Þjóðviljinn - 09.05.1948, Side 8
N
Shipið íér irá S<an Franciseo I íh iebr* m§ hef-
ur siglt samtuis 87otP s§omílur
M.s. Tröllaíoss sem Eimskipafélag íslands heí'ur keypt af
Bandaríkjastjórn, kom hingað til Reykjavíkur í gærkvöld.
Tröllafoss er eins og áður hefur verið skýrt frá, stærsta skip
sem íslendingar enn hafa eignazt. Skipið er 338 feta og 8
þuml. langt, 50 feta og 4 þuml. breitt, 29 feta djúpt. Smálesta-
tala 3805 brúttó, 2123 nettó, en „deadweight" er það talið 5100
sml. miðað við 21 feta djúpristu. Skipið getur flutt allt að því
5500 smál. af þungavöru (gerði það nú í þessari ferð á leið-
inni frá Havana til Baltimore). Af almennri stykkja-vöru getur
það tekið 3500—4000 sml. Lestarrúm skipsins eru samtals að
rúmmáli 238.000 teningsfet, þar af 10.000 teningsfet frystirúm.
(Er'það nærri þrisvar siimmn meira lestarrúm en í Brúarfossi,
sem er 80.000 ten.fet að rúmmáli).
í'jóðviljinn fékk í gær eftir-
farandi upplýsingar um skipið
hjá skrifstofustjóra Eimskipa-
félagsins:
Skipið hét áður „Coastal
Courser" og er eitt af skipum
þeim sem Bandaríkjastjórn lét
byggja meðan á styrjöldinni
stóð. Skip af þessari gerð hafa
■eins og kunnugt er lengi verið
i förum hér, og eru þvi lands-
mönnum kunnug undir nöfnun-
um „Salmon Knot“, „True
Knot", „Span Splice" o. s. frv.
Trúnaðarmenn Eimskipafé-
lagsins í San Francisco völdu
þetta skip, sem bezta fáanlega
skipið af þeim skipum sem fé-
iaginu var gefinn kostur á að
kaupa. Skipið var fullsmiðað í
desember 1945 og hefur verið
í notkun aðeins rúmlega eitt og
íhálft ár, eða frá því í febrúar
1946 þangað til í sept. 1947.
Skipið lagði af stað frá San
Francisco 19. febrúar s.l., og
hefur ferðin til Reykjavíkur því
tekið 80 daga. Vegalengdin, er
skipið hefur siglt er alls 8750
sjómílur. Siglingin sjálf hefur
tekið 50 daga, en 30 daga hefur
skipið legið í höfnum vegna
fermingar og affermingar.
Tröllafoss tók fyrst farm
til Guyamas i Mexico. Þar tók
skipið aftur farm og sigldi gegn
um Panamaskurðinn til Havana
á Cuba. I Havana lá skipið rúm
an hálfan mánuð og fór baðan
3. apríl með farm tii Baltimore,
sigldi síðan til Nevv York. Þar
tók skipið farm ti! Islands og
lagði af stað frá New York 28.
apríl s.l. Hefur skipið þvkverið
um 11 sólarhringa frá . New
York til Reykjavíkur.
Skipið er með tveim stálþil-
förum stafna á milli, með hall-
andi framstefni og svonefndmíi
„Krydser" afturenda, og vélin
aftast í skiþmu. Það er allt raf-
isoðið, byrðingurinn, öll þiiför,
botntankar, skilrúm og yíirleitt
allt i skipinu er úr stáli.
I skipinu eru 6 vatnsþétt skil
:rúm.
Lestarrúmin eru fjögur. Fyr-
ir framan og aftan. Vinuuljós
á þilfari eru góð, í öllum lestar-
rúmum er mjög góð loftræst-
ing, Alls eru 14 losunar„bóm-
nr“ á skipinu með 16 rafmags-
yindum, bár af er ein „bóma“
fyrir 30 smál. þunga og ónnur
fyrir 20 smál.
Björgunarbátar eru 2 og
taka þeir 40 manns hvor. Bát-
arnir eru úr stáli og báðir með
mótor. Þeir eru í svonefndum
„Gravity“ davíðum, og eru
dregnir upp með rafmagnsvind-
um. Er mjög fljótlegt að setja
bátana í sjóinn og draga þá
upp, og getur einn maður vert
það. Á að vera hægt að koma
þeim í sjóinn á 30 sekúndum.
I skipinu er rúm fyrir 365
smál. af dieselolíu, en auk þess
má nota aðra geyma fyrir allt
að 500 smál. af aukabirgðum
af oliu. — Geymslur allar eru
mjög góðar, t. d. eru kæligeymsl
ur fyrir matvæli 2240 ten.fet og
aðrar geymslui' brytans um
1800 ten.fet.
Á stjómpalli er stýrishús og
leiðarreikningsherbergi þar fyr
ir aftan, mjög rúmgóð, og búin
flestum áhöldum, sem nú teljast
nauðsynleg fyrir siglingar, svo
sem „Gyro“ áttavita með sjálf-
virkum stýrisútbúnaði, og
„rópeaters" á sex stöðum í skip
inu, miðunarstöð, dýptarmæli,
og allskonar öðrum tækjum sem
of langt er að telja, enda varla
Jtil nöfn yfir þau öll í islenzku
máli.
Á bátaþilfari, eða næst.a þil-
fari fyrir neðam stjórnp, er íbúð
skipstjóra, dagstofa, svefn’defi
og snyrtiherbergi með steypi-
baði. Stór .loftskeytaklefi með
nútíma útbúinni loftskeytastöð,
en talstöð er ekki í skipinu, og
veiöur liún sett í það bráðlega.
Þar er einnig sv'efnklefi loft-
skeytamanns, og klefar fyrir'
rafgeyma, gyro-áttavita •>. fl.
Af þessu þilfari er gengið
niður i húsið á ,,poop“ þilfari.
Þar búa 3 stýrimenn og bryti,
svo er þar herbergi sem notuð
voru fyrir fallbyssulið, en verða
notuð fyrir farþega. Verður
hægt að taka allt að 10 far-
þega með skipinu. Þar er einnig
borðstofa yfirmanna með til-
heyrandi búri, ennfremur snyrti
klefi, steypibað o. fl.
Á aðalþilfari eru íbúðir yfir-
vélstjóra og þriggja vélstjóra.
á þessu þilfari eru einnig íbúð-
ir allra annarra á skipinu, en
skipshöfnin er alls 31—33
Fiaiuhald á 7- sílSu
Félag samcinuðH
þjóðanna á
ísiandi
Félag Sameinuðu þjóðanna á
íslandi var stofnað síðdegis í
gær að Hótel Borg. Á stofn-
fundinum voru 70—80 manns.
Fundarstjóri var dr. Helgi
Tómasson og.fundarritari Hend •
rik Ottósson. Formaður félags-
ins var kosinn Ásgeir Ásgeirs-
son alþm. en aðrir í stjórninni
eru: herra Sigurgeir Sigurðsson
biskup, Ólafur Jóhannss. oróf.,
frú Guðrún Pétursdóttir og Sig
urður Bjarnason alþm.
Tilgangur felagsins er m. a.
að fylgjast með störfum Sam-
einuðu þjóðanna, kynna starf-
semi þeirra og auka samúð milli
allra þjóða.
Fest kaup á
síldarnétum
Kristinn Jónsson framkvæmda
stjóri á Dalvík er nýkominn
heim úr þriggja vikna ferða-
lagi um Skotland, England og
Danmörk, en þangað fór hanr.
til þess að kaupa efni í síldar-
nætur.
í ferðinni keypti hann síldar
nætur fyrir 80 þús. kr„ er koma
til landsins í þessum mánuði
og sá eimfremur um kajp á
10 Faxaflóanótum er munu
koma til landsins í ágúst í sum-
ar. Taldi hann verðið í þessum
löndum hagstæðara heldur en
í Bandaríkjunum. Vegna tak-
markaðs gjaldeyris til ferðar-
innar hafði hann þó ekki haft
tök á að leita eins vel fyrir sér
um kaup og þörf hefði verið é.
— Innflutningsleyfi hefur verið
veitt fyrir nokkrum hluta þess
sem hann festi kaup á.
fahr vann í j
meistaraflokki
Hraðkeppni Ármanns í liand-
knattleik lauk í gær.
Órslit urðu þau að Valuv
vann í meistaraflokki í úrslita-
leik við Fram með 5 mörkuri
gcng 3. Valur vann einnig í II.
fl. úrslitaleik við K.R. með 3:2
og K.R. vann í III. fl. í úrslita-
leik við Val með 4:2.
9 félög voru skráð til keppn-
innar, samtals 20 flokkar, eu
eitt félag K.R. mætti ekki til
leiks í gær í meistaraflokki og
Akurnesingar gátu heldur ekki
mætt í gær.
Áhorfendur voru lærri en
búast hefði mátt við.
Er ríkisstjórnin byrjuð að ráð-
stafa Marshallvörubílunum 710?
Eru ráohesramir viljakiisir þjónar hásbænd-
asma í Wall Síreet?
Samkvæmt áætluninni um Marshall-„hjálp“ er Is-
lendingum ætlað að Itaupa á þessu ári 700 vörubila.
Þörf landsmanna fyrir fleiri vörubíla eit Jiegar eru til
í landinu sést bezt á því að undanfarið ihefur verið svo
lítið að gera fyrir vörubílstjóra að allt að því helming-
ur stéttarinnar niá nú teljast attiivnulaus.
Ríkisstjórnin hefur með stöðvun sinni á byggingum
og öðrum verklegum framkvæmdum beinlínLs skipulagt
atvinnuleysi meðal vörubílstjóra.
SÍS hefur átt frá því s.l. haust milli 30 og 40 vöru-
bíla geymda austur á Sellössi og auk þess er fjöldi bíla
sem þegar hafa verið ákveðin kaup á, en eru ekki komn-
ir til landsins. Aftur á móti hafa varahlutir í vörubíla
ekki fengizt í sjö mánuði.
Samt mun ríkisstjórnin hafa verið — samkvæmt
skipun húsbænda sinna í Wall Street — að reyna að
troða vörubílum inn á ýmis ríkisfyrirtæki og fleiri.
Er hér með skorað á stjórnarvöldin að svara því
hvort þau ætli að flytja inn vörubíla í hundraðatali á
þessu ári?
Vöi-ubíla sem Islendingum eru ætiaðir i áætluninni
um Marshall-„hjá]p“ en sem landsmenn hafa ekkert
með að gera.
Finnskir kratai
rjúfa stjórnar-
samstarf
Ríkisverzlun
tryggir verð-
lækkun
Finnskir sósíaldemókratar
hafa sagt upp samningnum um
stjórnarsamstarf, sem gilt hef-
ur milli þeirra, Lýðræðisbanda-
lagsins, Bændaflokksins og
sænska flokksins síðan 1945 og
er grundvöllur núverandi rík-
isstjórnar. Þeir segjast þó m'uni
sitja í stjórn fram yfir kosn-
ingarnar í sumar. Sem átyllu
fyrir samningsrofinu færa þeir
ásakanir í garð kommúnista
um ái'ásir á vinsamleg ríki og
fyrirætlanir um hreinsun í em-
bættiskerfinu.
Norðnenn og
Danir viija hern-
aðarbandalag,
Svíar tregir
Fundur forsætisráðherra
Danmerkur, Noregs og Svíþjóð-
ar hófst í Stokkhólmi í gær. Er
hann haldinn í samljandi við
flokksþing sænskra sósíaldemó-
krata. Segja fréttaritarar, að
stjórnir Danmerkur og Noregs
séu þess fýsandi, að mynduð
verði formlegt hernaðarbanda-
lag Norðurlanda með gagn-
kvæmum varnarsáttmálum, en
sænska stjórnin er talin treg
til að hverfa svo gersamlega
frá hlutleysisstefnu sinni.
Ríkisverzlanimar í Rúmeníu
hafa tilkynnt nýja verðlækkun.
Er þetta sjötta verðlækkimin.
sem ríkisverzlanirnar tilkynna
síðan þær voru settar á stofn í
sambandi við gengisfestinguna
í fyrrahaust. Við hverja verð-
lækkun ríkisverzlananna iækk-
ar allt verðlag i landinu, því að
verzlanir einstaklinga eru til-
knúðar að fylgja á eftir.
Þjálfari hjá Vai?
Hingað er kominn í boði knatt
spyrnufélagsins Vals skozki
knattspj'rnuþjáifarinn Joe De-
viné, en hann var þjálfari Vals
1939.
Devine verðúr hér eitthvnð
í sumar á vegum Vals og ei
sennilegt að hann muni starfa
sem þjálfari hjá félaginn.
Verkamenu taka
hafnarmannvirki
Hafnarverkamenn i Palermp
á Sikiley hafa tekið rekstui
hafnarinnar þar í sínar hendur.
Hafnaryfirvöldin höfðu fyrir-
skipað verkbann, til að knýja
fram lækkun á launum verka-
manna, og fluttu alla tæknilega
starfsmenn á brott Samstundis
tóku verkamenn hafnarmann-
virkin á sitt vald, og heldur af-
greiðslá skipa áfram undír
stjórn verkamannanna sjálfna