Þjóðviljinn - 13.04.1949, Síða 4
4
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 13. apríl 1949.
Votheysgerð í turnum er hag-
kvæm heyverkunaraðferð
Sparar bœndum fjármuni og erfiSi -
Sfytiir heys kapartimann
SóH um leyfl fyrir byggingu 140 vofheys-
turna á þessu óri, en fjórhagsráó leyfir 10!
. Votheysgerð í turnum er heyverkunaraðferð, sem virðist
eiga mikla framtíð fyrir sér hér á iandi, og er mikill áhugi þeg-
ar- vakinn meðal -bæmla fyrir útvegun þessa tækis. Á síðast liðnu
sumri voru fimm tréturnar fluttir hingað tii lanils írá Svíþjóð,
og hafa véladeild Sambands ísl. samvinnuféiaga, sem annast
hefur innkaupin fyrir bændur, þegar borizt umsóknir um 140
votheystuma, úr timbri og steinsteypu, á þessu ári.
gjöf satnan, einkum ef þurrhey-
ið er myglað.
Lítil hætta á hey-
skemmdum af frosti
Eitthvað hefur borið á því,
að bændur óttuðust að heyið
frysi í turnunum í frosthörkum.
ITurnarnir, sem fluttir voru
inn í fyrra voru reistir á þess-
um stöðum: Gunnarsholti, Vífil
stöðum, Setbergi við Hafnar-
fjörð og Grund í Eyjafirði.
Fimmta turninn fékk Kleppsbú
ið,.en hann var ekki settur upp
sl. sumar.
Vegna þess hve turnarnir
komu seint til landsins í sum-
ar, var ekki hægt að taka nema
einn þeirra í notkun þá, en það
var turninn í Gunnarsholti.
Á sunnudaginn var fóru frétta
menn blaða o. fl. austur að
Gunnarsholti til að kynna sér
heyverkunina í votheysturnun-•
um þar. Var sú ferð farin að
tilhlutan véladeildar S. 1. S., en
Gísli Kristjánsson ritstjóri,
hafði á hendi stjórn fararinnar.
1 Gunnarsholti sýndi bóndinn
þar, Runólfur Sveinsson fyrrv.
skólastjóri, gestum votheysturn
inn og skýrði frá reynzlu sinni
af notkun hans.
■"$*
Tekur 10 kýrfóður
Turnin er byggður úr fúavörðu
timbri. Hæðin er 12 m., en þver-
mál 4 m. Rúmar hann a. m. k.
10 kýrfóður. Fjórir menn, þar
af einn sænskur trésmiður,
reistu turn þenna á 6 dögum,
og þótti verkið sækjast með af-
brigðum vel. Uppsettur kostaði
turninn 12 þúsund krónur, þar
af í erlendum gjaldeyri krónur
6300.00. Steinturnar af þessari
stærð munu hinsvegar kosta
allt að 18 þús. kr., en á móti
kemur betri ending, þar eð tré-
turnum er aðeins ætlað að end
ast í 20 ár. Til samanburðar er
vert að geta þess, að þurrheys
hlaða yfir 10 kýrfóður, byggð
úr steinsteypu, en án súgþurrk
unarkerfis, mun kosta ca. 25
þús. krónur.
1 turninn í Gunnarsholti
voru sl. sumar látnir hafrar, há-
artaða og úthey. Var sumt gras
þurrt, en annað hirt í úða-
regni. Allt verkaðist þetta vel
og varð gott fóður, en hafram
ir þó bezt, og varð ekki mikill
munur á þótt vatnsmagn væri
misjafnt í því sem hirt var. Tel-
ur Runólfur að 2Va—3 kg. af
votheyi úr turninum hafi sama
fóðurgildi og 1 kg. af þurr-
heyi.
Turninn fyllíur á 10
dögum
Turninn var fylltur með sax-
blásara, sem bútar heyið sund-
ur og blæs því inn í turninn
gegnum 4 tominu víð pjáturs-
rör. Farmal- dráttarvél var not-
uð sem aflgjafi við þetta í Gunn
arsholti, en annars eru saxblás-
arar af þessari stærð gerðir
| fyrir 25 hestafla mótor. Látið
var daglega nýtt hey í turninn,
þar til hann var fullur, og reynd
ist það 10 daga verk fyrir 4
menn að hirða þannig 10 kýr-
i/ðður. Talið er áríðandi að
setja aldrei minna en meters-
þykkt lag af nýju heyi í turn-
inn á dag. Skal því jafnað vel
og troðið jafnóðum og blásar-
inn skilar því' í turninn. Sax-
blásarar af sömu gerð og notað
j ur er í Gunnarsholti kosta nú
4800 kr. Þeir eru tæki, sem
j bændur í þéttbýli ættu að geta
I notað sameiginlega.
Þó að farg væri ekki notaðj
ofan á heyið, varð lítil hita-l
■ myndun í því og rekjur engarj
með veggjum. Telur Runólfur
þó betra að láta blautt ofan á
í turninn, t. d. arfa, og verkar
það sem farg.
Óhætt að fóðra aðailega
á votheyi
Súrheysgerð í turnum hefur
þann mikla kost fram yfir gryfj
urnar, að auðvelt er að losa þá.
Utan á -turnunum eru 7 lúgur,
sem teknar eru í notkun jafn-
óðum og heyið lækkar niður að
þeim. Er það 15 mínútna verk
fyrir einn mann; að taka dags-
fóður handa 20 kúm.
í vetur hafa kýrnar í Gunnars
holti fengið 23—24 kg. hver af
súrheyi úr turninum á dag, og
; þá ekki étið nema 2—3 kg. af
þurrheyi. Meðan þær mjólkuðu
20 kg. á dag fengu þær auk
þessa 2 kg. af kjarnfóðri. Kýr-
þessar eru í ágætum holdum.
i R. Sveinsson telur að þær kýr
sem aldar eru upp á votheyi
eingöngu éti hlutfallslega meira
af því en af þurrheyi, og styðst
þar við reynslu sína frá búinu
á Hvanneyri. Þá telur hann ó-
hætt að fóðra sauðfé á vot-
heyi eingöngu, en varlega þurfi
að fara í votheys- og þurrheys
Sá ótti virðist ástæðulítill. 1
vetur komst frostið allt upp í
16—17 ° C í Gunnarsholti, og
bar þó ekki á neinurn skemmd-
um í turninum. Til þessa bendir
einnig sú reynsla, sem fengin
er af notkun turnanna í Banda
ríkjunum. Þess skal að lokum
getið, að einangrun turnanna
er sú sama hvort sem þeir eru
gerðir úr timbri eða stein-
steypu.
yotheysturnarnir spara
bændum fé cg
fyrirhöfn
Kostir votheysverkunar í turn
um framyfir súrheysgerð í
gryfjum og þurrheysverkun virð
ast einkum vera þessir:
1. Hver turn tekur mikið
meira magn af fóðri, en unnt
er að koma í venjulega súr-
heysgryfju, og hlöðurými
sparast miðað við sama fóð-
urgildi í þurrheyshlöðum.
2. Þeir eru til muna ódýr-
ari í stofnkostnaði, en þurr-
heyshlöður yfir sama fóður-
gildi.
3. Bændur losna við það
erfiði og umstang sem farg
á súrheysgryfjum óhjá-
kvæmilega hefur í för með
sér.
4. Það er auðvelt að losa
fúðrið úr furnunum, gagn-
stætt því sem er í gryfjun-
um, og rnargan bóndann hef-
ur fælt frá að taka upp vot-
heysgerð.
5. Og að lokum það, sem
telja má aðalatriðið: Turn-
arnir flýta mjög fóðuröflun
bóndans, spara honum mik-
inn tíma við heyskapinn, mið
að við þurrheysverkim í mis-
jöfnu veðri og gera hann ó-
háðari veðráttunni.
Sótt um leyfi til að
hyggja 140 turna á
þessu ári — Fjárhags-
ráð leyfir 10
Véladeild S. I. S. hafa nú bor-
izt umsóknir um kaup á 140
votheysturnum á þessu ári, og
virðist því vera að vakna al-
J mennur áhugi meðal bænda fyr
j ir að útvega sér þessa turna.
I Hinsvegar sýnist skilningur
! Fjárhagsráðs á þörfum bænda-
I stéttarinnar vera mjög takmark
Berklavarnimar
Framhald af 12. síðu.
sem hafa verið berklaprófaðir,
en þeir skipta einnig þúsundum.
Berklaclauðinn
dauða hafa í Evrópu. Þá hefur
nýskráðum berklasjúklingum
einnig fækkað til muna og
berklasmitun meðal barna og
unglinga minnkað ár frá ári.
Dauðsföll af völdum berkla-
veiki fer stöðugt fækkandi.
Flest voru þau 1925 og 1930.
Dóu þá úr þessum sjúkdómi
21.7 af hverjum 10 þúsund í-
búum landsins. Árið 1945 var
berkladánartalan 6,8, ef miðað
er við 10 þús. íbúa. Var þetta
lang lægsta berkladánartala,
sem skráð hafði verið fram til
þess tíma á íslandi, frá því árið
1911, er tekið var að gera úr
garði dánarskýrslur, sundurlið-
aðar eftir dánarmeinum.
Árið 1946 varð berkladánar-
talan lítið eitt lægri en árið áð-
ur. Áreiðanlegar tölur eru enn
þá eigi fyrir hendi um árin
1947 og 1948, en sýnt þykir, að
þá muni hafa dáið færri úr
berklaveiki en árin 1945 og
1946. Munum við nú vera meðal
þeirra þjóða, er lægstan berkla-
Bólusetning gegn berklaveiki
Árið 1945 var berklabólusetn
ing hafin hér á landi. Til að
byrja með var aðeins bólusett
fólk, sem öðru fremur var talið
í smitunarhættu, svo sem börn
og unglingar á berklaheimilum,
hjúkrunar- og læknanemar o. s.
frv. Síðar var farið að berkla-
bólusfetja börn og unglinga í
skólum og nú nýlega hafa verið
hafnar víð'tækar aðgerðir á
þessu sviði, sem miða að því, að
bólusetja í ýrnsum héruðum allt
fólk á ákveðnu aldursskeiði
Hefur nú þegar verið berkla-
bólusett hér á landi um 4 þús.
manns.
Berklavannsóknír hafnar með
nýjum mikilvirkum röntgeu-
tækjum
aður hvað þetta snertir. því ráð
ið mun aðeins veita leyfi fyrir
byggingu 10 votheysturna á
þessu ári.
Verða þeir turnar steyptir í
sérstökum stálmótum, sem ferð
ast verður með milli bænda.
Þrír menn munu annast það
verk, einn þeirra Svíi, sem jafn
framt kennir að reisa votheys-
turna.
Bændur stækka bú
sín
Á austurleið heimsóttu frétta
menn Ólaf bónda í Oddgeirshól-
um, en þar er senn lokið að
reisa 40 kúa fjós, fjórsett, þ.
e. með fjórum básaröðum. Er
það annað fjósið á landi hér,
sem þannig er byggt. Hitt er
á Grund í Eyjafirði. Stefna nú
bændur yfirleitt að því að
byggja fjósin sem stærst, enda
þótt gripir þeirra sumra séu
enn færri en fjósin eru byggð
fyrir. Þessi þróun kemur eink-|
ar skýrt í ljós þegar þess er|
gætt, að yfirgnæfandi meirihluti
þeirra umsókna sem yfirvöld- j
unum berast um byggingarleyfi
fyrir fjósum, hljóða upp á allt,
1 að 20 kúa fjós. Svo stór kúa- J
i I
i bú bera sig líka tvimælalaust
, betur, enda mun einum manni^
J ekþi ofætlun að hirða 15—20 ^
I kýr einsamail með þeirri tækni,
! sem nú er fyrir hendi.
Notkun vothevsturnanna
verður bændum líka hvöt til að^
fjölga búpeningi sínum, þar eð
turnarnir henta ekki mjög smá-
um búum.
'fr
Votheysverkun í turnum erj
ein af þeim nýjungum í íslenzki
um landbúnaði, sem hlýtur aði
knýja bændur til að stækka búj
sín og taka upp samyrkju ogj
samvinnu í búrekstri. Sú þróun|
verður ekki stöðvuð þótt;
skammsýni og tregða gegn
breytingum legðust á eitt gegn
henni.
Það hefur verið talsverðum
örðugleikum bundið á undan-
förnum árum að framkvæma
berklarannsóknir í hinum ýmsu
héruðum landsins með gegnlýs
ingum einum, vegna skorts á
æfðu starfsliði. Til þess að ráða
bót á þessu voru á síðastliðnu
ári útveguð röntgentæki, sem
sérstaklega eru gerð fyrir
berklarannsóknir og sem flytja
má til ýmissa staða í landinu,
þar sem nægjanlegt rafmagn er
fyrir hendi og nauðsynlegt er
talið að framkvæma slíkar rann
sóknir. Eru tæki þessi mjög mik
ilvirk, jafnvel hægt að rann-
saga með þeim eitt til tvö
hundruð manns á klukkustund
að jafnaði. Svipar þeim á ýms-
an hátt til tækja Landsspítal-
ans, sem notuð voru við berkla-
rannsóknina í Reykjavik, en
hafa þann kost, að auðvelt er
að flytja þau stað úr stað. Má
taka með þeim bæði smáar
myndir og stórar. Eru smáu
myndirnar (photo röntgenmynd
irnar) teknar á samhangandi
fimlu og eru 340 myndir á
hverri spólu. Er mjög auðvelt
og fljótgert að framkalla
hverja spólu. Myndirnar eru síð
an rannsakaðar í sérstöku á-
haldi, sem stækkar þær nokkuð
Og eru þær þá mjög greinilegar.
Var þessum tækjum komið fyr-
ir til bráðabirgða í húsinu Thor
valdsenstræti 6 og eru þau
starfrækt þar í sambandi við
berþlavarnastöðina, sem er í
næsta húsi. Hafa bæði skóla-
nemendur og fólk úr ýmsum
starfsgreinum, undanfarið verið
rannsakað þar og hafa tækin
reynzt mjög vel. Er ráðgert að
reyna að berklarannsaka með
þeim alla íbúa Akureyrarkaup
staðar á þessu vorf.
Má fuílyrða, að þessi tæki
muni auðvelda og stórauka
berklarannsóknirnar og alla
berklavarnastarfsemi hér á
landi, jafnframt því sem þau
spara starfslið til mikilla muna.