Þjóðviljinn - 17.09.1950, Blaðsíða 4
I
' I I
PJÓÐVILJINN
Sunnudagur 17. sept. 1950.
HlÓOVIUINN
Útgefandl: S&melnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Bitstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson,
Auglýslngastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Síml 7500 (þrjár línur).
Askriftarverð: kr. 14.00 & mán. — Lausasöluverð 80 aur, elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
r
Sjálfskaparvítln mega ekki
endurtaka sig •
Fyrir Alþingiskosningarnar í fyrrahaust sagði Þjóðviljinn
aö þasr kosningar væru hin afdrifaríkasta kjarabarátta;
þann 23. október yröi skoriö úr um lífskjör alþýöuheimil-
anna næstu mánuði og ár. Meginþorri þjóðarinnar gerði
sér ekki grein fyrir þessari staðreynd, heldur leit á kosn-
ingarnar sem pólitískan leik, fjarskyldan hinni daglegu
lífsbaráttu. Enda urðu úrslitin þau að styrkleikur flokk-
anna innbyrðis breyttist lítið, þegar frá er skilið aö Al-
þýðuflokkurinn fékk sára rassskellingu, þótt víst væri
hún mildari en maklegt var.
Orð Þjóðviljans um gildi kosninganna rættust á eftir
minnilegasta hátt. Hver einasti alþýðumaður býr nú við
langtum verri kjör en 23. október — vegna þess eins að
meginþorri þjóðarinnar skildi ekki að kosningabaráttan
var kjarabarátta. Og þó á þjóðin enn eftir að reyna
mikið af því sem hún kallaði sjálf yfir sig með einu
pennastriki í kjörklefanum.
En það eru fleiri aðilar en ríkisstjómin og Alþingi
sem skera úr um lífskjör almennings á íslandi. Einn
veigamesti aðilinn er Alþýðusamband íslands, heildar-
samtök verkalýðsins. Alþýðusamtökin geta með ötulli
toaráttu og skeleggri stjórn varið lífskjör alþýðuheimil-
anna og sótt fram til betri kjara á kostnað auðmanna-
stéttarinnar. Ef alþýðusamtökiií eru nægilega sterk og
einbeitt hafa þau vald til þess að tryggja að hlutur al-
J>ýðunnar í þjóðartekjunum rýrni ekki, þrátt fyrir fjand-
samlegt ríkisvald. Ógæfa íslenzkrar alþýðu hefur hins
vegar veriö sú undanfarin tvö ár, að auðmannastéttin
hefur bæði ráðiö yfir ríkisvaldinu og heildarsamtökum
alþýðunnar, þar sem keyptir leppar hafa farið með
völd. Þess vegná hafa afleiðingar Alþingiskosninganna
orðið svo skjótar og þungbærar; aðalforusta verkalýðs-
samtakanna var 1 höndum sjálfra andstæðinganna!
í dag hefjast á ný kosningar til Alþýðusambands-
þings, kosningar sem ekki eru síður afdrifaríkar fyrir
lífskjör alþýðuheimilanna en alþingiskosningarnar í
haust. Þess vegna má reynsla alþingiskosninganna ekki
Jyrnast, heldur á hún aö vera það leiðarljós sem mótar
alþýöusambandskosningarnar allar. Sú kosningabarátta
;sem hefst í dag er kjarabarátta í enn ríkara mæli en
mokkrar aðrar kosningar sem áður hafa farið fram á ís-
ilandi, hinir augljósu vitar eru annarsvegar stórsigrar
verkalýðssamtakanna undir stjórn sameiningarmanna
<og hins vegar hin algera niðurlæging tveggja síðustu ára
sem náði hámarki með svikunum fyrir hálfum mánuði.
Alþýðusambandskosningai'nar eru kjarabarátta, hver
alþýðumaöur sem tekur þátt í þeim er að skera úr um
Ilífskjör sín á næstu árum. Núverandi sambandsstjórn er
ámynd hinnar dekkstu niðurlægingar og áframhaldandi
‘völd hennar eru trygging fyrir sívaxandi árásum, lækk-
andi kaupi, vaxandi dýrtíð og atvinnuleysi. Þess vegna
hljóta allir heilbrigðir verkalýðssinnar að sameinast um
:að fella hana frá völdum við smán og aila stuðningsmenn
hennar, en velja til forustu þá menn eina sem hægt er
að treysta til ótrauðrar baráttu.
Eftir alþingiskosningamar kom gengislækkunin.
ÍSlík sjálfskaparvlti mega ekki endurtaka sig.
Krossgáta nr. 33.
Meiri stórhugur en
nokkru sinni fyrr.
B.P. skrifar bæjarpóstinum:
— „Nú ætlar kratastjórnin
brezka að fara að þjóðnýta stál
iðnaðinn. Þetta hefur að vísu
verið á döfinni í mörg ár, en
hefur alltaf þótt óheppilegt, í
bili, einhverra hluta vegna, og
framkvæmdum hefur sí og æ
verið frestað. Kratarnir í al-
þýðusambandinu héma eru líka
alltaf að vinna að bættum kjör
um verkamanna, einkum til að
vinna upp þá kjaraskerðingu
sem gengislækkunin hefur haft
í för með sér. Þetta hefur að
vísu gengið hálfraunalega stund
um, en nú ætla þeir heldur en
ekki að taka ríkisstjórnina í
karphúsið, ef hún lætur sér
ekki segjast strax þegar þing
kemur saman.
•
Góð ráð dýr.
„En orsakir liggja til alls.
Á nýafstöðnu krataþingi í
Brighton kom í ljós, að ískyggi
lega margir flokksmanna voru
famir að hneigjast til „komm-
únisma.“ Þessa daga sem liðnir
eru síðan krataþinginu. lauk,
hefur „kommúnisminn" vaðið
uppi í Englandi, og átti hann
þó ekki upp á pallborðið áður.
En sem sagt, nú em góð ráð
dýr. Kratamir héma hafa orð-
ið þess varir, að fjöldi verka-
manna, sem þeir hafa talið ör-
ugga, eru ekki saklausir af
„kommúnisma,“ einkum eftir
siðustu svikin, og einnig vegna
togaraverkfallsins, hvernig á
þeim málum hefur verið haldið.
Nú eru góð ráð dýr. Það er
ekki að furða þótt kratarnir
fyllist stórhug beggja megin At
lantshafsins.
B. P.“
Sinfóníutónleikar
útvarpsins.
„1 seinustu sinfóniutónleik-
um útvarpsins, var leikin ein
indælust allra sinfónía, sem
samin hefur verið fyrr og síð-
ar, sinfónía nr. 7 í a-dúr eftir
Beethoven. Verkið var flutt af
Philharmonic-Symphony Orch-
estra undir stjórn Toscanini.
Nú vita flestir, sem kunnugir
eru flutningi slíkra verka, að
Toscanini er enginn sérstakur
Beethoven stjómandi. Kaflarn-
ir í sinfóníum Beethovens und-
ir stjórn hans, eru varialega
ekki eins jafnvel fluttir. Til
dæmis er mikill munur á því
hve honum tekst betur með
„allegro con brio“ heldur en
„allegretto". Sé hinsvegar far
ið í samanjöfnuð við beztu
Beethoven-stjórnanda svo sem
Weingartner og Furtwángler,
má í einstöku köflum sinfónía
Beethovens, líkja hljómsveit
Toscanini við barnahljómsveit.
Og er gaman að bera saman
„allegretto"—kaflann í 7. sin-
fóníu Beethovens undir stjóm
Toscanlni og Weingartners
Maður fær meira af sjálfum
Beethoven hjá Weingartner. —
Það vita allir að Toscanini er
einn af fremstu hljómsveita-
stjórum heimsins, en honum
lætur betur að stjóma verkum
hinna ítölsku meistara en
hinna þýzku, þó hins vegar
honum takist vel með smn
þýzk tónverk. — Þeir, sem sjá
um hljómleikaþætti útvarps-
ins, vita þetta vissulega betur
en undirritaður. Þó er rétt að
þessi gagnrýni komi fram. Það
er ekkert dýrara fyrir útvarp-
ið, að hafa einskonar vertka-
skiptingu í tónlistarflutningi af
hljómplötum. -— Æskilega
verkaskiptingu mætti vel hugsa
þannig: Sinfónía nr. 7 eftir
Beethoven, flutt undir stjórn
Weingartner, Sinfónia nr 5 s.
h., imdir stjórn Furtwángler,
en Sinfónía nr. 1 undir stjóm
Toscanini. —- Eg ætla ekki að
hafa þetta lengra, en vil undir
strika það, að úrvinsla er mjög
æskileg í þessu efni og verða
fjölbreytni því engin takmörk
sett. — E. K.“
Bíkissklp:
Hekla er á Austfj. á norðurleið.
Esja var á Kópaskeri í gær á
norðurleið. Herðubreið var á
Bakkafirði í gær. Skjaldbreið var
á Borðeyri í gær á norðurleið.
Þyrill er við norðurland. Ármann
er í Reykjavík.
Eimsklp
Brúarfoss fór frá Hafnarfirði
15.9. til Svíþjóðar. Dettifoss fór
frá Antverpen 12.9. væntanlegur
til Rvíkur kl. 7 f. h. í dag 17.9.
Fjallfoss er í Reykjavík, fer vænt
anlega 17.9. kl. 10.00 til vestur og
norðurlandsins. Goðafoss fer frá
Rotterdam 18.9. til Hull og Reykja
víkur. Gullfoss fór frá Kaupm,-
höfn 16.9. til Leith og Reykjavík-
ur. Lagarfoss fór frá Halifax 13.9.
til Reykjavíkur. Selfoss fór frá
Keflavík í gærkvöld 16.9. til R,-
víkur. Tröllafoss kom til N.Y. 11.9.
frá Botwood i N. Foundland.
Skipadelld S.Í.S.
Arnarfell kom til Genova í morg-
un 17.9. Hvassafell er á Akureyri.
Fastir liðir eins og
venjulega. — Kl.
11.00 Messa í Dóm-
kirkjunni (séra
Bjarni Jónsson
vígslubiskup). 15.15
Miðdegistónleikar (plötur): NBC
sinfóníuhljómsveitin leikur; Tosc-
anini stjórnar: a) Forleikur að
óp. ,,Don Pasquale" eftir Donizetti.
b) Sinfónía nr. 39 í Es-dúr eftir
Mozart. c) „Harry Janos", svíta
eftir Kodály. d) „Valkyrjureiðin“
eftir Wagner. 16.15 Útvarp til ls-
lendinga erlendis: Fréttir. 16.30
Tónleikar: „The Rio Grande", kór-
og hljómsveitarverk eftir Constant
Lambert (plötur). 18.30 Barnatími
(Þorsteinn Ö. Stephensen): a) Upp
lestur. b) Einleikur á píanó (Sybil
Urbantschitsch). c) Framhaldssag
an: „Óhappadagur Prillu"; sögu-
lok (Katrín Ólafsdóttir). 19.30 Tón
leikar: Fantasíur fyrir strengja-
hljómsveit eftir Purcell (plötur).
20.20 Tónleikar: Eleen Joyce leik-
ur á píanó (plötur). 20.35 Staðir
og ieiðir: Sólskinsdagur heima að
Hólum (Helgi Hjörvar). 21.00 Tón-
leikar: „Dauðinn og ' dýrðárljóm-
Lárétt. 1 fórna — 6 stöndug
7 keyr — 8 nógu mikið — 10 dust
11 fjarvist — 14 2eins — 15 merki
17 skordýr.
Lóðrótt. 2 frjáls — 3 hvit blóm
4 samhl. — 5 nes — 7 siða — 8
starta — 9 æsir — 12 Biblíunafn
13 spunnu — 16 guð.
Lausn á nr. 32.
Lárétt. 1 ystið — 6 múi -— 7
KK —- 8 sálmana — 10 sér — 11
álinn —- 14 Ra — 15 óar — 17
knarra.
Lóðrótt. 2 smá — 3 túlki — 4
ilm — 5 skars — 7 kné — 8 smár
9 asnar — 12 lak — 13 Nóa — 16
RR.
inn“ (Tod und Verklárung), hljóm-
sveitarverk eftir Richard Strauss
(plötur). 21.25 Upplestur: Kvæði
(Óskar Halldórsson kennari), 21.40
Tónleikar: M.Aj-kvartettinn syng-
ur (plötur). 22.05 Danslög (plötur.
23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun.
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 19.30 Tónleikar: Lög úr kvik-
myndum (plötur). 20.20 Útvarps-
hljómsveitin (Þórarinn Guðmunds-
son stjórnar). 20.45 Um daginn
og veginn (Friðgeir Sveinsson
gjaldkeri). 21.05 Þórarinn Jónsson
tónskáld fimmtugur. — Erindi og
tónleikar: a) Þrjú einsöngslög:
„Ave Maria"; ,,Nótt‘; „Fjólan".
b) Erindi. c) Prelúdíum og fúga
yfir stefið „b-a-c-h“ fyrir einleiks-
fiðlu (Björn Ólafsson Jeikur). d)
Tvö karlakórslög: „Úr Láka-
kvæði"; Ár vas alda". 21.45 Tón-
leikar (plötur). 22.10 Létt lög
(plötur). 22.30 Dagskrárlok.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 11 f. h.
Sr. Garðar Svav-
arsson. Fossvogs-
klrkja. Messa kl. 2
e. h. — Garðar
Svavarsson. Nesprestakall. Messað
í kapellu Háskólans kl. 2 e. h. —
Sr. Jón Thorarensen.
Næturvörður
er í Reykjavíkurapóteki. — Sími
1760.
Helgidagslæknlr er Bergsveinn
Ólafsson. — Sími 4985.
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sín
berað trúlofun sína
ungfrú Auður Páls
dóttir, símamær,
_ m Freyjugötu 4 og
Ágúst A. Guðmundsson, loftskeyta
maður_ Grettisgötu 55.
1 gær voru gef-
in saman í
hjónaband af sr.
Garðari Þor-
steinss., Guð-
rún Pálsdóttir
(Sveinssonar, kennara), Brekkug.
22, Hafnarfirði og Sigurður Pálsr
son (Stefánssonar, trésmíðameist-
ara), Bergþórugötu 14 A, Reykja-
vik. —■ 1 gær voru gefin saman í
hjónaband af sr. Garðari Þorsteins
syni, ungfrú Petrea Finnbogadótt-
ir og Ólafur Guðmundsson, Heim-
ili ungu hjónanna er að Nönnug.
13, Hafnarfirði. — 1 gær voru gef
in saman i hjónaband af sr. Garð
ari Þorsteinssyni, Áslaug Ólafsd.
frá Norðfirði og Árni Bjarnason,
sjómaður, Reykjavíkurvegi 24,
Hafnarfirði.
SÖFNIN:
Landsbókasafnið er opið alla
virka daga kl. 10—12, f.h. 1—7 og
8—10, nema laugardaga kl. 10—12
f.h. og 1—7 e.h. — Þjóðminjasafnið
er opið kl. 1—3 þriðjud., fimmtu-
daga og sunnudaga. — Náttúru-
gripasafnið er opið sunnudaga kl.
1.30—3 og þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 2—3. — Listasafn Einars
Jónssonar er opið kl. 1.30—3.30 á
sunnudögum: