Þjóðviljinn - 17.09.1950, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.09.1950, Blaðsíða 5
Sunnudagur 17. sept. 1950. ÞJÖÐVILJIN N 8 Stjórn ASÍ mun hafa sann- færzt um það á verkalýðsráð- stefnunni sl. vetur, að hún yrði að beita sjónhverfingum, ætti hún að halda rangfengnum meirihluta á sambandsþinginu í haust. Sjónhverfingin var sú gerfi- foarátta, er sambandsstjórnin setti á svið með áskorun sinni 22. júlí um allsherjar uppsögn samninga. Þessi gerfibarátta var í- klædd stóryrðum í garð ríkis- stjórnarinnar og gengislækk- unarlaganna og Alþýðuflokks- menn víða lun land héldu, að nú ætlaði sambandsstjórnin að reka af sér slyðruorðið. En strax og Vísir og Morgun blaðið höfðu bent foringjaliði Alþýðuflokksins á, að það fengi aðeins að leika „tiltölulega lausum hala“, að annars yrði það sett á gaddinn, fór bitlinga hjörðin að rása undan. Sambandsstjórnin sneri sér að því að liða í sundur þá miklu samtakafylkingu, sem var á leiðinni. Sambandsstjórn synjaði fé- lögunum mn allar upplýsingar, er máli skiptu. Hið eina svar, sem þau fengu var það að bíða. Kröfunni um ráðstefnu sem borin var fram af samtökun margra forustufélaga sam- bartdsins var aldrei anzað. Á sjónhverfingaleik sínum óttaðist sambandsstjórn það mest, ef verkalýðurinn fengi sjálfur. tækifæri til að ráðg- ast um baráttu sína. Samráð við verkalýðinn var eitur í beinum hennar. Gerfibaráttan byggðist einmitt á því, að svik ararnir í toppi samtakanna gætu hindrað verkalýðsfélögin í því að segja sitt orð. Sérstaka athygli verðskuldar afstaða sambandsstjómar til þeirra lágmarkskaupkpfna, sem verkalýðurinn. hlaut að gera í sambandi við uppsögn samninganna. Um þá hlið málsins vildi sam bandsstjórnin sízt af öllu tala. Á fundi í Fulltrúaráði verka lýðsfélaganna í Reykjavík 1. ágúst voru viðstaddir sam- bandsstjórnarmeðlimir m. a. spurðir um það, hverjar kröf- ur sambandsstjórn ætlaði að setja fram, þeir herrar fóru undan í flæmingi. En þó glopraðist út úr „vara forsetanum“ Sæmundi Ólafs- syni, að ekki væri hægt að sníða kaupkröfur fyrr en í byrjun september, þegar séð væri verðlag landbúnaðarafurð anna. Þetta var sagt 1. ágúst, ca. mánuði áður en svikin voru framin. Sambandsstjórnin vissi, að til stóðu verulegar hækkanir á landbúnaðarvörum svo sem á daginn kom. Og „varafor- setinn“ lét sem sé í það skina að kröfur skyldi sníða m. a. á grundvelli þessara hækkana. Þann 29. ágúst afhentu for- menn fjögurra helztu • verkalýð • félaganna Sambandsstjórn á- , lit sitt úm'30% lágmarkskaup- r\ NYJfi SAMBANDSSTJORN sem metur lífskjör verkalýðsins meir en persónuleg fríðindi hækkun vegna gengisfellingar- « mnar. En daginn eftir 30. ágúst, þegar ríkisstjórnin tók sinn þátt í sjónhverfingunni með bráðabirgðalögum um 3ja stiga vísitöluhækkim, flýtti sam- bandsstjórn sér að framkvæma hin freklegu svik sín við verka lýðsstéttina með því að kyngja hinum fræga „tú-kalli“ og skora á meir en 40 félög að framlengja samninga sína ó- breytta. Sæmimdur Ólafsson hafði sagt, að kröfurnar yrðu að bíða landbúnaðarvöruverðsins. Sambandsstjórnin sveik fá- einum dögiun áður en hinar gífurlegu verðhækkanir mjólk- urafurða voru auglýsar. Hótun burgeisablaðanna um bitlingamissi Alþýðuflokksfor- ingjanna beit þá svo fast, að sambandsstjórnin hafði á svikafundi sínum 30. ágúst að engu áskoranir og yfirlýsing- ar formanna Dagsbrúnar, Þróttar á Siglufirði, Vmf. Ak- ureyrarkaupstaðar og Hlífar um að halda áfram til sigurs baráttu þeirra 40—50 félaga, er sagt höfðu upp samningum. Eftirmæli „Vísis“ voru þau að svik sambandsstjórnar hefðu verið „ódýr lausn“ og hlutur verkafólksins „smámun ir einir“! Þær tvær vikur, sem liðnar eru síðan, hafa miklar verð- hækkanir skollið á. Mjólkurhækkunin ein gerði meir en að éta upp „tú-kall“ sambandsstjórnarinnar. Þar á ofan komu verðhækkanir á öll um öðrum mjólkurafurðum. Viku eftir svikin lagði íhald- ið fram tillögur sínar í bæjar- stjórn Reykjavíkur um ca 50% hækkun á . rafmagni og hitaveitugjaldi, sem hvort- tveggja hefur nú verið sam- þykkt. Síðan hefur fiskverðið hækk- að. Egg hafa hækkað í verði, sömuleiðis sígarettur o. fl. Það er eins og verðhækkan- irnar keppist við að elta Sam- bandsstjórnina, — eftir að hún lauk sjónhverfingaleiknum með hinum herfilegu svikum sínum 30. ágúst. Og það er gráthlægileg mynd að sjá sambandsstjórnina senda verkalýðsfélögunum bréf 31. ágúst viku fyrir verðhækk- anirnar, þar sem hún túlkar svik sín sem „einn hinn stærsta sigur, er ætti að verða til þess, að ekki yrði reynt fyrst um sinn að höggva í sama knérunn.“ Er hægt að ganga lengra í sjálfhæðninni en þessi vesæla sambandsstjórn,' sem byrjaði á því að berja bumbur um land allt, en endaði með því að semja um kauplækkun? Þeir ættu bara að heyra, sambandsstjórnarsvikararnir, hvernig húsbændur þeirra, sem segjast „hlaða imdir þá“, hlæja að þeim og smána þá á bak og brjóst — um leið og þeir nota þá. Og hvað gagnar það sam- bandsstjórninni, þótt Jón Sig- urðsson, hægri hönd Sæmundar Ólafssonar og Helga Hannes- sonar, birti grein eftir grein í Alþbl. henni til varnar, þegar verkafólk um allt land getur sýnt og sannað, að það er nú þegar mun lægra í pyngju þess en var fyrir 30 ágúst? Reynslan hefur líka sýnt, að jafnvel hin þykkhöfðaða sam- bandsstjórn er farin að finna, hvaðan vindurinn blæs meðal verkalýðsins enda skammt til kosninga. Tæpum tveim vikum eftir svik sín, sér hún sig tilneydda að birta háværa yfirlýsingu gegn gengislækkunarlögunum, verðhækkunum og atvinnuleysi — að kommunum ógleymdum. Svo ör er þróunin, Svo fljótt hefur slegið í bakseglin. Yfirlýsing sambandsstjómar er hreinræktað hræðslumerki, sem sýnir, að hún hefur fengið taugaáfall út af verðhækkun- um, er sanna bezt svik hennar. En þessi hávaði sambands- stjómar nú missir marks. Hann er máttlaus orðaflaumur og krókódílstár vegna þess að sambandsstjóm hefur þegar sannað það i verki, að henni eru dýrmætari bitlingar Al- þýðuflokksibroddanna en lífs- ikjör verkalýðsins. ★ Islenzkur verkalýður, sem fékk verðhækkanir, í stað kaup hækkana, stendur nú andspæn is þeirri spurningu, hvað gera skuli. Svarið er einfalt: Það verður að skipta um sam bandsstjórn. / Áhrif gengislækkunarlag- anna halda áfram að skerða lífskjör alþýðunnar með aukn um krafti og ræna hann öllu atvinnuöryggi. — Gegn þessum voða verður verkalýðurinn að star.da sam- cinaður á landsmælikvarða og heildarsamtök hans að gera skyldu sína. Reynslan hefur sýnt að þetta er ekki hægt með svikula sam- bandsstjórn við völd, heldur aðeins með sambandsforustu, sem framkvæmir vilja verka- lýðsins. Tækifæri'ð til að hagnýta þessa dýru reynslu er einmitt nú í kosningunum til Alþýðu- sambandsþings. Það er sameiginlegt hags- munamál allra verkamanna og verkakvenna að fella alla for- svarsmenn núverandi sambands stjórnar frá kjöri. Verðhækk- anirnar, sem elta sambands- bandsstjórnina eins og skugg- inn, koma jafnt niður á öllu verkafólki, hvar í flokki sem. það stendur. Á næstu þremur vikum þarf verkalýðurinn að reka hina svikulu sambandssjórn af hönd um sér, — en kjósa þá menn eina á þing, sem meta lífskjör alþýðu meir en persónuleg fríðindi. Að þessu verkefni þurfa verkalýðssinnar í öllum flokk- um að einbeita kröftum sírt- um — og sigra. E. Þ. ■: Miðgarður Þórsgötu 1 — Sími 7512 Hvað má bjóða yður? Kaffi Te með allskonar heimabökuðum kökum. með smurðu brauði. : S ú k k u 1 a 8 i með ríómi ponnukokum. Seljum eiimig úi í bæ allskonar heima- bakaðar kökur. : MUNIÐ Við seljum allar íáanlegar tegundir aí cigarettum, vindlum og reyktóbaki. /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.