Þjóðviljinn - 26.03.1950, Síða 1
15. árgangur.
Sunnudagur 26. marz 1950.
71. tölublað.
ÐEILDAKFUNÐIE verða I
öllum deiklum rmnað kvöld
klukkan 8.30. DAGSKRÁ;
Félagsmál.
20 fulltrúar þeirra þúsunda, sem urðu fyrir ofbeldinu 30. marz.
(jrJ
DÆMDIR I LANGVARA
Ríkissffórnin auglýsir sfefnu sína með fasistískum réftar-
ofsóknum í kfölfar gengislœkkunarinnar
ÞRÍTUGASTI MARZ, DAGURINN ÞEGAR ÞRJÁTÍU 0G SJÖ ALÞINGISMENN SVIKU ÞJÓÐINA INN
í STRÍÐSBANDALAG HELSPRENGJUAUÐVALDSINS BANDARÍSKA, DAGURINN ÞEGAR NÝFASISMINN
BIRTIST í FYRSTA SINN GRÍMULAUS Á ÍSLANDI, DAGURINN ÞEGAR FORUSTUMENN AFTURHALDS
FLOKKANNA KÖLLUÐU REYKVÍSKA ALÞÝÐU SAMAN TIL AÐ KYNNA HENNI TÁKN VELDIS SÍNS,
KYLFUR OG GAS, DAGURINN ÞEGAR ÓÐUM HVÍTLIÐASKRÍL VÁR ATT Á FRIÐSAMAN ALMENNING,
HEFUR NtJ FENGIÐ VERÐUGAN EFTIRLEIK. — í GÆR KVAÐ DÓMSTÓLL BJARNA BENEDIKTSSONAR
UPP ÞUNGA FANGELSISDÓMA YFIR TUTTUGU ÞEIRRA MANNA SEM FYRIR ÁRÁSUNUM URÐU.
DÓMSNIÐURSTCteUR VORU ÞESSAR:
„Ákærði, Siefán Ögmundsson, sæti fangelsi
í 18 mánuði.
Ákærðu, Stefán Sigurgeirsson, Stefnir Clafs-
son og Magnús Jóel Jóhannsson sæti fangelsi í
12 mánuði.
Ákærðu, Stefán Ögmundsson, Stefán Sigur-
geirsson, Stefnir Ólafsson og Magnús Jóel Jóhanns-
son eru frá birtingu dóms þessa sviftir kosninga-
rétti og kjörgengi til opinberra starfa og annarra
almennra kosninga.
Ákærðu, Jón Kristinn Steinsson, Alfons Guð-
mundsson og Jón Múli Árnason, sæti fangelsi í
6 mánuði.
Ákærðu, Magnús Hákonarson, Jóhann Péturs-
son, Kristján Guðmundsson, Garðar Óli Halldórs-
son og Guðmundur Jónsson, sæti fangelsi í 4
mánuði.
Ákærðu, Friðrik Anton Högnason, Gísli Rafn
ísleifsson, Árni Pálsson, Guðmundur Helgason, Páll
Theódórsson, Ólafur Jensson, Háifdán Bjarnason
og Hreggviðui Stefánsson, sæti fangelsi í 3 mánuði.
Ákærðu, Stefán Oddur Magnússon, Guðmundur
Björgvin Vigfússon, Sigurður Jónsson og Kristófer
Sturluson, skulu vera sýknir aí ákærum í máli
þessu.
Gæzluvarðhald ákærðu, Steíáns Sigurgeirs-
sonar, Stefnis Ólafssonar og Magnúsar Hákonar-
sonar, komi refsingum þeirra til írádráttar."
Þessir dómar eru yfirlýsing hinnar nýstofnuðu rík-
isstjórnar um aö áfram skuli haldið á hinni fasistísku-
braut Bjarna Benediktssonar. Þeim var frestað þar til
stjómarmyndun hafði tekizt og samið haföi verið um
stefnuna. Það er ekki heldur nein tilviljun að þeir eru
birtir rétt eftií að framkvæmd líefur verið stói’vægileg-
asta árás á kjör íslenzkrar alþýðu sem gerð hefur verið:
Annars vegar fátæktin; hins Vegar réttarofsóknir og
fangelsanir, þao eru boðorð hinnar nýstofnuðu ríkis-
stjórnar.
Dómarnir eru að sjálfsögðu jafn lialdlausir lögfræði-
lega og þeir eru siðferðilega. Þeir eru byggöir á vitnis-
burði Ijúgvitna úr Heimdalli til að gefa þeim lögfræðilegt
form. Hins vegar koma þeir ekki lögum við; þeir eru
stjórnmál, stefna í íslenzkum þjóðmálum. Dómunum hef-
ur þegar verið áfrýjað.
Leppurinn Bjarni Benediktsson, maðurinn sem
stjórnaði ofbeldiriu 30. marz, maðurinn sem skreið út
í bíl sinn í skjóli gasmakkarins og lagðist þar á fjóra
fætur, maðurinn sem flýð! til Bandaríkjanna sama kvöld-
ið í amerískri. björgunarfíugvél, landráðamaðuririn sem
síðan ákærði þjóð sína í heift og hræðsiu á bjagaðri ensku
frammi fyrir öllum heiminum, þykist nú liafa hefnt sín
að nokkru. En málinu er ekki lokið, og því lýkur ekki
fyrir neinum dómstóli Bjama Benediktssonar, því lýkur
fyrir dómstóli þióðarinnar, og þar munu hinir raunveru-
legu sakbomingar fá þá refsingu sem þeir verðskulda.
Um einstaka dóma er það að
segja að Stefán ögmundsson,
sem fær þyngstan dóm, er
dæmdur eftir 100. og 118. gr.
hegningarlaganna. Sú fyrri seg-
ir: Hver sem ræðst á Alþingi,
svo að því eða sjáifstæði þess
er hætta búin, Iætur boð út
ganga sem að því lýtur, eða
Mýðir sliku boði, skal sæta refs
ingu ekki skemur en eitt ár ..
o. s. frv. Og sú síðari: „Ef mað
ur kemur af stað upphlaupi í
því skyni að beita menn eða
muni ofbeldi eða ógna með að
því verði beilt, þá varðar það
SCefán Ögmundsson
fangelsi allt að þrem árum eða
varðhaldi. — Sömu refsingo
skulu þeir menn sæta, sem
gerzt hafa leiðtogar sltks upp-
hlaups, eftir að það er byrj-
að . . . . “
100. grein er einnig beitt
gegn þeim Stefáni Sigurgeirs-
syni, Stefni Ólafssyni og Magn
úsi Jóhannssyni. Aðrir eru
dæmdir samkv. 106. gr. sem
bannar að ráðast „með ofbeldi
eða híCunum um ofbeldi á opin-
beran starfsmann, þegar hann
er að gegna skyldustarfi sínu.“
o. s. frv. eða samkvæmt 108 gr.
sem fjallar um „skammaryrði“
eða„móðganir“ við „opinberan
starfsmann, þegar hann er að
gegna skyhlustarfi sínu.“
Allir sakborningarnir eru
dæmdir fyrir brot á 1. gr. lög-
reglusamþykktarinnar en þar
segir svo: „Á almannafæri
mega uppþot eða óspektir elíki
eiga sér stað. Ekki mega menn
þyrpa: »j saman á almannafæri
s\o að tdl tálma sé íyrir um-
ferð eða til óþæginda fyrir við-
stadda.“ Eins og menn minnast
Framhald á 8. síðu
mm gegn
Myna af Erlendi í Unuhúsi eftir Nínu Tryggvadóttur. Myndin
er á mannaniyndasýningunni í Sýningarskála Ásmundar Sveins-
sonar við Freyjugötu. Síðusta tækifæri til að sja sýniuguna er
í dag klukkaa 2—10
Eins og kunnugit er fyrir-
skipaði Bjarni Benediktsson
einnig raálshöfðnn gegn Eiii-
ari Olgeirssyni. Það mál hef-
ur ekki enn verið hafið sök-
uin þess að samkvæmt 49 gr.
stjórnarskrárinnar er ckki
hægt að höfða mál á nióti
alþingismanni meðan j'ing
stendur yfir. — Hins vegaf
mun Bjarni eflaust hcTjast
handa í því, ipáli þégar cr
þlngi lýkúr í vor.