Þjóðviljinn - 10.09.1950, Blaðsíða 3
i»*cO I
ðuaimdagur 10; sept! Í950.
ÞJÓÐVILJINIV
■f--'
SigurSur Blöndal:
E.M.-fararnlr komuf
sáu og sigruðu 1 Osló
Osló 7. sept.
Islenzku E.M-fararnir komu
beina leið frá Briissel og hingað
til Oslóar, þar sem þeir tóku
þátt í alþjóðlegu íþróttamóti á
BLslettleikvanginum í gær og
dag í indælis veðri og við mik-
inn fjölda áhorfenda, sem fögn-
uðu þeim hið bezta.
Auk Islendinganna tóku 4
Ameríkanar þátt í keppninni,
Yamaicanegrinn McKenley,
Panamane’grinn Loyd La Beach
og Bandaríkjamennirnir Browne
og Dreutsler.
Á föstudaginn kepptu Islend-
ingarnir í 100 m hlaupi, 400 m,
1609 m (1 ensk míla), kúlu-
varpi, langstökki og 4x100 m
boðhlaupi.
Mót þetta hefur verið aug-
lýst, sem helzti íþróttaviðburð-
ur haustsins hér í Osló, og ekki
minnkaði eftirvæntingin, þegar
McKenley lýsti því yfir fyrir-
fram, að hann myndi gera til-
raun til að taka aftur heims-
metið í 400 m hlaupi frá landa
sínum, Jamaicanegranum
George Rohden, en það er 45,8
sek., sett í Eskilstuna í Svíþjóð
um daginn.
Því miður tókst þessi met-
tilraun nú ekki, þótt McKenley
hefði verið búinn að panta
extragóða hlaupabraut hjá
Zakken Johannssen, hinum
þrautreynda vallarstjóra á
Bislett! Tíminn varð „aðeins“
46,7 sek, en það er í 50. sinn,
sem McKenley hleypur þessa
vegalengd undir 47 sekúndum.
— En þeim mun meira gaman
var að sjá Guðmund Lárusson
®lá út Bandaríkjanegrann
Roscoe Browne leikandi létt á
jafngóðum tíma og 48,2 sek.,
sem mun vera 3. bezti tími
Guðmundar, en hér sannaði
hann áþreifanlega, að hinn stór
glæsilegi árangur hans í Bruss-
el var engin tilviljun. Hann er
maður, sem við „getum búizt
við hverju sem vera skal, af“,
eins og eitt blaðanna hér sagði
um hann. Þess má geta að
'norska metið er 48,8 sek.
100 m hlaupið höfðu íslenzku
þremenningarnir, Finnbjöm,
Ásmundur og Haukur algerlega
Torfi Bryngeirsson, Gunnar Huseby og Örn Clausen (t.h.) —
Myndin var tekin eftir Briissel-mótið.
í hendi sér, og í þetta sinn dró nægja 4. sætið, en setti þó nýtt
Finnbjörn lengsta stráið. íslandsmet á 4,21,4 mín.
Huseby virtist ekki eiga gott
Sama var að segja um lang-
stökkið, þar sem löndum okkar
samkcmulag vlð kúluna sína
þreinur var hvergi ógnað. En Þessu sinni, varpaði „aðeins
því miður var Torfi mjög ó-
heppinn þar eð hann hafði að-
eins 1 gilt stökk, og það var
stytzt af stökkum hans! Hann
15,95 m, sem var þó „smávegis"
betra en hjá næsta manni, eða
1V2 m!
Tvímælalaust skemmtilegasta
átti 2 hárfínt yfirtroðin kring- grein fyrri dagsins var 4x100
um 7,40 m, sem sýnir aðeins, |m boðhlaupið; þar sem Islend-
hvers af honum má vænta, ingarnir stilltu upp með ekki
þegar hann verður vissari á !f*rri en 2 lið úr 11 manna
plankanum. jhóp! — A-sveitin, sem í voru
.... .« lÁsmundur, Finnbjörn, Örn og
Stutta grmdahlaupið unnu 1
, . « - ; ' . IHaukur, vann með svo miklurn
þeir Orn og Ingi Þorsteinsson
og varð því hlaupið dæmt ó-
gilt. En Guðmundur skilaði
boðinu vel fyrstur í mark, og
var það ekki sízt að þakka
rakéttuspretti Torfa, sem strax
gaf örugga forystu.
I dag, laugardag, settu Is-
lendingarnir ekki alveg eins
mikinn svip á mótið og í gær,
þótt frammistaða þeirra í mörg
um greinum væri ágæt. -— Mikl-
ar vonir stóðu til 200 m hlaups-
ins, þar sem enginn annar en
La Beach stóð á startstrikinu,
en liann hefur bezta tíma, sem
náðst hefur í þeirri grein, 20,2
sek. (á beinni braut). Ennfrem-
ur startaði McKenley ásamt
Ásmundi og Norðmanninum
Henry Johansen. — McKenley
vann með yfirburðum á undan
La Beach, sem hljóp alveg
snerpulaust, enda nýstaðinn út-
úr flugvél frá Svíþjóð. Ásmund
ur lét sér nægja að sigra Norð
manninn greinilega, en virtist
ekki taka verulega á. — I B-
riðli vann Guðmundur Lárus-
son með yfirburðum á 22,3 sek.
800 m vann negrinn Browne,
en Magnús Jónsson og Pétur
Einarsson urðu a^| sætta sig
við öftustu sætin á 1,57,1 og
1,57,5 mín.
Áður en keppnin hófst í
kringlukasti, þeytti Gunnar
Huseby kringlunni leikandi létt
í mjög fallegu kasti tæpan 51
meter, en í sjálfri keppninni
mistókust flest köstin alveg, og
það bezta, 46,21 m, nægði að-
eins til 2. verðlauna. — En á
hverju getum við ekki átt von,
þegar Gunnari tekst að ná
meira öryggi í köst sin? Þá
verða 53—54 m áreiðanlega
ekki langt undan.
Spjótkastið vann Jóel mjög
heiðarlega, á undan norska met-
hafanum Odd Mehleren.
1000 m boðhlaupið var í
rauninni grein, . sem maður
hlakkaði mest til. Þar áttu
nefnilega Ameríkanarnir að
keppa við íslenzku sveitina, sem
ætlaði að reyna að setja nýtt
Norðurlandamet. — Því miður
með miklum yfirburðum, Örn á |
íslenzkum mettíma og Ingi á
nýju persónulegu meti. Varð 1
þó Örn að fára beina leið í það ;
úr miðju langstökkinu og gat i
því ekki stokkið þar nema ■ 3
stökk.
Bandaríkjamaðurinn Dreutsl-
er vann míluna. greinilega,- og
Pátur varð þar að láta sér
Sagf um Gunnar Husehy
Hvers vegna varpar Gunnar
Huseby kúlu hálfum öðrum
meter lengra en keppinautar
'hans í Brússel? Þessari spurn-
| ingu hafa margir varpað fram
j þessa síðustu daga; Ymsir
íþróttablaðamenn hafa komið
i með skýringar sínar. Einna
bezt skilgreining á kaststíl
j Gunnars hefur birzt í sænska
„Idrottsbladet", eftir einn af
ritstjórum þess, Sven Lindhag-
en. Hann segir: „Hann (Gunn-
ar) fer langt niður í undir-
búningnum, byrjar atrennuna
hægt og nær ótrúlegum hraða
í lokin, og útkastinu, sem er
leiftursnöggt, er fylgt eftir með
hinum þunga skrokk. Mýkt axl-
anna er ótrúlega mikil. — En
helzti leyndardómurinn við ár-
angur hans liggur þó í hinum
yfirnáttúrlegu kröftum í hand-
leggjum og úlnliðnum. ásamt
hraðanum.“
yfirburðum, að hrein unun var
á að horfa, og fannst mér rétt
eins og ég sæi þarna komnar
þær amerísku boðhlaupssveitir,
isem ég hef séð á Bislett! Tvær
fyrstu skiptingarnar voru alveg
sæmilégar og síðasta skipting-
in, milii Arnar og Hauks, alveg
fullkomin. Og það er ekki of
mikið sagt, að andvarp fór yfir
Bislettpallaná þ^gar hinir glæsi
íegu spretthlaiiparar okkar
geystust framúr norsku sveit-
inni í — mér liggur við að segjá
amerískum ,,style“ — allt frá
rakettustarti Ásmundar þar til
Haukur skilaði boðinu lang-
fyrstur í mark eftir fjúkandi
lokasprett.
Þó var á sinn hátt ekki sið-
ur gaman að hlaupi B-sveitar-
innar, sem í voru Torfi, Magn-
ús, Ingi og Guðmundur. Þeir
höfðu' næstbeztan tíma, 43,4
sek., þrátt fyrir afleita skipt-
ingu milli Magnúsar og Inga,
sem því miður varð til þess,
að Ingi lenti útaf sinni braut,
urðu Ameríkanarnir að fara
svo fljótt, að ekki varð af þátt-
töku þeirra. Varð þá viðureign
íslenzku sveitarinnar við þær
norsku líkust leik kattar að
mús! — Með knúsandi yfir-
burðum sveitarinnar þegar frá
upphafi, kom Guðmundur Lár-
usson i mark 50—60 m á und-
an næsta manni á nýjum ís-
lenzkum mettíma, 1,55,0 mín, og
aðeins 9/10 sek. frá Norður-
landametinu. I sveitinni voru
Finnbjörn, Haukur, Ásmundur
og Guðmundur. — Lauk þar-
með sigursælli Bislettheimsókn
okkar glæsilegu íþróttasendi-
herra, sem unnið hafa þessari
litlu þjóð svo mikla frægð.
Ú R S L I T :
100 m A-flokkur:
1. Finnbj. Þorvaldss. ‘Isl. 10.9
2. Ásm. Bjarnason, Isl. 11.0
3. Haukur Clausen, Isl. 11.1
400 m A-flokkur:
1. H. McKenley, USA 46.7
2. Guðm. Lárusson, ísl. 48.2
3. Roscoe Browne, USA 48.6
4. Henry Johansen 49.7
5. Audun Boysen 49.7
400 m B-flokkur:
1. Magnús Jónsson, Isl. 50.4
1. Leif Ekeheien 50.6
3. Björn Hansen 50.6
110 m grindahlaup:
1. Örn Clausen, Isl. 15.0
2. Ingi Þorsteinssou, Isl. 15.5
3. Tor Frösaker 15.9
1609 m hlaup:
1. W. Dreutzler, USA 4.15.0
2. Kaare Vefling 4.17.0
3. Terje Lilleseth 4.20.6
4. Pétur Einarsson, Isl. 4.21,4
Langstökk:
1. Torfi Bryngeirsson Isl. 7.05
2. Örn Clausen, Isl. 6.89
3. Finnbj. Þorvaldss., Isl. 6.76
Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby, ísl. 15.95
2. Bjarne Enger, N. 14.32
200 m hlaup:
1. McKenley, USA 21.1
2. Lloyd La Beach, USA 21.5
3. Ásm. Bjarnason, I§1. 22,1
Framh. á 7. gíðu
Óskar Halidérssoiþ Rauðarárstíg 13,
Reykjavík veröur fertugur í dag
10. september 1910 fæddist
þeim hjónunum, Dagfríði Jó-
hannsdóttur og Halldóri Indr-
iðasyni, Kvíabryggju í Grund-
arfirði, sonur, sem var 8. barn
þeirra hjóna.
Á hinum venjulega tíma var
drengurinn vatni ausinn og
hlaut nafnið Óskar í skíminni.
fln það var eins og snáðinn
kynni ekki að meta þessa fyr-
irhöfn prestsins og er kom að
því að presturinn léti hið kalda
vatns drjúpa yfir hið litla ljós-
hærða höfuð drengsins,þá braust
hann um í faðmi guðmóður
sinnar og sparaði hvorki hend-
ur, fætur eða barka til að verj-
ast þessari óvæntu. árás, sem
hann á engan hátt gat skilið
eða metið.
Þetta var fyrsta en ekki síð-
asta barátta Óskars við ofur-
eflið, og henni lauk, sem að
líkum lætur með fullum ósigri
Óskars. Prestur hélt áfram
hinni helgu athöfn þrátt fyrir
hina harðvítugu vörn drengsins
og’lét sér nú ekki nægja minna
en þrjár vatnslúkur til að skíra
þennan ódæla og raddsterka Is-
lending.
Ungur að árum fluttist Óskar
til Reykjavíkur, og tók upp
baráttu við sjóinn, og þau fang-
brögð hefur hann þreytt til ,
þessa flest árin. Síðan nýsköp-
unartogararnir komu, hefur
hann yerið lifrarbræðslumaður
á togaranum „Ask“, og það eitt
sýnir hvérskonar trausts Óskar
nýtur hjá útgerðarstjóranum,
því jafnan munu þeir vanda
mjög vel yalið í þá stöðu.
Óskar er fremur lágur maður
vexti, en þéttur á velli og þykk-
ur undir hönd.
Hann er hispurslaus í allrí
framkomu, einbeittur og hrein-i
Framhald á 7. síðu, i