Þjóðviljinn - 24.02.1950, Side 4
1950,
(MÓÐVIillNH
Útgefandl: Sametningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjórí: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Arnason
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson
Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19 — Simi 7500 (þrjár iínur)
Áakriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans hX
Sósiailstaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjár línur)
Alþýðiflokkurinn endurfæðist
3. febrúar s. 1. fór fram atkvæðagreiðsla eftir aðra
umræðu í neðri deild um kaup þeirra tíu togara sem verið
er að smíða í Bretlandi. Voru þá m. a. greidd atkvæði um
þá tillögu Einars Olgeirssonar að bæjar- og sveitarfélög
hefðu forkaupsrétt að togurunum og fengju 85% kaup-
verðsins sem lán. Tillaga þessi var felld með 12 atkvæðum
gegn 7, og fylgdu henni aðeins þingmenn sósíalista og
einn þingmaður Sálfstæðisflokksins, Stefán Stefánsson, sem
þannig svaraði kosningavígorði mótframbjóðanda síns Stef-
áns Jóhanns: „Nýsköpunartogara inn á hvert heimili." Sér-
staka athygli vakti bað við atkvæðagreiðsluna að ENGINN
ALÞÝÐUFLOKKSÞINGMAÐUR FYLGDI TILLÖGU EIN-
ARS; þeir ýmist sátu hjá eða gættu þess að vera fjarver-
andi. Var ýtarlega bent á þessa framkomu þeirra hér í blað-
inu, og undruðust óbreyttir Alþýðuflokksmenn stórum.
Við þriðju umræðu bar Einar fram tillögu sína á ný,
örlítið breytta eins og skylt er samkvæmt þingsköpum. Þá
gerðust þau tíðindi að Alþýðúflokksmennirnir virtust end-
urfæddir. Fylgdu þeir tillögu Einars allir sem einn, og Emil
Jónsson kom meira að segja með ágæta breytingartillögu
um lengdan lánstíma! Varð þessi endurfæðing til þess að
tillagan náði samþykki, og hefur Alþýðubl. verið 'hið kát-
asta undanfarna daga yfir þessum úrslitum. Talar það nú
um „hinn sjálfsagða forkaupsrétt“. 'Hins vegar láist því að
rekja forsöguna og geta þess hver verið hafi tillögumaður.
Slíkt er að sjálfsögðu aukaatriði, aðalatriðið er endurfæðing
in og sú gleði sem ríkir þegar bersyndugir iðrast og gera
yfirbót.
Hví þegir fréttastofa ótvarpsins?
„Það er innilokunarstefnan, sem þarna er verið að
framkvæma. Heilar þjóðir eru umluktar myrkri vanþekking-
arinnar á þvi, sem er að gerast í heiminum.. . Þessari stefnu
.. felst aðalhættan fyrir frið og Öryggi þjóðanna. Með henni
er blásið að glæðum tortryggni, haturs og úlfúðar. Óttinn
setur svip sinn á allt líf fólksins, óttinn við einhvern f jand-
mann, sem síf-elt sitji á svikráðum við frelsi þeirra og
öryggi.“ ■
Þannig er komizt að orði í gær í forustugrein Morgun-
blaðsins, aðalmálgagns vanþekkingarinnar á íslandi. Lýs-
ingin á að sjálfsögðu að vera á andlegum kjörum austan-
tjaldsmaima, en 'hún hljómar óneitanlega mjög svo kunnug-
lega í eyrum íslendinga. Það þarf sem sé ekki að fara- til útl.
til að leita uppi þessa starfsemi, það er reynt að framkvæma
hana hér á Íslandí og þær tilraunir hafa borið mikinn árang
ur. Málgögn forheimskunarinnar líta á það sem aðalverk-
efni sitt að ala á vanþekkingu, tortryggni, hatri, úlfúð og
ótta, landið er lokað erlendum blöðum og tímaritum, og
ríkisútvarpið — hið hlutlausa — er í fréttum sínum ósjálf-
stætt útibú frá áróðursmiðstöð brezka heimsveldisins, svo
ósjálfstætt að niður falla ekki einu sinni eftirmæli um
brezka ketti.
Þessi einhliða áróðursstarfsemi hins hlutlausa ríkisút-
*varps hefur verið allmikið rædd undanfarið og hefur verið
fátt um varnir. Jónas Árnason bar fram fyrirspurn á þingi
um það hvort fréttaburður þessi væri samkvæmt fyrirskip-
únum ríkisstjórnarinnar, og Bjarni Benediktsson lét sér
nægja að sverja af sér og stjórninni! Eftir því að dæma er
•það fréttastofan sjálf sem fellt hefur járntjald hins engil-
saxneska áróðurs um ísland. Væri mjög æskilegt að fá
■opinbera grednargerð frá henni, og það því fremur sem
Vill líka tvö brezk lmatt-
spyrnulið keppa hér.
Knattspyrnuunnandi einn
hefur beðið mig að skjóta
fram eftirfarandi uppá-
stungu til athugunar fyrir
þá menn sem úrslitaráð hafa
í knattspyrnumálum hér:
„Hvernig væri nú að fá hing
að næsta sumar tvö góð kapp
lið frá Bretlandi, t. d.
Glasgow Rangers og Sunder-
land, og gefa knattspyrnu-
mönnum okkar einu sinni
tækifæri til að sjá knatt-
spyrnu eins og hún verður
bezt leikin og læra af því?
— Ef úr þessu gæti orðið, þá
hugsa ég mér iað liðin leiki
t. d. einn leik saman, síðan
hvert um sig við okkar
menn, úrval eða sérstök fé-
lög, og síðan yrðu tveir eða
fleiri leikir, þar sem liðin
væru samsett að hálfu af
okbar mönnum og að hálfu
af Bretum, okkar menn í
framlínunni í öðru liðinu,
en vörninni í hinu, og eins
með Bretana... Eg er ekki í
neinum vafa um að okkar
menn mundu hafa af þessu
ómetanlegt gagn.“
□
Hin síendurteknu
verðlagsbrot.
Einn af mörgum skrifar:
„Kæri bæjarpóstur. — Und-
anfarin ár rekst maður ann-
að slagið á tilkynningar í
blöðunum, um að verzlanir
og ýms önnur fyrirtæki hafi
verið sektuð fyrir verðlags-
brot. Oftast virðast þessar
sektir vera ,mjög lágar. En
það sem vekur eftirtekt er,
að á stundum er hér um
sömu fyrirtækin að ræða,
sem hvað eftir annað eru
sektuð fyrir verðlagsbrotin,
og er hitt þó enn eftirtektar-
verðara, að ekki í einu ein
asta tilfelli, (svo ég hafi tek-
ið eftir), skuli slíkt fyrir-
tæki hafa verið svift verzlun
arréttindum, sem er þó heim
ilt samkv. verðlagslögunum.
□
Eins og hver
aimar þjófnaður.
Almenningur hlýtur að
líta á verðlagsbrotin eins og
hvern annan þjófnað og það
ekki af betra taginu, því hér
mun í flestum tilfellum vera
um brot að ræða, sem fram-
in eru af alsgáðum mönnum
og að yfirlögðu ráði, en ekki
af vanþekkingu, þó slíkt geti
hent í einstökum tilfellum.
— Ef^ ölóður maður stelur
smámunum, þá er refsilög-
gjöfin látin dynja á honum,
sem og rétt er, en þó fyrir-
tæki ræni viðskiptavini sína
ár eftir ár, þá fær það að-
eins sekt.
□
Þetta verður ac breytast.
„Hér þarf að verða breyt-
ing á. Fólk vill ekki að það
eigi á hættu að vera rænt er
það fer til kaupa í verzlan-
ir eða önnur fyrirtæki, og það
er rangt gagnvart þeim fyrir-
tækjum, sem reka heiðar-
lega verzlun, að hlífa þjóf-
unum. Verðlagsbrotin, sem
eru margendurtekin af sama
fyrirtæki eiga skilyrðislaust
að varða viðkomandi missi
verzlunarréttinda að fullu
og öllu, og þar að auki tugt-
húsvist. Ef samræmi milli
verðlagslöggjafarinnar og
refsilöggjafarinnar er þannig
að slík refsing geti ekki legið
við margendurteknum verð-
lagsbrotum, þá þarf að koma
því í lag. — Almenningsálit-
ið lítur á verðlagsbrotin sem
þjófnað, hví skyldu verðir
laga og réttar líta slíkt mild-
ari augum? Með þökk fyrir
birtinguna. — Einn af mörg-
um“.
□
Þjónustan við „frelsið".
„N“ hefur sent mér svolát-
andi bréf: „Eftirfarandi vís-
ur voru gerðar þegar Banda-
ríkjamenn töldu sig þess um
komna að sprengja allan
hnöttinn í tætlur með vetnis
sprengju sinni dýrðlegri, eða
a. m. k. eyða öllu lífi á jörð
unni (sem væri mikill sigur
út af fyrir sig), og uppfylla
þannig markmið Roosevelts,
hins látna forseta síns, að
veita mannkyninu „FRELSI
UNDAN ÓTTANUM“, eins
og Roosevelt orðaði það.
í Ameríku elska menn svo
andlegt frelsi
að þeir sprengja út í geim-
inn,
eftir þóknun, sjálfan heim-
inn.
Þakklát megum við nú
vera_ vinum okkar,
eigi þeir á Ísalandi
atómstöð í slíku standi.
Þið, sem urðuð, 37, svo
þjóðarfrægir,
lof um ykkur, lýjur góðar,
lifir enn á vörum þjóðar.
Óli, Stebbi, Eysteinn,
Bjarni og allir hinir
vilja. deyja fyrir frelsið
fremur en að þola helsið.
Atómsprenguunnendur og
íslands blómi!
Fyrir ykkur, sæla sauði,
sýnist þetta hetjudauði.“
Einarsson Zoega
Poldin er í Reykjavík. Linge-
stroom fermir í Amsterdam 25. og
í Antverpen 27. þ. m.
SKIPADEILD S. I. S.
Arnarfell er á Akureyri. Hvassa
fell er í Stykkishólmi.
RIKISSKIP:
Hekla er í Reykjavik. Esja var
á Isafirði seint í gærkvöld á norð
urleið. Herðubreið var væntanleg
til Hornafjarðar í gærkvöld á
norðurleið. Skjaldbreið er í Reykja
vík og fer þaðan væntanlega aiin-
að kvöld á Snæfellsness- Breiða-
fjarðarhafnir og Flatey. Þyrill er
í Reykjavík. Skaftfellingur fer
væntanlega frá Reykjavík síðdegis
í dag til Vestmannaeyja.
handaþvottur Bjarna Benediktssonar og áhugi Morgunblaðs
ins á þekkingu og andlegu frelsi hlýtur að hljóma sem
mjög svo óvæntur áfellisdómur í eyrum fréttastjórans og
félaga hans.
EIMSKIP:
Brúarfoss kom til Abo í Finn-
landi 18.2. fer þaðan væntanlega
23.2. til Kaupmannahafnar. Detti-
foss fó’r frá Vestmannáeyjum x
gærkvöld 23.2. til Keflavíkur.
Fjallfoss fór frá Vopnafirði í gær
morgun 23.2. til Þórshafnar. Goða
foss kom til N.Y. 17.2., fer það-
an væntanlega 28.2. til Reykjavík
ur.. Lagarfoss er í Leith fer það-
an til Reykjavíkur. Selfoss fór frá
Hofsósi 19.2. til Kph. Tröllafoss fór
frá Reykjavik 14.2. til N. Y. Vatna
jökull fór frá Danzig 17.2. til R-
víkur.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband af
séra Jóni Thor
arensen, ungfrú
Steinunn Lár-
usdóttir frá Fitjamýri i Rangár-
vallasýslu og Ólafur Ögmundsson,
trésmiður, Hörðaborg 64, Reykja-
vík. — Sl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af séra Bjarna
Jónssyni, ungfrú Kitty Valtýsdótt
ir og Bragi Jónsson. Heimili ungu
hjónanna er á Nökkvavog 56. —
Nýlega voru gefin ssaman i hjóna
band hjá borgarfógeta, þau Mar-
grét Jónsdóttir og Gunnlaugur G.
Björnsson, bankafulltrúi, Miklu-
braut 70.
Kvöldbaenir. í Hallgrimskirkju
kl. 8 á hvprju kvöldi nema
sunnudaga og miðvikudaga. Sung-
ið úr Passiusáimúnum.
V erziunarskóla-
blaðið 1950 hefur
borizt Þjóðviljan-
um. Blaðið er gef
ið út af Málfunda-
félagi Verzlunar-
skóla Isiands. Efni m. a.: Vilhjálm
ur Þ. Gíslason ritar aldarminningu
Jóns Ólafssonar; Snorri Þorvalds-
son: Tónlist og skóli; Edgar All-
an Poe: Skuggi (dæmisaga); kafl-
ar úr skólastílum um gluggasýning
ar og afgreiðslustörf; Ingi Þór
Stefánsson: Vorin (smásaga); Guð
riður Jóelsdóttir: Óveðursnótt í
fjárhúsi (frásöguþáttur); Guðjón
Þorvaldsson: Hatturinn í botn-
vörpunni; Atli Steinarsson:
Ferðasaga frá Finriiandi; Félags-
lífið i skólanum (með mörgum
myndum); Jóhanna Ziemsen:
Hvað gefur lífinu gildi?; Halldór
S. Gröndal: X háskóla vestanhafs;
Þórir S. Gröndal: Draugagjá;
Gunnar Petersen: Förin; Nor-
rænn skólafundur i Verzl-
unarskólanum; Utanreisa;
Iiosningadagur; Jónas Ásmunds-
son: Sýningar; Ragnhildur Jónsd.:
Æska dagsins í dag o. fl. Sltin-
faxi, 2. hefti 1949, er komið út:
Efni: Ávarp til æskunnar, flutt
á landsmóti Ungmennafélags ls-
lands 1949 í Hveragerði, af séra
Helga Sveinssyni; Hlutverk ung-
mennafélaganna, ræða Eysteins
Jónssonar menntamálaráðherra, á
Hveragerðismótinu; Kraftur jarð-
ar og kraftur himins, ræða, er
próf. Ásmundur Guðmundssont
flutti á landsmótinu í Hveragerði
síðastl. sumar; Daníel Ágústínus-
son: Landsmótið í Hveragerði;;
Úrslit i einstökum íþróttagrein-
um; Grímur S. Norðdahl: Nor-
ræna æskulýðsvikan í Pargas 18.-
25. júní 1948; Guðmundur Egg-
ertsson frá Einlioltum; 16. sam-
bandsþing U. M. F. 1.; Lög Ung-
mennafélags Islands; héraðsmótin
1949 o. fl.
18.25 Veðurfr. 18.30
1 sl e nzkuke nnsl a;!
I. fl. 19.00 Þýzku-
kennsla; II. fl.
19.25 Þingfréttir.
— Tónleikar. 20.30
Útvarpssagan: „Jón Arason" eftir
Gunnar Gunnarsson; XV. (höfund
ur les). 21.00 Strengjakvartett Rík
isútvarpsins: Kvartett í G-dúr op.
10 eftir Dabussy. 21.30 Frá útlönd
um (Axel Thorsteinson). 21.45
Spurningar og svör um íslenzkt
mál (Bjarni Vilhjálmsson). 22.10
Passiusálmar. 22.20 Vinsæl lög
(plötur). 22.45 Dagskrárlok.
Næturakstur í nótt annast Litla
bílstöðin. — Sími 1380.
Næturvörður er I Reykjavíkur-
apóteki. — Sími 1760.
Næturlæknir er í læknavarðstoí-
unui. — Sími 5030.