Þjóðviljinn - 08.10.1949, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.10.1949, Blaðsíða 4
 !fp ÞJÓÐVILJINN «^Rri Laugardagur 8. október 1949 plÓÐVHJINN Útgefsndl: Sameiolngarflokkur alþýSu — Sósialistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson (&b.), SlgurSur GuSmundsson Fréttaritstjórl: Jón Bjamason BlaSam.: Ari K&rason, Magnús Tcrfi Ölafsson, Jónas Ámascn Auglýsingastjóri: Jónstelnn Haraldsson RJtstjóm, afgrelSsla, auglýslngar, prentsmlSja: SkólavörSu- etlg 19 — Siml 7500 (þrj&x linur)’ ÁakrlftarverS: kr. 12.00 & mánuSi — LausasöluverS 00 aur. elnt. PrentsmiSja ÞjóSvlljans h.f. Sóslailstaflokburinn, Þórsgðto 1 — Siml 7510 (þrj&r Bnur) Flugumaðurinn Rannveig 1 Þorsteinsdótfir AgeDtar Eysteins Jónssonar fara nú hús úr húsi, vinnustað af vinnustað og prédika það, að Rannveig Þor- steinsdóttir hafi möguleika að komast á þing, að hún sé st jóniarandstæðingur, að hún hafi sérstakan áhuga á k jör- um. lauuafóíks, að hún sé andvíg yfirdrottnun Bandarikj- anna á ísiandi, að hún sé skeleggur. baráttumaður í rétt- indamálum kvenna. Þessi áróður er ósvífin biekking, móðgun við dóm- greind almennings. Rannveig Þorsteinsdóttir hefur enga möguieika að komast á þing. Hvert það^tkvæði sem hún fær er ónýtt stjómarandstöðunni, ónýtt öilum heiibrigðum, frjálshuga öflum með þjóðinni. Af sömu ástæðu er hvert það atkvæði sem hún fær stuðningur við afturhaldið í 3and- inu, stuðningui- við Bandaríkjaagentana og auðmannaklík- una. í Reykjavík. Og það er einmitt sú staðreynd sem er skýringin á frambooi Rannveigar. Ríkisstjómin vissi að eimnitt hér í Reykjarík stóð hún einna höllustum fæti. Mikill meirihluti Reykríkinga er.and- vígur núverandi stjóm og er staðráðinn í því að veita henni eftirminnilega ráðningu. Þess vegna varð ríkisstjómin að finna einhver ráð til að riola fylkingu almennings. Og ráðið varð framboð Rannveigar Þorsteinsdóttur og sá áróður sem stundaður er í sambandi við það. Rannveig Þorsteins- dóttir er flugumaður Eysteins Jónssonar, boðin fram til þess eins að eyðileggja atkvæði sem flestra Reykvíkinga, boðin fram í vonlausri tilraun til að fella Katrínu Thorodd- sen, fulltrúa allra frjálshuga kvenna. Ef Rannveig ætti eitthvað til af þeim hugðarmálum sem reynt er að eigna henni í áróðrí eysteinsxnanna, myndi hún vissulega ekki vera í framboði fyrir Framsóknarflokk- inn, þá myndi hún vera stuðningsmaður Katrínar Thorodd- sen í stað þess að gera vonlausa tilraun til að reyna að fella hana. Framsóknarflokkurinn hefur verið allra flokka ar.dvígastur þeim stefnumálum sem nú er rejmt að nota til a'ð fleka fólk til að gera atkvæði sín ónýt. Framsóknar- flokkurinn hefur alltaf og ævinlega barizt gegn hagsmunum launafólks, seinasta dæmið er það að hann stóð sem veggur gegn launahækkuninni til opinberra starfsmanna. Fram- róknarflokkurinn hefur ávalt staðið sem veggur gegn rétt- Indamálum kvenna, greiddi atkvæði gegn jafnrétti kvenna ; launalögum, og tók ásamt ihaldinu þátt í aðHkopast að jafnréttisfrumvarpi Hannibals Valdimarssonar. Eysteinn Jónsson, húsbóndi Rannveigar, er einn þægasti Baadaríkja- þjónainn á Islandi, enda forframaðist hann til utanstefnu eftir mútugjöf Bandaríkjastjómar. Hann hefur bannaö frambjóðendum flokksins að minnast á sjálfstæðismálin, cins og glöggt kom fram í útvarpsumræðum ungra manna, og þeir hafa hlýtt. Þannig eru hin raunverulegu stefnumál Framsóknarflokksins og Rannveigar Þorsteinsdóttur þver- öfug við þann áróður sem stundaður er, enda vita allar þær konur sem starfað hafa með Rannveigu i samtökum kvenná, að Iiún hefur alltaf tekið afstöðu með ákveðnustu íhalds- kpnum, enda 'hafa bær hampað henni mjög. Rannveig Þorsteinsdóttir er send út af ríkisstjóminni ’ til að reyna að eyðileggia sem flest af atkvæðum Reykvik- inga. Henni mun ekki takast það. Álmenningur lætur ekki , blekkjast af ósvífnum áróðri sem er í algerri andstöðu við '•staðreyndir. Reykvíkir.gar muiiu fylkja sér um Katrínu '5h'orx>ddséu og txyggja henni sem gjæsilegastan. soguÁ ekki að útskýra hvað það getur haft alvarlegar afleiðingar, að sjúkrakassarnir, eins og við kölluxn þá, eru látnir standa svona tómir. Hérna um daginn meiddi sig maður í smiðjunni hjá okkur, og þá var ekki einu sinni til piástur í kassanum!.. En það er sem sagt sama hvern ig við hringjum og hringjum til að biðja um lagfæringu á þessu, það koma aldrei neinar lagfæringar, kassinn heidur á- fram að standa tómur. Og nú er það síðasta von okkar, að úr þessu verði bætt, þegar það hefur verið gert að umtalsefni á pren,ti. — Dagur.“ □ Br»garbót. 4. skrifar: — Annaðhvort hefur Víkverji vísvitandi rang- fært kosningavísuna sem hann birti í Mogganum s.l. föstudag, ellegar þá að prentsmiðjupúk- inn hefur krækt i hana öfugri kló, og brjálað yrkinginn því auðsjáanlega á vísan að vera svona: Sagan telur svika-hjörð sífellf reiðubúna, Skammkel, Gissur Móra Mörð Mogginn um þá heldur vörð. Kristínu L. Sig. þakkað. „Reykvísk“ skrifar: „Eg þakka, Kristínu L. Sigurðar- dóttur fyrir það innlegg í kosn ingabaráttuna,. sem hún birti í Morgunblaðinu í dag (7. okt.) Því það er áreiðanlegt, að ef við sósíalistar fáum dálítið kvantúm af slíkum áróðri á móti okkur, þá verðum við ör- ugg með glæsilegan sigur í kosningunum. Þessi grein í- haldsframbjóðandans, sem hér er um að ræða, lýsir nefnilega svo .mikilii fávizku og þröng- sýni,- að hún. hiýtur að hafa alveg þveröfug áhrif við það Sem henni er ætlað. Það ætti að nægja að nefna citt atriði henn ar, sem dæmi. □ Gleðisögurnar og sorpritin. „Kristín þessi segir, að við sósíalistar stöndum á bak við alla þá útgáfu á „gleðisögum og sorpritum", sem bókamark- aðurinn hafi morað af á sein- ustu árum. „Þessar nýtízku bókmenntir eru liður í áætlun kommúnista til að skapa vand- ræðaástand, jafnt i siðgæðis- málum þjóðarinnar sem öðru“, segir Kristín. Er manneskjan rugluð? Lætur hún sér detta í hug, að sósíalistar hafi áhrifa vald í einu einasta þeirra út- gáfufyrirtækja, sem þarna eiga hlut að máli ?... Veit hún ekki það, sem allir vita, að það eru einmitt hennar eigin flokks- menn, sem mestu ráða um bóka utgáfu hér á landi, já, standa bókstaflega á bak við allt gleði sagna- og sorpritafarganið ?... Jú trúlegt er að hun viti það. En hún treystir meir-á blekk- ingar en sannleikann, eins og vera ber um frambjóðanda í- haldsflokksins. — Reykvísk.“ □ Tómar sjúkrakassl. „Dagur" skrifar: „Það má kannski segja, að það, sem ég ætla. núna að gera að umtals- efni, gefi ekki ástæðu til að gert sé úr því blaðamál., Samt er það svo, að aðrar leiðir hafa hingað til reynzt ófull- nægjandi til að fá fram lag- færingu. 1 smiðjunni, þar sem ég vinn, er sjúkrakassi, sem staðið hefur tómur í langan tíma, þeir sem eiga að sjá um að allt sé í lagi xneð kassann, hafa sýnt 'þann trassaskap að láta hann standa svoná tómann þrátt fyrir það að þeir hafa hvað eftir annað verið beðnir um að fylla hann með því sem í hinum á að vera.... Það er einn starfmaður Slysavamafé- lagsins sem á að gera þetta... Það er Slysavamafélagið, sem hefur gengizt fyrir að hafðir væru slíkir kassar á öllum meiriháttar vinnustöðvum, og er það þakkarvert eins og raun- ar flest. sem þetta ágæta félag hefur gengizt fyrir. □ Getur haft alvariegar afleiðingar. Ncsturabstur annast HreyfiJl -En. ég- jþazf -áreiðanlega .Súalefla3S.: . :*;■ HÖFNIN: Egill SkaliagTÍmsson fór áleiSis til Þýzkalands í fyrrinótt. RIKISSKEP: Hekla er í Álaborg. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er í R- vík. Skjaldbreið var á Hornafirði i gœr á norðurleið. Þyrill er norð- anlands. Helgi er í Breiðafjarðar- ferð. EIMSKIP: Brúarfoss fór frá Húsavík 6.10. Væntanlegur til Reykjavíkur í gær kvöld 7.10. eða í nótt. Dettifoss kom til Reykjavíkur kl. 10 7.10. frá Gautaborg. Fjallfoss fór írá Leith 4.10. væntanlegur til Reykja víkur síðdegis 8.10. Goðafoss kom til N. Y. 3.10. frá Reykjavík. Lag arfoss fór frá Hull 4.10. væntanleg ur til Reykjavíkur í fyrrinótt 8.10. Selfoss íór frá Reykjavík 5.10. vestur og norður. Tröllafoss fór frá Reykjavik 28.9. til N. Y. Vatnajökull er í Antwerpen, fer þaðan 7.10. til Rotterdam og R- víkur. EINARSSON&ZOfiGA: Foldin er í Hull. Lingestroom er á leið til Reykjavíkur um Færeyj 20.30 Útvarpstrió- ið: Einleikur og trió. 20.45 Leikrit: ,Horfin sjónarmið‘ eftir James Hilton og Barbara Burnham. (Leikendur: Ævar Kvaran, Þorsteinn Ö. Step- hensen, Jón Aðils, Inga Laxness, Valur Gíslason, Indriði Waage, Árni Tryggvason, Lárus Pálsson. — Leikstjóri: Lárus Pálsson). 22.05 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. Skólagarðar Rcykjavíkur. Þau bö*n, sem hafa ckki sótt kartöflur sínar, verða að sækja þær kl. 2 í dag. MESSUR Á MORGUN: Laugarnespresta- kalJ: Messa kl. 2 e. h. á morgun. Sr. Garðar Svavarsson, Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Nes- prestakall: Messa í kapellunni í Fossvogi kl. 2 e. h. Sr. Jón Thor arensen. — Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h. — Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5 e. h. — Séra Bjarni Jónsson. — Fríkirkjan: Messa kl. 2 sr. Sig- urbjörn Einarsson. Almennur safnt aðarfundur kl. 4.30. FLUGFÉLAG ISLANDS: 1 dag er áætiaff að fljúga til Akui* eyrar, Blönáuóss, Isafjárðar, Vestm.- eyja og Keflavíkur. Á morgun til Akureyrar, Vestmannaeyja og Keflavíkur. 1 gær var flogið til Akureyrar, Fagurhólsmýrar (3 ferðir), Kirkjubæjarklausturs, Hornaf jarðar og Vestmannaeyja. ® Nýlega voru FtSAtaSTiÍlj gefin saman í hjónaband af sr. Bjarna Jóns syni, ungfrú Erla Auðlín Bót ólfsdóttir og Guðmundur Krist- leifsson húsksmíðanemi. Heimili þeirra er í Breiðholti við Laufás- veg. — Nýjega voru gefin sama.n. í hjónaband af séra Jóni Auðuns,. ungfrú Gyða Hjaltalín Jónsdóttir, Ásvallagötu 25 og Ólafur Einars- son, framkvæmdastjóri, Skóla- vörðustíg 31. — Nýlega voru gefin. saman í hjónaband af séra Sigur jóni Árnasyni, ungfrú Þórey Eiríks dóttir og Jón Friðrik Jónsson, málari. — Heimili þeirra er á Njálsgötu 8 B. — Þann 1. október voru gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Jónssyni, Hansína Sig urjónsdóttir, Sölíhólsgötu 7 og Skúli Skúlason, bifvélavirki, Vest- urgötu 66. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína. ungfrú Ágústa F. Lúðvíksdóttir, Með ijalholti 3, Reykj'a- . vili og , Eiður. Jó- hannsson, Skúlaskeiði 30, Hafnar- firði. IJcilsuvemð, timarit Nátt- úrulækninga félags Islands, 2. hefti 1949 (4. árg.), er nýltomið út, vandað að frágangi og fjölbreytt að éfni. Ritstjórinn Jónas Krist- jánsson, skrifar grein um sviss- neska lækninn og vxsindamanninn Bircher-Benner, einn helzta’ fröm uð náttúrulæknihga í Evrópu, ' og er mynd af honum á kápusíðu rits ins. Þá kenjur grein: Atómkenn,- ingin sem þáttur i í-annsókn nær- ingarinnar, eftir hollenzkan vís- indamann, forstjóra matvælarann- sókna i Haag í Hollandi, Újörn L. Jónsson ritar aðra grein sína í flokknum Vörn og orsök krábba meins; Lykillinn að gátu krábba- meins, og auk þess greirx um ensku safnhaugagerðina, með nokkrum skýringamyndum. Þá er þýdd grein um föstur eftir, franskan læknj, og nokkrar smærri greinar: Lifandi og dauð- fæða, ungbarnadauði og heilsufar. Bannað að bleikja hveiti m.eð-pitri. Er gerilsneyðing mjólkur nauðsyn iq - •Frambald á 7. giða.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.