Þjóðviljinn - 04.05.1949, Blaðsíða 4
4
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 4. maí 1949.*
UtjrefandJ: Samelningarfiokkur alþýöu — Sósíalistaflckkurina
Ritatjórar: Magnús Kjartansson. Slgurður Guðmuudsson (át»>,
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
BlaCam.: Ari Kérason, Magnúa Torfi Ólafsson, Jónas Árnsson.
Rltatjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja, SkóIavorðU'
■tig 12 — Sími 7500 (þrjár línu r)
Áskrlí'arverð: kr. 12.00 á mánuðL—LausasOluvar-S 50 aur. alnt.
BrsntsœiBja í»jó8v!IJans h, t,
Béaialistafiokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjár línur)
Bf..|\RI»0STIK!\N
HðnnwpHBB -11 pi. .:>rN
Undarlegur starfi
Það hlýtur að vera undarlegur starfi að ritstýra stjórn-
arblöðunum á íslandi, hafa það fyrir atvinnu að segja
ósatt, að segja ævinlega ósatt um allt það sem snertir hag
og heill almennings í landinu. Þeir menn sem þá iðju
. stunda hafa að baki sér langan sfarfsferil og rrtikla æf-
ingu, en þó hafa verið lagðar fyrir þá þrekraunir síðustu
mánuðina sem erfitt hlýtur að vera að standast. Það er
að segja ósatt um það sem allir vita, ljúga upp í opið
geðið á fólki. Þær þrautir hefur ritstjórum stjórnarblað-
anna verið falið að leysa bæði eftir 30. marz og nú aftur
eftir 1. maí.
Það er athyglisvert að virða fyrir sér hvernig ritstjór-
arnir hafa snúizt við þessum hlutverkum sínum eftir 1.
maí. Þau undur hafs. gerzt að ritstjórar þriggja stjórnar-
blaðanna, Vísis, Tímans og Alþýðublaðsins hafa raunveru-
lega gefist upp, tálið hlutverkið alveg vonlaust. Vísir og
Tíminn telja auðsjáanlega að sem fæst orð hafi minnsta
ábyrgð og reyna meira að segja að íklæðast gervi sann-
girni og hlutleysis, þó að sjálfsögðu sé forðazt að viðurkenrta
staðreyndir dagsins. Ritstjóra Alþýðublaðsins hefur ekki
tekizt að skrifa meira en rúman dálk, þrátt fyrir sólar-
hrings umhugsun, hann minnist ekki á 1. maí í forustu-
grein sinni og jafnvel Hannes á Horninu hefur orðið mál-
laus! Aðeins ritstjórar Morgunblaðsins, Valtýr Stefáns-
son og músarrindill hans, hafa ráðizt að hlutverki sínu með
ofsa og örvæntingu og skrifa heila síðu um það að í kröfu-
göngu verkalýðsfélaganna hafi aðeins verið 1300 manns,
en margfalt fleira. á Lækjartorgi! En beiskjan og örvænt-
mgin mótar hverja setningu. Slíkum skrifum verður bezt
svarað með því að hvetja fólk til að lesa þau og bera þau
saman við vitnisburð þúsundanna sem höfðu staðreynd-
irnar fyrir augunum.
Vafalaust hafa ritstjórar Vísis, Tímans og Alþýðublaðs-
ins valið skárri kost en Valtýr Stefánsson og músarrind
ill hans. Það stafar þó ekki af muni á innræti, heldur mis-
jafnri greind.
Nýir Hlþýðiiflokksskaftar
Enn einu sinni hefur fyrsta ríkisstjórn Alþýðufl. gert
örvæntingafulla tilraun .til að gera sér vín- og tóbaksneyzlu
landsmanna að féþúfu. Enn einu sinni er verðið á áfengi
hækkað í þeirri fávíslegu von að hægt sé að hafa meira fé
út úr þeim ógæfusömu mönnum sem eru ánauðugir leigu-
liðar Bakkusar. Enn einu sinni reynir ríkisstjórnin að
fleyta sér á einni ahurlegustu þjóðarmeinsemd íslendinga,
og gerir tilveru sína enn haðari þvi að sú meinsemd minnki
ekki heldur aukizt.
Eflaust reynir ríkisstjórnin að verja þessar gerðir sínar
með siðgæðislegum falsröksemdum, sem þó eru haldlausar
við hlið þeirrar staðreyndar að stjórnin ætlar sér að græða
6—7 millj. á hækkun sinni. Og hvað sem um verðhæklcun á
áfengi má segja er hitt víst að tóbak er ein af algengari
neyzluvörum almennings, og tóbakshækkunin er venjuleg-
ur neyzluskattur, í hópi nefskatta þeirra sem Alþýðuflokk
urinn taldi eitt sinn helzta stefnuskrármál sitt að berjast
gegn. Og það er vissulega táknrænt fyrir starfshætti þessa
flokks að 1. maí héldu ráðamenn hans ræður í fornum stíl
,,gegn dýrtíð og verðbðlgu“, en 2. maí lögðu þeir á hina
Jiýju skatta sína.
Fréttamenn á ferð.
Þegar kröfuganga Fulltrúa-
láðsins fór um Suðurgötu á
sunnudaginn var, stóðu þar á
gangstéttinni tveir þekktir
menn með feikilegan frétta-
mennskusvip á andlitunum.
Þetta voru æðstu stjórnendur
Stærsta ísl. dagblaðsins, Val-
týr Stefánsson og Sigurður frá
Vigur. Og þegar kröfugangan
fór niður Bankastræti og fram
hjá fundi einmanaleikans á
Lækjartorgi, voru þessir sömu
menn aftur komnir að horfa á,
hálfu íbyggnari* en áður; —
það var naumast hægt að verða
öllu fréttamennskulegri í fram-
an.
En þannig vildi til á þessnm
degi, að strekkingur nokkur
stóð af suðri, og ýmislegt það,
sem laust var fyrir, fauk útí
buskann, pappírssneplar, rykið
úr ræsunum og — skapstilling
hinna háttsettu fréttamanna
stærsta íslenzka dagblaðsins.
Fáránleg umturnan
staðreynda.
Hið síðastnefnda fyrirbærið
varð lýðum Ijóst í gærmorgun,
þegar Morgunblaðið birtist með
fréttir sínar af 1. maí og há-
tíðahöldum hans. Sú fáránlega
umturnan staðreynda, sem þar
hafði orðið á hverju átriði, bar
svo sannarlega vott um allt
annað en kyrrviðri hugarins hjá
fréttamönnunum. Þárna mátti
sjá ummerki^iikils hvassviðr-
is hvert sem litið var. Hin glæsi
lega kröfuganga Fuíltrúáráðs-
ins hét á máli fréttamanna þess
ara „eymdarganga". Sú heila-
miðstöð, sem gerir venjulegu
fólki kleift að telja rétt, þó
í þúsundum sé, virtist þarna
hafa slitnað úr sambandi: Sig-
urður og Valtýr fullyrða hik-
laust, að í kröfugöngu þessari
hafi aðeins verið .1300 manns!
Og fundur einmanalejkans á
Lækjartorgi var margfalt fjöl-
mennari en fundurinn við Mið-
bæjarskólann! Því til sönnunn-
ar birtist mynd af Lækjartorgi,
tekin um leið og kröfuganga
Fulltrúaráðsins fór þar fram-
lijá!
★
Neikvæðsr iiðsmenn.
Hér hefur það enn sannast,
að verjendur hins illa málstaðar
geta snögglega breytzt í nei-
kvæða liðsmenn, þegar á þá sæk
ir örvænting. Því það mega
þeir Sigurður og Valtýr vita,
að allt þetta fréttamennsku-
upphlaup þeirra í sambandi við
1. maí, er fyrir málstað þeirra
að sama skapi neikvætt sem
það gerir þá sjálfa hlægilega
í augum almennings. Reykvísk-
ur almenningur sá það með eig-
in augum, hvílíkar voru hrak-
farir afturhaldsins 1. maí. Sá
sem reynir á prenti að gera úr
þessum hrakförum glæsilegan
sigur, mun aðeins uppskera enn
þá meiri hrakfarir.
*
Illa leiknir grasblettir.
L. J. skrifar: „Nú þegar vor-
ar fyllist ég enn meiri gremju
en áður yfir því, hvernig fólk
hefur leikið grasblettina, sem
sumstaðar eru milli akbraut-
anna á breiðu götunum t. d.
Hringbrautinni. Þeir eru víða
eitt flag. Hversvegna get-
ur fólk nú ekki vanið sig á að
taka heldur á sig króka en að
eyðileggja þessa fallegu bletti?
...... Og hversvegna vantar
svoria víða greiriileg skilti með
áminningum til fólks um að
þyrma grasinu.“ — L. J.“
Krían komin?
Loks vil ég láta þess getið,
að tveir kunningjar mínir þykj
ast vera búnir að sjá og heyra
kríuna á þessu vori. Eg sel það
ekki dýrara en ég keypti. En
getur þetta staðizt Víkverji?
Á maður að trúa því, að regl-
an um 14. maí sé að ganga úr
gildi?
foss fór frá Iíaupmannahöfn 30.1.
til Reykjavíkur. Selfoss kom til
Reykjavíkur 1.5. frá Leith. Trölla-
foss fór frá Reykjavík kl. 22.00
í gærkvöld 3.5. til N. Y. Vatnajök-
ull fór frá Vestmannaeyjum 30.4.
til New Castle-on-Tyne. Laura Dan
kom til Reykjavíkur 1.5. frá Ant-
werpen.
19.30 Þingfréttir.
20.30 Breiðfirðinga
kvöld: Ávarp. ----
Ræða. — Upplestr-
ar. — Kórsöngur.
— Kvartettsöngur
o. fl. 22.05 Danslög (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Hekla er væntan-
leg frá Kph. kl. 5-
7 e. h. í dag. Geys-
ir er í Reykjavik.
Vélar Loftleiða fóru til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Hólmavíkur,
Djúpuvikur og Isafjarðar. — Gull-
faxi kom í gær frá London með
24 farþega. Fór kl. 8.30 í morgun
til Osló og Kph. með 24 farþega.
Vélar F. 1. fóru í gær til Akureyr-
ar, Vestmannaeyja og Keflavíkur.
I ,
Hjónunum Helgu
Guðbrandsd. os
Jakoþ Löve fædd-
jst 12 marka dóttir
þann 30. apríl.
Ægir, mánað-
arrit Fiskifé-
lags íslands, 1.-
2. tbl., er komið
út. 1 blaðinu
eru þessar
greinar m. a.: Aukin tækni í þágu
bátaútvegsins. Mótortogarar. Eru
Islendingar orðnir réttlausir á
Grænlandi? (Jón Dúason). Mark-
áður Norðmanna fyrir verkaðan
saltfisk. Þorskmerkingar 1948
(Jón Jónsson, fiskifræðingur).
Danska flotvarpan. Fiskiónaðar-
námskeið sjávarútvegsmálaráðu-
neytisins. Togarinn „Jörundur,"
Útgerð og aflabrögð janúar- febrú
ar 1949. Skýrslur um útfluttar :sjáv
arafurðir 31. des. 1948 og 1947 óg
útfluttar sjávarafurðir í janúar
1949 og 1948.
^ Ætli Valtýr $tef-
aBjjjp ánsson hafi ekki
-ý1 haldið að hann
væri að teija frain
til skaíts þegar
liann sagði í Mogg
anum í gær að 1390 manns hefði
verið í kröfugöngu verkalýðsfélag-
anna?!
H Ö F N I N :
Elliðaey kom af veiðum í gær.
Pólski togarinn ,,Vega“ fór i gær.
Katla fór til Akraness. Ófeigur
kom og Tröllafoss fór héðan í gær
kvöld til N. Y.
BIKISSKIP:
Esja er í Reykjavík. Hekla fór
frá Reykjavík kl. 20.00 í gærkvöld
austur um land í hringferð. Herðu-
breið kom til Reykjavíkur í gæf-
kvöld að austan og norðan. Skjald-
breið fór frá Reykjavik kl. 24.00
í gærkvöld til Húnaflóa- Skaga-
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna. Þyr-
ill var í Hvalfirði i gær.
Einarsson & Zoiiga:
Foldin fór frá Reykjavík á laug-
ardagskvöld til Hull, fermir i Hull
þann 6. Spaarnestroom er á leið
til Amstcrdám. Lingestroom er
í Færeyjum.
EIMSKIP:
Brúarfoss fór frá Antwerpen 29.
4. til Reykjavíkur. Dettifoss fór
frá Reykjavík kl. 23.00 í gærkvöld
3.5. til London og Hull. Fjallfoss er
í Antwerpen. Goðafoss fór frá N.
Y. 29.4. til Reykjavíkur. Reykja-
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Jóh. Gunn-
laugsd. frá Bakka
í Víðidal og Réyn-
ir ívarsson, Mela-
nesi, Rauðasandi.
Leiðrétting.
í frásögnÞjóðviljans í gær af
1. maí misritaðist föðurnafn
Ingu H„ ritara Hárgreiðslu-
sveinafélags Reykjavíkur, liún
er Jónsdóttir, og leiðréttist það
hér með.
iosgögn meS
lorgiiiinm
Trúlegt er að ríkisstjórnin hafi nú spennt bogann um
of, að helztu bjarghringir hennar, áfengi og tóbak, kunni
nú að bregðast, Hún hefur þá sjálf grafið sér þá gröf sem
hún verðskuldar, einnLg á þessu svlði.
Húsgagnaverzlun Austurbæj-
ar hefur tekið upp þá nýbreytni
að selja lnjsgögn með afborgun-
arskilmálum, svo að fólki sem
ekki hefur handbært fé gefist
kostur á að eignast húsmuni.
Slíkt afborgunarfyrirkomulag
hefur ekki tíðkast hér síðan fyr-
ir stríð, og er ekki að efa að því
verði tekið fegins hendi, eins og
fjárhagsafkoma almennings er
nú orðin. -