Þjóðviljinn - 24.02.1950, Page 6
ÍJÓÐVILJINN
Föstudagur 24. febrúar 1950.
'H'talski verkamaðurinn Lam-
berto Maggiorani hefur orð-
ið tákn þess fólks, sem vagn
auðvaldsskipulagsins mer und-
ir hjólum sínum í blindu æði.
Þessi rómverski verksmiðju-
vei-kamaður leikur aðalhlut-
verk i kvikmyndinni „Reið-
hjólsþjófurinn“, sem fuligerð
var á síðasta ári og j.ogar
er orðin heimsfræg. Maggior-
ani leikur atvinnuiausan
verkamann, sem fær tilboð um
atvinnu, en þarf að leggja
sér til reiðhjól til að geta not- ,
áð sér boðið. Hann pp.ntsetur
rúmfatnað fjölskyldu sinnar
til að geta keypt reiðhjól, en
því er stolið frá honum. Mynd
in sýnir leit Maggioran's og
lítils sonar hans um götur
Rómaborgar að stolna reið-
hjólinu, og lýkur með því, að
feðgarnir halda tómhentir
heimleiðis, til svefns á berum
fjölum, heimilisfaöirinn at-
Vinnulaus á ný. Þegar. kvik-
myndat.ökunni lauk tók Maggi-
orani til við sitt fyrra starf á
ný en skömpu siðaf .’’•»? ’.n
sjálfur staddur í sömu spor-
um og í kvikrnyndinni,' w. . .-
smiðjueigandinn, serrr *hánn
:vann hjá, sagði upp 350 verka-
mönnum og MaggToraui var
í hópi þeirra og'stóð nú uppá
atvinnalaus. .Hann . fókk að
reyna á sjálfum sér, hve s'inn
mynd ,.Reiðhjólsþjófurinn“ er
af kjörum alþýðufólks á Itaiíu,
Milljónaafvinnuleysi — fylgja
Marshalláœflunarinnar
þar sem hátt á þriðju milljón
manna ganga nú atvinnulausir.
j^aga Maggiorani hefði víðar
getað gerzt en á Italíu.
Hún hefði getað gerzt í Vest-
ur-Þýzkalandi, í Belgíu, í Dan
mörku eða í Bandaríkjunum.
1 öllum þessum löndum og
öðrum fleiri, sem oft eru nefnd
til samans Marshalllönd, þjak-
ar atvinnuleysisböl með öllu
sínu óhugnanlega fylgiliði al-
þýðú manna. Fyrirvinnum
heimilanna er einn góðan veð-
urdag sagt, að ekki sé lengur
þörf fyrir vinnu þeirra og
hvert sem menn snúa sér er
sömu sögu að segja, hyergi •
gefst þeim færi á að afla sér
og sinum viðurværis. Milljón-
ir manna reyna.að dragá, fram
lífið á allsendis ónógum at-
vinnuleysisstyrkjum, en hví-
likt líf. 1 Vestur-Þýzkalandi
hefur þriðjungur íbúanna,
fimmtán miiljónir manna, ekki.
efni á að kaupa • kjöt, nóga
mjólk eða smjörlíki til að
halda fullri heilsu. 1 Bretlandi,
þar sem atvinnuleysi má þó
heita lítið borið saman við önn
ur Marsjalllönd, hafa 20—30%
iandsbúa ekki efni á að kaupa
alian þann rýra skammt, sem
þeim er úthlutað af kjöti,
smjöri, smjörlíki, eggjum og
osti. Atvinnuleysið fyllir fólk
vonleysi og það grípur til ör-
þrifaráða, móðir, sem sér eng
in ráð til að sjá sér og barni
sínu farborða, fleygir því og sér
á eftir út um glugga á fjórðu
hæð, atvinnulaus heimilisfaðir,
skýtui- konu sína og börn og
síðan sjálfan sig. Þessar
harmsögur og aðrar svipaðar
frá Marshalllöndunum tala
skýrara máli en nokkrar tölur
um það hvað auðvaldskreppan
kostar í eyddri lífshamingju og
brostnum vonum.
j^kki svo að skilja að töl-
urnar einar sðu ekki ægileg-
ar í V-Þýzkal. og V-Berlín voru
2.327.000 skráðiri atvinnuleys-
ingjar um miðjan febrúar, og
talið að a. m. k. hálf milljón
að auki yæri óskráð. Á Italíu
er tala atvinnuleysingja einn-
ig á þriðju milljón. 1 Bretiandi
voru .363.949 atvinnuleysingjar
skráðir um miðjan janúar. .1
Belgíu eru um 300.000 atvinnu-
leysingjar. 1 Austurríki var at-
vinnuleysingjatalan í byrjun
þesssa vetrar 133.000. 1 Danm.
voru 110.000 atvinnulausir í jan
úarlok. Þetta eru tölurnar frá
nokkrum MarshaHlöndum í
Vestur-Evrópu en í hábörg auð
valdsskipulagsins, Norður-Am-
er’.ku, er ástandið engu betra.
í Bandaríkjunum var tala at-
vinnuleysingja komin upp í
hálfa fimmtu milljón um síð-
ustu mánaðamót og í Kanada
uppí 320.000. 1 öllum þessurn
auðvaldsríkjum er atvinnuleys-
ið meira en á sama tíma s. 1.
ár. Og hingað til Islands er
fylgja Marshallkreppunnar, at-
vinnuleysið, farið að teygja
anga sína.
•g-^jóst er af þessum tölum,
að atvinnuleysið er fastur
fylginautur Marshalláætlunar-
innar. I löndunum í Austur-
Evrópu, sem höfnuðu Marshall-
„aðstoð", þekkist ekki atvinnu-
leysi, þar skortir þvert á móti
vinnuafl. Sérstaklega er at-
. hyglisvert, að í þeim Marshall-
löndum, sem trúlegast hafa
fylgt -fyrirmælum hinna banda-
rísku Marshalljarla um að
koma á hjá sér „frjálsri sam-
keppni" er atvinnuleysið líka
langmest að tiltöiu við fólks-
fjölda. Vestur-Þýzkaland, ítalía
og Belgia eru sauðirnir í Mars-
hallhjörðinni og þar er líka
hlútfallstala atvinnuleysingja
hæst. Hafrarnir, sem Paui Hoff
man, yfirstjórnandi Marshall-
áætlunarinnar, hefur átt örð-
ugast með að láta fylgja skip-
unum s.num, lönd eins og Bret
land, Noregur og Svíþjóð, hafa
langtum lægri hlutfallstölu at>-
vinnuleysingja. Verst er ástand
ið í Vestur-Þýzkalandi, og þar
hafa líka Bandarikjámenn ver-
ið einráðir um stefnuna í efna-
hagsmálum síðan þeir tóku
að sér að greiða fyrir innflutn-
ing til brezka hernámssvæðis-
ins. 1 júlí 1948 voru fram-
kvæmd peningaskipti í Vest-
ur-Þýzkalandi að boði Banda-
ríkjanna, dregið úr skömmtun
og verðiagseftirlit afnumið, í
stuttu máli sagt komið á
„frjálsri samkeppni". Afleið-
ingarnar eru, að á því hálfu
öðru ári, sem liðið er síðan
„frjáls samkeppni" var leidd
til öndvegis í Vestur-Þýzka-
landi, hefur skráðum atvinnu-
leysingjum fjölgað um 1.400.000.
Stjórn verkalýðssambandsins í
Vestur-Þýzkalandi sagði í á-
lyktun í síðasta mánuði: „At-
vinnuleysi er hluti efnahags-
kerfisins". Tilgangur hinna
bandarísku stjórnenda Mars-
halláætlunarinnar er að koma
á þessu sama kerfi með til-
heyrandi atvinnúleýsi um alla
Vestur-Evrópu. Hlutverk Mars-
halláætlunarinnar er að festa ,
í sessi auðvald Vestur-Evrópu,
sem fyrst eftir styrjöldina var
að hruni komið. Til þess að
efla auðyaidið þarf að veikja
verkalýðssamtökin og til þess
er atvinnuleysið árangursrík- ]
ast. Barátta verkamanna fyrir I
Framhald á 7. síðu. b
!
Efcir Lofí Guðmundsson
Eftir þossari "gu liefur verið gerð kvikmynd, sem verður
s_.'nd bráðlega í Austurbæjarbíó.
Þetta eru sögur. ar, sem hún amma sagði í rökkrinu. Amma kunni
margar sögur, og kú:i sagði þær vel. Sögumar eru um álfa og dverga,
tröll og iHiiegun:e_n:, cg þær eru þannig sagðar, að þær lieilla börn og
ui'glinga, ea fólk i\ öllum aldri hefur af þeini niikla ánægju.
í bókinni er fjöldi af stórum og fallegum myndum, sem teknar eru
úr kvikmyndinni. Le:ið bókina, áður en þér sjáið kvikmyndina.