Þjóðviljinn - 24.09.1950, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.09.1950, Blaðsíða 8
Prentaraíélagið og niálarasveinafé- fulitráa á samkndsfe í ag í dag kl. 1.30 heldur preutarafélagið fund í Alþýðu- húsinu og verffa þar kosnir tveir fulltrúar á 22. þing Al- þýðusambands íslands. Þá hefst í dag allsherjaratkvæða- greiðsla um fulltrúakjör í málarasveinafélaginu. Fer hún fram í skrifstofu Sveinasambands byggingarmanna í Kirkjuhvoli kl. 1—9 og áfram á morgun kl. 2—10. Fram- bjóðandi sameiningarmanna er Kristján Guðlaugsson og Ásgeir Guðmundsson til vara. VINNAN komin út Vinnan, tímarit Alþýðusambands íslands og Full- trúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík kom út í gær. Eru það þrjú tölublöö, 8.—10. tbl., 4 arkir í einu hefti, og flytur greinar um verkalýösmál, sögur, kvæöi og ýmis- legt annaö til fróöleiks og skemmtunar. Forystugrein Vinnunnar nefnist: „Það sexn kom úr ský- inu — og mesta hagsmuna- málið“. Aðrar greinar eru: Að loknu kjörtímabili, eftir Guð- mund Vigfússon, Gengislækkun in og þáttur Benjamíns og Ól- afs, eftir Hauk Helgason, Þjóð ir Asíu brjótast úr fjötrum, eft ir Magnús Torfa Ólafsson, Það búa Inúkar á Grænlandi, eftir Ragnar V. Sturluson, Alþýðu- sambandið aftur í hendur al- þýðunnar. (Ávarp frá form. Dagsbrúnar, Þróttar á Siglu- firði og Verkamannafélags Ak- Reykjavíkur 1 dag hefst á Iþróttav. síðasta knattspyrnumót ársins í meist- arafl. Mót þetta heitir „Haust- mót Reykjavíkur i meistarafl,“ fyrirkomulag mótsins er þannig að leiktími er aðeins 1 klukku- stund, og leiknir 2 leikir hvern sunnudag, meðan mótið stend- ur yfir. 1 mótinu er keppt um bikar sem knattspyrnufélagið Fram gaf til minningar um Ólaf Kal- stað, og hefur verið keppt um þennan grip í eitt skipti, en það var síðast liðið haust. 1 dag leika svo fyrst Is- Iandsmeistararnir K.R. gegn Reykjavíkurmeisturunum Fram, Framnaid á 5. síðu H e / / ö s Nýtt bindi aí Söau mannsandans eftir Ágúst H. Bjarnason Út er komin þriðja bókin í iritsafni Ágústs H. Bjarnasonar, Saga mannsandans. Heitir þstta bindi Hellas og fjallar um sögu og menningu Forn-Grikkja. — Bókin er hátt á fjórða hundrað blaðsíður, með fjölda myndum og kortum af sögusvæðunum. "'Bókar þessarar útgefandi er Hlaðbúð, Reykjavík. ureyrarkaupstaðar. Sjómenn kæra stjómarkjörið í Sjómanna félagi Reykjavíkur, Óafsakan- leg framkoma, eftir Jóhann L. Einarsson, Verkföll í tíma og ótíma, Hneyksli í markaðsmál- um. Björn Bjarnason skrifar þáttinn: Af aíþjóðavettvangi. Björn Sigfússón: Aldir meist- ara Jóns. Björn Þorsteinsson: Til gamans og fróðleiks (ls- lenzkir hugvitsmenn og Verð- lag á Islandi 1420). Þá er För til Mið-Evrópu, kafli úr óprent aðri bók eftir Jón Rafnsson. Á- varp verkalýðsleiðtogans Louis Saillant til unnenda friðarins. Mvndir og frásagnir af vinnu- heimili SÍBS í Reykjalundi. Sjálfvirkar verksmiojur, kafli úr samnefndri bók rússneska rithöfundarins Michail Iljin. Birtar eru sögur eftir Maxim Gorki, Árna úr Eyjum, P. . Wodehouse og kvæði eftir Kristján frá Djúpalæk, Bene- dikt Gíslason frá Hofteigi og Svás Svaldal. Vísnabálkar eft- ir Hólmfríði Jónasdóttur og Orm Ólafsson. Einar Bragi skrifar um málverkabók As- gríms. Birt eru tvö sönglög á nótum: Fánascngur eftir Hall- grím Jakobss. og Veröld fláa eftir Þórarinn Jónsson. Þá eru Kóreumolar, Um Rcykjavíkur- lffið áður fyrr, Esperantonám-í keið fyrir byrjendur, Frá verkalýðssamtökunum og ýmis legt fleira. — Ritið er prýtt fjölda mynda og hið vandað- asta í alla staði. og sprengjnr A Ríkissíjórnin sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þess efn- is að framlag hennar til Kóreu styrjaldarinnar yrði að gefa Suðurkóreubörnum 125 tonn af þorskalýsi. Nú er það að sjálfsögðu fallegt og lofsvert að gefa börnum lýsi, en fram- Iag íslenzku ríkisstjórnarinnar cr því miður annað og meira. Hún hefur lýst yfir ánægju sinni og tekið móralska ábyrgð á morðárásum Bandaríkjanna á varnarlausar kóreskar borgir þar sem myrt hafa verið í þús unda tali saklaus börn, svo að ckki sé minnzt á fullorðið fólk. -ár Vera má að Iýsisgjafirnar séu hugsaðar sem friðþægingar fórn ríkisstjórnarinnar, en þær munu aldrei geta vakið til lífs- ins hin myrtu börn. Og það er engum cfa bundið að cf Banda- ríkin gætu gert morðsprengju úr lýsinu myndu börnum Kór- eu vera fært það í þeirri mynd, enda hefði ríkisstjórn íslands etlaust fagnað slíkri hagnýt- ingu. LIINN Stærstu votheysturnar landsins byggðir á Morpulfssiöðum 9 votheys§ryfj;us byggSe; raeð sjálflyftandi steypamótnm Þessa dagana er verið að byggja tvo stærstu votheys- turnalandsins á Korpúlfsstöðum í Mosfellssveit. Annar turninn var þegar tilbóinn í gær og byrjað að láta í hann há. Mun hvor turninn um sig rýma 30 kýrfóður. Turnamir eru byggðir með hinum fullkomnu steyputækj- um, er sænski verkfræðingur- inn E. Lindmann fann upp, en hann var hér á ferð í fyrra- haust og kenndi þá notkun tækjánna. Keypti SlS þessi tæki til landsins í fvrra að frumkvæði Gísla Kristjánsson- ar, ritstjóra Freys. SÍS keypti upphaflega þrjú sett af umræddum steypu- tækjum. Lét það Samvinnu- byggingafélagi Eyjafjarðar eitt ifl SigurSur GuSmundsson Ijósmyndari heiSraBur r ctr*’. ',íí* p Á föstudagskvöldið komu templarar saman að Jaðri til að heiðra Sigurð Guðmundsson ljósmyndara í tilefni þess, að hann átti nýlega fimmtugsaf- mæli. Það var stjórn Jaðars og Þingstúka Reykjavíkur sem stóðu fyrir hófinu. Vinir Sig- urðar færðu honum forkunnar fagran göngustaf að gjöf, og einn af velunnurum Jaðars, Björgvin Jónsson, færði staðn um sólúr að gjöf, en eins og kunnugt er hefur Sigurður verið einn allrahelzti hvata- og ráðamaður starfsins að Jaðri frá upphafi og formaður Jaðar stjórnarinnar í mörg ár, og fátt gleður hann meira en það sem gert er til .að fegra og prýða Jaðar. Það kom greinilega í ljós í þessu samsæti að Sigurður er vinsæll, enda hefur hann hvorki sparað tíma né fyrir- höfn tö að leggja góðum mál- um lið. Um það ber starf hans að Jaðri og önnur störf hans innan Góðtemplarareglunnar vott, en Sigurður er einnig með al fremstu og kunnustu ljós- myndara bæjarins og mjög starfsamur innan stéttarsam- taka þeirra, en fyrst og fremst er hann góður drengur og vin- sæll af öllum sem til hans þekkja. Nýr tafli Hring- brautarinnar opnaður I gær um hádegi var opnað- ur til mnferðar nýr hluti Hring brautarinnar, en það er um 400 metra kafli frá háskólalóð- inni að Njarðargötu og hefur verið malbikaður undanfarið. Eftir viku til hálfan mánuð verður síðan opnaður annar kafli í austurátt frá Njarðar- gC'tu að Liljugötu. HAPPDRÆTT1SVINNINGUR LANDSSAMBANDS BiANDAÐRA KÖRA Meðal vinninga í happ- drætti L.B.K, er „Piper Cub“ landflngvél. Myndin sýnir sjófTugvél sömu gerðar. Flugvél þessi tek- ur þátt í flugdeginnm. Þeir sem kaupa 10 eða fleiri miða eiga kosf á ókeypis flugferð yfir bæinn. tækið í té, og hefur það byggt turna fyrir norðan. Tækin eru af tveim stærðum, 4m í þver- mál og 5 m í þvermál. Byggja má í hvaða hæð sem er, allt uppí 16 m. I fyrra voru byggðir 9 turn- ar á vegum véladeildar SlS. Þrír þeirra voru 14 m háir og 5 m víðir, en 6 turnar 12(/> m háir og 4 m víðir. Á þessu ári sá véladeild SlS um byggingu 9 votheysgryfja í Borgarfirði, með tækjum þessum og eru gryfjurnar 6 m djúpar og 4 m víðar. Auk þess var turn byggð ur við Víðines á Kjalarnesi I sumar. Leifur Bjarnason, fram- Framh. á 7. síðu, Kinnarhvols- systur sýndar í Vestmannaeyjum Frá fréttaritara Þjóðviljans Vestmannaeyjum í gærkvöldi, f gærkvöldi var hér frum- sýning á Kinnarhvolssystrum, Leikstjóri var Einar Pálsson. Var leiknum mjög vel tekið. Sér staklega þótti góður Ieikur Unrar Guðjónsdóttur í hlut- /erki Ulrikku. Einar Pálsson hefur dvalið í Vestmannaeyjum undanfarin mánuð við að æfa leikinn. Áður en leikurinn hófst flutti hann ávarp til áhorfenda og skýrði frá því að hann starfaði á veg um Sambands islenzkra leik- félaga en það ætlar að aðstoða leikfélög úti um land með leik stjórn, búninga o. fl. og væri þetta fyrsta sýningin á vegum þess. Varizt hættulegar a víðavaitgi Laugardaginn 16. sept. kom Önundur Jósepsson að 5 börn- um sem voru að leika sér að sprengju í Kársnesi við Skerja- f jörð þannig að sum þeirra lágu yfir henni og voru að slá stein- um í hana. Litlu munaði að þarna yrði stórslys, er því full ástæða til þess að aðvara bæði unga og gamla, sem finna slík morðtól að afhenda þau næsta yfirvaldi sem næst í. Þessi sprengja var afhent Iög reglunni í Reykjavík og var hún fullvirk.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.