Þjóðviljinn - 25.05.1949, Blaðsíða 4
ÞJÖÐVILJtNN
Midvikudagur 25. maí 1949.
i
mÓÐVlLIIMN
trtcelaod): Samelningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurlnn
Rltatjórar: Magnúa Kjartanason, Slgurður GuSmundason (áb>,
FréttariUtjórl: Jón BJarnaaon.
BlaSam.: Ari Kárason, Magníui Toríl Ölaiaaon, Jónaa Ámaaon.
Rttatjðra, afgreiSala, auglýalngar, prentamlðja, 83tíUuvarVu-
atl* 38 — Slml 7500 (þrjár linu r)
Áakrll'arvarS: kr. 12.00 á máanSl. — Lauaaaðitxrarð 50 anr. alai.
PrentamlSJa ÞJóðriljana h. L
BðafaUataflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Síml 7510 (þrjár linur)
Skagaströnd, Siglufjörður, Hæringur
Frá því að niiverandi stjórn tók við völdum hefur það
aldrei komið fyrir að ráðherrar hafi lokið svo sundur skolt-
um á almannafæri að þeir hafi ekki reynt að níða Áka
Jakobsson og störf hans. Ræður þeirra um þann vonda
mann myndu nú þegar fylla mafgar bækur, en þær eru
ekki að sama skapi f jölbreytilegar sem umfangið er óvenju-
legt. Flestar hafa bær verið undir mottóinu: Húrra, það
hrundi nýsköpunarþr.k! þar sem Áka Jakobssyni var að
sjálfsögðu kennt um að brezkir verkfræðingar reiknuðu
og teiknuðu skakkt mjölskemmuna miklu á Siglufirði. 1
síðustu ræðu Stefáns Jóhanns Stefánssonar ljóstraði hann
'hins vegar upp hinni glæfralegu nýung að í stjórnartið
Áka Jakobssonar hefði á Skagaströnd verið keyptur jeppi
á rúmar 12 þús. kr. og Alþýðublaðið hefur síðan tvívegis
endurtekið þessar markverðu upplýsingar, sem eflaust eiga
að vera hámarkið á hneykslisferli Áka! En því miður á
almenningur næsta erfitt með að átta sig á því í hverju
hneykslið er fólgið og tekur tölu ráðherrans sem dæmi þess
hversu mjög jeppar hafi hækkað í verði í stjórnartíð Stef-
áns Jóhanns.
Árásirnar á Áka Ja-kobsson hafa veiið bæði fáfengi-
legar og lúalegar, en í þeim felst þó skynsemi sem al-
menningur þarf að gera sér grein fyrir. Tilgangur þeirra
er sá að varpa nkugga á nýsköpunina í augum fólks, gera
hana tortryggilega. Hinar glæsilegu athafnir í tíð fyrr-
verandi stjórnar hljóta jafnan að verða tengdar við nafn
Áka Jakobssonar öllum öðrum fremur, þar sem hann var
þá sjávarútvegsrnálaráðherra, enda er nú fullljóst að hann
knúði með dugnaði sínum fram þær ýtrustu athafnir sem
hugsanlegar voru þann stutta tíma sem nýsköpunarhug-
sjón sósíalista mótaðí stjórnarstefnu á íslandi. Einnig
dugnaður hans og athafnasemi hefur verið notað sem
árásarefni, en ekki þarf annað en hugleiða hvernig farið
hefði ef núverandi stjóm hefði átt að framkvæma ýms
verkefni fyrrverandi stjómar til að komast að raun um
haldleysi þeirra ásakana.
Árásirnar á Áka Jakobsson em þannig hugsaðar sem
árásir á sjálfa nýsköpunina, meginstefnu fyrrv. stjórnar.
Ef takast mætti að sverta Áka Jakobsson og gerðir hans
í augum almennings myndi núverandi ríkisstjórn losna við
þyngsta áfellisdóm sínn, þann dóm sem sprettur af saman-
*
burði á afkösturn þessara tveggja stjórna. En þetta tekst
ekki. Almenningur hefur daglega fyrir augunum árangur-
inn af afköstum fyrrverandi stjóraar, og ekki sízt hin al-
geru umskipti sem urðu í sjávarútvegsmálum meðan þessi
mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar naut yfirstjórnar
Áka Jakobssonar. Og vissulega má segja að það sé tákn-
rænt þegar ráðherrarnir eru sífellt að tönnlast á síldar-
verksmiðjunum nýju á Skagaströnd og Siglufirði. Þær verk-
smiðjur gefa einmitt mynd af afköstum fyrrv. stjórnar,
eru taldar fullkomnustu verksmiðjur í heimi; en hlið-
stæðan hjá núverandi stjórn er ryðkláfurinn Hæringur,
þetta aldurhnigna skip, sem keypt var svo að Jón Gunn-
arsson gæti grætt á því, sem hefur verið neitað um haf-
færisskírteini, sem ekki mun fást tryggt utan Reykjavíkur-
hafnar, sem kostar þjóðina 100.000 kr. á hverjum mánuði
og þar sem enn er ekki lokið við að bræða síldarslatta
sem látinn var í vélarnar fyrir tæpu hálfu ári!I
Síldarverksmiðjurnar á Siglufirði og Skagaströnd
annarsvegar en Hæringur hinsvegar, það er munurinn á
fyrrverandi stjóm og núverandi, — munurinn á ráðherra-
tíómi Áka Jakobssonár óg Jóhanns Þ. Jósefssonar.
Öþolandi ástand
strandferða.
„Óánægður utan af landi“ send
ir eftirfarandi línur: — „Óðum
líður að því að Hekla verði tek-
in frá strandferðunum. Þetta
er víst síðasta ferðin hennar á
ströndina. Esja fer eftir þennan
túr að sækja þýzka fólkið, og
það tekur sinn tíma sem eðli-
legt er. En hvað tekur svo við
með vörufl. á ströndina
hjá Ríkisskip? Það hefur verið
í vandræðum með að koma vör
unum til fólks út á ströndina.
Vörur sem eiga að fara til okk-
ar út á land liggja hér í vöru-
geymsluhúsum Ríkisskips túr
eftir túr, og sjá allir, hvað
þetta er bagalegt fyrir okkur
úti á landi. — Það liggur skip
í Reykjavík sem Ríkisskip á
og heitir Súðin. Ekkert er gert
við hana, og er hún þó í góðu
standi, hef ég frétt. Hún hefur
verið notuð handa okkur á
ströndina í 18 ár og reynzt
prýðilega, rúmar af vörum allt
að því eins mikið og Esja og
Hekla til saman; og þar að auki
flytur hún mikið benzín.
★
Litlir fiskibátar í mis-
jöfnu ásigkomulagi
„Ríkisskip er að taka á leigu
litla fiskibáta, og þá í misjöfnu
ásigkomulagi. Það er krafa okk-
ar úti á landi að vörurnar séu
sendar okkur tafarlaust, en ekki
látnar liggja mánuðum saman
á afgreiðslunni. Ekki ætti að
vera svo dýrt að gera Súðina
út, þar sem olía er allt að því
helmingi dýrari en kol, og eyðir
hún litlu eldsneyti. Það þarf ekki
að hugsa um að flytja farþega.
Það fara flestir farþegar með
flugvélum og bílum .... Það
ætti að banna Ríkisskip að taka
fiskibáta á leigu. Þeir eiga að
veiða fisk, og með því fæst
gjaldeyrir. Ríkisskip á að
nota sín eigin skip, það hefur
nóg við þau að gera ef þau eru
rekin rétt. — Óánægður utanaf
landi.“
-¥■
Einfalt ráð við erfiðum
flöskuburði.
Húsmóðir ein hefur sent bréf
í tilefni af þeim ummælum um
flöskumjólkina, sem hér voru
höfð eftir íbúa í Fossvogi s. .1
sunnudag. Eru þar skynsamleg-
ar athugasemdir, þannig t. d.
þessi: „...... Það er hægt að
gefa ósköp einfalt ráð til að
komast hjá þessum erfiðleikum
við að bera flöskurnar: Húsmæð
urnar taka bara með sér ráp-
tuðrurnar eða einhverjar aðrar
skjóður og bera flöskurnar í
þeim. Og þetta sama ráð getur
gilt, þar sem karlarnir taka
mjólkina með sér heim á kvöld
in. Þeir geta öruggir skilið eftir
skjóðurnar með hreinum flösk-
um við dyr mjólkurbúðarinnar
á morgnana, því að varla veit
ist afgreiðslustúlkunum erfið-
ara að þekkja sundur skjóður
en brúsa ....... Mér gremst
þegar fólk er með ónot út af um
bótum, sem lengi hefur staðið
á ...... En svona getur það
látið af engu tilefni, þegar taka
þarf upp ofurlítið breyttar venj-
ur ...... Á.“
★
Hvað þýðir millíbar?
P. B. skrifar: — „Góði bæjar
póstur! Geturðu frætt mig um
hvað orðið millíbar þýðir. Sagt
er, þegar veðurfregnir eru lesn
ar í útvarpinu, að loftvog hafi
verið svona mörg millíbar. Er
það sama sem millimetrar? Mér
þykir orðið leiðinlegt. Svo er
reyndar um fleiri orð sem not-
uð eru í útvarpinu, t. d. orðið
„lisensíat." Það er lítið skemmti
legt að heyra hamrað á þessu
lisensiati oft á kvöldi. Mér
finnst líklegt að íslenzkir mál-
vísindamenn hljóti, að geta fund
ið orð, sem skemmtilegra væri
að hlýða. — Kær kveðja, P.B.“
— „Millíbar“ er einn þúsundasti
úr „bari,“ segir Veðurstofan, en
,,bar“ er sú eining sem táknar
venjulega loftþyngd og nálgast
að vera 1. kg. á hvern fíatar-
sentímetra.
★
Naraðsyn skönsmtunar.
Að endingu er svo ein vísa,
sem ónafngreind húsmóðir hef-
ur sent:
Ef að stjórnin annað sinn
ygla skyldi fasið,
elskulegi Elís minn
ætti að skammta gasið.
★
( 19.30 Þirgfréttir.
^ 20.30 Dagskrá sam
vinnumanna: a)
Ávarp (Vilhjálmur
Árnason lögfræð-
ingur). b) Samtal:
Frá kaupfélögunum (Baldvin Þ.
Kristjánsson erindreki og Gísli
Guðmundsson fyrrum alþm.). c)
Erindi: Sænska samvinnusamband
ið fimmtíu ára (Haukur Jósefs-
son). d) Upplestur: Raddir liðinna
tíma (Magnús Guðmundsson, Hall-
grímur Sigtryggsson, Harry Fred-
eriksen, Sigurður Benediktsson og
Uúðvík Hjaltason). e) Erindi: Sam
vinnuskólinn þrjátíu ára (Lúðvílc
Hjaltason). Ennfremur tónleikar.
22.05 Danslög (plötur).
Nýlega opinberuðu
trúlofun sina, ung-
frú Áslaug B.
Matthíasdóttir,
Hverfisgötu 83 og
(Sigurbjarni Krist-
insson, sjómáður.
Hátúni 21.
Næturvörður er í Reykjavikur-
apóteki. — Sími 1780.
» I j Hjónunum Jar-
, \' „ , s ' þrúði Bjarnason
S A og Óla R. Georgs,
[ V“ Hávallagötu 48,
, W t fæddist 18 marka
sonur í fyrradag,
23. maí. — Hjónunum Sigríði Eyj-
ólfsdóttir og Helga M. Jónssyni,
Fálkagötu 17, fæddist 15 marka
sonur 12. maí.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband, ung
frú Gréta Run-
ólfsdóttir, Vest-
mannaeyjum og
stud. jur. Stefán Guðjónsson,
Laugaveg 4. Nýlega voru gefin
saman i hjónaband, af séra Jóni
Skagan, ungfrú Bryndís Jónsdótt-
ir, Brjánsstöðum, Grímsnesi og
Indriði Jónsson, málari, Njálsgötu
2, Reylcjavik. Ennfremur ungfrú
Halldóra Jónsdóttir Brjánsstöðum
Grímsnesi og Guðlaugur Gunnar
Ágústsson ,sama stað.
Hekla er væntan-
leg frá Kaup-
mannahöfn og
Stokkhólmi kl. 5—-
7 í dag. Flugvélar
frá Loftleiðum
fóru í gær til Vestmannaeyja,
Hólmavíkur, Alcureyrar og Xsa-
fjarðar. Gullfaxi er væntanlegur
frá London og Prestvílc kl. 17.45
í kvöld. Flugvélar F. I. fóru í gær
5 ferðir til Vestmannaeyja og til
Akureyrar, fram og til baka. Loks
flaug Kataline-flugbáturinn með
norðvesturströndinni til að athuga
sigiingaleiðina.
Blaðamannafélagið heldur fund
að Hótel Borg á morgun kl. 3,30.
rtÖFNI N.
Akurey og Kári komu af veiðum
í gærmorgun. Timburskip til Völ-
undar kom hingað í fyrrakvöld.
ÍSFISKSALAN:
Þórólfur seldi 4080. vættir fyrir
5150 pund, 21. þ. ni. í Fleetwood.
Tryyggvi gamli seldi 3108 vættir fyr
ir 5947 pund. 23. þ. m. í Fieetwood.
Xsborg seldi 277 smál., 21. þ. m. í
Bremenhaven. Uranus seldi 300,6
smál., 23. þ. m. í Bremenhaven.
Skúli Magnússon seldi 309,1 smál.,
23. þ. m. í Cuxhaven. Xsólfur seldi
286,3 smál. 23. þ. m. í Bremenhav-
en. Bjarnarey seldi 290,5 lestir, 24.
þ. m. í Cuxhaven. Mótorskipið
Goðaborg seldi 1399 vættir fj’rir
2993 pund, 23. þ. m. í Aberdeen.
EINARSSON&ZOÉGA:
Foldin er í Vcstmannaeyjum
lestar frosinn fisk. Lingestroom er
á Húsavik.
RIKISSKIP:
Esja er á Austfjörðum á suður-
leið. Hekla átti að fara frá Rvík
kl. 22 í gærkvöld austur um land
í hringferð. Herðubreið er á Vest-
fjörðum. Skjaldbreið átti að fara
frá Reykjavík kl. 20 í gærkvöld til
Húna-flóa- Skagafjarðar- og Eyja-
fjarðarhafna. Þyrill er í Reykja-
vík. Oddur átti að fara frá Reykja
vík kl. 18 í gær til Breiðafjarðar-
hafna. Finnbjörn fór frá Reykja-
vík um hádegi í gær til Xsafjarð-
ar.
seiiáls* í
að taka
kassakvittmlna