Þjóðviljinn - 18.08.1950, Síða 8
Togarastöðvanir lædd í bæjairáöi:
Segiz Gunnai Tlioroddsen bosgarstjóri
„ÞaÖ væri fróðlegí aS franikvæmdastjóri Bæjarút-
gerðarinnar og bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins hittust hér
og leiddu saman hesta sína. Jón Axel hefur verið sjahl-
séður gestur hér á bæjar3tj órnarfundumu, sagði Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri á bæjarstjómarfundi í gær, í
svari til Benedikts Gröndal fulltr. Alþfl., en hann flutti
tillögu um að skora á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir
til að leysa togaradeiluna.
Það er rétt, það væri óneitan-
lega fróðlegt að heyra álit
framkvæmdarstjóra Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur, Jóns Axels,
'bæjarfulltrúa Aiþýðuflokksins
(sem raunar hefur ekki látið
sjá sig á bæjarstjórnarfundum
■síðan einhverntíma í vetur) um
það hvernig eigi að leysa tog-
aradeiluna, t. d. hvort ganga
eigi að kröfu sjómanna um 12
stunda hvíldartíma.
Fran vaan Va!
3:1
Seinni hluti knattspyrnumóts
Reykjavíkur hófst í gærkvöld
með leik milli Fram og Vals.
Sigraði Fram með 3 :1. I fyrri
hálfleik setti Fram 2 mörk en
Valur ekkert.
Norðan rok var á vellinum
og því erfitt að hemja boltann,
en leikurinn var þó skemmti-
legur með köflum. Það óvenju-
lega atvik kom fyrir í þessum
leik að boltinn bilaði. Liðu 5
til 10 mín. þar til tekizt hafði
að finna annan knött, og urðu
leikmenn að hlaupa umhverfis
völlinn á meðan til að halda á
sér hita!
VIÐREISNIN
öll álagnieg
hækkar
Ríkisstjórnin hefur heimil-
að hækkun á álagningu kaup
manna, þannig að allar nauð
synjar munu nú hækka 1
verði einu sinni enn. — Er
hækkunin miðuð við þá kaup
hækkun sem verzlunarfólk
fékk fyrir skömmu, en mun
þó vera noltkru ríflegri. Þótt
álagningarhækkun þessi
muni ekki hækka vöruverð
mikið í samanburði við hin-
ar beinu afleiðingar gengis-
tækkunarinnar mun þó vissu-
lega muna um hana, svo
þröngt sem nú er að verða
í búi á alþýðuheimilunum.
En orsök hennar cr að sjálf-
sögðu gengislækkunin og sú
stöðuga aukning dýrtíðar
sem framltvæmd hefur verið
af þríflokkunum öllum.
25% bækknn
Þ4 er í blaðinu í dag birt
auglýsing um nýtt verð á
framleiðsluvörum Rafha.
Hækka þær um 25% vegna
gengislækkunarinnar.
Tillaga Benedikts Gröndal
var samþykkt með samhljóða
atkvæðum. —• Þann 6. júli s. 1.
samþ. bæjarstj. till. frá Guðm.
Vigfússyni um að bæjarstjóm-
in skori „á alla þá er hlut
eiga að máli að gera allt sem
fært er til þess að samningar
takist án frekari tafar“.
Síðari hluta tillögu Guðmund
ar 6. júlí s. 1. vísaði Ihaldið
með sínum 8 atkv. gegn 5 til
útgerðarráðs. Síðari hlutinn var
svohl jóðandi:
„Dragist deilan á langinn
heimilar bæjarstjóm útgerðar-
ráði að leita samkomulags við
stjórnir annarra bæjarútgerða
Framh. á 7. síðu.
Millilandaferðir
„Geysis"
„GEYSIR“, millilandaflugvél
Loftleiða kom frá Kaupmanna-
höfn í fyrradag. I fyrrakvöld
fór vélin inn yfir Grænlands-
jökul með rúm 4 tonn af vör-
um, sem varpað var niður á
Central Station, aðalbækistöð
leiðangurs P. E. Victors.
Ráðgert hafði verið að vélin
færi aðra ferð í gærmorgun, en
af því gat ekki orðið vegna
veðurs á jöklinum.
í gærkvöld á miðnætti lagði
„Gaysir“ af stað til Kaupmanna
hafnar. Þar tekur vélin 20 far-
þega og flytur þá til New York.
„Geysir“ verður hér á vestur-
leið í dag og tekur 20 farþega
til viðbótar. I New York tekur
vélin 46 farþega, sem fluttir
| verða til Kaupmannahafnar.
Iðnnemar fara i
skenmtiferð
Iðnnemasamband Islands ráð-
gerir skemmtiferð upp í Borg-
arfjörð laugardaginn 26. ágúst.
Farið verður um Kaldadal aðra
leiðina.
Klukkan 2 á laugardaginn
verður lagt af stað úr bænum
og ekið í Húsafellsskóg um
kvöldið. Á sunnudaginn verður
gengið í Surtshelli og Stefáns-
helli og einnig verða Bama-
fossar skoðaðir. Komið verður
í bæinn á sunnudagskvöld.
Iðnnemar geta látið skrá sig
til þátttöku í skemmtiferð þess-
ari í skrifstofu sambandsins að
Hverfisgötu 21, kl. 6—7 á
kvöldin.
Búið að salta í
5400 tnnnnr á
Hnsavsk
3364 mál í bræðslu
Húsavík í gær. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
í dag var síldarsöltun á Húsa
vík orðin sem hér segir: hjá
söltunarstöðinni Barðlnn h. f.
1931 tunna, Limdey h. f. 566,
Uggi h. f. 1834 og söltunarstöð
Kristjáns Einarssonar h.f.
1069 tunnur. Síldarverksmiðj-
an hér hefur fengið samtals
3364 mál af’síld og úrgangi í
samar.
Kynnisferð nn
nágrenni Rvíkur
— Berjaferð að
Ferstikla
Æskulýðsfylkingin efnir til
skemmti- og kynnisferðar um
nágrenni bæjarins á morgun.
Lagt verður af stað kl. 4 e. h.
frá Þórsgötu 1. Henrik Ottóss.
verður fararstjóri og leiðsögu-
maður.
Ennfremur gengst Æ.F.R.
fyrir berjaferð að Ferstiklu á
sunnudaginn, og verður farið
héðan úr bænum kl. 9 á sunnu-
dagsmorgun.
Allar nánari upplýsingar um
ferðirnar eru veittar í síma
7510.
Hvaða Fram-
sóknarbraskara
kitiar nú í
fingurna?
Þórður Björnsson flutti í gær
á bæjarstjórnarfundi tillögu um
að fela bæjarráði að rannsaka
hvernig mætti bæta afkomu
strætisvagnanna, en eins og bæj
arbúum er kunnugt hefur rekst-
ur strætisvagnanna undir
stjórn Jóhanns Ölafssonar ver-
ið þannig að engu er likara en
keppt væri eftir því að sýna
hvernig ekki eigi að reka fyr-
irtæki. Jafnframt lagði Þórður
til að bæjarráð rannsakaði
hvort einstaklingar vildu ekld
taka rekstur vagnanna að sér.
Hvað er nú á seyði?
Allir þekkja hinn grátklökka
söng Framsóknarmanna um
sveitasaaluna og flóttann úr
sveitinni. Jafnhliða þessum
tregablandna kórsöng reyna
allir bændur sem einhvers eru
megnugir að koma sonum sín-
um að í opinberri skrifstofu í
Reykjavík, sumir fórna rollun-
um til að geta selt Reykvík-
ingum karamellur og súkku-
laði eða vinna hér önnur „þýð-
ingarminni störf“ en rollurækt-
ina.
Tillaga Þói-ðar gefur manni
tilefni til að spyrja: hvaða
Framsóknarbraskara kitlar nú
í fingurna eftir tækifæri til að
hlaupa frá rollunum til að aka
strætisvögnum í Reykjavík? —
Það skyldi þó ekki vera að fá-
tæki maðurinn Helgi Lárusson
hugsi sér að draga fram lífið
á því ?
Nanna Olafsdáiiir spyr borgarstjóra:
Hvsrsvegna er ekki lögð
hifaveita í Bjarnaberg og
bæjarhnsin við Bergpórugöfu?
Gunnar lofar öllu góðn — „þegar
ásiæðnr leyfa"!!
Bjarnaborg og byggingarfélagshúsin svokölluðu
við Bergþórugötu hafa .enn ekki verið tengd við hita-
veituna. Það eru sem sé kolaofnar í þeim ennþá. Það
merkllega er að þærinn á öll þessi hús.
Sósíalistar í bæjarstjórn hafa í þrjú ár ámálgað
það að hitaveitan yrði lögð í þessi hús bæjarins. Var
tiliögum þess efnis vísað til bæjarráðs og þar ákveðið
að gera kostnaðaráætlanir. Á bæjarstjórnarfundi í gær
beindi Nanna Ölafsdóttir fyrirspurn til borgarstjóra um
hvað þessu máli liði.
Borgarstjóri svaraði því að þetta væri „sjálfsagður
hlutur, sem að verður horfið þegar ástæður leyfa að
setja hitaveitu í þessi hús.“
Ihaldið mun telja sig geta skotið sér bak við fjár-
hagsráð í þessu máli sem mörgum öðrum — en það var
ekkert fjárhagsyáð á sínum tíma þegar hitaveitan var
lögð um bæinn, svo hvers áttu íbúar þessara bæjarhúsa
að gjalda þá ? — íbúar fyrrnefndra húsa þurfa sjálfir að
ýta á eftir því að hitaveitan verði lögð í íbúðir þeirra.
íhaldið í alvörubyssuleik
Ákveður að hafnar skuli skoiæfingar í Grafarholts-
landi. — Aðstoðaríhaldið vill líka láta skjóia
íhaldið samþykkti á bæjarstjórnarfundi í gær með
sínum 8 atkvæðum að viðbættu einu aðstoðaiíhaldsat-
kvæði Benedikts Gröndal ■— að hafnar skuli skotæfingar
í Grafarholtslandi.
Það var Ragnar Lárusson fá-
tækrafulltrúi, sem látinn var
flytja tillöguna um það að bær-
inn fengi Skotfélagi Reykja-
víkur skotæfingasvæði til um-
ráða í Grafarholtslandi. Her-
mannlegi maðurinn, Jóhann
Havsteen var meðflutningsmað-
ur.
Vikur og mánuðir hafa liðið
frá því Skotfélagið bað um land
svæði til starfsemi sinnar, en
bæjarráð ekki afgreitt málið
til bæjarstjórnar.
Ragnar Lárusson flutti til-
lögu sína sem hálfgert feimnis-
mál og afsakaði hana mjög
hjartanlega með því að hann
kynni því mjög illa að þegar
menn beiddu bæinn um eitthvað
fengu þeir ekki annaðhvort já
eða nei, sjálfur hefði hann ekki
mikinn áhuga á málinu, nei sei
sei nei, hann vildi bara fá já
eða nei. Jafnframt afsakaði
hann tillöguna enn frekar með
því að „þetta félag sem sam-
kvæmt lögum ISÍ(!) á állan
rétt á sér“ ætti að fá svar.
Sigfús Sigurhjartarson kvað
bæinn eiga að styrkja íþrótta-
málin, en þótt Skotfélagið væri
viðurkennt af ÍSl væri hann
á móti því. Áhugi sinn fyrir
íþróttum miðaðist við að þær
stuðluðu að fegurra mannlífi og
bæjarlífi, gerðu líkama manns-
ins fegurri og hraustari. Skot-
æfingar gerðu þetta ekki frem-
ur en hnefaleikar. Ot af fyrir
sig væri það meinlaus íþrótt
að skjóta í mark, en hún myndi
stuðla að útbeiðslu sportveiði
og fuglaveiði, hún myndi f jölga
þeim sportmönnum er færu um
allar jarðir skjótandi á fugla
og annað kvikt er þeir sæu í
náttúrunni. Sigfús benti enn-
fremur á það að skotæfingar á
umræddu svæði yrðu til ónæðis
og leiðinda fyrir það fólk sem
á frídögum sínum færi út í
Frambald á 7. síðu.
Fegurðarsam-
keppni í Tívolí
í kvöld
í dag gengst Fegrunarfélagið
fyrir hátíðahöldum í Tívolí í
tilefni af afmælisdegi Reykja-
víkurbæjar.
Skemmtiatriðin hefjast með
hljómleikum Lúðrasveitar Rvík-
ur, töfrabrögðum og búktali,
en síðan fer fram fegurðarsam-
keppni 15 reykvískra stúlkna
á útileiksviðinu. Meðan beðið
verður eftir úrskurði fegurðar-
dómaranna sýnir Ralf Bialla
sjónhverfingar. Eftir að úrslit
fegurðarsamkeppninnar hafa
verið tilkynnt hefst flugelda-
sýning og að síðustu verður
dansað bæði úti og inni.
Skemmtiatriðin • hefjast kl.
9.15, en bílferðir verða á 15
mínútna fresti frá Búnaðarfé-
lagshúsinu að TívolL
Verðlaun fyrir bezta skrúð-
garð bæjarins verða afhent á
skemmtun er Fegrunarfélagið
heldur kl. 9 í kvöld í Sjálf-
stæðishúsinu.