Þjóðviljinn - 01.10.1949, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.10.1949, Blaðsíða 4
Si ÞJÓÐVILJINN Laiigardagar 1. aktóber 1949, Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn Rltatjórar: Magnús Kjartansson (éb.), SigurSur GuSmundsson Fréttaritstjórl: Jón Bjarnason BlaBam.: Arl Kárason, Magnús Torfl ölafason, Jónas Arnaaon Augiýslngastjórl: Jónsteinn Haraldsson Rltstjórn, afgrelðsla, auglýslngar, prentsmlSja: Skótavörðn- stíg 19 — Síml 7600 (þrjér linur)’ Xakriftarverð: kr. 12.00 & m&nuði — Lansasöluverð 80 aur. elnt. Prentsmlðja ÞjóðvHjana luf. Sórfalistaflokfcurinn, Þórsgötu 1 — Síml 7610 (þrj&r Unur) 2 Bandaríska auðvaldið hefur svarað vitneskjunni um atómsprengjur Sovétríkjanna. Svarið er ekki samvinna, friður, heldur aukin framleiðsla þessara múgmorðvopna, á- framhaldandi hervæðingarkapphlaup. Og Morgunbl. íslenzka fagnaði þessari ákvörðun og birti hlakkandi fyrirsagnir á forsíðu sinni í fyrradag. í gær skrifa svo vitsmunaverurnar sem því blaði stjórna leiðara um kjarnorkumálin. Hvort þeir Valtýr Stef- ánsson og Sigurður Bjarnason frá Vigur 'hafa lagt vitsmuni sína saman í leiðara þessum, er ekki vitað, en líklegt má það teljast, samkvæmt reglunni um heimskra manna ráð. Kjarnorkuspeki þeirra félaganna hljóðar svo: „Hvað eftir annað hefur verið borin fram um það tillaga á þingi Sameinuðu þjóðanna, að öll kjarnorka í heiminum yrði sett undir virkt og öruggt eftirlit, og engum gæfist nokkru sinni færi á að nota þetta eyðingarvopn, NEMA VIÐEIGANDI REFSINGUM YRÐI KOMIÐ FRAM GEGN SÖKUDÓLGNUM. Fulltrúar Sovétríkjanna hafa staðið gegn þessháttar samkomulagi eins og veggur. Þeirra ,,samkomulagstillögur“ hafa verið þær einar, að fyrst yrði gengið að því, AÐ EYÐA ÖLLUM KJARNÖRKUSPRENGJUM, SEM TIL VÆRU I HEIMINUM. Síðan væri hægt að tala um það, með hvaða móti hægt væri að koma sér saman um notkun kjarnork- nnnar í framtíðinni. Með þvergirðing sínum í kjarnorkumálunum hafa ein- valdar Sovétríkjanna beinlínis gefið í skyn, að ef þeim gæf- ist færi, þá myndu þeir hafa fullan hug á að láta kné fylgja kviði, í viðureign sinni við aðrar þjóðir, og NOTA SÉR KJARNORKUVOPNIÐ TIL HINS ÍTRASTA TIL AÐ KOMA HEIMSVALDAÁFORMUM SÍNUM I FRAM- KVÆMD.“ Er þetta ekki dásamleg speki, skynsemi og rökvísi? Sjálfsagt að leyfa framleiðslu atómsprengja, sjálfsagt að auka hana sem mest, sjálfsagt að nota atómsprengjur sem vopn — ef sökudólgunum verður aðeins refsað á eftir! Væri það ekki einstæð liuggun fyrir íslendinga á Reykjanes- -skaga, sem ríkissíjórnin liefur gert að skotmarki kjarnorku sprengja ef til styrjalda kemur, að deyja í vissu um það að sökudólgarnir muni fá refsingu? Myndi það ekki vega upp tortímingu sem náð gæti til allra s3órborga heims að vita að sökudólgarnir myndu fá makleg málagjöld? Það telja vitsmunaverurnar við Morgunblaðið auðsjáanlega, þótt þeim láist hins vegar að geta þess HVER Á AÐ FRAM- KVÆMA REFSINGUNA að atómstyrjöldinni lokinni? Jafn hrifnir og ritsíjórarnir eru af þessari ágætu til- lögu, ámóta hneykslaðir eru þeir á tillögum Sovétríkj- anna: „AÐ EYÐA ÖLLUM KJARNORKUSPRENGJUM SEM TIL VÆRU f HEIMINUM“ og koma á öruggu eftir- liti með því að engin slík framleiðsla ætti sér stað, er það ekki einstæð sönnun þess að Sovétríkin ætli að „NOTA SÉR KJARNORKUVOPNIÐ TIL HINS ITRASTA TIL AÐ KOMA HEIMSVALDAÁFORMUM SlNUM I FRAM- KVÆMD“? Það telja hinar rökvísu vitsmunaverur Valtýr Síefánsson og Sigurður frá Vigur. ★ Þetta eru þeir menn sem auðmannastéttin íslenzka hef- ur sérstaklega valið til að flytja almenningi boðskap sinn, þannig er greind þeirra og maanúð. Maður blygðast .sín fyr- Hafnarfjarðarrútan. Halldór Pétursson skrifar: • „Um margra ára skeið hef- ur það verið einskonar krossferð að ferðaat með áætlunarbílum á Hafnarfjarðarleið. — Áður en póststjórnin tók við rútunni; var hún rekin af einstaklingum. Ekki er því að neita, að á- standið hjá þessum sérleyfishöf um var að síðustu orðið óvið- unandi; þó verður að segja þeim til málsbóta, að fargjöld- um var mjög stillt í hóf, og ferðir á 10 mínútna fresti. Aft- ur á móti voru vagnarnir of litlir og mjög úr sér gengnir, svo þeir gátu ekki fullnægt þörfinni. — Svo tekur póststj. við. Nú héldu menn að þessar krossferðir væru á enda. Stórir og glæsilegjr vagnar komu á „leiðina" og þó fargjöldin hækkuðu um 40%, þá ætluðu menn að sætta sig með það í þeirri von að þeir gætu nú ferðast eins og menn. □ Adam ekki lengi í Paradís. „En Adam var ekki lengi í Paradís — Fyrsta kastið var reynt að fullnægja flutninga- þörfinni, en svo opnuðust augu samgöngumálaráðherra fyrir því að þetta var bara almenn- ingur, sem þarna ferðaðist. Ferðunum var smá fækkað allt ofan í hálftíma og stundum sleppt úr. — Loks er allt komið í sama horfið, að vagnarnir fara oft frá fyrsta áfanga troð fullir og skilja svo eftir allt, sem þeir eiga að taka á leiðinni. Fari þetta fólk, sem eftir er skilið ekki niður í Lækjargötu, á það á hættu að bíða allt í IV2 tíma í hvaða veðri sem er. □ Milljónar tap? „Þetta var þá árangurinn. Vagnarnir stækkuðu um helm- ing, fargjöldin um 40% og fciðtíminn lengdist um 20 mín- útur milli ferða. Og í viðbót er hvíslað um að tapið á þessari útgerð muni vera við milljón, eíðan breytingin varð. Enginn þarf þó að segja mér að hin útgerðin hafi verið rekin með tapi og er þó óiíku saman að jafna, eins og lýst hefur verið. Þetta er heldur engin ný bóla, heldur skipulögð starfsemi; svona er það á öllum sviðum. Falsvinir samvinnu og sam- virkra hugsjóna hafa alltaf cin- hver ráð. Þeir þykjast berjast fyrir því að bæir og ríki reki þetta og þetta, en komist það í framkvæmd, er það skipu- lagt í rústir til þess að „undir- niðri einkavinirnir“ geti bent á að ekkert geti borið sig nema einstaklingsrekstur. □ Rekin af mannhatri. „Hafnarfjarðarrútan virðist nú helzt rekin af mannhatri, því sannanlegt er að nógir vagn ar eru fyrir hendi. Útgerðin á gamla vagna, sem hún getur látið ganga í Kópavog á þeim tímum dags þegar flutniugar eru mestir og þannig létt á stærri vögnunum. — Við núver- andi ástandi verður ekki þagað lengur, því samkvæmt dýra- verndunarlögunum er strang- lega bannað að flytja gripi eins og fólk er flutt á þessari leið. Eigi að koma upp gripaflutning um, þá væri ekki úr vegi að sett yrði reglugerð um að skipa þingmenn okkar Ólaf Thórs, Guðmund 1. og Emil ráðherra umsjónarstórgripi í vögnunum, þar gætu þeir fengið ókeypis ferðalög og skemmtun. Verði allar ábendingar á- rangurslausar mun ég gangast fyrir því, að prófað sé með lögum hvort póstur og sími, sem sérleyfishafi, hafi engar skyldur gagnvart mannflutning um, eins og aðrir sérleyfishaf- ar. — Leiðin verður þá sú, að í hvert skipti sem fólk er „skil- ið eftir“ þá kaupi það „prívat“, bíla og sendi reikningana á póst og síma. Verði neitað að borga, þá gangi þetta til dóms. Verði það dæmt að fólkið hafi engan rétt, þá sér það þó hið rétta andlit, sem að því snýr. Halldór Pétursson." * BÍKISSKIP: Hekla er í Álaborg. Esja var á Reyðarfirði í gærmorgun á norð- urleið. Herðubreið átti að fara í gærkvöid kl. 23 til Stykkishólms, Flateyjar og Vestfjarðahafna. Skjaldbreið var á Norðfirði í gær a leið til Reykjavíkur. Þyrill va.r á Dagverðareyri í gær. EINABSSON&ZOÉGA: Foidin er á förum til Englands frá Austfjörðum með frosinn fisk. Eingestrocm lestaði í Hull 28. og 29. þ. m. EIMSKIP: Brúarfoss fór frá Reykjavík 29. 9 austur og ncrður um land. Dettifoss fór frá Kotka í Finn- landi í gær 30.9. til Gautaborgar og. Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá Kaupmannahöfn 28.9 til Leith og Reykjavíkur. Goðafoss fór frá Isa firði 25.9. til New York. Lagarfoss fór frá Rotterdam 30.9. til Hull og Reykjavíkur. Selfoss kom tii Reykjavíkur 29.9. frá Akranesi. Tröllafoss fór frá Reykjavik 28.9. til New York. Vatnajökull fór frá Keflavík 28.9. til Hamborgar. Bannsókn út af dauðaslysinu sem varð á Njálsgötu í fyrradag stendur enn yfir. Hefur rannsókn- arlögreglan beðið blaðið að ítreka það, að hún vill hafa tal af þeim cr voru sjónarvottar að slysinu, m.a. tveim konum er stigu út úr bifreið hjá slysstaðnum ennfrem- ur foreldrum telpunnar er komst ir að edga orðastað við slík fyrirbrigði mannlegrar tilveru, sem ekki virðist eiga neina sjálfstæða hugsun, menn sem því nafni nefnast og ekkert er heilagt, ekki einu „sinni til- vera þjóðarinnar.sem. byggir þetta land. yfir grötuna, rétt áður en slysiö varð. Skólagarðar Keykjavíkur. Þau börn, sem hafa ekki enn þá sótt uppskeru sína i garðana eru beðin að mæta i dag kl. 4-7. Þann 29. þ. m. seldi Vörður 280,656 kg. í Hamborg og 28.f.m. Seldi Jón forseti 300.338 kg í Bremerhaven. / \ Iðnnemlnn blað I. N. S. 1., 6,- 7. tbl., er komið út. Efni: I. N. S. 1. fimm ára. Ungt að árum, en rikt af reynslu, eftir Óskar Hallgríms- son; Sá hlekkur mun reynaat traustur, eftir Magnús J. Jó- hannsson; Iðnnemasamband Is- iands 5 ára, eftir Egii Hjörvar; Óskabarn islenzkrar iðnaðaræsku 5 ára, eftir Sigurð Guðgeirsson; Formannaf undurinn á Akranesi; Staða iðnaðarmannsins í þjóðfélag inu, erindi eftir Emil Jónsson; Þróun rafmagnsnotkunar hér á landi, erindi flutt af Steingrími Jónssyni; Gleriðnaðurinn í Banda rikjunum, o.fl. 19.30 Tónleikar: Samsöngur (plöt- ur). 20.30 Dagsltrá Sambands is- lenzkra berklasjúkl inga; Ávarp. — Maríus Helgason form. sam- bandsins; b) Ræða, frú Sigríður Eiriksdóttir; c) Leikþáttur: ,,Meðan við 6íðum“ eftir Jón Snara, Nína Sveinsdóttir. d) Einsöngur, Sigurður Ólafsson. e) Samtal í útvarpssal, Pétur Pétursson o. fl. f) Gamanvisur, Alfreð Andrésson. g) Erindi, Oddur Óiafsson yfirlæknir. h) Kórsöngur: Samkór Reykjavíkur (plötur). i) Kveðjuorð, Ma.ríus Helgason. 22.05 Danslög (plöt- ur). 23.30 Dagskrárlok. LOFTLEIÐIB: 1 gær var flogið til Akureyrar, Isa fjarðar, Þingeyrar, og Blönduóss. 1 dag er áætlað að fljúga til Vest- mannaeyja, Akureyrar, Siglufjarð- ar, Isafjarðar, Patreksfjarðar og Kirkjubæjarklausturs. Einnig á milli Hellu og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Akureyrar og Isa fjarðar. Geysir er væntanlegur frá Prestvik, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi um kl. 18 í dag. í dag verða gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Jónssyni, ung- frú Erla Guð- mundsdóttir (Benjamínssonar, klæðskerameistara) Hringbraut 105 og Gunnar Mekkinóson (Björn sonar kaupmanns). Heimili ungu lijónanna verður að Laugaveg 33. Nýleg^ voru gefin saman i hjóna band af séra Bjarna Jónssyni, ungfrú Katrín Einarsdóttir skrif stofumær (Jónssonar kaupmanns á Raufarhöfn) og stud. jur. Bragi Sigurðsson (Arngrímssonar fyrrv, ritstjóra). Heimili ungu hjónanna er að Hringbraut 37. » I Hjónunum Aðal- . \ r?' / heiði Skaptadótt- U /i ur og Þorgrími í J&il ' Einarssyni, Mána- t götu 24, fæddist 14 marka sonur í (gær 30. september. — Hjónunum Ernu Jónsdóttur og Sigurði Inga- syni Barmahlíð 30 fæddist sonur ninn 23. september. C', Messur á rnorg- un: Nesprestakail í Mýrarhúsaskóla kl, 2,30 Séra Jón Thorarensen. —• Lauganespresta- kall Barpaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Séra Garðar Svavarsson. — Dómkirkjan: kl. 11 f. h. Séra Bjarni Jónsson. — Hallgríms- kirkja: kl. 11 f. h. Ræðuefni: Barnavernd. Séra Jakob Jónsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.