Þjóðviljinn - 13.05.1950, Page 1
Il
Æ.F.R. "
1 sumar verður skrifstofa
félagsins opin alla virka
daga kl. 6—~ e. h., Iaugar-
daga kl. 1—3 e. h.
Komið og greiðið félags-
gjöldin!
Auðjöfrar Vestur-l^ýzkalands íagna
fransk-jiýzkii JnngaMar- :
samsteypu
Au'ðjöfrar Vestur-Þýzkalands. sem á sínum tíma áttu
drýgstan þátt í að koma Hitler til valda og síð'ar gerðu
árásarstyrjaldir hans mógulegar, hafa tekið tveim hönd-
um tillögunni um sameiningu þýzka og franska þunga-
iðnaöarins.
Alþingt afgr. hœstu fjárlög I sögu landsins
Allar tillögur sósíalista um við-
nám gegn skrifiinnsku og sí-
vaxandi ríkisbákni strá-
drepnar af afturhaldinu
Opinberir starfstnenn f;np enga leiðréttingu
Fjárlög yfirstandandi árs voru loks endanlega sam-|
þykkt í sameinuðu þingi í gær. Tekjuhliðin nemur um
300 milljónum króna og eru þetta hæstu fjárlög sem
nokkru sinni hafa verið samþykkt hér á landi. Þó er
framlag til verklegra framkvæmda raunverulega LÆKK-
AÐ verulega á sumum Iiðum, en í staðinn heldur skril-
finnskan og ríkisbáknið áfram að bólgna.
Sósíalistar báru fram allmargar tillögur um viðnám
gegn skriffinnskunni og lýstu yfir því að þær væru þó
aðeins prófsteinn á vilja Alþingis. Þessar tillögur voru
allar felldar af þingmönnum þríflokkanna. Var nafna-
kall um tillöguna um niðurskurð á utgjöldum fjárhags-
ráðs og skönmitunarbáknsins, og var hún felld með 37
atkv. gegn 10, en 5 sátu hjá. Hannibal Valdimarsson
fylgdi sósíalistum, en lijá sátu Ólafur Björnsson, Páll
Zóphóníasson, Haraldur GuÖmundsson, Gylfi Þ. Gísla-
son og Jón Páimason. Sósíalistar greiddu einir atkvæoi
gegn nýrri stórfelldri hækkun á sendiráðskostnaði og
lúxusflakki afturhaldsforsprakkanna út mn heim á „al-
þjóðaráðstefnur“. *
Mjög fáar breytingartillög-
ur einstakra þingmanna voru
samþykktar. Þó var Sigurjóni
Ólafssyni myndhöggvara veitt-
ur 15.000 kr. byggingarstyrk-
ur, og Hallgrími Helgasyni
veittar 12.500 kr. til að safna
íslenzkum þjóðlögum og gefa
þau út. Einnig var samþykkt
25.000 kr. fjárveiting til Leik-
félags Reykjavíkur. Hins vegar
gerðist það hneyksli að felid
var 100.000 kr. fjárveiting til
sinfóníuhljómsveitar með 28
atkv. gegn 18, en 5 sátu hjá.
Uppbætui opinbena
siarfsmanna
Breytingartillaga sósíalista
um að tilhögun uppbóta til op-
inberra starfsmanna yrði hag-
að þannig að greidd yrðu 20%
upp að og með 650 kr. grunn-
launum en síðan lækkandi um
1,5% á hvern launaflokk þar
fyrir ofan var felld með 32:18.
Fylgdu tillögunni sósíalistar og
Framhald á 3. síðu.
MacArthur brýlur
alþjóðalög
Sovétstjórnin hefur í orð-
sendingu til Bandaríkjastjórn-
ar krafizt þess, að ógilt verði
tilskipun MacArthurs hemáms-
stjóra í Japan, þar sem lagt
er til að láta lausa stríðsglæpa-
menn, er þeir liafi afplánað
þriðjung dóms síns. Segir Sov-
étstjómin, að MacArthur hafi
brotið alþjóðalög, því að jap-
anskir stríðsglæpamenn hafi
verið dæmdir af herdómstóli
ellefu ríkja.
Samband eigenda járn- og
stálverksmiðja' í Vestur- Þýzka^
landi samþykkti á fundi í Diis-J
seldorf í gær að veita fullan
stuðning tillögu franska utan-
Ráðherraíundin-
um lýkur í dag
Fréttaritarar í London segja,
að utanríkisráðherrar Vestur-
veldanna hafi í gær rætt Þýzka-
landsmálin og þá fyrst og
fremst, á hvern hátt hægast
verði að láta samstarf Vest-
urveldanna á öllum sviðum ná
til Vestur-Þýzkalands. Jafn-
framt eru ráðherrarnir sagðir
hafa ákveðið að gera mála-
mynda lokatilraun til að ná
samkomulagi við Sovétríkin um
sameiningu Þýzkalands. Gefn-
ar voru út tilkynningar eftir
fundinn í gær um stríðsfanga
í Sovétríkjunum og Berlín. í
dag verður síðasti fundur ráð-
herranna þriggja og þá er bú-
izt við ýtarlegri tilkynningu
um niðurstöðurnar.
Á mánudaginn hefst í Lond-
on fundur utanríkisráðherra A-
bandalagsríkjanna.
ríkisráðherrans Schumans um
sameiginlega stjórn fyrir kola-
og stáliðnað Frakklands og V-
Þýzkalands.
Franskir kratar sama
sinnis og þýzka hringa-
valdið
Schuman lagði uppástungu
sína í gær fyrir starfsbræður
sina Acheson og Bevin á fundi
þeirra' í London. Kváðust þeir
ekki geta tekið endanlega af-
stöðu fyrr en eftir vandlega
athugun.
Miðstjóm franskra sósíal-
demokrata samþykkti í gær að
styðja uppástungu Schumans
með nokkrum skilyrðum. I
fyrstu tóku franskir sósíal-
demokratar tillögunni þuftg-
lega og bentu á, að hún væri
runnin undan rifjum fransks
og þýzks auðvalds.
Lie ræðir við
Vishinski
Upplýsingaskrifstofa SÞ í
Moskva tilkynnti í gær, að
Lie aðalritari SÞ hefði rætt
við Vishinski utanríkisráðherra
Sovétríkjanna.
líögiivaldur S’gurjónsson og Cunnar Egilsson: hljómleikar
* /
armo
j
Bjami Benediktsson frá Hof-
'teigi flytur raeðu
Þrjú ung en kunn skáld lesa kvæði sín
Kvikíayndm áTLMZMFSBMBMAGID verðu? sýnd
Fyrsta -Landnemahátíð ÆskulýðsfylKi ngarinnar á þessu vori er í Austurbæjar-
bíó kl. 5 í dag. Síðastliðið vor hélt Æskulýðsfylkingin nokkrar Landnemabátíðir
bæði hér í bænum og víöa úti á landi við miklar vinsældir og ágæta aðsókn.
í dag leika þeir Rögnvaldur Sigurjónsson og Gunnar Egilsson saman á píanó
og klarinett. — Jónas Árnason flytur frásöguþátt. — Hljómsveit leikur í upphafi
hátíðarinnar, en þvínæst flytur Bjarni Bcnediktsson frá Hoi'teigi ræöu. — Þrjú
ung skáld: Þorsteinn Valdimarsson, Kristján frá Djúpalæk og Hann.es Sigfússon
lesa upp nokkur kvæði síii. — Kvikmyndin Atlanzhafsbandalagið verður sýnd cg
útskýrir Jón Múli Árnason kvikmyndina, en hann verður einnig kynnir á hátíðinm.
— Aögöngumiðar veröa seldir í Bókabúö Kron, Bókaverzlun Máls og menningar,
afgr. Þjóöviljans, skrifstofu Æskulýösfylkingarinnar Þórsgötu 1 og við innganginn.
Landnemahátíð er hátíð reykvískrar alþýðuæsku
Hann útskýrir kvikmjTidina:
Atlanzhafsbandalagið