Þjóðviljinn - 10.09.1950, Side 1
15. árgangar.
Sunnudagur 10. sept. 1950.
199. tölublað.
Sýningu Krístjáns
Davíðssonar
lýkur í kvöld
Málverlíasýningu Kristjáns
Davíðssonar í Listamannaskál-
anum lýkur í kvöld, en sýn-
ingin er opin i'rá kl. 10 til 22.
Á 6. hundrað manns hafa séð
sýninguna og 12 málverk selzt.
Afturhald Frakkfands undirbýr faslst-
iska árás gegn verkalýðshreyflngunni
og Kommánistaflokki Frakklands
Kommúnistaflokkur Frakklands hefur brýnt
fyrir félögum sínum að vera á verði gegn öllum
tilraunum ríkisvaldsins til árása gegn ílokknum.
„Við höfum fengið áreiðanlegar fregnir um
að verið sé að undirbúa stórfelldar „uppljóstranir”
er nota eigi sem tilefni til ofsókna gegn flokkm
um", segir í aðalblaði kommúnistaflokksins „Hum-
anité".
Talið er að hermálaráðherr-
ann Jules Moch stjórni þessum
aðgerðum. Verið er að undirbúa
falsskjöl sem eiga að afsaka
árás á verkalýðsstéttina, lýð-
ræðið, friðarsamtökin og kom-
múnista, meðan þjóðþingið er
ekki að störfum. Er hinum fyr-
irhuguðu aðförum líkt við rík-
isþinghúsbrunann í Berlín, er
þýzku nazistarnir framkvæmdu
og notuðu sem átyllu til að
banna Kommúnistaflokk Þýzka-
lands.
Humanité hyetur meðlimi
flokksins til að varast allar ögr-
anir yfirvaldanna. Athyglisvert
er að blaðið birti aðvaranir
þessar áður en kom til hinna
víðtæku fangelsana erlendra
kommúnista í Frakklandi sem
skýrt hefur verið frá í frétt-
um undanfarna daga, en flest-
ir þeirra eru útlagar frá Spáni,
er dvalið hafa í Frakklandi, ým-
ist í fangabúðum eða undir
ströngu eftirliti — enda þótt
„sök“ þeirra sé sú ein að hafa
barizt fyrir málstað lýðræðisins
gegn fasistískri villimennsku
Francos.
FASISTARNIR OG
STJÓRNARVÖLDIN
VINNA SAMAN
Frönsku fasistarnir hafa
heldur ekki legið á liði sinu und
anfarið til að skapa nauðsyn-
legt hugarfar fyrir árás Jules
JULES MOCH
hcrmálaráðherra Frakklands
Mochs. Tilræðisalda hefur geng-
ið yfir Frakkland, er ber þess
öll merki að hinir fasistísku til-
ræðismenn telji sér vísa vel-
vild yfirvaldanna. Þannig voru
gerð fjögur sprengjutilræði í
Nizza hinn 11. ágúst s. 1., er
franskt og ítalskt æskufólk var
að koma saman til friðarfund-
ar. Þremur sprengjum var varp
að að flokkshúsum kommún-
ista og fjórðu að bíói sem var
til afnota fyrir æskulýðsmótið.
Samspilið milli tilræðanna og
yfirvaldanna kom skýrt fram
er. ríkisstjórnin fyrirskipaði að
banna friðarfundinn.
Daginn eftir, 12. ágúst, réðst
hópur fasista inn á ritstjórnar-
AiþýSuhernum veitir hvar-
vefna betur i Kóreu
VEarðir hardagar iim Taegia
Harðir bardagar eru enn háðir á Taeguvígstöðvunum í
Kóreu, og nálgast alþýðuherinn borgina enda þótt Bandaríkja-
menn leggi allt kapp ,á að hefta framsókn hans. Aðalþungi
sóknarinnar er að austan. Segir í bandarískum fregnum að
þegar sé farið að hlaða sandpokavirki í borginni, sem undir-
búning götubardaga.
Á vígstöðvunum við Yongihon og Kyongju veitir alþýðu-
hernum einnig betur, en Sandaríkjamenn segjast balda báð-
um þeim borgum.
skrifstofur blaðsins Action í
því skyni að myrða hinn þekkta
friðarfrömuð Yves Farge. Hann
var þar þá ekki svo árásar-
mennirnir urðu að láta sér
nægja að eyðileggja allt sem
inni var. Þeir skildu svo ræki-
lega slóð eftir að 12 þeirra
handtók lögreglan. Flestum var
þó sleppt strax og einn þeirra,
Michel Leros, hrópaði á lög-
reglustöðinni er hann var lát-
inn laus: „Þetta tókst okkur
vel, en betur skal það takast
næst!“ Svo öruggir cru fransk-
ir fasistar um vernd ríkisstjórn-
arinnar.
1 Cannes var framið morðtil-
ræði við íhaldssaman borgar-
stjóra vegna þess að hann
hafði leyft að halda friðarfund
á íþróttavelli!
Finnsk borgara-
blöö hæðast að
striðsæði
Trumans
Finnsk borgarablöð henda
gaman að enn einu dæmi um
stríðsbrjálæði Bandarikjanna, í
frásögn af því er tvö finnsk
skip „Sirius“ og Hamina“ voru
stöðvuð úti fyrir Fíladelfíu og
vandlega leitað í þeim að kjarn-
orkusprengjum! Þá fyrst er
þeirri leit var lokið fengu skip-
in að fara inn í höfnina.
Blaðið Ilta-Sanomat segir m.
a.: „Ríkisstjórn Bandaríkjanna
má treysta því að enn líða
nokkur ár þar til hinar litlu
stríðsskaðabótaverksm. Finna
eru orðnað þess umkomnar að
framleiða kjarnorkusprengju
eða kjarnorkuvopn „made in
Finland“. Engu er líkara en
kjarnorkuæðið sé farið að tutla
í taugarnar á Bandaríkjamönn-
um“.
Það var snemma í ágúst að
Truman forseti staðfesti lög
sem gefa Bandaríkjastjórn víð-
tæka heimild til að vernda hafn
ir í Bandaríkjunum fyrir kjarn-
orkuárásum.
Lögin gefa forseta vald til
að fyrirskipa eftirlit með öll-
um erlendum skipum í banda-
riskri iandhelgi og varúðarráð-
stafanir við hafnir og strendur
Bandaríkjanna ef hann telur að
Bandaríkin séu í hættu að lenda
í stríð.
54
rl
MILUONUM
króna í erlendum gjaldeyri hefur nú verið kastað í sjó-
inn með stöðvun 28 nýsköpunartogara um hábjargræðis-
tímann.
Hversu geigvænleg og vitfirringsleg þessi sóun er
síst bezt ef hún er borin saman við innflutningsþarfir
þjóðarinnar á ýmsum helztu nauðsynjum í heilt ár.
Fer hér á eftir skrá yfir þarfir Islendinga af helztu
nauðsynjum í heilt ár, og er þá miðað við innflutnings-
áætlun Fjárhagsráðs frá síðasta ári:
Korn, skcpunfóður og annað kornmeti
Kaeffi, te, kakó, sykur, krydd
Hverskyns vefnaðarvara
Hverskyns skófatnaður
Hverskyns byggingarefni og byggingarvörur
Allar rekstrarvörur til útflutn.atvinnuveganna
Benzín og olíur
34.5 millj.
14.7 millj,
59.5 millj.
9,5 millj.
86.7 millj.
56.6 millj.
58.7 millj.
Landbún.vélar og aðrar gjaldeyrisþarfir landb, 26,4 millj.
Skip, vélar og varahlutir 111,4 millj.
Búsáhöld og verkfæri 10,7 millj.
Allt hráefni til iðnaðarins 38,1 millj.
Sápur, sódi og aðrar hreinlætisvörur 2,7 millj.
Allar pappírsvörur 10,8 millj.
Tóbak 9,1 millj.
Tilbúinn áb'urður 10,1 millj.
Með öðrum orðum:
Það hefur verið kastað í sjóinn nærri tveggja ára
skammti af kornvörum.
Það hefur verið kastað í sjóinn nærfellt fjögurra
ára skammti af kaffi, te, kakó, sykri og kryddil
Það hefur verið kastað í sjóinn nærri heilum árs-
skammti af allri þeirri vefnaðarvöru sem Iandsmenn
þúrfa að nota. 1
Það hefur verið kastað í sjóinn öllum þeim skó-
fatnaði sem landsmenn þurfa að nota í sex ár.
Það hefur verið kastað í sjóinn eðlilegri 9 mánaða
notkun af byggingarefni og byggingarvörum.
Það hefur verið kastað í sjóinn öllum þeim gjald-
eyri sem þarf til útflutningsframleiðslunnar í heilt ár.
Það hefur verið hellt í sjóinn ársþörf landsmanna
af olíum og benzíni.
Það hefur verið kastað í sjóinn öllum þeim gjald-
eyri sem Iandbúnaðurinn þarf í tvö ár.
Það hefur verið hent í sjóinn öllum þeim vélum og
varahfutum og þeim skipum sökkt sem væri eðlileg ný-
sköpun landsmanna á hálfu ári.
Það hefur verið hent í sjóinn fimm ára birgðum
af búsáhöldum og verkfærum.
Það hefur vcrið kastað í sjóinn öllum þeim hrá-
efnum sem iðnað’urinn þarf í hálft annað ár.
Það hefur verið kastað í sjóinn öllu því sem þjóðin
þarf af sápu, sóda og öðrum hreinlætisvörum í tutt-
ugu ár,
Það hefur verið kastað í sjóinn öllum þeim pappír
sem þjóðin þarf að nota í fimm ár.
Það hefur verið hent í sjóinn öllu því tóbaki sem
íslendingar nota á sex árum.
Það hefur verið hent í sjóinn öllum þeim áburði
sem þjóðtn þarf til ræktunar í rúm fimm ár:
Hvcisk Iengi á þessi vitfimng
að Iialda áfram?