Þjóðviljinn - 18.03.1949, Blaðsíða 4
4
Þ J ó Ð V IL JIN N • . , Föstudagur ■ 13. mar? . 1949
Þióðviliinn
Utgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn
Ritstjórar: Magnúa Kjartansson. SigurSur Guðmundsson (áb>.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
BlaSam.: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas Árnason.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiSja. Skólavörðu-
■tig 19 — Síml 7600 (þrját línu r)
Askrli' arverö: kr. 12.00 á mánuðl. — LausasCluverð 60 aur. eint.
Prentsmlðja Þjóðviijans h. f.
Bóalaiistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur)
Leppsijórnin ber ábyrgðina
og verður sótt til saka
1 fimm vikur hefur verkbann útgerðarauðvaldsins nu
staðið, togararnir liggja allir bundnir við landfestar hér-
lendis, en á beztu miðum Islands draga aðeins erlendir
menn fisk úr sjó um hávertíðina. Landsbankinn er þegar
farinn að skrá áhrifin af þessu glæpsamlega athæfi auð-
stéttarinnar, inneignir Islendinga erlendis lækkuðu í febrú-
ar um tæpar 10 milljónir, og voru aðeins 17,6 milljónir í
lok febrúar. 1 lok marz verða þær fyrirsjáanlega að engu
orðnar, þrátt fyrir síminnkandi innflutning. Og jafnvel
þótt togaradeilan leystist í dag, kæmu togaramir ekki
afla sínum út á erlendan markað fyrr en eftir tæpan mánuð!
En þvi miður eru engar horfur á að togaradeiian leys-
ist, hvorki í dag né á morgun. Útgerðarauðvaldið heldur
fast við það áform sitt að kreppa að kjörum háseta, og
sáttanefnd rikisstjórnarinnar kemur auðvitað fram sem tól
togaraeigenda í árás þeirra á sjómannastéttina og þjóðina
I heild. Það sýnir hin svonefnda ,,sáttatillaga“ bezt.
Þegar í slíkt óefni er komið, ér nauðsynlegt að rif ja
upp ástæðuna fyrir þessari giæpsamlegu stöðvun. Hún var
ein og aðeins ein. Útgerðarauðyaldið sagði upp samningum
um áhættuþóknunina, og krafðist þess að hún yrði felld
niður með öllu og kaup háseta þannig lækkað um allt áð
því þriðjung. Þessi ósvifna árás er eina tiiefni þess að tog-
ararnir hafa nú verið starfslausir í fimm vikur, að hálfri
átjándu milljón í erlendum gjaldeyri hefur verið kastað á
glæ og að keppinautar Islendinga búa nú einir að miðun-
um — og leggja undir sig markaðina erlendis.
★
En milljónaraklíkan hefði aldrei treyst sér út í þessa
árás, og henni hefði verið hrundið tafarlaust, ef heiðar-
leg ríkisstjóm hefði verið í landinu, en ekki lítilsigldir
leppar innlendra og erlendra auðmanna. Sú fámenna klíka
sem nú hefur stöðvað lífsbjargartæki þjóðarinnar „á“
aðeins imx þriðjung af andvirði togaranna, tveir þriðju
eru fengnir með opinbenim lánum með mjög hagstæðimi
kjörum — og sá hluti sem útgerðarmennimir „eiga“ er að
sjálfsögðu ránsfengur frá vinnandi stéttum þessa lands.
En þótt reiknað sé aðeins með venjulegum, kapítalistískum
, eignarrétti“, er það þjóðarheildin sem á mikinn meiri-
hluta í togurunum, og fulltrúum hennar á Alþingi og í
ríkisstjórn bar að hegða sér i samræmi við það og koma
í veg fyrir þá ábyrgðarlausu stöðvun sem nú hefur staðið
í fimm vikur.
En það er nú eitthvað annað en svo 'hafi verið. I
fimm vikur hefur ríkisstjómin lagt blessun sína yfir verk-
bann útgerðarauðvaldsins, og þegar allt var komið í óefni
gerði hún sér lítið fyrir og strauik til Bandaríkjanna hálf,
til að flýja gerðir sínar, til að þiggja mútur og til að svipta
þjóðina landi og frelsi, en fá í staðinn bandaríska vemd
til áframhaldandi afbrota og árása á lífskjör íslenzkrar al-
þýðu. öll reiði íslenzku þjóðarinnar til þessarar aumu lepp-
stjómar, þarf nú að sameinast í einn farveg, í volduga og
ómótstiæðilega mótmælaöldu, sem skolar leppstjórninni úr
sessi, þannig að hér geti áfram búið frjáls þjóð í frjálsu
Jandi við atvinnuöryggi og mannsæmandi lífskjör. <
G-dúr nr. 19 eftir Haydn. 21.15
Frá útlöndum (Jón Magnússon
fréttastjóri). 21.30 Islenzk tón-
list; Píanósónata nr. 2 eftir Hall-
grím Helgason (plötur). 21.45
Fjárhagsþáttur (Birgir Kjaran
hagfræðingur). 22.05 Passíusálm-
ar. 22.15 Útvarp frá Hótel Borg:
Þegar stofn týnist.
S. M. skrifar: — „Kæri Bæj-
arpóstur! — Nokkrar línur um
blessuð skömmtunaryfirvöldin
okkar. Það kom sem sé fyrir
mig, eða konuna mína að við
týndum stofni, matvælastofni.
Það er bagalegt að týna stofni
af skömmtunarseðli. Það feng-
um við líka að reyna. Eg fór á
skömmtunarskrifstofuna og
sagði mínar farir ekki sléttar.
Eg hefði tapað stofni. „Nú.
einmitt," svarar sá sem varð
fyrir svörum á skrifstofunni.
„Við erum búin að leita alls-
staðar hjónin. Við getum hvergi
fundið hann,“ sagði ég afsak-
andi. „Útfyllið þér þetta, svar-
ar þá maðurinn valdsmanntega.
,Það er drengskaparyfirlýsing,
Það dettur miði í götuna. Það
er stofn af skömmtunarseðli. Þú
tekur ekki eftir því. Þú verður
að fara margar ferðir til að fá
nýjan. Þú gefur margar yfir-
lýsingar. Er þetta nú ekki alveg
nóg?
Gætu þessir herrar á skömmt
unarskrifstofunni ekki sleppt,
sér að skaðlausu, svívirðingun
um og svartalista-hótununum.
Eg hef nú fengið minn dóm
hjá skömmtunarskrifstofunni,
og verið settur á svartan lista.
En von mín er sú að ísl. þjóð-
in eigi eftir að setja allt
skömmtunarvafstrið hans Elís-
ar á svartan lista, en líti samt
með meiri samúð á afbrot hans,
en hann, þegar ég týndi stofn-
inum. — S. M.“
Hljómsveit Carls Billich leikur
létt lög. 23.00 Dagskrárlok.
ÚtvarpstíSindi
CD / \ 3. tölublað þ. á.
I / eru komin út. X
blaðinu er þetta
IWy-I A m. a.: Frétta-
sendingum fjölg
Útvarpsfyr-
irlestur Helga
Hjörvars um störf útvarpsráðs.
Kynning dagskrár, Hættulegur
útvarpsieikur, Milli . fjalls og
fjöru. — Gerpir, 2. tbl. þ. á. er
komið út. Efni: Ivar Ingimundar-
son, kvæði eftir Benedikt Gísla-
son frá Hofteigi; Rafmagnsmálin;
Um strönd og dal; Á heimsenda
köldum .smásaga; o. fl.
Hjónaefni. Nýiega
opinberuðu trúiof-
un sína ungfrú
Þórunn Matthías-
dóttir frá Akureyri
og Pétur Valdi-
marsson Holtsgötu
39.
um að þér hafið glatað stofn-
inum. Komið þér eftir 10 daga.“
★
Eftir 10 daga.
„Eg hélt svo heim af skrif-
stofunni og sagði konunni það
mundi rætast úr þessu. Við
fengjum stofn eftir 10 daga. —
Á tilsettum tima kom ég svo
aftur í fyrrgreinda skrifstofu.
Aðspurður hvert erindið væri,
sagðist ég vera að vitja stofns
í stað annars er ég hefði glatað.
„Voruð þér búnir að skrifa yfir
lýsingu." — „Já, fyrir 10 dög-
um.“ „Viljið þér híða augna-
blik. Þér eigið að tala við mann
inn hérna fyrir innan. Hann er
upptekinn í augnablikinu.“ Eg
bei ðsvo langt augnablik. Síðan
var mér vísað gegnum skrif-
stofuna og inn í herbergi inn af
henni. Þar sat sá sem valdið
hafði og nú hófust spuming-
amar.
■ *
★
lsfisksalan. 11. þ. m. seldi
Sverrir 1493 kits fyrir 4619 pund
í Fleetwood. 12. þ. m. seldi Birkir
1113 vættir fyrir 3174 pund í Ab-
erdeen. 12. þ. m. seldi Ingvar Guð-
jónsson 2727 vættir fyrir 7760 pund
í Fleetwood. 16. þ. m. seldi Hólma-
borg 1399 vættir fyrir 3699 pund
í Aberdeen. 10. þ. m. seldi Ásúlf-
ur 1277 vættir fyrir 3685 pund í
Fleetwood.
E I M S K I F ;
Brúarfoss. var væntanlegur til
Hamborgar i gærmorgun, 17. marz
frá Vestmannaeyjum. Dettifoss
kom til Reykjavíkur í fyrradag,
16. marz frá Rotterdam. Fjallfoss
fór væntanlega frá Leith um há-
degi í gær, 17. marz. til Kaup-
mannahafnar. Goðafoss fór fram-
hjá Cape Race 14. marz á leið frá
Reykjavík til New York. Lagar-
foss er í Frederikshavn. Reykja-
Afmælisgjafir og áheit tll S.I.B.S.
Starfsfólk kcxverksmiðjunnar
Esju kr. 730.00. .Starfsfólk blikk-
smiðjunnar Gréttir kr. 290.00. Gjöf
frá N. N. 1000.00. Gjöf frá gömlum
Kópavogssjúklingi 60.00. Safnað
af Sveini Bergsveinssyni 110.00.
Safnað af Guðríði Jónsdóttur 200.-
00. Safnað af Guðnýju Pálsdóttur
100.00. Frá Mjófirðingum, Mjóa-
firði 1210. Frá John Antonsson,
Wakerfield, Mass. U. S. A. 1000.00.
Frá starfsmönnum Flugfélags Is-
lands 1225.00. Frá starfsfólki Vig-
fúsar Guðbrandssonar 500.00. Frá
starfsfólki Hárgreiðslustofunnar í
Aðalstræti 6. 100.00. Frá starfsfólki
Öskju 250.00. Frá starfsfólki verzl.
Dyngju 200.00. Frá starfsfólki K.
Einarsson & Björnsson 200.00. Frá
Bárðdælingum, safnað af Jóni
Vigfússyni Úlfsbæ 2825.00. Frá
gömlum sjúkling 30.00. Frá N. N.
100.00. Frá Sigriði Sveinsdóttur
50.00. Frá M. J. 50.00. Frá N. N.
50.00. Frá Stjörnu G. F. 247.50.
Frá N. N. 100.00.
'Miklir öðlingar
eru þessir útgerð-
armenn. Nú segj-
apt þeir hafa verið
í verkbaimi í fimm
vikur til þess eins
að neyða upp á háseta 2000 kr.
hækkun á árslaunum þeirra.
„Kemur yður ekki við.“
„Hvað var það ?“ spurði hann.
„Eg glataði stofni.“ „Nú eruð
þér einn af þeim,“ sagði hann.
„Þér eruð sannfærðir um að
hann er ekki í fórum yðar?“
„Já, við höfum leitað hjónin,
við finnum hann hvergi.“ —
Þér verðið að undirrita dreng-
skaparyfirlýsingu." — „Eg er
búinn að því,“ svara ég. „Nýja
yfirlýsingu“ svarar maðurinn.
— „Þurfið þið tvær?“ „Það
kemur yður ekki við. Þér fáið
ekki stofn, nema skrifa undir
þessa líka,“ svarar maðurinn.
„Svo gerið þér yður ljóst að
þér lendið á svörtum lista. Við
höfum svartan lista yfir fólk
eins og yður.“
★
Bömin þurfa að borða.
Mér hljóp snöggvast kapp
í kinn. Mig langaði mest til að
fleygja yfirlýsingunni óundir-
skrifaðri í hann og strunsa út.
En ég hætti við það. Bömin
mín þurfa að borða. Eg þagði
því, en ég var reiður og ég
roðna enn, ef mér dettur þessi
fauti í hug. Þú tekur blað-
sn*pla upp úr vasa þínum.
foss fór frá Húsavík i fyrradag,
16. marz til Leith og .Nörðurlanda.
Selfoss fór frá Frederikshavn 15.
marz.til Reykjavikur. Tröllafoss
fór frá New York 14. marz til
Reykjavíkur. Vatnajökull fór
gegnum Pentiandsfjörð 15. marz
á leið frá Antwerpen til Reykja-
víkur. Katla er í Reýkjavík.
Horsa fór frá Þórshöfn í fyrra-
dag 16. marz til Hamborgar.
Einarsson & Zoega:
Foldin ér á Isafirði. Linge-
stroom er í Hamborg. Spaare-
stroom fermir i Amsterdam 22. þ.
m. og i Antwerpen 23. þ. m.
Reykjanes fór frá Trapani 8. þ.
m. áleiðis til lslands.
RÍKISSKIP:
Esja átti að fara frá Reykjavík
kl. 20 í gærkvöld vestur um land
í hringferð. Hekla er væntanleg til
Reykjpvikur um hádegi i dag.
Herðubreið er væntanleg til
Reykjavíkur um hádegi í dag.
Skjaldbreið fer frá Reykjavík í
kvöld til Snæfellsness- og Breiða-
fjarðarhafna. Þyrill var á Dalvík
síðdegis í gær, Súðin fór frá Gí-
braltar siðdegis á miðvikudag á
leið til Xslands. M. s. Oddur er á
Austfjörðum.
18.30 Islenzku-
[ Vv kennzla, — 19.00
Þýzkukennsla. 19.-
' 25 Þingfréttir. 20.20
Skíðaþáttur. 20.30
Útvarpssagán:
„Undan krossinum" eftir Einar
Benediktsson; II. (dr. Steingrím-
ur J. Þorsteinsson). 21.00 Strok-
kvartett útvarpsins: Kvartett í
S.V.I afhenti frú Margréti Th.
Rasmus 12. þ. m. 10.000 .ltr. gjöf
til barnauppcldissjóðs Thorvaid-
sensfélagsins. Kœrar þakkir. Sjóð-
stjórnin.
Málverkasýning Gunnars Magn-
ússonar i sýningarsal Ásmundar
Sveinssonar .Freyjugötu 41, er op-
in daglega kl. 2—10.
Leikfciag Hafnarfjarðar sýnir
„Gasljós" kl. 8.30 í kvöld.
Ungbarnavernd Líknar. Templ-
arasundi 3, er lokað fyrst um
sinn vegna inflúenzufaraldurs.
Gullfaxi kom í
fyrrakvöld frá
|| Kaupmannahöfn
og Prestvík. Geys-
ir og Hekla eru í
Rvík. Ekkert flog-
ið innanlands í
gær vegna veðurs.
Hallgrímskirkja. Kvöldbænir og
Passíusálmasöngur kl. 8 í kvöld.
Næturakstur 5 nótt annast
Hreyfill. — Sími 6633.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330.
Kaupendur Eyjablaðsins í Reykja-
vik eru beðnir að vitja blaðsina
eftirleiðis í afgreiðslu Þjóðviljans.
Veðurútlit í dag: Allhvass
eða hvass suðaustan og rigning
síðdegis.