Þjóðviljinn - 01.09.1950, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.09.1950, Blaðsíða 8
A!|íýðiihtrrimi í sókn á siiðiiryígsíöðvnnum Frá því var skýrt í gærkvöld, að' álþýðuher Kóreu- manna heföi hafiö stórsókn á suöurströndinni í átt til Fusan, birgðahafnar banaaríska innrásarhersins. Sóknin er hörðust við bæinn Haman skammt norðvc-stur af hafnarbænum Masan og um 50. km. vestur af Fusan. Fregnir af bardögunum á norðurvígstöðvunum voru mjög ósamhljóða í gær. I herstjórn- •artilkynningu alþýðuhersins i var skýrt frá áframhaldandi J sókn á austurströndinni en bandariska herstjórnin til- j kynnti verulegan árangur af gagnáhlaupum þar. Milli Pohang og Taegu sótti alþýðuherinn fram um 5 km og rak breiðan fleyg í viglínu lepp- hersveitanna, sem þar eru fyr- ir. Bandaríkjamenn segjast halda uppi árásum á sveitir úr al- þýðuhernum, sem náð hafa fót- festu á austurbakka árinnar Haktong suðvestur áf Taegu. Smásagnasafi eftir VSV Sendiherra Hollands afhendii: embæftisskilríki liinn nýskipaði sendiherra Hollands, Jonkheer J. W. M. S. Iiurgronje, með aðsetur í Dubl- in, afhenti í dag forseta fslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að við stöddum utanríkisráðherra. Að athöfninni lokinni snæddu aendiherrahjónin og utanríkis- ráðherrahjónin ásamt nokkrum gestum, hádegisverð í boði for- setahjónanna. (Fréttatilkynning frá utan- ríkisráðuneytinu). 55 farast í fltigslysi Constellationflugvél frá banda riska félaginu Transworld Air-. lines á leið frá Bombay til New York fórst í gær á óshólmum Nílar í Egyptalandi. Með vél- inni' voru 48 farþegar og 7 manna áhöfn og biðu allir bana. í Bombay Lögregla skýiiai á vejkíaHsmeim Verkamenn í iiidversk'u milljónabcrginni Bsmbay gerðu allsherjarverkfall í gær til síuðnings við verk- fall vefnaðarverkamanna, sem átt hafa í langri bar- áttu fyrir bættum kjöruni. Vopnuð lögregla réðist á verkame: n á ýmsum stöðum í Bombay í gær. A einum stað voru þrír menn srerðir og á öðrum biðu tveir bana og 22 særðust er íögreglan hóf skothrið á verkamenn. Truman éttast Truman Bandaríkjaforseti er farinn að óttast afleiðingar þeirrar ákvörðunar sinnar, að fyrirskipa bandariskt hernám á kínversku eynni Taivan. Sagði hann blaðamönnum í gær, að hernám 7. bandaríska flotans á eynni þyrfti ekki að standa lengur en til loka Kóreustyrjaidarinnar. JÓÐVILJINN Þetta lítur út eins og venjulegur mosavaxinn hraunrimi, en Isegar betur er að gætt kemur í ljós að þetta er hleðsla, þessi mynd er af einum minnsta kofanum í Eldvarpahráuninu. Þykkt mosans vottar grelnilega að kofarnir eru mjög gamlir. í grein Björns Þorsteinssonar á sunnudaginn verða fleiri myndir er sýna betur þessa einkennilegu, dularfullu kofa. Bj«gga Innkasamit héz milli þess sem þeir beim- sóttn koimc Suðuznesjamanna? Gel'ur það verið að útilegumenn hafi hafzt við í hrauninu á Reykjaness-kagaaum ? Hverjir byggðu kofana í jaðri S’und- vörðuhrausisins uppi á skaganum norðvestur frá Grindavik. Panl Hoffman lýsir yfir: Hervœðingin skerðir iífskjör almennings Paul Hoffman, yfirstjórnandi Marshalláætlunarinn- ar, lýsti í gær i'yrir fjárveitinganefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings afleiðingum hervæðingarinnar, sem Bandaríkjastjórn hefur þröngvað uppá hin Atlantshafs- bandalagsríkin. Út er komið smásagnasafn eftir Vilhj. S. Vilhjálmsson og nefnist það „Á krossgötum". 1 safninu eru 10 sögur, sum- ar alllangar. Heiti sagnanna eru þessi: Rauðir seðlar, Mynd gamallar konu, Lítill drengur, Blessaður gamli maðurinn, Blá gluggatjöld, Síðasti blossinn, Nýtt hlutverk, Silfurbjöilur, •Bróðurleit, Áning. Bókin er 182 síður, gefin út af Helgafelli. Þórunii litla heldur tónleika í Hafnarfirði Þórunn S. Jóhannsdóttir heldur píanóhljómleika í Bæj- arbíói í Hafnarfirði kl. 9,15 í kvöld. Verða það siðustu tón- leikar hennar í þessari hljóm- leikaför, en hún er nú á förum til London. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu hélt Þórunn tvisv. ar píanótónleika hér í bænum fyrir skömmu, en síðan hefur hún haldið hljómleika á Sel- fossi og Akranesi, og fékk hún ágætar undirtektir á báðum stöðum. Á mánudaginn kemur fer Þórunn héðan til London, en þar mun hún hef ja nám sitt að nýju um miðjan september. Hofmann sagði að ekki þyrfti að fara í neinar grafgötur um það, að hervæðingin myndi skerða lífskjör þjóða V.-Evrópu og Bandaríkjanna. Auk þess lýsti hann yfir að af einbeit- ingu iðnaðarins að hergagna- framleiðslu myndi leiða, að við skiptaaðstaða Vestur-Evrópu myndi versna enn frá því sem nú er. Hoffman sagði, að Bandarík- in ætluðust til þess, að iðnaðar- ríkin í Vestur-Evrópu legðu mikið af mörkum til hervæðing- arinnar. Á því sviði kvað hann Vestur-Þýzkaland hafa mikil- vægu hlutverki að gegna. Reykjavíkurmótið Reykjavíkurmótinu var hald- ið áfram í gærkvöld með leik milli Vals og Víkings. Sigraði Valur með 4:0 (1:0 í fyrri hálfleik). Leikurinn var til- þrifalítill. — Næsti leikur móts- ins er annað kvöld, milli K.R. og Fram. Kennaranámskeið í Reykjavík dagana 10.—17. sept. Námskeið fyrir kennara í barnaskóhinum í Reykjavík og á Suðarlandi verður háidið í Melaskólanum dagana 10.—17. september. Kennaranámskeið þetta er haldið að tilhiutan kennarasambandsins og náms- stjóranna í Reykjavík og á Suðurlandi. Aðalkennslugreinar á nám- skeiði þessu verða skólaíþrótt- ir og leikir á leikvelli, og sér íþróttafulltrúi ríkisins, Þor- steinn Einarsson, um þá kennslu. Ennfremur kennir Jó- hann Briem töfluteikningu og Unnur Briem föndur. Þátttak- endum verður gefinn kostur á að fylgjast með kennslu í skó!- um bæjarins. Ýmsir þjóðkunnir skólamenn og uppeldisfræðing- ar munu flytja erindi á nám- skeiðinu. Iþrótta- og teiknikennslan fer fram árdegis, en eftir hádegi kennsla í föndri og fyrirlestrar. Forgöngumenn námskeiðsins telja æskilegt að þær verzianir, sem hafa skólavörur á boðstól- um stilli þeim út í sýningar- glugga meðan námskeiðið stend ur yfir. I Sundvörðuhrauninu, ekki alllangt frá Eldvörpunum á Reykjanesskaganum, n.vestur frá Grindavik, eru gamlir kof- ar, margir halda að það séu gamall aðsetursstaður útilegu- raanna. Kofar þessir eru a. m. k. 8 talsins og standa margir allvél enn, ea auk þess mótar fyrir rétt eða aðhaldi, enda þótt þarna séu engir hagár, ekkert nema hraun. Hversvegua voru þessir kof- ar byggði? þartia í eyðihrauni langt frá mannabyggðum ? Voru það útilegumeim sem byggðu þá? eða ætluðu Griiid- víkiagar máske að fela sig þarna fyrir Tyrkjanum, næst þegar hann kæmi? Eða er þetta máske aðsetursstaður Junkarantia milli þess sem þeir heimsóttu komir Suðurnesja- manna? Allar þessar ti'-gátur og ýms- ar fleiri hafa komið fram í sam bandi við þessa gömlu kofa, en þeir munu hafa fundizt um miðja öldina sem leið. Ekki er vitað um að annað hafi fund- izt þarna en eldskörungar og aska. Fréttamaður Þjóðviijans slóst með í förina nýlega til að Grindavíb: 13 jiús. fnnisur 13 þúsund tunnur hafa veiðzt af síld í Grindavílt, mestur hlutinn á sl. hálfum mánuði. Grindavíkurbátarnir 5 hafa fengið 7184 tunnur af þessum afla. 900—'1000 tunnur hafa verið saltaðar, 300—400 hafa farið í bræðslu en megnið af aflanum hefur verið fryst. Aflahæsti báturinn er Hrafn Sveinbjamarson frá Grindavík. skoða þessa kofa og á sunnu- daginn mun Björn Þorsteinsson sagnfræðingur rekja hér í blað- inu þær gamlar sagnir og ann- að það sem bent gæti til þes3 hverjir hafi reist þyrpingu af kofum á þessum afskekkta stað í eyðihrauni. Fisksalar vilja 13,7% verð- hækkun Fisksalafélag Reykjavíkur og Hafnarfjarðar óskar þess1 getið í sambandi við deilu þess við verðlagsyfirvöldin, að það eigi rétt á 13,7 % verðhækkun mið- að við 112 stiga vísitölu. 5 aura hækkun á kg. af bolfiski svari hinsvegar til tæpra 5%. Ennfremur vill stjórn félagsins taka fram að 13,7% verð- reikningurinn só gerður áður en bráðabirgðalögin frá 30. ágúst s.l. voru gefin út. Bændaíundurinn að Klausiri: Votheysgryljur og fjárhagsaðstoi Á þingi Stéttarsamb. bænda á Kirkjubæjarklaustri var sam- þykkt að nauðsyn væri að at- huga kjarnfóðurþörf bænda, vegna óþurrkanna s.l. sumar og var samþykkt að í samráði við Búnaðarfélag Isl. væri séð fyrir kjarnfóðri í tæka tíð. Þá samþykkti þingið ennfremur að þ&rf væri fjárhagsaðstoðar vegna óþurrkanna. Ennfrémur var samþykkt að stefna að því að koma upp á næstu árum votheyshlöðum fyrir helming af heyfeng landsmanna. Þing- inu átti að ljúka i gærkvöld. Almeniiiir skiladagur fyrir happdræiti ÞjóSválfaus ei í dag. Söluíólk er beðio að koma í skrifstofu Sósíalistafélagsins og gera skil íyrir seldum miðum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.