Þjóðviljinn - 01.10.1949, Blaðsíða 1
hlllllllI II I í'i'l /y
PRENTARAVERKFALL
Bókbmdarar í
verkfalli
Bókbindarar sögðu upp
samniugum i'yrir nokkru og
gerðu hliðstæðar kröfur við
prentara.
Var borin upp samskon-
ar „miðlunartillaga“ hjá
þeim og prenturum og var
hún kolfelld með 127 atkv,
gegn 9.
Verkfall er því einnig hjá
bókbindurum.
VIII ríkissfjérnln afnema prenffrelsfð
Otvarpsumræður æskulýðssamband-
aina nJc. mánudagskvöid
uuiii av ivaiiinyuiii
Prentarar sögðu upp samningum íyrir nokkru
og hafa staðið yíir árangurslausar samningsumleit-
anir að undanförnu. Kröfðust prentarar 20% launa-
hækkunar, ennfremur að laugardagsfríin yrðu lengd
um fjóra daga og nokkurra fleiri breytinga. í gær
bar svo sáttasemjari fram svonefnda miðlunartil-
lögu um 9% launahækkun. Fór fram allsherjarat-
kvæðagreiðsla í prentsmiðjunum og var tillagan
felld með 185 atkv. gegn 22. 3 seðlar voru auðir.
Itvinnurekendur samþykktu hinsvegax tilboðið með
16 atkv. gegn 6.
Prentaraverkfall hófst því á miðnætti í nótt.
Vegna fráleitrar greinar í samningum prentara við
atvinnurekendur sem gert hefur Prenísmiðju Þjóð-
viljans að skyldu að vera í Félagi íslenzkra prent-
smiðjueigenda getur hún. ekki gert sérsamning án
þess að verða fyrir sektum og öðrum viðurlögum.
Prentarar eru nú orðnir á eru kröfur þeirra því á fyllstu
eftir ýmsum hliðstæðum starfs sanngimi byggðar. Síðan þeir
stéttum með launakjör sín og sögðu upp samningum sínum
hefur sem kunnugt er verið
framkvæmd 30% gengislækk-
un gagnvart dollar, og gerir
hún kaupkröfur prentara-
stéttarinnar enn sjálfsagðari.
Prentsmiðjueigendur sam-
þykktu í upphafi að neita öll-
um kaupkröfum prentara nema
því aðeins að gjaldskrá
prentsmiðjanna yrði hækkuð
sem því svaraði. Hins vegar
hafa þeir fengið þau svör hjá
ráðherrum Alþýðuflokksins sem
þessi mál heyra undir að ekki
væri þorandi að verða við kröf
um þeirra sökum hættunnar á
nýjum kjarabótum hjá öðrum
stéttum. Að sjálfsögðu er það
ekki mál prentara hvaða gjald-
skrá prentsmiðjurnar hafa.
Afstaða ríkisstjórnarinnar
bendir til þess að hún telji
málstað sinn slíkan að hún
óski ekki eftir'að hægt verði
að halda uppi opinberuni um
ræðum fyrir kosningar frek-
ar en orðið er.
ísfisk fyrir 102 mílljénir
Ræðumenn Æskulýðsfylkingaciimar verða Ingi R.
lelgason og lónas Ámason
Næstkomaiidi mánudagskvöld verða útvarpsumræður
pólitísku æskulýðásambandanna, Æskulýðsfylkingarinnar
sambands ungra sósíalista, Sambands ungra sjálfstæðis-
manna, Sambands ungra jafnaðarmanna og i Sambands
ungra framsóknarmanna, Ræðumenn Æskulýðsfylkingar-
innar verða þeir Ingi R. Helgason og Jónas Arnason.
Samböndin hafa til umráða ur K. Jónsson, Gunnar Helga-
45 minútna ræðutima hvert, son og Jónas Rafnar; Sambands
umferðir verða þrjár, skiptast í ungra jafnaðarmanna Benedikt
20 mínútna ræður, 15 mínútna Gröndal og Helgi Sæmundsson;
og 10 mínútna. Umræðurnar Sambands ungra framsóknar-
hefjast strax eftir kvöldfréttir. manna Skúli Benediktsson og
Ræðumenn Sambands ungra Steingrimur Þórisson.
sjálfstæðismanna. verða Eyjólf-
titeð því að kaupa merki dagsins og Reykjalund
Lýsisfranleiðsla þeirra var 1948 a. m.
k. 16 milljón krónur aö verlmæti
Nýsköpunartogararnir hafa á áráiu 1948 aJfe selt ís-
fisk fyrir 3,898 þús. sterlingspund (brútto) eða 102 millj.
ísl. króna, samkvæmt skýrslu er nýútkominn „Ægir“ birtir.
AIIs er sala allra togaranna 4,840,305 pund 1948.
Lýsisframleiðsla ný'sköpunartogaranna á árimi 1948
samsvarar rúmum 4 þúsnnd tonnum eða a. m. Jk. 16 miíljón
krónum í útflutningsverðmæti.
SÖFMUKIÍÍ
I dag er skiladagur og nú
verður þessi vika að fara
fram úr því meti, sem sett
var síðustu viku.
Við væntum þess, að allir
sósíalistar keppist um að
tryggja deild sinni sæti sem
allra efst á samkeppnis-
skránni.
Gerið skll í dag I skrif-
stofu söfmmarinnar, Þórs-
götu 1.
Þó ber þess að gæta að ýms-
ir nýsköpunartogararnir komu
ekki fyrr en á árinu 1948 og
voru ekki allir komnir fyrir árs
lok, svo m. a. s. þessar háu söl-
u.r gefa ekki fulla hugmynd um
hvað þeir færa þjóðarbúinu,
þegar þeir eru allir komnir í
fulla framleiðslu árlangt.
Kossingaskrifstofa
stjórnarandsföðBimar
er að Þórsgötu 1, sími 7510
opin alla daga kl. 10-10.
Kærufrestur vegna kjör-
skrár er útrunninn 2. októ-
ber. Kjósendur Sósíalista-
flokksins utan af landi,
staddir í Reykjavík, kjósið
strax hjá Borgarfógeta,
Tjarnargötu 4. Opið bl. 10-
12, 2-6 og 8-10.
í Landvörn „blaði óháðra borgara“, sem Jónas frá
Hriflu, óánægðir íhaldsmenn, Fasteignaeigendaiélagið,
Gunnar I Ísaíold o.fl. gefa út, biríist í fyrradag opinber
áskorun til Sjálfstæðisflokksmanna, úm skipnlagðar
breytingar á íhaldslistanum. Áskorunin er undirskrifuð
af „Stjórn viðreisnarhreyfingarinnar“, og er þar skorað
á mejnn að færa niður í neðstu sæti Jóhann Havsteen
og Guranar Thoroddsen en npp í staðii n Sigurð Kristj-
ánsson og Hallgrím Benediktsson. Munu þeir síðarnefndu
styðja samtök þessi á bak við t.iöldir, og aðeins þeirra
vegna hafa- farið á neðstu sæti íhaidslisíans.
Þessí opinberi klofningur er enn eitt dæmi um upp-
lausn stjórnarliðsins og fyrirsjáaclegt fylgishrun þess.
Að Reykjalundi — viranuheimili S.Í.B.S. — hefur á undan-
föriíum árum verið unnið þrekvírki ,sem öll íslenzka þjóðin getur
vcrið stolt af. Hinar glæsilegu framkvæmdir að Reykjalundi
eru sameiginlegt verk þjóðarinnar og forystumanna S.Í.B.S. —
án þjóðarinnar hefðu þeir ekki getað framkvæmt það, án dugn-
aðar og ósérplægni forustumarana Sií.B.S. hefði þjóðin aldrei
eignazt Reykjalund.
Framkvæmdirnar að Reykjalundi eru allri þjóðinni í hag.
,Þar er verið að skapa þri fólki heimili sem berklarnir hafa
1 svipt vinmicrku að meira eða mirana leyti, og jafnframt tryggt
! að hin takmarkaða vinnuorka þessa f ólks komi að fullum nottim
í stað þess að það þurííi að vera komið á náðir annarra.
Enn mikið verkefmi.
Stórhýsiim að R.eykjalundi,
sem í senn er vistmannahús,
lækningastofa o. s. frv., í einu
orði sagt miðstöð starfseminn-
ar þar, er nú að verða lokið.
Öllum er kunnugt um vist-
mannahúsin er reist höfðu ver-
ið áður. En þó að þessu mikla
átaki sé lokið er enn mikið
verkefni óunnið, það er bygg-
ing vinnuskáia fyrir vistmenn-
ina. Að Reykjalundi fer fram
margháttuð starfsemi svo sem
margskonar smíðar, saumar, o.
s frv. og eru vinnuskálarnir
hermannaskálar frá hernámsár-
unum og því augljóst að við
slíkt verður ekki notazt til
langframa.
Þess vegna liggur nú fyrirj
að reisa nýja vinnuskála. Tilj
þess þarf mikið fé, sem S. í.
B. S. er nú að safna.
Berklavarnardagurinn er á
sunnudaginn, f jársöfnunardag-
ur S.Í.B.S. Merki dagsins verð-
ur selt á götunum og kostar
og eru jafnframt happdrættis-
það 5 kr. Merkin eru tölusett
miði. Vinningurinn er flugfar
til Kaupmannahafnar og til
baka aftur. Reykjalundur, tíma
rit S.l.B.S. verður einnig selt
á götunum, kostar það 10 kr.
Allur ágóði af sölunni rennur
til framkvæmdanna að Reykja-
lundi. Það þai'f ekki að hvetja
Reykvíkinga til að kaupa merk
in, það þykir fyrir löngu sjálf-
sagt mál að á berklavarnar-
daginn ieggi hver Reykvíkingur
stein í byggingamar að Reykja
lundi.