hluti milliþinga-
nefndarinnar, þeir Baldvir. Jóns
son og Egill Sigurgeirsson, til
að húsaleigulögunum yrði ekki
haggað eins og stæði, en minni
hlutinn, Gunnar Þorsteinsson,
taldi hins vegar rétt að breyta
þeim.“
Nefndarmenn skýra þar næst
frá svörum við fyrirspurnum
sem milliþinganefndin sendí
húsaleigunefndum víðsvegar um
.land. Voru nær öll svörin á þá
leið að húsaleigulögin hefðu
verið til gagns og væri ekki ráð-
legt að gerbreyta þeim nú.
„Það er ekki að undra, þótt
meiri hluti milliþinganefndarinn
ar teldi, að fengnum slíkum
svörum úr öllum landshlutum,
að afnám líúsáleigulaganna væri
ekki ráðlegt eins og stæði, enda
er niðurstaða þeirra í megin-
atriðum þessi:
Húsaléigulögin hafa .komið í
Framh. á 7. síðu.
búin af ráðamönnum Alþýðuflokksins, engu síður en spilið
„til vinstri". Nú er slíkt sprikl talið ástæðulaust, nú á að
leggja allt kapp á samstillta herferð afturhaldsins, „hreinar
línur“ eins og Alþýðublaðið segir. Og Gylfa Þ. Gíslasyni
var ■sagt að taka undir sig heljarstökk og koma niður í yzta
væng afturhaldsfylkingarinnar. Slíkt heljarstökk getur
enginn tekið undir sig án þess að skaddast stórlega, jafnvel
þótt hann sé mikill íþróttamaður, og Gylfi Þ. Gíslason er
ekki samur maður eftir, heldur annar og stórum minni.