Þjóðviljinn - 09.09.1950, Blaðsíða 4
f
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 9. sept. 1950.
PIÓÐVILIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson,
Auglýsingastjórl: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skóiavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Svikararnir iilakka of sneimna
Sama daginn og bæjarstjórnaríhaldið samþykkir að
leggja á reykvískan almenning nýja neyzluskatta að
upphæð 11,5 milljónir króna á ári og hækka þannig
útgjöld meðalheimihs um ca. 100 kr. á mánuði sitja
leigupennar Alþýðubiaðsklíkunnar á ýrnsurn hæðum Al-
þýðuhússins og skrifa eina siðuna af annari um „hinn
mikla sigur“ Alþýöusambandsstjórnar. í sama mund sem
bæjarstjórnarmeirihlutinn réttir upp hendur sínar til
aö velta bagganum á almenning eru prentararnir í kjall-
ara Alþýðuhússins aö setja vísdóm eins og þann að
ríkisstjórnin hafi „orðið bókstaflega við öllum kröfum
Alþýðusambandsstjórnar“ í þeirri baráttu sem að sögn
forsetans var hafin til þess að „uppbera alla þá kjara-
rýrnun sem gengisfellingin hefur orsakað.“ Og í sama
mund og húsmæður bera heim til sín að morgni rán-
dýra mjólk og okurskyr, er þessi blaðsnepill borinn út
með hlakkandi ögrunargreinum í garð Dagsbrúnar-
manna: Hvers vegna gera þeir ekki verkfall einir?“
Það er ekki að undra þótt þeir hælist um tveggja-
krónusvikarar Alþýðublaðsklíkunnar. Þeir hafa stungið
rýtingi í bak verklýðssamtakanna, íxifið með svikum þá
einingu sem var forsenda sigursællar baráttu og þykj-
ast nú hafa lokið til fullnustu því hlutverki sem þeim
var ætlað að framkvæma. Þeir halda að þeir hafi nú
komið í veg fyrir kjarabaráttu verkalýðshreyfingarinnar
oghafi því efni á glciðgosalegum ögrunum: „Hvers vegna
farið þið ekki 1 verkfall?“
En svikararnir hlakka of snemma. Dagsbrúnarmenn
og verkamenn um land allt hafa síður en svo hætt við
kjarabaráttu sína og þeir eru vissulega reiðubúnir til að
beyja verkfallsbaráttu ef þörf krefur til að tryggja sér
mannsæmandi lífskjör. En þeirra bíður örlítið hlutverk
fyrst. Áður en hægt er að halda sókninni gegn auð-
mannastéttinni áfram af fullum þrótti þarf að gera
upp við svikarana innan raða verkalýðsins. Næsta stig
kaupgjaldsbaráttunnar er háð innan verklýðshreyfing-
arinnar sjálfrar, og sú barátta ræður vissulega miklum
úrslitum. í hverju einasta félagi munu verkamenn gera
xipp sakirnar við Alþýðusambandsstjórn og alla stuðn-
ingsmenn hennar, markmið allra heiðarlegra verklýðs-
sinna, hvar í flokki sem þeir standa, veröur að senda á
Alþýðusambandsþing þá menn eina sem hægt er að
treysta í brýnustu hagsmunamálum allrar alþýðu. Á
Alþýðusambandsþinginu skal verða sköpuð sú órjúfan-
lega eining sem tveggjakrónusvikurunum tókst að eyði-
leggja í toili og er forsenda sigursællar kaupgjaldsbaráttu.
Hinir hlakkandi svikarar hlakka of snemma, 'enda
cr geigur þeirra, einnig greinilegur. Uppreisn Vestfjarða-
félaganna sýnir þeim að pólitískar flokkslínur munu
ekki skipta verkamönnum í kosningunum í haust held-
ur eingöngu afstaðan til kjaramálanna. Því hefur nú á
ný verið leitað til atvinnurekendablaðanna um opinbera
aðstoö. Morgunblaðið hefur nú í þrjá daga birt greinar
um verklýðsmál, hvatt verkamenn til að styöja núverandi
Sambandsstjórn og reka „kommúnista“ af höndum sér.
Sýnir það glöggt hvers auðmannastéttinni þykir nú við
þurfa. En þessi aðstoö mun þó verða til þess eins að
afhjúpa tveggjakrónusvikarana enn betur og samband
jþeirra við gengislækkunarstjórnina. Hún mun verða til
þess eins að þoka öllum einlægum verklýðssinnum enn
fastar saman þvert yfir allar flokkalínur.
Krossgáta nr. 26
„Hér liefur rignt
í átta vikur“.
„N.N. frá Nesi“, gamall
kunningi Bæjarpóstsins skrifar:
— „Heill og sæll, Bæjarpóstur!
— Höfuðdagurinn er í dag.
„Norðurland — Norðausturland
og Austfirðir-----“ segir veð-
urspáin og hótar norðaustan-
átt dag eftir dag. Hér hefur
rignt í átta vikur. Vaðstígvél
fást ekki í landinu. — Sunnan-
lands eru þurrkar í norðaustan-
átt. Það er margt ólíkt með
landsfjórðungunum og byggð-
um landsins yfirleitt. Við erum
ekki fullnuma íslendingar, ef
við höfum ekki bæði þurrkað
hey í sunnanátt á Norðurlandi
og bölvað þeirri sömu átt í
illviðri simnanlands. —r Náttúra
íslands er svo fjölbreytt, að
við verðum seint fullnuma ís-
lendingar. Sá, sem aldrei hefur
séð hillingar á Rangárvöllum
hefur farið á mis við undra-
verða sjón. Og sá, sem ekki
hefur séð fuglabjörgin vestra,
á enn ólærðan dálítinn kafla
um land og þjóð. Skelfing halda
Reykvíkingar að þeir séu mennt
aðir, þegar þeir spyrja, hvort
ekki sé ósköp „gamaldags" eða
„á eftir“ á þessum eða hinum
útkjálkanum. Bóndinn hérna
segir reyndar, að allt ólundar-
skraf um útkjálka sé úrelt, síð-
an jarðýtan kom til sögunnar,
við vegagerð.
Það hafði ég raunar heyrt fyrr,
en hún hélt áfram: „Veiztu
hvað! þegar ég var í Reykjavík
lærði ég bæði ensku og dönsku
í námsflokkunum. Ég var á
saumanámskeiði Og svo vann
ég auovitað fyrir kaupi, og
ég ■— —“. — Flestir eru að
eðlisfari námfúsir. En ungling-
ar, sem liafa ofétið sig á
skyldunámsgreinum, telja víst
ekki áönskutimana með gleði-
stundum æfinnar. Hvað er
langt síðan orðið námsleiði
kornst inn í málið? — Þetta
var nú á þeim útkjálkanum. En
svo er það nesið okkar hérna,
þar sem norðaustanáttin er
slæm. í dag er Höfuðdagurinn.
Fólk trúði þvi áður fyrr, að
tíð breyttist með Höfuðdegin-
um. Og þrátt fyrir öll veður-
vísindi bíðum við Höfuðdags-
ins með óþreyju. — Svona er
grunnt á hjátrúnni. Ekki er
góðverk að æsa hana, eins og
nú er að komast í hefð. Hnaus-
Framhald á 7. síðu.
Ekki samræða að
tala um peninga.
„Ég dvaldi um tima í Reykja
vík í vor. Menn töluðu um dýr-
tíð: Vöruskort og dýrtíð, gengis
fall og dýrtíð, viðskiptaklæki
og dýrtíð. Rétt eins og þyrfti
að fræða einhvern um, að kom-
in væri dýrtíð! — Dýrtíðin var
ekki nærri eins fyrirferðarmikil
þar sem ég kom til að heilsa
upp á kunningja mína í af-
skekktri sveit. Ég kom á bæ,
þar sem bóndinn og nágrann-
inn voru í fjörugum samræð-
um — ekki um dýrtíðina, held-
ur um lausavísur og hnittin
svör ýmissa nafngreindra
manna. Það ætti að vera hægt
að fylgja'St með vísitölunni án
þess að láta vitsmunalífið
hrörna. I sveitunum hafa sarn-
ræður emivekki lagzt niður. Ég
kalla það ekki samræður að
tala um peninga. — Ég kom á
annan bæ. Þar voru þrir bræð-
ur um tvítugs aldur. Enginn
þeirra reykti. Ég frétti líka af
útiskemmtun, þar sem ekkert
ungmenni bragðaði vín og tæp-
.ast var sjáanlegt að áfengi
væri haft um hönd. Aumt er
að slíkt skuli teljast frétt á
íslandi.
Gi*unnt á hjátrúnni.
„Ung kona sagði við mig:
„Dásamleg er nú Reykjavik“.
Elmsklp:
Brúarfoss var við Hrísey í gær
8.9. fer þaðan væntanlega til Húsa
víkur. Dettifoss fór frá Rotterdam
7.9. til Hamborgar, Antverpen og
Reykjavíkur. Fjallfoss kom til R-
víkur 7.9. frá Leith. Goðafoss fór
frá Reykjavík 6.9. til Hull, Brem-
en, Hamborg og Rotterdam. Gull-
foss fer frá Reykjavík kl. 12.00 í
dag 9.9. til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Lagarfoss kom til N.Y.
27.8. átti að fara þaðan 7.9. til
Halifax og Reykjavíkur. Selfoss
fór væntanlega frá Gautaborg í
gær 8.9. til Reykjavíkur. Trölla-
foss fór frá Botwood í New Found
land 6.9. til N.Y.
Leiðrétting. 1 frásögn blaðs-
ins í gær af bæjarstjórnarfund-
inum varð sú prentvilla að Sig-
fús Sigurhjartarson hefði flutt
þá breytingartillögu við hækk-
unartillögu Ihaldsins að heita
vatnið hækkaði ekki nema í kr.
1,25, en átti að vera kr. 1,55
og leiðréttist þetta hér með.
Loftleiöir h.f.
Innanlandsflug
1 dag er áætlað að
fljúga til Vestmj-
eyja kl. 13.30 og
kl. 17.30. Til Akur-
eyrar verður flog-
ið kl. 13.30. Til Isa
fjarðar kl. 09.30. Auk þess til Pat-
reksfjarðar og Plólmavikur. Á
morgun er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Freyr, ágúst-heftið
er komið út. Efni:
Grænfóður, Skóg-
ur — Skógrækt,
Um sauðfjártrygg-
ingar, eftir Þor-
stein Þórarinsson, Rekstrarafkom-
an 1949, Jarðræktarframlagið 1949,
Frostörn, Sinubál eða búpeningur,
eftir Sigurð Jónsson frá Brún,
AGA-vélin er bezt, eftir Pál Guð-
mundsson, Frá Húsmæðrakennara
skóla Islands, Listi yfir útskrifaða
búfræðinga frá Hvanneyri og Hól
um vorið 1950,- Húsmæðraþáttur,
Ending kúnna er háð uppeldisað-
ferðinni o.fl.
Lár. 1 tjörnina — 7 ró — 8 ráða
— 9 óra — 11 iaf — 12 SS — 14
Ra — 15 skál 17 ot — 18 púa —
20 Jónatan.
Lóðr. 1 tróð —- 2 jór — 3 RR —
4 nál — 5 iðar — 6 nafar —■ 10
ask — 13 sápa — 15 stó — 16 lút
— 17 oj — 19 AA.
Lausn á nr. 25
Lár. 1 svíkja — G þreytu —■ 7
2eins — 8 strákana —• 10 gaffal —■
11 minna — 14 áflog — 15 elska
— 17 ílátin.
Lóðr. 2 fæða — 3 sápuvatn — 4
stóð ekki — 5 datt — 7 sterlc —
8 kirkjuhöfðingja — 9 dýrin —
12 borðandi — 13 barst — 16 ó-
nefndur.
19.30 Tónleikar:
Samsöngur. 20.30
Útvarpstríóið: Tríó
í B-dúr eftir Moz-
art. 20.45 Upplest-
ur og tónleikar.
a) Við höfum yndi af söng, sögu-
kafli eftir Axel Munthe (Ævar R.
Kvaran leikari les). b) Melachrino
strengjasveitin leikur (plötur). c)
Lítill drengur, smásaga eftir Vil-
hjálm S. Vilhjálmsson (Höskuldur
Skagfjörð les). 21.45 Danslög. 24.00
Dagskrárlok.
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Jóh. Ásdís
Jónasdóttir, skrif-
stofumær frá Siglu
*• firði og stud. med.
Birgir J. Jóhannsson frá Ólafsfirði.
Sl. Sunnudag
voru gefin sam-
an í hjónaband
af sr. Guðm.
Benediktssyni,
Barði i Fljótum,
Rósa Pálsdóttir kennari og Eirík-
ur J.B. Eiríksson, prentari, Siglu-
firði. — Nýlega voru gefin saman
í hjónaband af sr. Sveini Víking,
Lára Ingibjörg Ágústsdóttir miðill
og Steingrímur Sigursteinsson, bif
reiðastjóri frá Alcureyri. — Ný-
lega voru gefin saman i hjónaband
á Núpi í Dýrafirði, ungfrú Ingi-
björg Jónsdóttir frá Gemlufalli í
Dýrafirði og Gísli Andrésson,
hreppstjóri, Neðra Hálsi í Kjós.
MESSUR Á MORGUN:
Eríkirkjan. Messa
kl. 2 e.h. — Séra
Þorsteinn Björns-
son. Nesprestakall.
Messa í Mýrar-
húsaskóla kl. 2.30
Séra Jón Thorarensen. —
Laugarneskirkja. Messa kl. 11 —
Séra Garðar Svavarsson. —■
Öliáði söfnuðurinn. Messa í Stjörnu
bió kl. 10 f.h. — (Ath. breyttan
messutíma). Sálmanúmer: 43—131
—35—378—304. — Sr. Emil Björns-
son.
Menn eru löngu
hættir að kippa sér
upp við það, þótt
fréttirnar, sem Vis-
ir flytur, einkum
frá útlöndum, séu
dálítið skrýtnar, en stundum keyra
skemmtilegheitin þó svo um þver-
bak, að mönnum verður á að
hugsa, hvort einhver þeirra, sem
rita í blaðið sé ekki með réttu ráði.
— Eitt af þessum óútreiknanlegu
köstum kom yfir Vísi i fyrradag.
Þá flutti hann tvidálka frétt á átt-
undu síðu af fundi öryggisráðsins
daginn áður og er skemmst frá
að segja, að í fréttinni er ekki
orð af viti og hætt er við, að fund-
armennirnir í Lake Success yrðu
langleitir, ef þeir fengju að sjá,
- Framhald á. 6. síðu.