Þjóðviljinn - 10.09.1950, Blaðsíða 5
Sunnudagur 10. sept. 1950.
ÞJÖÐVILJIN N
Mótunin, sem hitti í mark
Fyrir tveimur árum hélt all-
mikill hluti verkalýðsins ís-
lenzka. að hann væri að þjóna
eigin hagsmunum með því að
kjósa fylgismenn núverandi Al-
þýðusamb.stj. á sambandsþing.
Þetta verkafólk varaði sig ekki
á blekkingum hins samstillta
áróðurs borgarastéttarinnar og
flokka hennar. Það gerði sér
ekki Ijóst, að kjörorð aftur-
haldsins þá um að fella kom-
múnistana, var í rauninni kjör-
orð um að lækka gengið og
lækka kaupið.
Nú er þetta komið á daginn.
Gengið var fellt um tvo fimmtu,
og síðan hefur dýrtíðin farið
eins og logi um akur, en geig-
vænlegt atvinnuleysi blasir við
verkalýðnum. Enginn er leng-
ur öruggur um atvinnu sína.
' Það getur hent beztu menn
að láta blekkjast einu sinni.
En lærdómar tveggja ára þjón-
ustu Alþýðusambandsstjórnar
við yfirstéttina eru alitof til-
finnanlegir til þess að nokkur
verkamaður eða verkakona hafi
efni á að láta blekkjast í ann-
að sinn.
★
Menn hafa kannski ekki tek-
ið almennt eftir því, en stjórn
Alþýðusambandsins héfur énn
ekki sem slík mótmælt gengis-
lækkunarlögunum. Þegar Al-
þingi spurðist fyrir um álit
ASl á gengislækkunarfrumvarp-
inu, var látið nægja að Jón Sig-
urðsson sendi þinginu fáeinar
línur með nokkrum hreystiyrð-
um, en svo sem kunnugt er
hefur sá maður sérstakan
smekk fyrir það að setja nafn-
ið sitt undir tilkynningar sam-
bandsstjórnar.
Verkalýðsráðstefnán, sem
haldin var í marz s. 1. var sam-
ankvödd vegna eindreginna
krafna verkalýðsfélaganna. Á
þessari ráðstefnu héldu sam-
bandsstjómarmenn samheldn-
inni mjög á lofti. En þeir stilltu
jafnframt svo til, að ráðstefn-
an var kvödd saman og henni
slitið rétt áður en gengislækk-
unarlögin voru samþykkt. Og
þegar sambandsstjórnin fékk á-
skorun — fyrir samþykkt geng-
isfellingarinnar — um eins dags
allsherjar mótmælaverkfall, þá
hafði hún engan tíma til funda-
halda fyrr en eftir setningu lag-
anna, þegar augnablikið var hjá
liðið!
Þannig hefur sambandsstjóm
in haft raunverulegt samspil
við yfirstéttina, skref af skrefi,
og gert henni sem þægilegastar
allar árásir hennar á lífskjör
verkalýðsins.
Þegar líða tók að nýjum kosn-
ingum til Alþýðusambandsþings
taldi stjórn ASl sig þurfa sér-
stakan undirbúning til þess að
halda velli. Hann var fólginn
í máíamyndabaráttu gegn geng-
islækkunarlögunum.
Tækifærið kom, þegar ríkis-
stjórnin ákyað í júlí s. 1. að
stinga aukreitis nokkrum vísi-
tölustigum í vasa atvinnurek-
enda. Öllum laiudslýð skyldi
«ýnt, hvemig sambandsstjómin
verði hagsmuni verkalýðsins.
21. júlí sagði Helgi Hannes-
son í Alþýðublaðinu, að verka-
lýðurinn yrði að leggja til bar-
áttu um allt land til þess að
fá uppborna „alla þá kjararým-
un, sem gengisfellingin hefur
orsakað“. Daginn eftir sendi
stjórn ASÍ út bréf til allra sam
bandsfélaga, þar sem þau eru
hvött til að segja upp samning-
um með „kaupgjaldsbaráttu
fyrir augum“ til þess „að fá
uppborna þá kjararýrnun, sem
alþýða manna hefur orðið fyrir
af völdum gengislækkunarinn-
ar“.
Stjórn ASl virtist vera á leið-
inni að taka mikla jóðsótt. Eins
og vænta mátti, brugðu samein-
ingarmenn í verkalýðsfélögun-
um skjótt við, lýstu yfir fullu
Samþykki sínu við hinar yfir-
lýstu fyrirætlanir ASl-stjóm-
ar og lögðu til gagngerar ráð-
stafanir til að tryggja skjótan
og öruggan sigur.
★
En það voru einnig aðrir, sem
brugðu skjótt viÖ og vissu,
hvernig þeir áttu að taka hinu
skyndilega upphlaupi ASÍ-
stjórnar. Það var Ihaidið, auð-
stéttin.
Strax þann 21. júlí skrifaði
„Vísir“ m. a. þetta:
„Það virðist vera kominn
tími til, að stjórnin hætti að
hlaða undir og taka tillit til
broddanna í Alþýðuflokkn-
um“.
Tveim dögum síðar, 23. júlí,
fer Morgunblaðið allt í einu að
spyrjast fyrir um Innkaupa-
stofnun ríkisins. Og 26. júlí
spyr Morgunblaðið, hvort Al-
þýðublaðið vilji ekki vera svo
jelskulegt“ „að komast yfir
upplýsingar um þann sparnað,
sem leitt hefur af Innkaupa-
stofnuninni“ undir stjóm Finns
Jónssonar.
Og daginn eftir upplýsir svo
„Vísir“ að
„Alþýðuflokkurinn hefur
af annarra náð fengið nokk-
ur ítök í stjórn Alþýðusam-
bandsiqs og fær að leika þar
tiltölulega lausum hala“.
„Vísir“ og „Morgunblaðið"
hittu beint í hjarta Alþýðufl.-
broddanna. Það sem þau sögðu
var þetta:
Þið fáið bara að leika „til-
tölulega“ lausum hala í Al-
þýðusambandinu, en ef þið ætl-
ið að fikta við gengislækkunar-
lögin, þá tökum við bitlingana
Framhald á 7. síðu.
Sk áh
Ritstjóri: GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON
Lausn á skákdæmunum
í síðasta þætti:
Hvítur mátar í öðrum leik.
1. H. Petersen. Kd2, Db4, Rd4,
Ke4, Pd5. 1. leikur er De7.
2. H. Petersen. Kd7, Dh7, Re6,
Rg4, Pg2 ; Kf5, Pc7, Pg6. Hvít-
ur mátar í 2. leik. 1. leikur er
Kc6!
' j '
Hér koma tvær nýjar.
3. Erik Paulsen. Hvítt: Kd8,
Ðb3, Ba6, Rc5, Re4.
Svart Ka5, Pc6, Pc7. Hvítur
á leik og á að máta í 2. leik.
4. E. Gize. Hvítt: Ke4, Da4,
Hb6, Bd6.
Svart: Ka8, Hb8, Pa7, Pb7.
Hvítur á leik og á að máta í 2.
leik.
Lausnir koma í næsta þætti.
I dag birtast tvær skákir frá
Norræna skákmótinu án nokk-
urra skýringa.
Meistaraflokkur.
Friðrik Ólafss. V. Rasmussen.
1. d2—d4 Rg8—-f6
; 2. c2—c4 e7—e6
3. Rbl—c3 B18—b4
4. a2—a3 Bb4xc3
Áhugal'iósmyndarinn
áf Bg| «t|J
5. b2xc3 0—0
6. e2—e3 c7—c5
7. Bfl—d3 d7—d6
8. Rgl—e2 e6—-e5
9. í2—f3 Dd8—e7
10. e3—e4 Rf6—e8
11. Ddl—c2 Rb8—c6
12. 0—0 b7—b6
13. f3—f4 f7—Í6
14. Bcl—e3 Bc8—a6
15. Re2—g3 c5xd4
16. c3xd4 g7-g6
17. d4xe5 d6xe5
18. c4—c5 Ba6xd3
19. Dc2xd3 Kg8—g7
20. Dd3—d5 De7—b7
21. f4xe5 Ha8—d8
22. e5xf6 Re8xf6
23. Dd5—g5 Rf6—g8
24. c5xb6 a7xb6
25. Hal—cl Hf8xfl
26. Hclxfl Hd8—d3
27. Be3—cl h7—h6
28. Rg3—f5 Kg7—h7
29. Rf5xh6 Hd3—d7
30. Rf6xg8 Kh7xg8
31. Dg5xg6 Hd7—g7
32. Dg6—^e6 Kg8—h7
33. Hfl—f6 Gefið
Drottningarbragð
Norræna skákmótið, 1. flokkur
29. júlí
Birgir Sigurðsson A. W. Olson
1. d2—d4 d7—d5
2. c2—c4 c7—c6
3. Rbl—cS Rg8—Í6
4. Rgl—f3 e7—e6
5. Bcl—g5 Rb8—d7
6. e2—e3 Dd8—a5
7. RfS—d2 Bf8—b4
8. Ddl—c2 0—0
9. Bg5—f4 Hf8—e8
10. Bfl—d3 h7—h6
11. 0—0 Rf6—h5
12. Bf4—e5 Bb4xc3
13. b2xc3 d5xc4
14. Rd2xc4 Da5—d8
15. f2—f4 Rh5—f6
16. Hal—bl b7—b5
17. Rc4—d6 Rf6—d5
18. Bd3—h7 Kg8—f8
19. Re5xf7! Rd5xe3
20. Dc2—g6 Rd7xe5
21. f4xe5 Dd8—d7
22. Rf7—d6 Re3—f5
23. g2—g4 Kf8—e7
24. g4xf5 e6xf5
25. Dg6xg7f Ke7—d8
26. Dg7xd7f Gefið
T'.Ht&Cr'
Viðurkenning
skilyrði fyrir
rannsókn
Útvarpið í Peking sagði í gær
að engri rannsóknarnefnd frá
SÞ yrði hleypt inní Kína til
að rannsaka kæru Kínastjórn-
ar á hendur Bandaríkjaflug-
her fyrir árásir á borgina
Antung í Mansjúríu. Sagði út-
varpið, að meðan meirihluti
SÞ meiuaði fulltrúa. Kínastjórn
ar áð, taka sæti landsins hjá
SÞ væri ekki hægt að ætlast
til að rannsóknamefnd frá SÞ
yrði hleypt ioní, iandið.