Þjóðviljinn - 18.12.1949, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.12.1949, Blaðsíða 3
Sunnudagur 18. des. 1949 ÞJÖÐVILJINN 131 Hroðsigling dýrtíðarinnar Hvergi hefur „hjá!p“ þeirri, eem kennd er við Marshall, verið sungið jafn einróma lof og prís og í afturhaldsblöðun- um íslenzku. Allir Moggarnir kepptust við að koma þjóðinni í skilning um að Bandaríkin væru einskonar guðleg forsjón hinna stríðsþjökuðu Evrópu- þjóða og áherzla var lögð á að íslendingar sem grætt höfðu manna mest á styrjaldarárun- um væru einnig sérstaklega undir náðinni. Fall sterlingspundsins gagn- vart dollar og þar með krón- . ■■KSKXKEKKKKB’KHBHKKaU ÍMatar ■ Supp- iskrift I Brúnarsináliöliur % kg. síróp y2 kg. sykur 3 egg kg. smjör 1 tesk. rifin sítónbörkur 1 tesk. hjartasalt 1 tesk. pipar % tesk. kanel y2 tesk. negull 3 tesk. engifer 1 tesk. kardemommur 800 gr. hveiti 1 dl ylvolgt vatn .Sírópið og sykri blandað saman. Þá er vatnið látið út í ásamt eggjunum, kryddinu, bræddu smjörinu og hjarta- saltinu, sem hrært er út í einni matskeið af mjólk. — Hveitinu er síðan hrært sam- an við (ca. 6000 gr) eins miklu og þarf til að gera deigið svo þykkt að ekki sé; hægt að hræra það lengur.! Það er svo látið biða til næsta| dags. Þá er það hnoðað svoj að hveitið gangi upp. Breitt út og búnar til kökur mótaðar með glasi. Bakaðar Ijósbrúnar.. Möndlukökur 150 gr. smjör 150 gr. sykur 1 li/2 dl rjómi 100 gr. kartöflumél 200 gr. hveiti 2 teskeiðar vaniljudropar 150 gr. möndlur Smjörið er brætt og hrært með sykrinum, þar til það er hvítt og froðukennt. Þá er þeyttur rjóminn settur saman við, ásamt hveitinu og vanilju dropunum og afhýddum gróft söxuðum möndlunum. Deigið er látið með teskeið á smurða plötu og kökurnar bakaðar gulbrúnar. unnar kom svo eins og þruma úr heiðskíru lofti samkvæmt ,,ráðleggingum“ frá Bandaríkj- unum, svo þau fengju greidda Marshallaðstoðina á „heppileg- an“ hátt. En allt var i lagi. Hinir „ábyrgu" sögðu í mál- gögnum sínum að þetta væri engin gengislækkun og áhrifa hennar mundi „lítt gæta hér. á landi“. En íslenzkur almenningur hefur aðra sögu að segja. 1 kjölfar gengislækkunarinnar flæðir nú ægileg dýrtíð yfir landið. Jafnvel þótt við verzl- uðum ekkert við Ameriku munu áhrif gengislækkunarinnar koma æ tilfinnanlegar í ljós, þar sem Evrópuþjóðirnar eins og t.d. England fá mikið af bráefnum til iðnaðarins frá dollarasvæðunum. Ýmsar innílutningsvörur írá Ameríku til framleiðslunnar liafa þegar stórhækkað í verði, ennfremur nauðsynjavörur, sem almenningur verður að kaupa síhækkandi verði, þótt vísitalan haldi áfram að vera bundin cg innsigluð í 300 stigum. Kaffið sem við fáum frá Ameríku hefur hækkað um 70%. Ekki svo lítil hækkun á vöru, sem telst til þess munað- ar, sern íslenzk alþýða til sjós og sveita getur sízt án verið. Annars væri fróðlegt að fá sundurliðaða skýrslu frá verð- lagsstjóra og sjá í hverju þessi gífurlega verðhækkun er fólgin, þar sém kaffi er ennþá verð- jaínað. Það er ekki heldur langt síðan að smjörlíki hækk- aði úr 3,40 upp í 3,90 kg. og nú aftur upp í kr. 4.22, og þó er smjörlíki ennþá greitt niður með eitthvað um tveim millj. króna. Sykur hefur hækkað úr kr. 2,20 upp í 2,35. Það er hægt að halda áfram að telja, ekkert virðist geta stöðvað, og ekkert virðist vera gert til að stöðva, hina rísandi öldu dýrtiðar, sem látin er skella á þjóðinni. Hve lengi rís almenningur undir þessari stöðugu verð- hækkun ? Hve lengi lætur hann bjóða sér slíkt ástand? i réttindamáluniun ;?1 M Æa Eftírfarandi greinarkafli er tekinn úr grein Nönnti Ólafs- dóttur í hinn nýja hefti Melkorku er hún nefnir Gleymdu ekki réttíndamálun'um. Það er athyglisvert nú fyrir kosningarnar að meira er ritað um kvennaframboðin en dæmi eru til um áður. Á þó engin kvennanna öruggt þingsæti frekar en áður. Það dylst engum að áhugi blaðanna er ekki fyrir konunum, sem fram- bjóðendum, heldur fyrir konunum sem kjósendum. Stjórn- málaflokkar á biðilsbuxum eru ekki hljóðlaus fyrirbæri, og’ óvenjumikill hávaði út af kvennaframboðum er aðeins a£ einni rót runninn. Pólitisku flokkarnir eru famir að skilja, að framhjá. konunum verður ekki lengur gengið, án þess að hljóta verra,. af. Svo góða greind ber að virða. Hitt ber að þakka, að áróð- ur flokkablaðanna fyrir þessar kosningar, hvers fyrir sínum: frmbjóðanda, hefur vakið athygli allra landsmanna, svo aðj héðan í frá þurfum við tæpast að óttast ð konurnar gleym- ist alveg i framboðin. Þess þarf þó ekki að vænta að flokk- arnir sýni beinlínis örlæti við úthlutun þingsæta til kven- fólksins í framtíðinni. Konurnar verða því að vera á verði. j hér eftir sem hingað til. Samt verður að telja þessa kosn- ingabaráttu sigur, að því leyti, að þeirri kröfu kvemia að fá fuiltrúa á þing, hefur vaxið fylgi, fyrst og fremst meðal kvenna sjálfra. Það standa því vonir til að þær láti ekki. bola sér frá meira og þegar þær loksins eru komnar af stað,, þá mega hinir stóru fara að vara sig. Fullkomin þátttaka. kvenna í þjóðmálum er það markmið, sem keppa ber að,. bæði vegna kvennanna sjálfra og vegna almenningshags. Á næstu þingum verða rædd ýms hagsmunamál kvenna.. Frumvarp Hannibals Valdimarssonar um réttindi kvenha (sjá 1. tbl. þessa árg. af Melkorku) kemur án efa fram í dagsljósið aftur. Þá eru breytingar á tryggingalöggjöfinni, breytingar á skattalöggjöfinni o. fl. o. fl. Ættu konur að fylgjast vel með störfum næstu þinga þegar þessi mál koma til umræðu. Það er lítil fyrirhöfn, sem launast ríkulega. Eins og stjórnmálamennimir hafa áhuga fyrir okkur kvenfólkinu sem kjósendum, eins eigum við að sýna að við höfum áhuga fyrir gerðum þeirra sem þingfulltrúa og meta. þá samkvæmt því. Það fylgir ekki hugur málum hjá kon- um í kvenréttindabaráttu, þegar þær styðja menn á þing, sem fella hvert einasta réttindamál kvenna. Þaðer sama og segja já með vörunum og nei með atkvæðaseðlinum. Annað hvort er hégómamál, stjórnmálaskoðunin eða réttindamálin.. Kvenréttindi eru ekkert annað en almenn mannréttindi.. Þeim, sem leggur stein í götu mannréttinda, er annað kær- •ara en réttur og vellíðan þegnanna. Ærandi háreisti fyrir kosningar kann að hylja þennan kjarna, en eftir kosningar gefst tóm til hugleiðinga — og að fagna auknum áhuga.. kvenna á-þjóðmálum. F " j | ' NÝTlZKU FKAKKI úr smáköflóttu ullarelni. Melkorka tímarit kvenna, 3. hefti, er nýkomið út, f jölbreytt að efni eins og að vanda. Rann- veig Kristjánsdóttir skrifar b grein er hún nefnir Gamalt og nýtt til þrifnaðar og þægindaj í sambandi við byggingasýn-! ingu sem haldin var í Gauta- , borg síðastliðið sumar. Kynni min af skáldkonunni Sigrid Undset eftir Sigríði Einars frá Munaðarnesi. Tvö kvæði eftir Láru Eggertsdóttir Nelim frá Laugardælum. Inga Þórarins- son skrifar um skáldkonuna Victoríu Benedictsson. Gamla skautið eftir Auði Sveinsdóttir. Framhaid á 14. síðu. Trefill úr gráum og dökkrauðum tvö-- földum lopa. Prjónaður með klukkuprjóni eða tvær brugðn- ar og tvær sléttar. Fitjaðar- upp 76 lykkjur í gráa litnum. Lengd 140 cm, breidd 30 cm. í kögrinu er annar hver dúsk- ur grár, en hinn rauður. Fjóriir þræðir í hverjum dúsk.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.