Þjóðviljinn - 21.10.1950, Page 1
Sjómaimafélags-
fundurinn
í fyrrkvöld var á margan
hátt sögulegur. Sæmundur
var óvenju hreinskilinn um
afstöðu sína til togarasjó-
manna og kallaði þá AND-
STÆÐINGA sína. — Nánar
um fundinn á morgun.
INHU6A
UM KRÖFUR
12 stunda hvild á öllum veiium og mannsæmandí kaup og kjör
Neifa með 1SS atkv. gegn 65 aS veita sfjSrnlnni falln
aðar Hmboð að semja am kjörin — Engar ákvarðanir
verði teknar án samfsykkis félagsfmáar — Þriggja
manna nefnd úr hépi togaraháseta kosin
Sjómenn sýndu þaö á fundum sínum í Reykjavík og
Hafnarfirði í fyrrakvöld að þeir standa í órofa einingu
um kröfur sínar um 12 stunda hvíld á öllum veiðum og
mannsæmandi kaup og kjör. Minnugir dýrkeyptrai*
reynslu af stjórn sjómannafélagsins harö'neituðu þeir
að afhenda henni réttinn til að semja um kjör sín.
í Reykjavík neituðu þeir með 186 atkv. gegn 65 að
afhenda sæmundunum samningsumboð og í Hafnar-
firði með 45 atkv. gegn 6.
Sjómenn hafa lýst yfir ákvörðun sinni um að hopa
hvergi frá kröfum sínum.
Útgerðarauðvaldið hefur nú bundið togarana við
iand í 113 daga og rænt af þjóðinni 85 millj. kr. í dýr-
mætum gjaldeyri.
Það er krafa alls ahnennings, allra réttsýnna manna,
krafa þjóðarinnar að nú þegar verði gengið að hinum
sanngjömu kröfum sjómanna um mannsæmandi lífs-
kjör og togaramir sendir á veiðar.
Hvika ekki frá 12 stunda hvíldinni — Kjósa
þriggja manna nefnd úr sínum hépi
Á íundi Sjómannaíélags Reykjavíkur var eftir-
farandi ályktun samþykkt einróma:
„Fundur haldinn í Sjómannafélagi Reykjavík-
ur 19. okt. 1950 lýsir yfir
að ekki komi til mála að ganga frá samningum
um kaup og kjör togarasjómanna er ekki feli í sér
ákvæði um 12 stunda hvíld á öllum veiðum.
Ennfremur að ekki verði gengið frá samning-
um nema togarasjómenn fái tækifæri til að kynna
sér sarnningsuppkastið rækilega, enda verði þau
rædd á fundi þeirra og borin undir atkvæði.
Fundurinn samþykkir að kjósa þriggja manna
nefnd úr hópi togarasjómanna til að fylgjast með
og kynnast á milli funda samningaumleitunum og
sáttatillögum."
Skcra á Aiþsitgi a§ samþykkja fnimvarpið am
12 stunda hvíidima
Þá samþykkti fundurinn ennfremur einróma:
„Fundui haldinn í Sjómannafélagi Reykja-
víkur samþykkir að skora á Alþingi að samþykkja
tafarlaust fmmvarp það sem nú liggur fyrir um 12
stunda lágmarkshvíld á sólarhring á togurum, þar
sem hann telur togaradeiluna óleysanlega fyrr en
gengið hefur verið að þessum lcröfum."
í þriggja manna nefndina
úr hópi togarasjómanna kaus
fundurinn þá Bjarna Bjarna-
son, K&rl Sigurbergsson og Þor
stein Þorsteinsson.
Frá hluíleysi til meðmæla.
Þáttur stjórnar Sjómanna-
félags Reykjavíkur á þessum
fundi var hinn lærdómsríkasti.
Hún lagði engar ákveðnar til-
lögur um kjör sjómanna fyrír
fundinn heldur bað einungis um
umboð fyrir sjálfa sig til að
semja við útgerðarmenn, en.
mælti þó með samkomulagstil-
boði (stórútgerðarmannanefnd-
arinnar!) sem hún gaf engar
viðhlýtandi skýringar á. Sæ-
mundur sagðist vita meira en
ekki geta sagt frá því!! Jafn-
framt var hún með dulbúnar
hótanir um að ef sjómenn legðu
nú ekki allt vald í hendur
stjómarinnar myndu þeir illa
staddir.
Ferill stjómar Sjómanna-
félags Reykjavíkur í verk-
fallsmálinu er í stuttu máli
þessi:
Hún fer með sjómannafé-
lagið út í verkfall á þeim
tíma sem útgerðarauðvald-
inu er hagkvæmastur.
Sjómannafélagsstjómin
stöðvaði karfaveiðarnar að
sjómönnum sjálfum fornspurð
um og bannaði þeim þannig
að vinna fyrir sæmileg kjör.
Hún var „hlutlaus“ um
smánartilboðið.
Nú er hún komin frá „hlut
leysi“ yfir á það að mæla
með samningatillögum stór-
útgerðarmanna.
Kjaraorku-
vandamálið
NtR BÆKLINGUR
Eftir hádegi í dag verður
seldur á götunum nýr bækl-
íngur „KjarnorkuvandamáJ-
ið: Það sem menn þurfa að
vita.“ Höfundur hans er
einn af kunnustu kjarnorku
fræðingum Frakka, Pierre
Biquard, og dregur hann
saman í stuttu máli helztu
staðreyndirnar um kjarnorku
sprengjuna og áhrif hennar
og giidi friðarbaráttunnar.
Útgefandi bæklingsins er
íslenzka friðarnefndin, og
verður hann seldur til ágóða
fyrir friðarbaráttuna hér
innanlands.
Stokkhólmsávarpið
VÉR HEIMTUM skilyrðislaust bann við kjarn-
orkuvopnum, vopnum til að skelfa og
myrða með friðsaman almúga.
VÉR KREFJUMST þess að komið sé á ströngu
alþjóðlegu eftirliti til tryggingar því,
að þessu banni verði framfylgt.
VÉR ÁLÍTUM að hver sú ríkisstjórn, sem fyrst
beitir kjarnorkuvopnum gegn hvaða
þjóð s'em er, fremji brot gegn mannkyn-
inu og geri sig seka um stríðsglæpi.
VÉR HEITUM á alla góðviljaða menn hvar-
vetna um heim að undirrita þetta ávarp.
Nafn
Atvinna og lieimilisfang
Þeir sem ekki hafa haft aðstöðu til að skrifa undir
Stokkhólmsávarpið á annan hátt geta skrifað nöfn sín
liér, klippt ramman út og sent hann afgreiðslu Þjóðvilj-
ans, Skólavörðustíg 19, Bókabúð Máls og menningar,
Laugavegi 19, Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu, Skrif-
stofu Dagsbrúnar, Alþýðuhúsinu eða Skrifstofu Sósíal-
istafélags Reykjavíkur, Þórsgötu 1.
Allir þeir sem vilja taka virkan þátt í söfnun und-
irskrifta eru beðnir að snúa sér til Skrifstofu Sósíal-
istafélags Reykjavíkur, Þórsgötu 1, í dag.
Sykur fyrir 12 milljónir’-
sement fynr fimm!
Fyrstu átta mánuði ársins í fyrra var fluttur inn
sykur fyrir tæpar fimm milljónir og sement fyrir rúmar
flmm, fyrstu fimm mánuði ársins í ár var sykur fluttur
inn fyrir tæpar 12 milljónir — en sement fyrir rúmar
íimm! Miðað við gengislækkunina hefur sementsmagn-
ið þannig minnkað um a.m.k. þriðjung, en sykurmagnið
aukizt verulega. Sú aukning hefur þó ekki farið til heim-
ilanna svo neinu nemi heldur til framleiðslu á sælgæti
og hverskyns gumsi, að ógleymdum menningardrykkn-
iim kókakóla
Magnús Kjartansson benti á
þessa staðreynd á þingi í gær
í framsöguræðu fyrir frum-
varpi sósíalista um húsnæðis-
mál, en í því er svo fyrir mælt
að lögin um útrýmingu heilsu-
spillandi húsnæðis taki fullt
gildi á ný. Minnti Magnús á að
loforðin um að hluti af gróða
bankanna vegna gengislækkun-
arinnar skyldi renna til út-
rýmingar heilsuspillandi hús-
næðis hefðu reynzt alger svik
og rakti í stórum dráttum eymd
arástand í húsnæðismálunum,
sívaxandi húsnæðisskort og sí-
minnkandi byggingarfram-
kvæmdir.
Þingmenn annarra flokka sáu
enga ástæðu til að ræða málið
og var því vísað til annarrar
umræðu og félagsmálanefndaru