Þjóðviljinn - 09.09.1950, Blaðsíða 1
BERJAFERÐ
15. árgangur.
Laugardagur 9. sept. 1950.
198. tölublað.
um helgina: FaiiS verðux
frá Þórsgötu 1 í dag og á
morgun kl. 10. — Báða
dagana verður farið á
Dragháls.
Ályktun Dagsbrúnarfundarins I gœrkvöld:
Hagsmunaharáfta verkalýðsins verður ekk! stöðvuð - Næsta
verkefnið er að fella núverandi svikastjorn Alþýðusambandsins
og fryggja Aiþýðusambandinu forustu heiðarlegra manna til að
leiða hagsmunabaráttu verkalýðsins fil sigurs.
Ðagsbrún lysir samning Alþgðusambands-
stjórnarinnar stórfelld svih — Felur stfórn
fétagsins að annast framlengingu samninga3
að óbregttum aðstæðum
„Fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún, haldinn 8. sept. 1950, telur
að stjórn Alþýðusambandsins hafi með samningum sínum við ríkisstj. um
nýjan útreikning á vísitölunni framið stórfelld svik við hagsmunabaráttu
verkalýðsins, þar sem hinar lítilfjörlegu bætur, er samið var um, eru ekki
nema lítið brot af þeirri kjaraskerðingu, sem gengislækkunarlögin og hinar
stórfeldu verðhækkanir á öllum sviðum hafa í för með sér fyrir alla laun-
þega.
Fundurinn lítur svo á, að verkalýðshreyfingin hafi nú haft möguleika
til glæsilegs sigurs þar sem stærri hópur félaga en nokkru sinni fyr hafði
sagt upp samningum sínum og var reiðubúinn að leggja til baráttunnar sam-
tímis. Fundurinn lýsir því allri ábyrgð á hendur stjórnar Alþýðusambandsins
fyrir að þessu tækifæri verkalýðshreyfingarinnar til sigurvinnings skuli snú-
ið í ósigur hennar.
Fundurinn telur, að með áskoruun sinni til sambandsfélaganna um að
aflýsa kaupdeilunum og framlengja samninga sína óbreytta, hafi stjórn Al-
þýðusambandsins klofið verkalýðshreyfinguna svo að ekki sé fært fyrir ein-
stök félög að leggja til atiögu að sinni, en fundurinn lýtur hinsvegar svo á,
að hagsmunabaráttan verði ekki stöðvuð og að næsti áfangi hennar sé að
ryðja burt núverandi stjórn Alþýðusambandsins.
Fundurinn skorar því á meðlimi allra verkalýðsfélaga, að vinna ötul-
lega að því að fella frá fulltrúakjöri til næsta Alþýðusambandsþings alla
stuðningsmenn núverandi sambandsstjórnar og að kjósa þá menn eina, sem
reiðubúnir eru til að tryggja Alþýðusambandinu nýja forystu heiðarlegra
manna, er leitt geta hagsmunabaráttu verkalýðsins til sigurs."
Verkamannafélagið Dags-
brún hélt fund í gærkvöld i
Iðnó og samþykkti fundurinn
einróma framanskráða ályktun.
Eðvarð Sigurðsson ritari
Dagsbrúnar hafði framsögu
um málið og rakti í ítarlegu
máli aðdraganda þess hvernig
nú er komið. Rifjaði hann upp
samþykktir verkalýðsráðstefn-
unnar í vetur, þar sem Alþýðu-
sambandsstjórn var falið að
hefjast handa með aðgerðir til
að bæta kjör verkalýðsins ef
gengislækkun yrði framkvæmd.
Hann skýrði ennfremur frá
þeirri stefnu Dagsbrúnar að til
baráttu yrði að fylkja öllum
félögunum sameiginlega og
tryggja þar með sigur barátt-
unnar. Þessi stefna var einnig
sameiginlegt álit annarra verka
lýðsfélaga.
Þá rakti Eðvarð ennfremur
áskoranir Dagsbrúnar og fjölda
annarra félaga til Alþýðusam-
bandsstjórnarinnar um að kalla
saman ráðstefnu verkalýðsfé-
laganna til að undirbúa sam-
eiginlegar kröfur félaganna og
baráttu þeirra.
Sem kunnugt er virti Al-
þýðusambandsstjórnin kröfur
verkalýðsfélaganna ekki svars
en á sama tima og fulltrúar
Dagsbrúnar náðu ekki tali af
Alþýðusambandsstjórninni sat
hún að makki við gengislækk-
unarstjómina um smánarbæt-
ur þær sem siðar komu á dag-
inn.
Eðvarð taldi fulla ástæðu til
að ætla að allt brölt Alþýðu-
sambandsstjórnarinnar um upp
sögn samninga til að fá bætta
kjararýrnun gengisfellingarinn
ar hefði verið sett á svið til
þes!s eins að útvega sambands-
stjórn ofurlitla skrautfjöður
fyrir Alþýðusambandskosning-
arnar, en aldrei búið nein al-
vara á bak við um að bæta
kjör Verkafólksins.
Lauk hann máli sínu með
því að hagsmunabarátta verka
lýðsins yrði ekki stöðvuð, en
næsta verkefni hennar væri að
fella núverandi sambands-
stjórn og tryggja Alþýðusam-
bandinu heiðarlega forustu til
að leiða baráttuna til sigurs.
Lagði hann því næst fram á-
lyktun þá frá stjórninni er að
framan greinir og samþykkt
var einróma.
Kexverksmiftjustjórinn læddist
út!
Sæmundur kexverksmiðju-
stjóri, sem afturhaldið dubbaði
upp sem varaforseta Alþýðu-
Framhald af 8. síðu.
Hlíf frestar aðgerðum
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði hefur framlengt
kaup- og kjarasamninga sína við atvinnurekendur óbreytta,
en uppsegjanlega hvenær sem er með 30 daga fyrirvara. Verka-
menn í Hafnarfirði telja sig verða að fresta hagsmunabaráttu
sinni vegna framkomu stjórnar Alþýðusambandsins í málinu.
Hér fer á eftir fundarsamþykkt Hlifar þ. 6. þ. m.:
„Þar scm miðstjórn Alþýðusambands Islands hefur lagt til
við þau verkalýðsfélög, sem hafa sagt upp samningum sínum.
að þa'u framlengi samningana um óákveðinn tima, hafa skapazt
þær aðstæður, að eining innan verkalýðshreyfingarinnar um
framhald kaupgjaldsbaráttu til að fá uppborna þá kjararýrnun,
sem alþýða manna hefur orðið fyrir af völdum gengislækkunar-
innar mun ckki vera til staðar.
Þar með er burt fallin ein veigamikil ástæða fyrir uppsögn
Hlífar á samningum við atvinnurekendur, þar sem uppsögnin,
vegna erfiðra tíma, var bundin því skilyrði, að full eining yrði
innan verkalýðshreyfingarinnar í fyrirhugaðri káupgjaldsbar-
áttu.
Fyrir því samþykkir fundur lialdinn í Verkamannafélaginu
Hlíf miðvikudaginn 6. septeniber 1950 að veita stjórn félagsins
heimild til að framlengja óbreytta samninga við atvinnurekend-
rir um óákvcðinn tíma, uppsegjanlega með 30 daga fyrirvara“.
Konur og börn bíða við námuopið þar
sera 128 raeiu eru grafnir lifandi
Tuttuga metia moldarveggur lokaði þá 230 metra
undir yfirborði jarðar
Konur og börn stóðu í htnapp við kolanámuop í
Skotlandi í gær og fylgdust með starfi manna, sem unn-
ið höfðu að því að hreinsa námugöngin látlaust síðan í
fyrrakvöld, er moldar og grjótskriða stíflaði þau á um
20 metra kafla og gróf 128 kolanámumenn lifandi 230
metra undir yfirboröi jarðar.
Björgunarliðið varð að fara
eftir námugöngum, sem fyrir
löngu er hætt að nota og eitr-
aðar gastegundir hafa sáfnazt
fyrir í. Voru björgunarmcnn-
irnir látnir koma upp á yfir-
borðið til að anda að sér lrreinu
lofti á hálftíma frcsti og tafði
það fyrir greftrinum.
Námumennirnir, sem grafn-
ir voru, geta talað í sima uppá
yfirborð jarðar. Þeir láta vel
af liðan sinni og vinna að
greftri frá sinni hlið á móti
björgunarliðinu. Óttast var urn.
tíma, að ekkert loft bærist inn,
til mannanna og þá myndt
þrjóta súrefni í dag en sá ótti
er nú talinn ástæðulaus. Von-
azt er til að búið verði að>
bjarga mönnunum árdegis í
dag.
Síðast er fréttist liafði b'örg
unarliðinu tekizt að grafa mjóa
holu í gcgnum stífluna í námu-
göngunum og getað kallazt á
við þá, sem innibyrgðir eru.