Þjóðviljinn - 24.02.1950, Blaðsíða 8
ýð&saidb. nndírbýr rá
Þjóðviljinn íékk í gærkveldi þær upplýsingar hjá
íorseta Alþýðusambands íslands, Helga Hannessyni,
að stjórn Alþýðusambandsins heíði samþykkt að
rannsaka möguleika á því að kalla saman ráðstefnu
verkalýðsfélaganna í Alþýðusambandi íslands, áð-
ur en mjög langt líður.
Nú krefjast rafvirkjar ráðstefnu
Á aðalfundi Félags íslenzkra rafvirkja, sem haldinn
var 19. þ. m., var eftirfarandi samþykkt gerð með sam-
hljóða atkvaeðum:
„Aðalfundur F. I. R. heidinn 19. febrúar, áiítur að
mikil hætta steðji nú að iaunþegunum vegna yfirvofandi
gengisskerðingar eða annarra ráðstafna hins opinbera
sem rýra muni lífskjör þeirra. I
Með tilliti tii þessa, skorar l'undurinn á A.S.Í. að
hraða því að haldin verði ráðstefna allra sambandsfé-
laga, til þess að ræða hvernig mæta skuli þeim auknu
álögum sem fyrirhugaðar eru.“
Minningarsjóður
stud. ökoiu Olavs
Brunborgs
TJr „Stud. ökon. Olavs Brun-
borg Minnefond“ verður næsta
vetur veittur styrkur einum
stúdent eða ungum kandídat
(karlmanni, helzt innan við
þrítugt). Styrkurinn nemur
2000 norskum krónum.
Styrkur þessi er veittur ís-
lenzkum og norskum stúdent-
um til skiptis, — næsta vetur
íslenzkum stúdent til náms við
háskólann í Osló eða Björgvin.
Umsókn um styrkinn, ásamt
prófskírteinum og upplýsingum
um nám, skal senda skrifstofu
Háskóla Islands í síðasta lagi
15. marz.
forsetann
Óhagstæðan samningar
en í Hafnarfsrði!
Bæjarstjórakosning fór fram
í Keflavík. í fyrradag.
Alþýðuflokkurinn hefur 3
fulltrúa en' Framsókn 1, eða
meirihluta. samanlagt. Alþýðu-
flokksmaðurinn Ragnar Guð-
leifsson var kosinn bæjarstjón,
en hinn eini fulltrúi Framsókn-
ar í bæjarstjórninni, Valtýr
Guðjónsson, var kosinn forseti
bæjarstjórnar.
Enda þótt Valtýr hlyti for-
setastarfið verður þó ekki ann-
að sagt en Framsókn fari aftur
í viðskiptunum, því hjá Al-
þýðuflokknum í Hafnarfirði
fékk hún oddamann í útgerðar-
ráð fyrir sín fáu, ótryggu at-
kvæði — og auk þes's formann
„sellu“ sinnar í Hafnarfirði inn
í framfærslunefnd!
Kvikmyndin „Tjöld í skógi“
sýnd á fundi Ferðafélagsins í kvöld — Byggist á
samnefndn sögu Aðalsteins heitins Sigmundssonar
Á fundi Ferðafélags Islands í Listamannaskálanum í kvöld
verður sýnd í fyrsta sinni kvikmynd eftir Ösvald Knudsen, er
nefnist „Tjöld í skógi“.
Fyrir nokkrum árum slcrifaði Aðalsteinn heitinn Sigmunds-
son ágæta drengjabók er hann nefndi „Tjöld í skógi“ og er
kvikmyndin efnislega byggð á þessari bók.
Myndin segir frá sumardvöl
tveggja drengja úti í skógi —
Þrastaskógi. Þeir búa í tjaldi,
stunda veiðar í vatninu, læra að
þekkja jurtalífið í umhverfinu
og hlú að því og kynna sér
dýralífið. — Þannig líður sum-
arið. Að því loknu halda þeir
nábúum sínum skilnaðarveizlu
við varðeldinn sinn. — Sumarið
er liðið.
Mynd þessi á erindi til allra,
en þó fyrst og fremst unglinga.
'— Ef að vanda lætur þurfa
þeir sem ætla sér að komast á
Ferðafélagsfundinn í kvöld að
bregða fljótt við til að ná sér
í miða.
Þegar Morgunblaðið gefst upp við að ver.ja Bjarna
Benediktsson og afrek hans í afurðasölumálum og telur
þögnina bezta úrlausn, tekur Tíminn venjulega við og
hampar stefnu Bjarna af heitri ástríðu. Kjörorð Tímans
í afurðasölumálum er eitt og aðeins eitt: verðið verður
að Iækka! Það er sá fagnaðarboðskapur sem þetta blað
færir íslenzkri alþýðu; minna end'urgjald fyrir útflutn-
ingsverðmætin, minni gjaldeyri, minni neyzlu, minni
framkvæmdir —- meiri fátækt. (Hir.svegar láist blaðinu
ævinlega að heimta lægra verð á kjöti og mjólk; t.d.
að þær afurðir verði samkeppnisfærar vlð samsvarandi
varning erlendan hvað verí sncrtir!).
Sá boðskapur Tímans að nauðsynlegt sé að verð-
mæti þeirrar vinnu sem íslenzk alþýða lætur í té lækki
að miklum mun er aðeins órökstudd fullyrðing. Eigi
að ræða það atriði af nokkurri skynsemi verður Tíminn
að birta nánari vitneskju, t.d. um eftirtalin atriði:
Hvaða verð fá Norðmenn fyrir samsvarandi
afurðir og Islendingar hafa á boðstólum?
Með hvaða kjörum hafa þeir t.d. gert við-
skiptasamning við Sovétríkin ?
Hvert er það verð sem íslendingar eiga. að
setja á helztu afurðir sínar til að gera þær „sam-
keppnishæfar“ ?
Þessi atriði hljóta að vera sjálf undirstaðan að
þeim linnulausa boðskap Tímans að verðið verði að
lækka, og því er ekki að efa að Tímamenn hafi I
fórum sinnm allar staðreyndir um þetta efni. En til
þess að hægt sé að ræfta málin af skynsemi þurfa þær
staðreyndir að verða opinberar.
Rannséknir á bik-
Verðii? þaragróðnrinit
hortlagður og mældnr
næsta snmar?
Á vegum Rannsóknarráðs rík-
isins rannsakaði Tómas
Tryggvason jarðfræoingur bik-
steinsnámur í Loðmundarfirði,
og Pálmi Hannesson rektor
hrafntmnu í grennd við Mývatn
og einnig við Torfajökul.
I Loðmundarfirði reyndist
mikið af biksteini, en vegna
hafnleysis í Loðmundarfirði er
talið óvíst hvort biksteinsnám
muni borga Sig til útflutnings
þaðan. — Biksteinn er notaður
til einangrunar húsa. Bóndinn
í Stakkahlíð í Loðmundarfirði,
Stefán Baldursson styrkti rann
sóknirnar.
Mikið er af hrafntinnu í
grennd við Torfajökul, í grennd
við Mývatn er hægt að fá stór-
ar hrafntinnuhellur, allt að 1
m. í þvermál, en ýmissa hluta
vegna er ekki hægt að flytja
grjótið þaðan nema að sumar-
lagi.
Á næsta sumri er ráðgert að
rannsaka þaragróður í kringum
landið, en í þara eru ýmls verð-
mæt efni eins og bætiefni, nær-
Framhald á 7. síðu.
Clam dreglð til
Bretlands?
Olíuskipið Clam náðist út á
flóðinu í fyrrakvöld. Stýri þess
hafði laskazt og verðúr það
flutt til Bretlands til viðgerðar.
ÞJÓÐVILIINN
Skésmiðir orðnir efnislausir
Skora á gjaldeyris- og innílutningsyfirvöldin
að sjá til þess að hægt verði að gera við skó
landsmanna
Þjóðviljanum bárust i gær eftirfarandi áskoranir er sam-
þykktar voru á fundi í Skósmiðafélagi Reykjavíkur:
i,Þar sem upplýst er að allmargir sltósmiðir í Reykjavík og
úti á landi eru nú efnislausir til skóviðgerða og að hjá öðrum
eru efnisbirgðir alveg á þrotum, en vitað er að- nokkrar birgðir
af sólaleðri og fl. tilheyrandi skóviðgerðum liggja hér í af-
greiðsluhúsum, skorar fjölmennur fundur Skósmiðafélags
Reykjavíkur, haldinn 21. þ.m. á gjaldeyrisdeildir Landsbankans
og IJtvegsbankans að veita leðurverzlunum bæjarins nú þegar
gjaldeyrisyfirfærslur fyrir þessum vörum.“
„Fjölmennur fundur Skósmíðafélags Reykjavíkur heldinn
21. þ. m. skorar á Innflutnings- og gjaídeyrisdeild Fjárhagsráðs
að veita, leðurverzlunum bæjarins og Pöntunárdeild skósmiða,
nú þegar innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir sólaleðri og öðr-
um nauðsynleg'um vörum til skóggerðar og skóviðgerða.“
Á fundi Skósmiðafélags
Reýkjavíkur þann 21. þ.m. kom
í ljós að margir skósmiðir bæj-
arins eru sólaleðurslausir og
yfirleitt allir svo fátækir af
efni til skóviðgerða að þeir
geta ekki hjálpað öðrum. Skó-
verzlanir eru efnislausar og
hafa verið það um nokkurn
tíma. Hins vegar er vitað að
nokkrar birgðir af sólaleðri og
ýmsum smávörum eru löngu
íkomnar til landsins en gjaldeyr
isyfirfærszlur fyrir þeim hafa
ekki fengizt ennþá. Þar sem
mjög erfitt er að fá nýtt skó-
tau, sökum strangrar skömmt-
Guðjón M. Sig-
urðsson efstur
Eftir 7. umferð skákþingsins
er Guðjón M. Sigurðsson efstur
með 5y2 vinning. Næstir eru
Árui Snævarr, Eggert Gilfer og
Sveinn Kristjánsson með 5
vinninga hvor. Lárus Benóný
og Guðm. S. eru hver með áy2.
7. umferð í skákþingi Reykja
víkur var tefld á þriðjudags-
kvöldið. Úrslit urðu þau að
Friðrik vann Björn, Guðmund-
ur S. vann Þóri, Sveinn vann
Guðmund Ág., Óli vann Gunn-
ar, Baldur vann Ingvar, Kári
vann Þórð. Jafntefli gerðu Guð
jón og Gilfer, Árni Snævarr og
Lárus.
Biðskákir voru tefldar i gær
kvöldi. Bjarni vann Hauk, Benó
ný vann Árna Stef. Jafntefli
gerðu Jón og Steingrímur.
unar og mjcg takmarkaðra
birgða hjá skóverzlunum, horfir
fljótt til vandræða ef fólk get-
ur ekki fengið gert við skó-
tau sitt.
Væntir Skósmiðafélag Reykja
víkur að þeir aðilar, sem hér
er skorað á bregðist vel við
þörfum og beiðnum félagsins
og allra bæjarbúa.
Vesturveldin
beðin að fækka
fulltráum í
Ungverjalandsstjórn hefur
sent stjórnum Bretlands og
Bandaríkjanna orðsendingar og
beðið þær að fækka starfsliði
sendiráða sinna i Búdapest. Er
bent á það í orðsendingunum
að komið hafi í ljós við réttar-
höldin yfir Vesturveldanjósnur-
unum Saunders og Vogeler, að
þessi sendiráð hafi haft hönd
í bagga með njósnastarfsemi
þeirra. I orðsendingunni til
brezku stjórnarinnar er bent á,
að starfslið sendiráðs hennar í
Framhald á 7. síðu.
Beðið um 2950 millj.
áollara tii Marshall-
áætlunar
Hoffman, yfirstjórnandi
Marshalláætlunarinnar hefur
beðið Bandaríkjaþing að veita
29,50 millj. dollara til áætlun
arinnar á næsta, f járhagsári. Er
þetta 150 millj. lægri upphæð
en Truman forseti fór framá
í fjárlagaræðu sinni.
Fiskaflim belmmgi miimi en á
sama tíma í fyrra
Samkvæmt úpplýsingum frá Fiskifélagi íslands varð heild-
araflinn í janúarmánuði nú helmingi minni cn í fyrra, eða að-
eins 7597 smálestir nú, en 15 287 smáiestir í fyrra.
Togaraaflinn, útfiuttur af l>eim sjálfum, er nú ekki nema
um þriðjungur þess sem hann var á sama tíma í fyrra, þá var
hann 11 þús. 631 smál., en nú aðeins 3 þús. 569 smálestir.
Saltaðar hafa verið nú 2 þús.108 smáiestir en aðeins 635
smál. á sama tíma í fyrra.