Þjóðviljinn - 10.09.1949, Síða 4
ÞJÓÐVHJINN
1
Laugardagur 10. sept. 1949.
þlÓÐVILIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýfiu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður GuSmundsson
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason
BlaSam.: Ari Kárason, Magnús Torfl óiafsson, Jónaa Árnason
Auglýsingastjórl: Jónsteinn Haraldsson
Rltstjóm, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðu-
■tíg 19 — Slmi 7500 (þrjár linur)'
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mánuðl — Lausasöitrverð 50 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljana b.f.
Sósíalistaflokkurlnn. Þárefotu 1 — Síml 7519 (þrj&r Ilaur)
' f
Skemmd kosningaepli
Almenningur hafði gert sér vonir um að seinustu
mánuðina fyrir kosningar myndu allar búðir fyllast af
góðum og ódýrum varningi, að óttinn við dóm kjósenda
myndi knýja stjómina til að uppfylla það í nokkrar vikur
sem svikizt hefur verið um í hálft þriðja ár. Stjórnin hefur
einnig sýnt nokkra tilburði 'T þessa átt. Go.tt dæmi um það
er eplainnflutningurinn til landsins. Árið 1946 samþykktu
allir þingmenn þingsályktun frá Katrínu Thoroddsen þess
efnis að viðskiptayfirvöldin skyldu sjá til þess að ævinlega
væru fáanlegir ávextir í búðunum. Efndirnar urðu hins
vegar þær að ávextir hafa varla sézt nema á svörtum mark-
aði — þar til nú að kosningar eru fyrir dyrum'! Nú koma
mörg þúsund kassar af eplum, en þegar til á að taká kemur
í ljós að eplin eru að verulegum hluta skemmd, nokkur
hluti grænn og óþroskaður, lítill hluti góð vara. Kosninga-
eplin voru skemmd, þetta er táknrænn atburður, lítil mynd
sem felur í sér stóra heild.
En dæmissögunni er ekki lokið með þessu. Ríkisstjórn-
in leysti vandann með skemmdu kosningaeplin þannig að
verðið á ætu eplunum var ákveðið svo hátt að óætu eplin
yrðu líka borguð af almenningi. Ríkisstjómin flytur inn
skemmd kosningaepli, en almenningur borgar brúsann!
En það eru einnig önnur kosningaepli sem nú em á
boðstólum á hinum pólitíska vörumarkaði stjómarflokk-
anna. Allir flokkamir halda nú uppboð á eplum sínum.
Alþýðuflokkurinn básúnar baráttu sína fyrir velferð al-
mennings, fyrir lágu vöruverði og háu kaupi, gegn tollum
og nefsköttum, fyrir heiðarlegum vérzliinarháttum o.s.frv.
$jálfstæðisflokkurinn tjáir ást síná á frjálsri verzlun,
frjálsu framtaki einstaklingsins og andstöðu sína við skrif-
finnsku,- höft og hömlur gæðinga sinna í öllum nefndunum
og ráðunum. Framsóknarflokkurinn æpir upp um róttækni
sína, baráttu sína fyrir heiðarlegu fjármálalífi, andstöðu
sína við brask, okur og spiilingu. Þettá eru kosningaepli
ríkisstjómarinnar, og þau eiga það sameiginlegt með
ítölsku eplunum að þeirra hefur ekki'orðið á nokkum hátt
vart í samstjórn flokkanna þriggja undanfarið hálft þriðja
ár. Þau eiga það einnig sameiginlegt að hin pólitísku epli
stjórnafinnar eru löngu rotin. Þau hafa verið geymd í
skúmaskotum svikinna baráttumála og glataðra hugsjóna.
Þau eru ormétin og skemmd, hversu mjög sem stjóm-
málaskúmamir reyna að fægja þau og fága.
En þetta eru sem sagt þau epli sem stjórnarflokkamir
auglýsa nú fyrir háttvirtum kjósendum. Þeir gera sér von-
ir um að nægilega margir glæpist á ávöxtunum til þess að
svo mikið safnist að hægt verði að halda áfram sömu
stjórnarstefnu í enn hatramlegri mæli en hingað til. Þeir
sem glæpast á eplunum munu vissulega komast að raun um
að þau em aðeins til að sýnast. Og íslenzk alþýða mun fá
að borga brúsann með sxversnandi lífskjörum.
Kpsningaepli afturhaldsins eru skemmd. Þeir sem
glæpast á beim munu fá aö finna til afleiðinganna.
BÆ J ARPOSTIi RIM N
Grunaði hvernig
fara mundi.
Þegar ég gekk heim til mía
um Skúlagötu í fyrrakvöld á
tólfta tímanum og horfði uppí
himininn þar sem norðurijósia
fóru í stórum bogurn blaktandi
einsog slæða í slíkimjúkum lit-
um hinnar efstu fegurðar alla-
leið utanfrá sjóndeildarhring og
þangaðtil komið .var í hvarf
bakvið Esjuna sem hafði glatað
sinni 'gomlu reisn í samanburði
við órahæðir algjörrar heið-
rikjunnar og sýndist ekki leng-
ur neitt fjall heldur bara lítils-
háttar mismunur á jafnsléttu
með daufa kvöldglóð norðurs-
ins fyrir aftan sig einsog káld-
an ofn og andaði útúr honum
hressandi svölum blæ er tók
með sér í leiðinni lyktina. af,
sjónum, þá grunaði mig strax
hvernig fara mundi.
□
Sól á veggjum
Viðeyjarstofu.
Þegar ég hélt til vinnunnar í
gærmorgun og horfði yfir sund-
ið þar sem Viðeyjarstofa stend-
ur í grænu grasinu hinumegin
með hvíta veggi og hefur ekki
breytzt í hundrað og sextíu
ár, þá fannst mér, einsog svo
oft áður undir sömu kringum-
stæðum, ég vera staddur í
fallegu málverki frá dögum
Skúla fógeta.
Venjulega gengur maður nið-
ur hæðina ofanvið Suðurlands-
braut án þess að hugsa um
annað en strætisvagninn. Svo
einn morgun minnist maður
þess allt í einu að sagan hefur
gerzt á ixæstu grösum. Það er
í góðu veðri með sundin slétt
og sól á veggjum Viðeyjarstofu.
Veðrið í fyrrakvöld var svo
gott að það hlaut að endast
framá næsta dag. Sá grunur
minn hafði reynzt réttur.
□
Veðrið lninumegin
á landinu.
Við áttum skilið þetta veður.
Svo lengi höfum við möglunar-
laust þolað rigninguna og öil
leiðindin sem henni fylgja, að
við áttum sannarlega skilið
þetta góða veður. En gleðin
er sjaldan fullkomin. Maður fór
að hugsa um veðrið hinumegin
á landinu. Veðrið hinumegin á
landinu er venjulega andstæða
þess sem er hérnamegin á land-
inu. Samkvæmt því hlaut veðrið
hinumegin á landinu að verd\
vont í gær. Og þar hafa þeir
einmitt mesta þörf fyrir að það
sé gott en ekki vont. Þar eru
þeir að veiða síldina. Nei, þessi
ráðstöfun forsjónarinnar er
ekki auðskilin. Ea kannski er
hún orðin • rugluð af öllu til-
standinu í sambandi við síld-
veiðamar og komin á þá skoðun
að okkur sé mest þægð í að
hafa gott veður x krmgum
Hæring, og hvergi annarstað-
ar?
□
Baðhúsið iika lokað. —
Hver stjórnar þessari
eademis vitleysu?
„Sveinn“ skrifar: — „Nú lízt
mér á það, Bæjarpóstur góður!
SundhöIIin er búin að vera lok-
uð í margar vikur eins og þú
Veizt, og nú er okkur, sem
hvergi eigum aðgang. að baði
í heimahúsum, alveg bannað að
fá okkur bað, samkvæmt nýrri
ráðstöfun, sem sé þeirri að Bað-
húsinu hefur líka verið lokað!
Þessir tveir staðir, hinir einu
’opinbéru staðir þar sem hægt
ér að fá sér bað, eru lokaðir
á sama tíma! Hver stjórnar nú
svona endemis vitleysu?“ —
---- Bæjarpósturinn veit ekki
hver stjórnar þessari endemis,
endemis vitíeysu, en væntan-
lega heyra báðar stofn-
anirnar, Baðhúsið og Sundhöll-
in, undir einhvern ákveðinn
mann í bæjarskrifstofunum.
□
Lofeyrði um Austurvöll.
Ó.b. skrifar: — „Kæri bæjar-
póstur. — Ég var hálft í hvoru
að búast við því, að þú mundir
einhverntímann vekja athygli á
því, hvað Austurvöllur er falleg
ur núna, en það virðist hafa
farið fram hjá þér.... Blómin
í beðunum eru snilldarlega vel
valin, litimir „harmónera" hver
við annan eins og í beztu mál-
verkum, og yfirleitt er öll um-
hirða vallarins til hins mesta
sóma .... Það væri mikill mun
ur að búa hér í Reykjavík, ef
hún hefði upp á að bjóða marga
staði, sem gætu veitt manni
eins mikla ánægju og Austur-
völlur. Ég veit varla nokkuð
skemmtilegra en að sitja þar
á einhverjum bekknum í góðu
veðri.... — Ó.b.“ — Bæjar-
pósturinn vill taka það fram
að hann er sammála þessum
dómi um Austurvöll.
R1KI8SKIP:
Hekla fer frá Reykjavík í kvöld
til Álaborgar. Esja er á Austfjörð
um á norðurleið. Herðubreið er á
Austfjörðum á suðurleið. Skjald-
breið er væntanleg til Reykjavík-
ur í dag að vestan og norðan. Þyr-
ill er í Reykjavxk.
EIMSEXF:
Brúarfoss kom til Reykjavíkur
5.9. frá Leith. Dettifoss e-r í Kaup
mannahöfn. Fjallfoss fór frá R-
vík x gærkvöld til Isafjarðar, Rauf
arhafnar og Siglulfjarðar. Goða-
foss kom til Hull í gærmorgun frá
Rotterdam. Lagarfoss fór frá R.
vík 7.9. til Breiðafjarðar og Vest
fjarða, lestar frosinn fisk. Selfoss
kom til Reykjavíkur 8.9. frá Isa-
firði. Trölíafoss kom til N. V.
27.8. hefur væntanlega farið það
an 7.9. til Reykjavíkur. Vatna-
jökull fór frá London í gær til
Leith.
LOFTLEIÐIK:
I gær var flogið
til' Vestmannaeyja
(2 " ferðir), Bíldu-
dals, (2 ferðir),
Akureyrar, Isafj.,
Siglufjarðar, Þing-
eyrar, Hólmavíkur, Blönduóss og
Keflavíkur. 1 dag er áætlað að
fljúga til Vestmannaeyja (2 ferð-
ir), Isafjarðar, Patreksfjarðar,
Akureyrar, Siglufjarðar og Kirkju
bæjarklausturs. Einnig frá Hellu
til Vestmannaeyja. Á morgun er
áætlað að fljúga til Vestmannaeyja
(2 ferðir), Isafjarðar og Akureyr-
ar. Hekla er væntanleg frá Prest-
vík og Kaupmannahöfn kl. 18.00
í dag. Fer kl. 08.00 í fyrramálið til
London, væntanleg áftur um kl.
23.00 annað kvöld. Geysir er vænt
anlegur frá Caracas í nótt. Fer kl,
08.00 í fyrramálið til N. Y.
FLUGFÉLAG ISLANDS:
Iimanlandsf lng: Óvenju mikið
var flogið innanlands í gær, enda
gott veður um allt land. Flugvélar
Flugfélags Islands flugu alls 19
ferðir til 15 staða víðsvegar um
land. Flogið var til Akureyrar (2
ferðir), Blönduóss, Vestmannaeyja,
Reyðarfjarðar, Seyðisfjarðar, Nes-
kaupstaðar, Djúpavogs, Horna
fjarðar, Fagurhólsmýrar, Kirkju-
bæjarklausturs, Djúpavíkur,
Hólmavíkur, Isafjarðar og Siglu-
fjarðar. Frá Akureyri var flogið
til Austfjarða og Siglufjarðar. 1
dag verða farnar áætlunarferðir
til Akureyrar (2 ferðir), Vestm.-
eyja, Siglufjarðar, Blönduóss . og
Keflavíkur. Á morgún eru áætlað-
ar flugferðir til Akureyrar Vest-
mannaeyja, Siglufjarðar og Kefla
víkur. Millllandaf lug: Gullfaxi
kom frá Osló kl. 22.00 í gærkvöld
og fór til Kaupmannahafnar kl.
8.30 í morgun. Flugvélin er vænt-
anleg aftur til Reykjavíkur kl.
17.45 á morgun.
1 dag verða
gefin saman í
hjónaband, að
Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði, ung-
frú Kolfinna G.
Pálsdóttir, húsmæðrakennari og
Friðrik Kristjánsson, húsgagna-
smiður. Bróði.r brúðgumans sr.
Bjartmar Kristjánsson, prestur að
Mælifelli gefur brúðhjónin sáman.
MGNIÐ
að lesa smáauglýsingarnar, þær
eru á 7. siðu.
Ungbarnavernd LÍKNAR, Templ-
arasundi 3 er opin þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl.
3.15--4.
19.30 Tónleikar:
Samsöngur. 20.30
Útvarpstríóið: Ein
leikur og tríó. 20.45
Leikrit: „Á heim-
leið“ eftir Alexand
er Kielland (Leik-
stjóri Haraldur Björnsson). 21.20
Einsöngur. — Benjamino Gigli
(nýjar plötur). 21.40 Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur (Albert Clahn
stjórnar).
Fimmtugsafmæli.
Næstkomandi sunnudag, þ. 11.
september, verður fimmtugur Er-
lendur Þorbergsson, verzlunar-
stjóri í Tóbaksverzluninni „Lon-
don.“
Helgidagslæknir er Stefán Ólafs-
son. Sími 3181.
MESSUR A MOBGUN:
Laugarnesþresta
kail. Messað í
Laugarneskirkju
kl. 11 árdegis á
morgun. Sr. Gísli
Brynjólfsson, prest
ur á Kirkjubæjarklaustri prédikar.
Næturvörður í Laugavega-
apóteki. — Sími 1616.
Næturakstur í nótt annast
Hreyfiil, sími 8633. 1 ' V '•