Þjóðviljinn - 21.10.1950, Síða 4
3
WÓÐVILJINN
Laugardagur 21. október 1950
þJÓÐVILJINH
Ctgefandl: Samelnlngarflokkur alþýBu — SósíalÍBtaflokkurlnn.
Rltstjórmr: Uagnúa Kjartansson (áb.) Stgurður Guðmundsson.
Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Arl Kárason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas Árnas.
Auglýstngastjóri: Jónstetnn Haraldsson.
Rltetjóm, afgrelðsla, auglýslngar, prentsmlðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Símt 7500 (þrjár línur).
Askrlftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. etnt,
Prentsmlðja Þjóðvlljans h. í.
SJÓMENN FASTIR FYRlR
í leiðara Þjóðviljans á fimmtudaginn var talið líklegt, að
„sáttanefnd" Óíafs Thórs og Emils Jónssonar hefði verið skip-
•uð í því skyni að vega aftan að togarasjómönnum, Sjálfstæðis-
flokkurinn væri að herða á steinbítstakinu sem auðvald lands-
ins hefur á forystuliði Alþýðuflokksins svo nægði til að láta
klíku Sigurjóns og Sæmundar sprikla frá áður gefnum loforð-
um og hreystiyrðum og misnota enn aðstöðu sína sem stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur til að þvinga í gegn samninga sem
enginn togarasjómaður teldi viðunandi. Vel má vera að ein-
hverjum heiðarlegum Alþýðuflokksmanni, sem ekki hefur fe'ng-
ið að skyggnast inn í þá óþókka samvinnu Sem bitlingahjörð
Alþýðuflokksins og svörtustu burgeisaklíkur landsins eru komn-
ar í, hafi fundizt þetta óþarfar og illgjarnar getsakir. Fram á
fimmtudagskvöld hefðu ýmsir fylgismenn Alþýðuflokksins í Sjó
mannafélagi Reykjavíkur og Sjómannafélagi Hafnarfjarðar vel
getað verið þeirrar skoðunar. En eftir .þá fundi er það ólíklegt.
Aðvörun Þjóðviljans um , sáttanefnd" Emils Jónssonar og
Ólafs Thórs reyndist á rökum byggð. Þegar á fundi sjómanna-
félaganna kom skýrðu Alþýðuflokksforingjarnir frá nýjum til-
lögum um lausn deilunnar, eða réttara sagt sögðu undan og of
an af frá nýjum tillögum Emils og Ólafs Thórs, og reyndu að
hræða sjómenn til fylgis við þær með dulbúnum hótunum um
annað verra, ef þessu yrði ekki tekið. Og stjómir Sjómannafé-
lags Reykjavíkur og Sjómannafélags Hafnarfjarðar fóru þess
á leit að fá fullt umboð til samninga af hálfu félaganna.
Auðskilið er að slík framkoma hefur verið fyrirskipuð
þessum ,,verkalýðsforingjum“ af þeirri yfirstjórn sem ræður
pólitík samfylkingar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins i
verkalýðsmálum, því elkkert gat fremur veikt aðstöðu stjórna
sjómannafélaganna í samningunum en einmitt slikt umboð,
hitt er að sjálfsögðu miklu traustari aðstaða að geta hvenær
sem er skírskotað til sjómannanna sjálfra, látið vilja þeirra
manna sem eiga að búa við kjörin ráða úrslitum þegar að því
kemur að hafna eða samþykkja. Og að ætla að neyða sjómenn til
þess að glöggva sig á jafnflóknum samningum og hér um ræð-
ræðir, þar sem vísvitandi er reynt að blekkja með því að fara
inn á nýjan grundvöll iaunagreiðslna sem erfitt er að bera sam-
an við ákvæði fyrri samninga með nokkurri vissu, er óþöika-
skapur og ósvífni við félagsmenn sem hafa staðið hátt á f jórða
mánuð í verkfalli, án þess að hægt hafi verið að nudda Sig-
v.rjóni og Sæmundi til að halda nema einn fund.
Sjómenn gengu ekki í þá gildru, sem stjórnir félaganna
settu þeim með þessari framkomu. Þeim kom það undarlega fyr-
ir sjónir eftir öll hreystiyrði Sæmundar, ef nú ætti að semja
án þess 12 stunda hvíldin yrði viðurkennd á öllum veiðum, og
þeir tóku þann sjálfsagða kost að fela mönnum úr sínum hópi
að Ikynna sér vandlega hverjar nýjar tillögur, sem fram koma og
hafa síðan úrslitavald á samþykkt þeirra eða synjun í almennri
atkvæðagreiðslu.
Svar sjómanna verður Iengi munað. Þeir gáfu lelagsstjóm
um sínum þá áminningu fyrir þessa augljósu atvinnurekenda-
þjónustu að varla munu þess dæmi í sögu verkalýðshreyfingar-
innar íslenzku að félagsstjórnir hafi fengið slíka útreið. Svar
reykvískra og hafnfirzkra sjómanna, manna sem staðið hafa
í verkfalli hátt á fjórða mánuð, var svo einbeitt og eindregið að
útgerðarburgeisamir, nánustu bandamenn Alþýðufl'okksins 1
SjómannafélagSkosningunum og verkalýðsmálum almennt; öskra
upp í Morgunblaðinu í gær um „cngar sættir í togaradeilunni“.
Sjómenn hafa í eitt skipti fyrir öll sagt það skýrt og afdráttar-
laust að það er ekki hægt að ljúka þessu togaraverkfalli með
því að Alþýðuflokkurinn láti hagsmuni togarasjómanna upp i
bitlingaskuldir sínar við Sjálfstæðisflokkinn, að margfenginni
xeynslu vita sjómenn að engum er betur trúandi til ákvarðana
um brýnustu mál .þeirra en þeim sjálfum. ..............
Þarna sjá menn
kúgunina hjá Rússum!
Dagbók Morgunblaðsins
sleppir sér stundum útí heim-
spekilegar hugleiðihgar, og er
þá gjaman gaman að henni.
Til dæmis um daginn, þá fékk
hún snert af andríki vegna úr-
slitanna á Evrópumeistaramót-
inu i Briissel. Við Islendingar,
smáþjóðin, við fengum tvo
meistara, sagði Dagbókin, en
Rússar, sem eru meira en þús-
und sinnum fjölmennari en við,
þeir fengu ekki nema einn
meistara. (Anzar auðvitað ekki
þeirri staðreynd að Rússar
fengu fjölda meistara í íþrótt-
um kvenna). Og hver er ástæð-
an? Auðvitað sú, að við Is-
lejndingar erum frjáls þjóð,
Rússar hinsvegar, þeir eru ó-
frjáls þjóð, þeir eru kúgaðir,
þeir em í hlekkjum, og þess-
vegna ómögulegir íþróttamenn.
•
Kúgunin hjá
frændum okkar
Héraa er sem sagt mæli-
kvarðinn á frelsi þjóða, ein-
faldur og ljós einsog öll sönn
vísindi: Hvemig gengur þeim
á íþróttamótum ? — Fyrir fjór-
mn árum fengu Svíar ellefu
Evrópumeistara, nú fengu þeir
aðeins einn. Aumingja Svíar,
mikið er búið að kúga þá síðan
fyrir fjórum árum. Eða þá
Danir. I Brússel fengu þeir
ekki einn einasta meistara,
komust jafnvel hvergi lengra
en í 5. eða 6. sæti. Ekki vildi
ég vera danskur og elska frels-
ið. — Það er með öðmm orðum
ekki sérlega fagur vitnisburður
sem fæst um ástandið hjá
frændum okkar á Norðurlönd-
um, þegar það er athugað í
Ijósi hinnar nýju vísindakenn-
ingar um útreikning á frelsi
þjóða „samkvæmt finnsku stiga
töflunni".
m
Er steinninn ekki
á réttum stað?
„Gamall grúskari" skrifar:
„Mér datt í hug, í sambandi við
skrif Bæjarpóstsins um leiði
Sigurðar Breiðfjörð, að skjóta
þar að fáeinum orðum. — Ein-
hvem tíma sagði mér gamall
maður, að steinninn á leiðinu
hefði áður staðið á öðrum stað
en hann stendur nú, ofurlítið
neðar, skildist mér, og vildi
þessi gamli maður halda því
fram, að nú væri hann ekki
lengur þar yfir sem Sigurður
liggur grafinn.... Mér þætti
vænt um, ef fróðir menn vildu
annað hvort hnekkja þessari
sögu gamla mannsins, eða stað-
festa hana. Því að auðvitað
fyndist manni viðkunnanlegast
að steinn til minningar um
Sigurð stæði nákvæmlega þar
sem hann liggur grafinn. —
Gamall gruskari“.
Vantar jafnvel klósett-
pappír í spítölonum
N. N. skrifar: „Kæri Bæjar-
póstur! —Ég var að, lesa hjá
þér í dálkunum bréf eftir
einhvern, sem er ekkert hrif-
inn af þessum stjómendum okk-
ar, sem ekki geta einu sinni
séð þjóðinni fyrir klósettpappír
.... Þó er ástandið í þessum
málum ef til vill ennþá verra
en almenningur heldur. Það
sannar m. a. feftirfarandi dæmi.
Maður, sem ég þekki, þurfti
nýlega að leggjast á sjúkra-
hús til uppskurðar, haldinn sjúk
dómi í þörmunum. Og hvers-
konar pappír halda menn að
honum hafi verið ætlað að
nota, þegar hann þurfti að
fara á salerni? Það voru dag-
blöð, gömul dagblöð, sem höfðu
gengið mann frá manni. Sótt-
hreinsaður klósettpappír virðist
þannig ekki einu sinni vera til
á sjúkrahúsum þjóðarinnar. —
N. N.“.
Vinnupallar
loka gangstóttum
Loks fáein orð um vinnu-
palla: ,,. .. . Skyldi hvergi vera
tekið fram í reglugerð um þessa
vinnupalla, hvað þeir mega
ná langt út á gangstéttina. Þó
er kannski ennþá verra, að
stundum er ekki hægt að kom-
ast undir þá fyrir fjölunum,
sem negldar eru þvers og kruss,
og loka bókstaflega alveg gang-
stéttinni.... Hér finnst mér
að þörf sé strangari fyrirmæla.
— R. I.“.
víkur. Goðafoss kom til Gauta-
borgar 16.10. frá Keflavík. Gull-
foss er i Kaupmannahöfn. Lagar-
foss fór frá Kaupmannahöfn 19.10.
til Flekkefjord, Ekersund og R-
vikur. Selfoss er i Stokkhólmi.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 18.10.
til N-Foundland og N.Y.
&
yy 14.00 Útvarp frá
hátíðasal Háskól-
ans; — Háskóla-
hátíðin 1950: a)
Háskólarektor, Al-
exander Jóhannes-
son þrófessor flytur ræðu. b) Jó-
hann Sæmundsson prófessor flyt-
ur fyrirlestur: Helztu nýjungar
síðustu ára í lyflæknisfræði. c)
Dómkirkjukórinn syngur; Páll ls-
ólfsson stjórnar. 15.30—16.25 Mið-
degisútvarp. -— 16.25 Veðurfregnir.
20.20 Kvöldvaka: a) Hugleiðingar
við missiraskiptin (séra Sveinn
Víkingur). b) 20.40 Takið undir!
Þjóðkórinn syngur; c)20.55 Úr
gömlum blöðum og bréfum. Upp-
lestraþættir. d) 21.35 Takið undir!
Þjóðkórinn syngur; 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.05 Danslög.
01.00 Dagskrárlok.
Ríkisskip
Hekla er á leið frá Austfjörðum
til Akureyrar. Esja er á Austfjörð-
um á suðurleið. Herðubreið er í
Reykjavík. Skjaldbreið var vænt-
anleg til lsafjarðar í gærkvöld.
Þyrill er væntanlegur til Reykja-
víkur í dag. M.b. Þorsteinn fer
frá Reykjavík kl. 12 á hádegi í
dag til Vestmannaeyja.
SkipadeUd SIS
Arnarfell var væntanlegrt til
Skagastrandar í morgun. Hvassa-
fell er í Genúa.
Eimsklp
Brúarfoss fór frá Þórshöfn í
Færeyjum 7.10., væntaniegur til
Grikklands 19.—20.10. Dettifoss
kom til Hull, 18.10. fer þaðan 20.10.
til Leith og Rvíkur. Fjallfos?
fór frá Gautaborg 18.10. til Reykja
Morgunblaðið segr
ir í gær að Tímlnn
líki landbúnaðin-
um við iotterú
Skilsí manni jafn-
framt, að Tírninn
sé orðinn Iiálf þreyttur á því lott-
eríi, — og styður þetta þann grun
sumra, að Halldór frá Kirkjubóii
hafi þar roynzt blaðinu næsta
þungbær vinningur.
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Elín Hall-
dórsdóttir, Dálks-
stöðum Svalbarðs-
strönd. og Óttar
Ketilsson, Finnastöðum, Eyjafirði.
— Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Rósfríður Vilhjálms-
dóttir Sniðgötu 3, Akureyri og
Hörður Garðarsson búfræðingur,
Rifkelsstöðum. — Nýlega opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Laufey
Jóhannsdóttir Hlíðarhúsum, Sand-
gerði og Ingvi Þ. H. Geirsson,
Hafnargötu 65, Keflavík. — Ný-
lega opinberuðu trúlofun sína ung
frú Gróa Finnsdóttir frá Flateyrl
og Ólafur K. Björnsson, loftskeyta
maður á b.v. lsborg.
MESSUR A MORGUN:
Nesprestakali.
Messa . í Mýrar-
húsaskóla kl. 2.30
síðdegis. Sr. Sig-
urður Pétursson.
prédikar. — Sr.
Jón Thórarensen. — Laugarnes-
kirkja. Messa kl. 2 e.h. Sr. Garðar
Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl.
10.15 f.h. — Séra Garðar Svavarsr
son. Fríkirkjan. Messa kl. 2 e. h.
— Sr. Þorsteinn Björnsson. Óháði
fríkirkjusöfnuðurinn. Fermingar-
guðsþjónusta í kapellu Háskólans
kl. 4 e.h. — Sr. Emil Björnsson.
1 dag verða
gefin saman S
hjónaband af
séra Þorsteini
Björnssyni, ung
frú Katla Ólafs
dóttir, Tryggvagötu 6 og Ari Guð-
mundsson bankaritari, Barónsstig
Framhald á 1. síðu.
Pehhirðu bœinn?
Myndaþraut 1.
Hér munu næstu dagana
birtast myndir frá ýms-
um stöðum í bænum, til-
gamans lesendum að
spreyta sig á því, hvort
þeir getl þekkt það sem
þar gefur að iíta, og
jafnframt fundið út hvað
an myndirnar eru tekn-
ar. Hvað er það t. d. sem
helzt sést á myndinni hér
til vlnstrl og hvaðan er
hún tekin? — Lausn
verður blrt á þriðjúdag-
inn kemur.