Þjóðviljinn - 11.07.1948, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.07.1948, Síða 6
6 ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 11. júlí 1948. 16. • Falsarar sögunnar < 1 (Sögulegt yfirlit) hafa samráð um þau og stefna að því i framtíðinni að uppræta öll misklíðarefni, í þvi augnamiði að viðhalda friði í Evrópu“. 1) Louis Mromiieíd 16. DAGUR. STUNDIR. Þetta var yfirlýsing um gagnkvæm grið milli Bretlands og Þýzkalands. Þann 6. desember var undirrituð hin fransk-þýzka Bonnet-Ribbent.rop yfirlýsing, sem var svipuð brezk- þýzku yfirlýsingunni. Þar var þvi yfirlýst að stjórnir Þýzkalands og Frakklands væru einróma sammála um þá skoðun að góð sambúð milli Þýzkalands og Frakklands væri eitt af grundvallarskilyrðunum fyrir eflingu góðrar sambúðar Evrópuríkjanna og alheimsfriðar og að báðar ríkisstjórnirnar myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að viðhalda slíkri sambúð milli ríkjanna. I yfirlýs- ingunni stóð ennfremur að hér eftir væri enginn landaá- gi-einingur til staðar milli ríkjanna og að þágildandi landa mæri skyldu vera ævarandi. Yfirlýáingin endaði með þeim orðum að bæði ríkin væru staðráðin í því, burtséð frá að- skildum samskiptum þeirra við önnur ríki, að halda stöð ugu sambandi sín á milli um öll þau mál er varðaði ríki þeirra og ráðgast við hvert annað ef þau mál skyldu i framtíðinni hafa í för með sér alþjóðleg vandamál. Þetta var yfirlýsing um gagnkvæm grið milli Frakk- lands og Þýzkalands. I raun og veru þýddu þessir samningar það, að bæði Bretland og Frakkland höfðu gert griðasáttmála við Hitler. Þessir samningar við Hitlers-Þýzkaland sýndu það greinilega að ríkisstjórnir Bretlands og Frakklands ætluðu að forða sér frá árás Hitlers og stóðu í þeirri trú að Múnchensamningarnir og aðrir svipaðir hefðu þegar opnað -dyrnar upp á gátt fyrir árás Hitlers í Austurveg, gegn Sovétríkjunum. Það var með þessum hætti sem hin pólitísku skilyrði fyrir „einingu Evrópu, án Sovétríkjanna" voru sköpuð. Takmarkið var alger einangrun Sovétríkjanna. III. 1 Einangrun Sovétríkjanna. Griðasamningur milli Sovétríkjanna og Þýzkalands. Þegar eftir innlimun Tékkóslóvakíu hélt hið fasistiska, Þýzkaland opinskátt áfram stríðsundirbúningi sínum' að •öllum heiminum ásjáandi/Hitler, sem Bretland hafði nú gætt nýju hugrekki, batt sig ekki lengur við formsatriði tié lézt vera fylgjandi friðsamlegri lausn vandamála Evr- ópu. Þegar á þeim tíma var það ljóst að hver dag'urinn sem leið færði mannkynið nær nýrri heimsstyrjöld, ægi- Jegri en nokkru sinni fyrr. Hver var á þassum tima stefna Sovétstjórnarinnar. ann- arsvegar og stjórnar Bretlands og Frakklands hinsvegar ? Tilraun sögufalsaranna í Bandáríkjunum tii þess að smeygja sér undan að svara þessu sýnir einungis að þeir hafa ekki góða samvizku. - Sannleikurinn er sá að jafnvel á hinu örlagaríka tíma- feili, vorið og sumarið 1939, þegar styrjöldin var yfirvof- 1) „Archiv fur Aussenpolitik und Landenkunde" septem- Þer 1938, bls. 483. Newport var morandi af nýríku nýju fólki og eng- inn kærði sig um að dvelja í Róm á vetrum núorðið. Hann var orðinn gamall maður. Gæti eins vel verið dáinn. II. Klukkan var farin að ganga tólf þegar Jim Town- er fór úr veizlunni hjá Hektori og lét sig síga niðuv í lyftunni, skreyttri gulli og kristalli. Niðri í and- dyrinu kagtaði dyravörðurinn, Pat Healy, á hann kveðju, íklæddur skrautlegum, gullskrýddum ein- kennisbúningi sem var eins glæsilegur og vandaóur og liúsið sjálft. Han var stór vexti með þreklegar herðar og mikinn maga sem hann hafði áunnið sér með hægum lifnaðarháttum og góðum skapsmun- um eftir fertugsaldur. Hann var síbrosandi og mjög vinsæll hvar svo sem hann var. Þegar hann tók eftir blóðhlaupnum augunum í Jim Towner og óstöðugum gangi hans, brosti hann og sagði í hvatningartóni: „Viljið þér bílinn j'ðar herra Towner?“ En Jim Towner hristi glæsilegt höfuðið, líkt nautskrúnu. og svaraði. „Eg fer ekki í bílnum,“ „Leigubíl?" „Nei, þakk. Eg ætla að ganga. Eg hef gott af að fá frískt loft.“ Hann lagði hikandi af staö en sneri sér síðan við eins og hann hefði gleymt ein- hverju og sagði: „Hvernig gengur með andartepp- una, Pat?“ „Betur. Það er alltaf skárra í köldu veðri.“ Hann hélt áfram að virða Jim Towner fyrir sér með vei duldum áhyggjusvip og aftur sagði hann kurteislega- og án alls nöldurs: „Það er versta veður í nótt. Ætti ég ekki að panta leigubíl?“ „Nei, það er allt í lagi með mig. Mér var dálítið flökurt. Eg hef verið með einhvern magakvilla.uppá síðkastið. Eg hef gott af hreinu lofti. „Hann lagði af stað út um dyrnar og sneri sér síðan enn við eins og hann hefði gleymt einhverju og sagði: „Varið þér yður á þessari andarteppu,„Pat. Það er bölvaður sjúkdómur.“ - Pat brosti til hans og ýtti hverfihurðinni ró- lega. „Þakka yður fyrir, herra Towner. Það skal ég gera.“ Pat Healy beið í skugga einnar súhmnar við inn- ganginn á kurteislega hlédrægan hátt, þar til hann 'sá að Jim Towner var kominn yfir götuna heill á húfi. Það var heppilegt hugsaði hann, að það voru ekki margir bílar á ferli slíka nótt, þegar vindurinn æddi og snjórinn feyktist í allar áttir. Jafn drukkinn maður ætti ekki að fara einn út í þvílíkt v-eður. Þegar Jim Towner- var horfinn inn í Fifty-Seventh Street, fór Pat inn aftur. „Við verðum komnir a kaf í snjö í fyrramálið,“ sagði hann við lyftuvörðinn. „Já, það er eiris líklegt að þú. komist ekki tli Cor- ona í nótt.“ ... Þetta sagði hann viljandi til að lcvelja Pat, því að Pat átti unga konu sem beið hans í Corona, og hún átti von á barni á hverri stundu. Pat leit í kringum sig tií bess að aðgæta hvort nokkur væri í nánd, tók síðan fram sígarettur og bauð lyftuverðinum. Þeir kveiktu sér þegjandi í sígarettunum og siðan sagði Pat: „Það 'er ágætis náungi hann Towner. Það er leiðinlegt að liann skuli vera orðinn svona upp á síðkastið.“ Lj-ftuvörðurinn virti fyrir sér endann á sígarett- unni með geysilegri athygli. „Veiztu hvað ég held Pat? Eg held að flest þeirra hafi ekki nóg að gera og að það fari í taugarnar á þeim.“ Með „þeim“ átti hann við allan þann straum karla og kvenna, ungra og gamalla, áhugasamra og glæsilegra. hrörlegra og þreyttra, sem fór út og irm um dyrnar á Berkshire House. Hann og Pat þekktu lllliiJllllllllllillIiMltlllllllllHltllilllllllllllimilllllllJllllHiiiiil HÍIIHIIilUllllllllHIHIIIHHIIIHHIIIIItHIIIIIHHIIIHItlllllllHIIH Bogmennirnir Únglingasaga um Hróa hött og félaga hans — eftir ------- GEOFREY TREASE -------------------------- „Dikon,“ og röddin varð harðneskju- leg. „Þú gleymir því, að þú ert að tala við Guðs þjón. Greiddu þína tíund í næstu viku, annars sækja kirkjuþjón- arnir hana heim til þín.“ „Sæki þeir það, sem þeir finna,“ sagði Dikon reiður. Hann þrýsti húfunni aft- ur yfir svarta, úfna hárið og skálmaði sína leið. Eftir stóð klerkur orðlaus af reiði og . glápti á eftir drengnum, sem fjarlægðist. Það augnaráð spáði honum engu góðu. Það kvöldaði óðum, sólin var þegar setzt, en gullinn purpuraroði í vestur- átt yfir hinum óteljandi trjátoppum skógarins. í húminu sá í nokkra lága kofa meðfram götunni; dyr voru opnár hvarvetna, endur syntu á.lækjarspræn- unni og svínahópur rótaði eftir akörnum í skógarjaðrinum. Dikon gekk fram hjá hreysunum og bauð gott kvöld þeim, er stóðu utan dyra. Kofi hans var yzt í þorpinu, steinsnar frá hinum, því nær alveg inni í forsælu hinna niiklu eika, sem uxu í skógarjaðr- inum. Örlítill afgirtur .garðblettur - lá .þeim megin kofans, og svo tók við hin mikla 'víðátta Sherwoodskógar. Garður- inn var mjög vel hirtur. Þar uxu ýms- ar 'matjurtir, og auk þess voru þar tvö býflugnabú. ' „Þú kemur seint heim, drengur minn,“ sagði móðir hans. ■ ; Hún var smávaxin, þreytuleg kona, grá fyrir hærum, úttauguð af of miklu striti en of lélegu viðurværi. Hún setti tréskál með rjúkandi kálmetd fyrir son -sinn. Hann tók hafraköku og fór -að muðla hanæ áður. en hann svaraði.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.