Þjóðviljinn - 13.04.1949, Side 8
8
ÞJÓÐVILJINN
UTSOLUSTABIR
ll Þjóðviijans eru þessir:
Miðbær:
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu
f£-: Veitingastofan við Geirsgötu
**• Filippus, Kolasundi.
'Mi
Austurbær:
W7'''
%
Sti
w
f
W*"’
Gosi, Skólavörðustíg 10
Veitingastofan óðinsgötu 5
Veitingastofan Þórsgötu 14
Verzlunin Víðir Þórsgötu 29
Verzlunin Þverá Bergþórugötu 23
Flöskubúðin Bergstaðastræti 10
Café Flórída Hverfisgötu 69
Verzlunin Laugaveg 45
Vöggur Laugaveg 64
Tóbak og sælgæti Laugaveg 72
Stjörnukaffi Laugaveg 86
Söluturninn við Vatnsþró
Ásbyrgi, Laugaveg 139
Ás, Laugaveg 160
Drífandi Samtún 12
Verzlunin Krónan Mávahlíð
!j :
Vesturbær:
Fjóla, Vesturgötu 29
West-End, Vesturgötu 45
Matstofan Vesturgötu 53
Úthverfi:
• %■■■
KRON Hrísateig 19
Bókabúðin Efstasundi 28
KRON Langholtsveg 24—26
f). Verzlunin Langholtsveg 174
Verzlunin Nökkvavog 13
, Verzlunin Fálkagötu 2
Verzl. Guðna Erlendssonar Kópavogi.
Verzl. Ragnars Jónssonar Fossvogi.
!>-■!
■*m.—
-4-
Framhald af 5. siðu.
að Marshalláætlunin beri með
sér eymd verkalýðnum til
handa. Nú eru það staðreynd-
irnar, sem segja þetta. Storm-
ar kreppunnar hafa feykt
burtu þokunni, sem átti að
dylja fjöldann raunveruleikan-
um. Og til allrar ógæfu fyrir
Marghallmennina dreifðist hún
of fljótt til þess að fyrirtækið
hefði tíma til að bera ávöxt.
Sjötta hrakförin
Þá hefur kreppan ekki alveg
sneytt fram hjá Ameríku
sjálfri. Belgiskur fjármálasér-
fræðingur og fyrrverandi ráð-
herra, Van Zeeland, hefur ný-
lega, í sambandi við för sína
til Ameriku, talað um „vissa
hnignun í efnahagsmálum
Bandaríkjanna, þrátt fyrir hina
geypilegu Iiernaðarframleiðslu
og þá miklu útgönguleið, sem
Marshalláætlunin felur í sér.
Mörg fyrirtæki draga úr fram-
leiðslunni og fara gætilega í
f^amljíðaráætlanir sinar.“
Þannig tekst Marshalláætl-
uninni ekki að viðhalda velmeg-
uninni í Bandaríkjunum.
Sjömida hrakförin
Loks hefur stjórnardeildin
orðið að einbeita sér að Evrópu,
því að þar var helzti viðskipta-
vinur hennar og þar var hætt-
an mest af útbreiðslu lýðræðis-'
aflanna. En ekkert vandamál
er slíkt, að það verði einangráð
frá öðru, og vandamál Evrópu
er óaðskiljanlegt öðrum vanda-
málum, sem uppi eru annars-
staðar á hnettinum.
Meðan ameríska heimsvalda-
stefnan var önnum kafin við að
reisa stíflugarð til að hefta
flóð lýðræðisins í Evrópu, gat
hún ekki stemmt stigu við því
í Kína. Mao Tse Tung hefur
tekið sér fyrir hendur að minna
herfræðinga Wall Street á lög
rökfræðinnar (les leis de la
dialectique). Á eftir fór ósigur
Sjang Kaisjeks, sem kollvarp-
aði öllum fyrirætlunum Ame-
ríkumanna. Wall Street hafði
alið með sér þá von, að meðan
verið væri að „samhæfa11 stór-
veldastefnuna í Evrópu, héldi
Sjang Kaisjek völdum sínum,
og þegar búið væri að gera ný-
lendu úr Evrópu, væri hægt að
snúa sér af alefli að Kína.
Útþenslufyrirætlanir ame-
rísku hringanna til tjóns hinu
mikla landi, Kína, urðu þannig
að engu, og stríðsáform þeirra
beið skipbrot. Kína var einn
mikilvægasti staðurinn til inni-
króunar Ráðstjórnarríkjanna
og geta notað kínverska mála-
liðsherinn, búinn amerískum
tækjum og stjórnað af amerísk
um foringjum, til árásar á iðn-
aðarhóruð Síberíu og Mið-Asíu,
sem flugvélar Hitlers náðu
ekki til.
Sigur lýðræðisaflanna í Kína
er því ægilegur skellur fyrir
Marshalláætlunina, ekki einung
is fyrir þá sök, að hann ónýtir
mikilvæga árásarstöð, heldur
Miðvikudagur 1.3. apríl 1949.
/ .1 »
jafnframt fyrir bergmál þessa
sigurs í sjálfri Evrópu. Sigur
þessi styrkir raunverulega að
miklum mun öfl friðarins, því
að hann er aðvörun til svæsn-
ustu hernaðarsinna Evrópu um
það, að árás á Ráðstjómarrík-
in frá evrópskum „stökkpalli"
aðeins, er dæmd til að misheppn
ast, hann stælir baráttuvilja
fjöldans, er sækir uppörfun í
hið glæsilega kínverska for-
dæmi.
Hrun afturlialdsins í Kína og
það, að Ameríkumenn hafa snú
ið baki við Sjang Kaj sjek,
sýnir, að stórveldi það, sem
hefur öflugri herbúnað en nokk
urt auðvaldsríki hefur áður
haft, og er ráðið í að einoka
kjarnorkusprengjuna, hefur
ekki reynzt þess megnugt að
stöðva vesala bændur, sem eru
ákveðnir í að losa sig úr viðj-
um þrældómsins.
Ljóst er af þessu, að þegar
hreyfing alþýðunnar er nægi-
lega útbreidd í einhverju landi,
greiðir hún stríðsæsingamönn-
unum þung högg og stór. Sá
lærdómur mun ekki fara for-
görðum, hvorki í Evrópu né
annarsstaðar. .
Áttimda b.rakföriíi
Sigrarnir í Kína styrkja
kommúnistaflokka Evrópu í
baráttunni fyrir friði. Ástæða
er til, þegar rætt er um þessa
baráttu, að undirstrika mikil-
vægi hinnar sögulegu dagskip-
unar, sem gefin var út áf
stjórnmálaskrifstofu franska
kommúnistaflokksins (le Bure-
au Politique du Parti Commun-
iste Francais).
„Franska þjóðin mun aldrei
fara í stríð gegn Ráðstjórnar-
ríkjunum."
Þessi orð, sem áttu hljóm-
grunn hjá fjöldanum, hafa kom
ið við kaunin á hernaðarsinn-
unum. Afleiðingarnar hafa þeg-
ar komið í ljós. Hið heilaga
bandalag Marshall-stjórnanna
gegn þjóðum Evrópu hefur lok-
ið við aö ganga frá Bruxelles-
sáttmálanum, stofnað evrópskt
herforingjaráð og undirbýr
stofnun Atlanzhafsbandalags-
ins. En aðalverkefnið er óleyst:
að skapa her, sem vill berjast.
Og þar sem þetta takmark hef-
ur ekki náðst, verður að telja
Marshalláætluninni eina lirak-
förina enn, hina níundu.
(Framhald).
UiMjling vantar
til að bera blaðið til kaupenda við
Teigaoa.
Þjóðviljinn,
Skólavörðustíg 19. — Sími 7500.
Undirrit........... gerizt hér með kaupandi að
ÞJÓÐVILJANUM
Nafn ...........................................................
Heimili ........................................................
ATH.: Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis til næstu
mánaðamóta.
lUilllIllllllillllllllilllllllillllllllIllllllllllllllllllllilllllllIllllllllllllllllllllllllK
Útlireiðið ÞJóðviljanii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiii
UIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Listamenn og teiknarar
Krabbameinsfélag Reykjavíkur veitir kr. 500.00
í verðlaun fyrir bAtu hugmyndina að merki félags-
ins. Teikningum se skilað fyrir 1. maí í skrifstofu
félagsins, Thorvalcfsensstræti 6. Nánari upplýsing-
ar gefnar þar.
Stjórnin
iiiiiiiiiiiiiiiilliliiiiilllllilllilillllillllllllillllllliiiillllillillllllilUllllilllllllili