Þjóðviljinn - 20.02.1949, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 20.02.1949, Blaðsíða 4
ÞJÖÐVILJINN Saxuiudagur 20. Jebrúar 1949. plÓÐVILllNN Utgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistafiokkurínn Ritstjórar: Magnús Kjartansson- Sigurður Guðmundsson (áb>. Fréttaritstjórl: Jón Bjamason. Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja. Skólavörðu- stíg 19 — Sími 7500 (þrjér línur) Áskriftarverð: kr. 12.00 á mónuði.—Lausascluverð 50 aur. eint. PrentsmlBJa Þjóðvlljans h. t. Sósfalistaflokkurinc, Þórsgötu 1 — 3ími 7510 (þrjár linur) Morgunblaðið ritar í gær áróðursleiðara í venjulegum leppastíl, og telur að Islendingum ætti ekki að vera vund- sra um en öðrum „vestrænum lýðræðisþjóðum“ að ganga í hernaðarbandalag við Bandaríkin. Þegar ritstjórinn „at- hugar“ aðstöðu annarra Evrópuþjóða fær hann það út, að „lýðræðisþjóðir Vestur-Evrópu, Hollendingar, Belgir, Lux- emburgarmenn, Frakkar og Bretar hafa fyrir ári síðar stofnað með sér varnarbandalag. Þessar þjóðir hafa hafizt handa um að samræma landvarnir sínar og treysta öryggi sjálfstæðis síns“, og Valtýr spyr sjálfan sig: „Hvers vegna eru þessar þjóðir að þessu? Við hvað.eru þær hræddar? Eða er samtökum þessara þjóða beint gegn öðrum pjóðum í árásarskyni ?“ Og Valtýr svarar fyrirspurninni: „Varn- arsamtök Vestur-Evrópuþjóðanna eru ekki mynduð í árás- arskyni. Það getur engum óbrjáluðurn manni komið til hugar. Hollendingar, Luxemburgarmenn og Belgir hafa áreiðanlega ekki árás í huga á nágranna sína. Það hafa Frakkar og Bretar ekki heldur í hyggju. En allar þessar þjóðir eru hræddar vlð það sem gerzt 'hefur í Austur- og Mið-Evrópu“, — og svo framvegis í venjulegum bandarisk- um áróðursstíl. Aðeins eitt atriði í þessum spaklegu goðsvörum gæti bent til þess að ritstjórinn vissi að hann er að fara með lævísar blekkingar, og það eru orðin sem hér eru feit- prentuð (þau eru það ekki í Mbl.). Ritstjórinn fullyrðir að þessar ágætu vestrænu lýðræðisþjóðir hafi ekki haft í huga árásir á nágranna sína, er þau efldu með sér hern- aðarbandalag að stríði loknu. En hyggja þau þá á árásir lengra frá sér? Nauðsynlegt til skilnings á utanríkispólitík einmitt þeirra landa sem hér um ræðir, Hollands, Bretlands, Frakk- lands og Belgíu er sú staðreynd að þau eru mestu nýlendu- veldi heimsins, halda tugum og hundruðum milljóna manna í nýlendukúgun, beita heilar þjóðir arðráni og grimmd sem í engu gefur eftir arðráni og grimmd fas- istastjórna, að samtimis því sem puntað er upp á „vest- rænt lýðræði“ heima fyrir í Evrópu, eiga þrjú þessara ríkja nú í blóðugum styrjöldum gegn þjóðfrelsishreyfing- um nýlendna sinna. Það er því meira en að þessi ríki hafi árásir í huga, heldur hafa þau háð mánuðum og árum saman grimmi- ieg árásarstríð gegn friðsömum þjóðum, sem liafa umtið það eitt til „saka“ að vilja öðlast frelsi og sjálfstæði, vilja iifa sið- menningarlífi. Einmitt vegna þessarar samsektar hafa nýlendu- veldin fjögur, Bretland, Frakkland, Holland og Belgía haldio saraan og varið hvert annað innan sameinuðu þjóðanna og hindr- að til skiptis að þau alþjóðasamtök geri raunhæfar ráðstafanir til að stöðva morðvélarnar sem „vestræn lýðræoisríki" senda gegn varnarlitlum þjóðum. Og jafnvel þegar sameinuðu þjóð- irnar fordæma árásarstríð Hollendinga gegn Indónesíu og skipa hollenzku stjórninni að haga scr líkt og siðaðir rnenn, hafa hin- ir „vestrænu lýðræðissinnar", það að engu og halda áfram Hitlersaðgerðum gegn hinni miklu indónesísku þjóð. Fyrirlitn- ing þessara ríkisstjórna fyrir frumstæðustu lýðræðisréttindum liefur vakið andstyggð frjálshuga manna um allan heim. En lesendur Morgunblaðsins eiga að sjá mennina sem bera ábyrgð á múgmorðum, miskunnarlausu arðráni og frelsisskerðinga tug- milljóna manna sem veslings, dauðhrædda Vestur-Evrópumenn með dýrðargloríu lýðræðisástar og mannréttinda um höfuð. íslendingar virða og meta þjóðir Hollands, Bretlands og Frakklands. Þeir bera yfirleitt bróðurhug til framandi landa. En íslendingar hata og fyrirlíta nýlendukúgara, þekkja ýmsar BÆ J ARPOSTIRIM N iiíiiilllllllllllllilili Læknisskoðunin í Iðnskólanum. Núna í vikunni birti ég bréf, þar sem frá því var sagt, að enn hefði ekki farið fram nein læknisskoðun í Iðnskólanum á þessum vetri. Einnig var stjórn skólafélagsins ásökuð um það að hún hefði ekki látið þetta mál til sín taka. 1 tilefni þessa hef ég fengið svo- hljóðandi bréf frá stjórn skóla- félagsins: — „Út af ummælum í Bæjarpóstinum miðvikudaginn 16. febr. 1949 vill stjórn skóla- félags Iðnskólans biðja Bæjar- póstinn að birta tvö bréf sem farið hafa á milli skólafélagsins og skólanefndar. ¥ Bréf skólafélags- stjórnarinnar. „Þann 17. janúar sl. sendi stjórn skólafélagsins skólanefnd inni þetta bréf: „Á fundi í Skóla félagi Iðnskólans í Reykjavík, sem haldinn var 13. þ. m., var samþykkt eftirfarandi vítun til yfirmanna Iðnskólans í Reykja- vík: „Fundurinn vítir harðlega það dæmafáa hugsunarleysi yfir manna skólans, að ekki skuli hafa farið fram heilbrigðisrann- sókn á kennurum og nemendum, og telur siðferðilega og lagalega skyldu bera til þess, að slík rannsókn verði látin fara fram nú þegar.“ — Samþykkt þessi var samþykkt í einu hljóði á um getnum Skólafélagsfundi. — Þetta tilkynnist yður hér með. f. h. Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík.“ (undirskrift) * Bréf skólanefndarinnar. „Þessu svaraði svo skólanefnd in þann 2. febrúar með eftirfar- andi bréfi: „Útaf bréfi Skólafé- lags Iðnskólans í Reykjavík, dags. 17. janúar en afhent skóla stjóra 28. janúar, skal tekið fram, að skólastjóri hefur stað- ið í sambandi við héraðslækni í vetur viðvíkjandi læknisskoðun í skólanum, og síðast þann 25. janúar, en þá tjáði héraðslæknir honum, að skoðun yroi látin bíða nokkra daga ennþá, þar til undirbúningi að allsherjar gegn umlýsingu og skoðun væri lokið. Myndi skólastjóra verða til- kynnt þegar skoðun gæti farið fram. — Upplýsingar um það, hvernig mál þetta stóð á hverj- um tíma, hefði stjórn félagsins getað fengið hjá skólastjóra, og telur nefndin rétt að benda fé- laginu á, tii athugunar eftirleið is, að skynsamlegt sé að leita sér upplýsinga um máiin áður en fundarsgmþykktir eru gerðar um þau. — Fyrir hönd skóla- nefndar." (undirskrift) Mælirinn er fullur. Þá eru hér nokkur orð um hlutleysi útvarpsins. Það er V. T. er skrifar: „Kæri bæjarpóst- ur. — Eg tek undir það sem þú segir um hlutleysi útvarps- ins og meðferðina á því í hönd- um núverandi útvarpsráðs .... Þjóðin má ekki þola það öllu lengur að fasistískir ofstopa- menn eins og Jóhann Havsteen og Stefán Pétursson hafi úrslita vald í stjórn einnar mestu menn ingarstofnunar hennar. Hún á að kref jast þess, að slíkir menn ingarlegir eiturnaglar fari frá. . Seinasta ofbeldisverk þeirra, að loka útvarpinu fyrir íslenzkum málstað en galopna það fyrir landráðaáróður, það fyllti mæl- inn.......“ ÍSÍISKSAIAN: 1 fyrradag, 18. febr. seldu þessir togarar afla sinn í Englandi: Jón forseti 4725 lcits fyrir 15207 pund í Grimsby, og Karlsefni 4312 kits fyrir 14783 pund í Fleetwvood. RlKISSIvIP: Esja var á Fáskrúðsfirði í gær- morgun á suðurleið. Hekla er í Ála borg. Herðubreið er í Reykjavik. Skjaldbreið var á Skagaströnd í gærmorgun á vesturleið. Súðin fór frá Gíbraltar í gærmorgun áleiðis til Genova og Neapel á ítalíu. Þyr- ill var við Foula í gærmorgun á leið til Árósa og Rotterdam. Her- móður lá á Aðalvík í gærmorgun. Skip Einarsson & Zoega: Foldin er í Reykjavík. Lingest- room er á förum frá Amsterdam, fermir í Hull á mánudaginn. Reykjanes er væntanlegt til Grikk lánds næstkomandi þriðjudag. Gullfaxi . var í Kaupmannahöfn í l gær, taíðist vegna veðurs. Hekia og Geysir eru i Reykja vik. Ekkert flogið innaniands í gær. Árshátíð Snæfellingafélagsins verður n. k. laugardag að Hótel Borg. Sjá nánar í auglýsingu. Gefin voru sam- an í hjónaband í Akureyrar- Icirkju 5. febr. sl. Ásdis Auður [ngóifsdóttir og Eirikur Eyfjörð Jónsson, loft- skeytamaður. Heimili þeirra er í Þórunnarstræti 118.- — 6. febr. sl. voru gefin saman i hjónaband, Að- alheiður Valdimarsdóttir og Ósk- ar Ósvaidsson, prentari. Heimili þeirra er í Norðurgötu 13. Séra Pétur Sigurgeirsson gaf brúðhjónin saman. Leiörétting. Hjúskaparfregn Sinu Arinbjarnardóttur og Hafþórs Ó. Guðjónssonar, sem birt var hér í bjaðinu sl. fimmtudag, var rang- hermi. Fregn þessi var símuð blað inu, og gaf heimildarmaður upp rangt nafn og heimilisfang. pðferðir þeirra af sárum minjum sögu sinnar, kvöl feðranna brcnnur enn í blóði íslenzkra manna. Þess vegna hata þeir og fyrirlíta þá valdhafa hvort sem er í Vestur-Evrópu eða arnar- staðar, sem ráðast gegn frelsishreyfingu varnarlítilla þjóða með morðvélum og kúgun, — hversu sakleysisleg andlit sem þeir sýna „nágrönnum“ sínum. 11.00 Messa í Dóm- kirkjunni! (séra Bjarni ! Jónsson ígsíubiskup). 15.15 Útvarp til Islend- inginga erlendis: Fréttir og erindi (Benedikt Grön- dal blaðamaður). 15.45 Miðdegisút- varp: a) Sjö amerískir söngvar eft ir Arthur Bliss (nýjar plötur). b) 16.00 Lúðrasveit Reylcjavíkur leik- ur (Albert Klahn stjórnar). 16.30 Skákþáttur (Guðmundur Arnlaugs son). 18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Stephensen): a) Steinunn (10 ára) les sögu: „Rauða flaskan". b) Guð mundá Elíasdóttir syngur barna- lög. c) Sigurður Hallmarsson les sögukafla: „Órabelgur". d) Upp- lestur (Þ. Ö. St.) og fleira 20.20 Einleikur á Fiðlu (Josef Fela- mann): a) Rondo í G-dúr eftir Mozart. b) Heydekati", ungverskur sardas eftir Jenö Hubay. 20.35' Er- indi: Enga mótspyrnu gegn hinu illa? (séra Pétur Magnússon, prest ur í Vallanesi). 21.00 Tónleikar: „Francesea da Rimini‘7 fantasia eftir Tschaikowsky (plötur; fanta sían verður endirtekin næstkom- andi þriðjud.). 21.25 Heyrt og séð: Xslendingar i Kaupmannahöfn (Daði Hjörvar). 21.45 Tónleikar: Píanósónata op. 14. nr. 1 eftir Beet hoven (plötur). 22.05 Passíusálmar. 22.15 Dandslög (piötur). Dómkirkjau. Sunnudagur* Biblí- unnaré Messa kl. 11 f. h. —■ Séra Bjarni Jónsson. Messa kl. 5 e. h. — Séra Jón Auðuns. — Fríkirkjan. Messa kl. 5 e. h. í dag. Ung- lingafélagsfundur í kirkjunni kl. 11 f. h. — Séra Árni Sigurðsson. — Laugarnesprestakall. (Sunnudagur bibliunnar). messa kl. 2 e. h. í dag. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. — Séra Garðar Svavarsson. Nesprestakall. Messað í Mýrarhúsa skóla kl. 2 e. h. Séra Jón Thorar- ensen. Hallgrínisk. Guðsþjónusta í dag. Kl. 11 f. h„ hámessa — séra Jakob Jónsson (Ræðuefni: Biblían og lestur hennar). Kl. 1,30 e. h. barnaguðsþjónusta — séra Jakob Jónsson. Kl. 5 e ,h. síðdeg- ismessa —■ séra Sigurjón Árnason. Kl. 8,30 e. h.: Æskulýðssamkoma í Hallgrímskirkju á vegum Kristi- legs ungmonnafélags í Hallgríms- kirkju: Stud. theol. Björgvin Magpússon skátaforingi talar, Ól- afur Magnússon frá Mosfelli syng- ur einsöng og Bryndís Pétursdótt- ir leikkona les upp. E I M S I( I F : Brúarfoss fór frá Leith í fyrra- dag til Reykjavíkur. Dettifoss kom til Reykjavíkur 17. 2. Fjallfoss fór framhjá Cape Race 16. 2. á leið frá Reykjavík til Halifax. Goðafoss fór væntanlega frá Grimsby i gær, Lagarfoss er^ Reykjavík. Reykja- foss fór frá Rotterdam í fyrradag til Hull. Tröllafoss fór frá Rvik 16. 2. til N. Y. Horsa er á Akra- nesi. Vatnajökull fór framhjá Fær eyjum í fyrrakvöld á leið til Djúpa vogs. Katla fór frá Reykjavík 13. 2. til N. Y. Matsveina og veitingaþjónafélag Islands heldur aðalfund sinn í Tjnrnarcafé annað kvöld (mánu- dagskvöld) 21. febr. kl. 23.30. I Hjónunum Hlíf q * Tryggvadóttur og Sigurbirni Ketils- syni skólastjóra Ytri-Njarðvík, fæddist 18 marka sonur þann 16. þessa mánaðar. Helgidagslæknir: Ólafur Tryggva son, Mávahlíð 2. — Sími 6866. Næturvörður er í Laugavegsapó- teki. — Sími 1616. Næturakstui' í nótt ar.nast Litla bílstöðin, Sími 1380. — Aðra nótt: Hreyfill, simi 6633. Æskulýðssamkoma, á vegum Kristilegs ungmennafélags í Hall- grímssókn verður lialdinn í Hall- grímskirkju kl. 8,30 í kvöld. Stud. theol. Björgvin Magnússon skáta- foringi talar, Óiafur Magnússon frá Mosfelli syngur einsöng og Bryndís Pétursdóttir leikkona les UPP-_________ Veðurútlitið í dag: Vestan storm- ur og éljaveður þegar kemur fram á daginn og gengur í suðvestanátt.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.