Þjóðviljinn - 24.09.1950, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.09.1950, Blaðsíða 4
1 ÞJÓÐVJLJINN Sunnudagur 24. sept. 1950. þióðmfiNH Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurina. Kltstjórar: Magnúa Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsssn. Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason. BlaSamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi óiafsson, Auglýsingastjóri: Jónstelnn Haraidsson. Kitstjóm, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiSja: Skólavörðu- sUg 19. — Síml 7500 (þrjár línur). Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 80 aur, elnt, Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Niðurlæging A!þýSufIokksins í upphafi verklýðssamtaka á íslandi var skilningur á gildi þeirra mjög takmarkaður. Meginþorri verkafólks- ins leit á atvinnurekendur sem forsjá sína og taldi sig skuldbundinn til að þjóna þeim og hlýða í einu og öllu. Uppreisn gegn þessum ,,máttarstoðum“ nálgaðist upp- reisn gegn sjálfri tilverunni. Til þess að breyta þessum rótgrónu sjónarmiðum þurfti mikið uppeldisstarf, og það starf vann fyrst og fremst Alþýðuflokkurinn á fyrstu árum sínum. En hann átti við ramman reip að draga þar sem var tregða hins eldra verkafólks, og auk þess beittu atvinnurekendur áhrifum sínum miskunnarlaust, lokkuðu og hótuðu, og sendu út agenta sína og flugumenn til að eyöileggja verkalýðsfélögin, skipuleggja verkfallsbrot og koma á sundrungu. Þegar þessi barátta stóð sem hæst voru forustumenn Alþýðuflokksins ofsóttir, hundeltir og svívirtir, þeim voru ■valdar nafngiftir eins og „rússabolar“ og þeir voru taldir ■vinna samkvæmt erlendum fyrirskipunum og fyrir erlent gull. En þeir létu sér fátt um finnast, þeir vissu að þeir ’vom að berjast fyrir göfugri hugsjón. Og þeir vissu að -verstu fjandmenn verkalýðsins voru þeir agentar sem atvinnurekcndur sendu frá sér til að sundra og tvístra. Sú barátta sem hafin var í upphafi verkalýðshreyf- ringarinnar stendur enn yfir. Eins og í upphafi beita at- 'vinnurekendur áhrifum sínum miskunnarlaust, lokka og hóta, og senda frá sér agenta og flugumenn til að eyði- ieggja verkalýðsfélögin, skipuleggja verkfallsbrot og koma á sundrungu. Barátta þeirra er skipulagðari og ofsa- iengnari nú en nokkru sinni fyrr, því nú eru alþýðusam- tökin að verða það vald sem mestu gæti ráðiö í þjóðlífinu. En þótt atvinnurekendur hafi síöur en svo breytt um afstöðu, er sá flokkur sem kallar sig Alþýöuflokk ger- ■breyttur. Hann er nú löngu hættur að vinna uppeldisstarf innan verkalýðshreyfingarinnar — þvert á móti hafa at- vinnurekendur náð þeim mikilvæga árangri að gleypa Jorustu hans alla. Þessi þróun á sér alllangan aðdraganda en nær hámarki í Alþýðusambandskosningunum nú. í hessum kosningum eru þeir stóratburðir að gerast að Alþýðuflokksforustan er að afhenda íhaldinu öll þau "völd innan verkalýðssamtakanna sem tiltæk eru. í einu Jélaginu af öðru eru beinir agentar atvinnurekenda 'boðnir fram og studdir af ofstæki af Alþýðublaðinu og -Alþýöuflokknum. Alþýðuflokksmenn fá aðeins að fljóta með í framboðum af náð, og þá aðeins einn maður í Ihverju félagi. Kosningabaráttan er skipulögð opinberlega Jrá aðalbækistöðvum atvinnurekenda, Sjálfstæðishúsinu, >og samtök atvinnurekenda leggja fram stórfé í áróður, bílakostnað og kaup handa ageníunum. Greinar eru samdar í Sjálfstæðishúsinu og birtar samtímis í Morgun- blaðinu, Alþýðublaðinu og Tímanum, eins og í Hreyfils- kosningunum og nú í Iöjukosningunum. Myndamót eru búin til af agentum atvinnurekenda og birtar samtímis í sömu blöðum með þeirri sameiginlegu yfirskrift að þetta séu ,,lýðræðissinnar“. Það eru atvinnurekendur sem.opin- berlega hafa tekið forustuna, og Alþýðuflokksbroddarnir *eru aðeins peð sem teflt er fram. Þetta er þróun sem engum getur dulizt. Til skamms líma hafa verið til verkalýðssinnar sem fylgdu Alþýðu- Jlokknum af gamalli tryggð. Nú getur enginn maður, sem af einlægni lætur sér annt um hag verkalýðsstéttar- ánnar, fylgt þeim flokki framar. Sjö afmyndaðir lýðræðis- sinnar og tveir myndlausir I gær birtu Morgunblaðið og Alþýðublaðið myndir af sjö lýð- ræðissinnum í Iðju og báðust bæði afsökunar á því að því miður hefði ekki verið hægt að fá myndir af tveimur lýð- ræðissinnum í viðbót. Lýðræðis- sinnar þeir sem myndirnar eru birtar af virðast vera meinhæg- asta fólk af svipnum að dæma, og því miður er engin önnur ályktun möguleg um verðleika þess. Allir lýðræðissinnarnir eiga það sem sé sammerkt að þeir hafa aldrei komið á fund í félaginu, aldrei skipt sér neitt af kjarabaráttu þess, aldrei lagt á sig hálfrar stundar erf- iði í þágu þess — nema ef telja skyldi þá fórn að sitja fyrir hjá ljósmyndara. En sennilega er einmitt þetta kennimerki hins sanna lýðræðissinna — að minnsta kosti eiga allir þeir lýðræðissinnar sem myndir hafa birzt af í blöðum til þessa sammerkt í alfullkomnu áhuga- leysi um hagsmunamál félaga sinna. Og þeir eiga raunar enn eitt sameiginlegt, þeir eru allir íhaldsmenn, valdir úr kjör- skrám atvinnurekendaflokksins niðri í Sjálfstæðishúsi — að undanteknum einum í hverju félagi, Alþýðuflokksmanni sem fær að fljóta með af náð. • 5020, 7105 og 6066 Með myndunum af hinum sjö lýðræðissinnum fylgir áróð- ursgrein um að berja nú á „kommúnistum“ í Iðju, en „kommúnistar“ eru þeir menn sem byggt hafa Iðju upp, lagt á sig fórnfúst starf í þágu hennar og þannig tryggt iðn- verkafólki þau lífskjör sem það hefur búið við undanfarin ár. Áróðursgrein þessi er samin niðri í Sjálfstæðishúsi — af Jóhanni Havsteen kammerherra — og hún er birt á áberandi hátt í Morgunblaðinu, Alþýðu- blaðinu og Tímanum, sem þann- ig lúta nú einni yfirstjórn í verkalýðsmálum, — yfirstjóm kammerherrans. Alþýðublaðið birtir auk þess tilkynningu um að kosningasímar lýðræðissinna í Iðju séu 5020, 7105 og 6066. Gái maður í Símaskrána kemur í ljós að 5020 er flokkssími Al- þýðuflokksins, 7105 er flokks- simi Ihaldsflokksins og 6066 er flokkssími Framsóknarflokks- ins. Iðnrekendur borga inginn til Iðnrekendasambands- ins, sem hefur þann gróða af starfi iðnverkafólks að hægt er að sjá af álitlegum fúlgum í þágu lýðræðisins. Þeir sem tor- tryggnari eru munu hins vegar minnast þess að hvorki iðnrek- endur, þríflokkarnir né blöð þeirra hafa áður sýnt samsvar- andi áhuga á málefnum Iðju, t. d. í kjarabaráttu hennar. Það er t. d. ekki langt liðið síðan iðnrekandinn Sæmundur Ólafsson, varaforseti Alþýðu- sambandsins, krafðist þess í A1 þýðublaðinu að Iðja yrði lögð niður í miðri kaupdeilu og undir það var tekið af mikilli gleði í Morgunblaðinu og Tímanum. Þeir sem þetta muna eru ekki í miklum vafa um það að til- gangur hinnar miklu lýðræðis- ástar nú er að leggja Iðju nið- ur, brjóta á bak aftur baráttu iðnverkafólks fyrir bættum kjörum. En lýðræðissinnarnir sem myndirnar voru birtar af í blöðunum í gær hafa eflaust ekki hugmynd um þetta, því þeir hafa aldrei komið á félags- fund, aldrei skipt sér neitt af kjarabaráttu Iðju og aldrei lagt á sig hálfrar stundar erfiði í þágu hennar, þegar frá er skil- in myndatakan. ★ Skipaútgerð ríkisins. Hekla er í Reykjavík. Esja er fi. Austfjörðum á norðurleið. Herðu breið fér frá Reykjavík á morg- un til Breiðafjarðar og Vestfjarða- hafa. Skjaldbreið fór frá Akureyri i gær vestur um land til Reykja- víkur. Þyrill var í Hvalfirði i gær kvöld. Ármann var í Vestmanna- eyjum í gær. Sklpadelid S.l.S. Arnarfell er í Napóli. Hvassa- fell lestar saltfisk á Vestfjörðum. Eimsklp Brúarfoss er i Gautaborg. Detti foss kom til Vestmannaeyja í gær morgun 23.9. fer þaðan til Kefla- vikur og Vestfjarða. Fjalifoss fór frá Akureyri 22.9. til Húsavíkur. Goðafoss kom til Hull 21.9. fer þaðan 23.9. til Leith og Reykjavík- ur. Gullfoss fór frá Reykjavik kl. 12.00 í gær 23.9. til Leith og Kaup- mannahafnar. Lagarfoss er í R- vík. Selfoss fór frá Sauðárkróki í gær 23.9. til Hjalteyrar og Akur- eyrar. Tröllafoss er í N.Y., fer þaðan væntanlega 26.9. til Halifax og Reykjavikur. Reykvíkingar I Nú heita konur í Hallgrimssókn á ykkur að koma í Oddfellow í dag frá kl. 2—6 og drekka eftin- miðdagskaffi. Aldrei hefur meira né betra verið á borð borið. Kom Ið sjáið og sannfærist. Þannig leggja nú blcð þrí- flokkanna og skrifstofur þeirra á sig fórnfúst starf í þágu lýð- ræðisins í Iðju. Starf þetta er að vonum næsta kostnaðarsamt, fjöldi manns starfar á fullum launum og ógrynni af bílum er til taks, en sem betur fer er kostnaðurinn endurgreiddur. — Það þarf aðeins að senda reikn- 15.15 Miðdegistón- leikar. 16.15 Út- varp til Islendinga erlendis: Fréttir. 18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Step- hensen): a) Ævintýri: „Eitt fær- ir þú mér gott“ eftir Einar M. Jónsson (höfundur les). b) Saga: „Lífið er fagurt" eftir Einar Loga Einarsson, 12 ára (höfundur les). c) Tónleikar o.fl. 19.30 Tónleikar. 20.00 Tónleikar: Kvártett í F-dúr Krossgáta nr. 39 Lár. 1 merkja — 6 afhýddi — 7 frumefni — 8 geymsluna — 10 op — 11 hross — 14 sjá nr 7 — 15 íðngrein — 17 mynt. Lóðr. 2 máttur — 3 máttlaus — 4 á vog — 5 falla — 7 gana — 8 hugsa sig um — 9 fuglinn — 12 eign — 13 skyldmenni — 16 skammast. Lausn á nr. 38 * Lár. 1 skóla — 6 asi — 7 tá — 8 framtíð — 10 æki — 11 skatt — 14 au — 15 ótt — 17 loginn. Lóðr. 2 kar — 3 ósana — 4 lim — 5 háðið — 7 tík — 8 fúsa — 9 tætti — 12 kul — 13 tóg — 16 TN. op. 3 nr. 5 eftir Haydn. 20.35 Er- indi: Stjórnarskrármálið (Jónas Guðmundsson skrifstj.) 21.00 Tón- leikar: Tónverk fyrir víólu og hljómsveit. a) Ensk þjóðlög eftir V. Williams. b) Konsert eftir William Walton. 21.35 Upplestur (Broddi Jóhannesson). 21.45 Tví- söngur úr óperum: Giuseppe de Luca og fleiri syngja. 22.05 Dans- lög. 23.30 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 20.20 Útvarpshlómsveitin (Þórar- inn Guðmundsson stjórnar). 20.45 Um daginn og veginn (frú Bjarn- veig Bjarnadóttir). 21.05 Einsöng- ur: Maggie Teyte syngur. 20.20 Upplestur: „Pólskt sveitalif" bók- arkafli eftir Wladislaw Reymont (Magnús Magnússon ritstj.). 21.40 Tónleikar. 22.00 Fréttir og veður- fregnir. 22.10 Létt lög. 22.30 Dag- skrárlok. Helgidagslæknir: Axel Blöndal, Drápuhlíð 11. — Sími 3951. Næturvörður er í Ingólfsapóteki, sími 1330. MESSUR 1 DAG. CúlVi’B Laugarneskirkja. Uuvfclp Messa kl. 11 f. h. hannssen prédikar. UniKfe? Óháðl fríkirkju- söfnuðurlnn. Messa í Stjörnubíói kl. 11 f.h. Sálma- númer: 671—264—238—682—240. — Sr. Emil Björnsson. — Fríkirkjan. Messa kl. 2 e.h. — Sr. Þorsteinn Björnsson. Opinberað hafa trúlofun sína ung- frú Gyða Ingólfs- dðttir og Sveinn R. Eiðsson frá Fá- skrúðsfirði. Næturlæknir er í Austurbæjarskólanum. — 1 gær voru gef- in saman í hjónaband af sr. Jóni Thórar- ensen ungfrú Kristín Magnús dóttir, Hamri við Isafjörð og Ing var Jónsson, skipasmiður, Kapla- skjólsvegi 12, Reykjavík. SÖFNIN: Landsbókasafnið er opið alla virka daga kl. 10—32, f.h. 1—7 og 8—10, nema laugardaga kl. 10—12 f.h. og 1—7 e.h. — Þjóðminjasafnið er opið kl. 1—3 þriðjud., fimmtu- daga og sunnudaga. — Náttúru- gripasafnið er opið sunnudaga lcl. 1.30—3 og þriðjudaga og fimmtu- daga kl. 2—3. ;— Listasafn Einars Jónssonar er opið kl. 1.30—3.30 á sunnudögum. Ungbarnavemd Líknar Templarasundi 3, verður fram- vegis opin þriðjudaga kl. 3.15—4 og fimmtudaga kl. 1.30-—2.30, ein- göngu fyrir börn sem fengið hafa kighósta eða hiotið hafa ónæmis- aðgerð gegn honum. — Ekki verð- ur tekið á móti kvefuðum börnum. Sími 5030.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.