Þjóðviljinn - 12.06.1949, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 12.06.1949, Blaðsíða 6
mi 6 ÞJÓÐVILJINN - Simnudagur 12. júni 1949L * I<m IiiVi ■■■■ nimn li >1 i'i >' IIII IIII ÍI • !■«———■———Im ..........'‘"'"VU1/.11 1 1''*■* 1 .. 45'^V^f‘Í"*'’ T Island og Franco-Spánn Jslendingar eru lýðræðissinn- uð og friðsöm þjóð. Þegar ísland gekk í alþjóðasamtök Sameinuðu þjóðanna vonaðist þjóðin til, að okkar litla lóð yrði á þeim vettvangi ævinlega lagt í metaskál lýðræðis og frelsis. Engum Islendingi datt í hug, að við gætum ráðið miklu um gang alþjóðamála, en jafn atkvæðisréttur allra þjóða, stórra og smárra, á þingi SÞ, ^agði okkur í hendur vald og ábyrgð. Draumur allra Islend- inga var, að við mættum bera gæfu til að beita því valdi þannig, að þrátt fyrir smæð okkar áynnum við okkur virð- ingu allra góðra manna með eindregnum stuðningi við mál- stað lýðræðis og friðar, sem SÞ voru stofnaðar til að vernda. Því miður hafa þessar vonir brugðizt. Æðsta vald í íslenzk- um málum, og þá um leið yfir framkoma fulltrúa okkar á al- þjóðavettvangi, hefur komizt í hendur spilltrar og óhlutvandr- ar sérhagsmunakliku, sem hef- ur sett hvern blettinn öðrum svartari á þjóðarheiður okkar. takanlegast var nafn og virðing Islands dregin í svaðið á síðasta þingi SÞ í New York, er Thor Thors var látinn greiða atkvæði með því að SÞ afturkalli fordæmingu sína á fasistastjórn þeirri, sem nú hef ur í áratug kúgað spönsku þjóð ina. Hver Islendingur hlýtur að roðna af blygðun, við að sjá, i hvaða félagsskap fulltrúi Is- lands var við þessa atkvæða- 'greiðslu. Þarna var í raun og veru greitt atkvæði með eða á móti fasismanum, fulltrúarnir á þingi SÞ sýndu með afstöðu sinni í þessu máli hver aivara ríkisstjórnum þeirra er, þegar þær við hátíðleg tækifæri gefa innfjálgar yfirlýsingar um holl- ustu sína við lýðræði og þjóð- frelsi. Þarna lögðu blessun sína yfir blóði stokkinn glæpafélaga Hitlers og Mussolinis fulltrúar tólf einræðisríkja í Suður-Amer íku, meðal þeirra fulltrúar nokkurra herforingja- og fas- istaklíkna, sem nýverið hafa með ofbeldi og aðstoð banda- rísks peningavalds steypt af stóli þjóðkjörnum lýðræðis- stjórnum í löndum sinum. I annan stað veittu Franco að málum Arabaríkin sex, sem fyr ir rúmu ári fóru með árásar- stríði á hendur Israelsríki, Lest ina ráku önnur fasistaríki eins og Grikkland, Tyrkland og Thailand. Og svo auðvitað ÍSLAND, eina Evrópuríkið í þessari fylkingu auk lands af- tökusveitanna og fjöldamorð- anna, Grikklands. Bandaríkja- stjórn sem stóð að baki tilraun þessari til að hvítþvo Franco- t stjórnina, vildi sjálf hvergi | nærri skítverkunum koma opin j berlega en atti á foraðið auð- ; sveipustu leppum sínum, þar á ■ meðal leppunum í hvíta húsinu f við Láekjartorg. ' ilraunin til að ógilda for- dæminguna á Franco-stjórn inni mistókst, en ríkisstjórn Is- í Jands lét það ekki á sig fá. :o Hún útnefndi sendifulltrúa i í Madrid og þverbraut þar með ‘ þá samþykkt SÞ, sem henni hafði ekki tekízt að fá hrundið. Allt tal um, að þeir sem for- dæma þetta hneyksli vilji ekki verzla við Spán er tilraun til að draga athygli frá kjarna málsins. Það er ekki um það rætt hvort eigi að verzla við Spán eða ekki, heldur hitt, hvort Islendingum sé það sam- boðið að rjúfa samþykktir al- þjóðasamtaka sem þeir teljast til, eftir fyrirskipun fasistísks einræðisherra suður í Madrid. Stjórnarflokkarnir þrir setja auðsjáanlega þjónustu við skip anir Francos öllu öðru ofar. Þeir finna til skyldleikans. Bjarni Benediktsson viðurkenn- ir sjálfur í Morgunblaðinu, að allt sé í óvissu um viðskipti við Spán. Hann hefur því ekki einu sinni selt sóma Islands fyrir blóðappelsínur, heldur fleygt honum fyrir borð af einskærri löngun til að fylla flokk fas- ista á alþjóðavettvangi. átt varpar jafn skýru ljósi á alger svik Alþýðuflokksfor- ystunnar íslenzku við allt sem á skylt við lýðræði og sósíal- isma, og að hún skuli hafa for- ystu fyrir ríkisstjórn, sem veit- ir hinum spönsku verkalýðs- böðlum alla þá hjálp, sem hún megnar, á þingi SÞ. Svo djúpt eru ekki einu sinni hægrikrat- arnir í öðrum Marshalllöndum sokknir. Meðan umræður stóðu yfir á þingi SÞ um afstöðuna til Spánar samþykkti alþjóða- ráðstefna sósíaldemókrata í Hollandi mótmæli gegn tillög- unni um að afturkalla fordæm- inguna á Franco-stjórninni. I „Arbejderbladet" málgagni norsku sósaldemókratastjórnar- innar, birtist um sama leyti ritstjórnargrein, sem gæti virzt stíluð beint til íslenzka „bræðra flokksins." Þar segir: „Við eig- um að gæta grundvallaratriða, sem við verðum að virða og halda í heiðri. Fyrst og fremst vegna okkar sjálfra en einnig vegna allra þeirra, sem verða að þola órétt og kúgun. Kvala- ópið sem rís upp frá spönsku þjóðinni — heimafyrir og er- lendis — kemur okkur öllum við. Við höfum skyldur og rétt- indi. Og ábyrgð, sem við getum ekki hlauþizt frá — nema svíkja tiip leið sjá'lfa okkur og frelsishugsjónir okkar." Þarna er dómur norskra sósíaldemó- krata um forystumenn íslenzka „bræðraflokksins," þeir hafa gerzt opinberir svikarar við frelsishugsjónir sósíalismans með því að hlaiiþa undir bagga með böðlum spanskrar alþýðu. M. T. Ó. EVELYN WAUGH: 41. DAGUR. KEISARARIKIÐ AZANIA ASM. JONSSON þýddi. Basil hafði árangurslaust eytt hálfum deginum i að reyna að sannfæra keisarann um, að þetta byggingarlag ætti ekki við í hitabeltislöndum. Hann var nú að gera nýar áætlanir með f jármála- sérfræðingnum um hindrunarráðstafanir, þegar hurðin þeyttist allt í einu upp á gátt, og hertog- inn af Ukaka kom æðandi inn. „Hafðu þig út, Youkoumian," sagði hann, „ég þarf að tala við meistarann.“ „Já, já, hr. herforingi, ég skal fara. Afsakið.“ „Bull. Hr. Youkoumian er fjármálafulltrúi ráðuneytisins, og ég æski þess ákveðið, að hann sé viðstaddur viðræður okkar.“ „Eg, hr. Seal? Eg á ekkert vantalað -við her- foringjann." „Eg æski þess að þér verðið viðstaddur." ,,Út,“ sagði hertoginn og hreyfði sig ógnandi í áttina til hans. „Ó, afsakið mig, herrar mínir,“ sagði hr. Youk- oumian og þeyttist út um dyrnar og inn á skrif- stofu sína. Það var vinningur fyrir Connolly. ,Eg sé, að jafnvel þessi litli svartkámugi labba- kútur er svo skynsamur að fara af skónum.“ Annar vinningur fyrir Connolly. En í eftirfarandi samtali stóð Basil sig vel. Herforinginn byrjaði: „Fyrirgefið, að ég varð að henda fíflinu út — ég þoli ekki daiminn af honum. Jæja nú skulum við spjalla svolítið sam- an. Hverskonar helvítis þvættingur er þetta eig- inlega um stígvél ?“ „Mér finnst dagskipan hans hátignar ákaflega auðskiljanleg.“ „Hinar ljósgrænu buxur hans hátignar. í guðs bænum, stígðu niður af þessum háhesti, gamli minn, og hlustaðu á mig. Andskotinn hafi að ég gefi fimm aura fyrir þessa nýskipan ykkar. Ann- ars kemur það mér ekkert við — mér stendur ná- kvæmlega á sama um, þó þið setjið hverja ein- ustu negrahræðu í öllu landinu við að leysa kross gátur — en ég vil engin afskipti eða fiflalæti með mina menn. Ef þið reynið að koma stígvélum á lappirnar á hermönnunum, þá verða þeir orðnir draghaltir eftir tvo daga. Heyrðu mig nú — það er engin skynsamleg ástæða til að við förum að ybbast nokkuð út af þessu. Eg er búinn að vera svo lengi héma í landinu, að ég sé í gegnum fyrirætlanir hr. Youkoumians. Það hefur verið aðalatvinnan hér í Debra-Dovv eins lengi og ég man, að selja stjórninni skran og skít. Mín vegna megið þið svo sem skara eld að ykkar köku eins og aðrir. En heyrðu nú — með því að gefa jám- brautarstarfsmönnunum bendingu, get ég séð um, að Sakyamir ræni lestina og steli allri stíg- vélasendingunni. Þið fáið skaðabætur, fyrir — skipunin fellur í gleymsku, og það bíður enginn tjón við það. Eigum við að koma þessu svona fyrir?“ Basil hikaði drykklanga stund við að taka á- kvörðun, sem var örlagaríkari en báða grunaði. Herforinginn settist kumpánalega á borðshomið og sveigði stafinn sinn á hnénu. Það var vin- gjarnlegur sannfæringarsvipur á andliti hans. Basil hikaði. Var það einhverskonar ættgeng yfirburðatilfinning, sem orsakaði stíflyndi hans? Eða var það sært stómennskubrjálæði, vegna þess, að hr. Youkoumian hafði læðst svo bljúgur út á sokkunum? „Þér hefðuð átt að gera gagnráðstafanir yðar fyrr,“ sagði hann. „Tónninn í fyrstu orðsendingu yðar gerði mér ókleyft að ræða málið við yður. Stigvélin verða send hermálaráðuneytinu í næstu viku.“ „Þér eruð ungur andskotans grasbítur,“ sagði Connolly og fór. Þegar dyrnar opnuðust, hörfaði hr. Youkoum- ian frá skráargatinu. Herforinginn strunsaði framhjá honum. „Ó, hr. Seal — hversvegna í andskotanum vilj- ið þér komast í klandur við hann, ha ? Hvað segið þér um, að ég hlaupi á eftir honum og gangi frá þessu, ha?“ „Keraur ekki til mála að þér gerið það. Nú höldum við tafarlaust áfram með fyrirætlanirnar um alþýðuhátíðina.“ „Ö nei, nei, hr. Seal. Það var aldrei ætlunin a5 lenda í illdeilmn við hann.“ Fréttin um þetta ósamkomulag fór eins og eld- ur í sinu um borgina. Það var fyrirtaks efni í slúðursögur. Hinir rúmlega tuttugu njósnarar, sem ýms hagsmunasamtök höfðu í keisarahöll- inni, komu fréttinni í sendiráðin og verzlanirnar, hlaupari færði jarlinum af Ngumo fréttina, Svarta Meri sagði hárgreiðslustúlkunni sinni hana, bankaritari sagði bankastjóranum hana, og bankastjórinn sagði biskupinum hana. Hr. Youkoumian skírði frá atburðinum með tilheyr- indi handapati í barnum í L’Empereur Seth, Conn olly skýrði Fjodor fursta frá því krossbölvandi í Le Perroquet og innanríkismálaráðherrann útbás únaði með miklu hugmyndaflugi vanskapaða út- gáfu af því í hópi ungra stúlkna frá helztu fjölJ skyldum borgarinnar. Um kvöldið var ekki til svo vesælt hreysi í Debra-Dowa, að málið væri ekki rætt frá öllum hliðum og í einstökum atrið- um við kvöldborðið. , Þetta er leiðinlegt," sagði sir Samson Court- eney. , Eg býst við, að það hafi þær afleiðingar, að þessi Seal venji komur sínar hingað oftar en áður. Fyrirgefðu, Prudence — hann er sjálfsagt ágætis maður, en meinið er, að mér getur aldrei hugkvæmzt iieitt að segja við náungann, því á- hugamál okkar eru svo sundurleit — hann talar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.