Þjóðviljinn - 16.12.1950, Side 4
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagui' 16. des. 1950.
Þjóðviljinn
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áþ-) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14,00 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Afrek svörtu samfylkingarinnar
„Það er alger lágmarkskrafa, að þegar í stað fáist
kaup í samræmi við útreiknaða vísitölu hvers mánaðar,
og felur þingið væntanlegri sambandsstjórn að fylgja
þeirri kröfu vægðarlaust fram við ríkisstjórnina.“
Þannig lauk meginsamþykkt síöasta Alþýðusam-
bands um dýrtíöina og kaupgjaldiö. Áður haföi þingiö
rakið hinar ömurlegu afleiðingar gengislækkunarinnar,
„samdrátt atvinnulífsins og gífurlegar verðhækkanir
allra lífsnauösynja." Ef lágmarkskröfum verklýössamtak-
anna fengizt ekki framgengt fól þingiö sambándsstjórn
„að spyrna við fótum, stöðva kjararýrnun þá,
er af þessu hefur leitt, og hef ja sókn fyrir því, sem
*•* tapazt hefur, batnandi lífskjörum.
5*# „Felur þingið hinni væntanlegu sambands-
stjórn að setja öllu ofar að sameina verklýðsfé-
4 lögin til samstilltra átaka í þessu efni.
| „Þingið leggur ríka áherzlu á, að væntanlgg
f~ stjórn A.S.Í. hafi forustu um. að félögin leggi gam-
A eiginlega til þeirrar baráttu, sem framundan er,
*' meðal annars með því að sambandsfélögin sam-
ræmi uppsagnarákvæði samninga sinna betur en
orðið er . . .“
AlþýðusambandsþingiÖ markaði stefnu sína skýrt og
skorinort, þannig að vaMhöfunum átti ekki að dyljast
hvaö í húfi væri ef enn væri gengið á rétt launþega. Ef
allt heföi veriö með felldu heföi sá skilningur mótað allar
tillögur ríkisstjórnarinnar og störf alþingis.
En því fer víös fjarri að svo hafi orðið, þvert á móti
virðast ráðamenn þjóðarinnar líta á meginsámþykkt Al-
þýðusambandsþings sem ómerkt hjal og viðurlög þau sem
sambandsstjórn er falið að framkvæma sem innantómt
oröagjálfur. Þeir samþykkja eins og ekkert hafi í skorizt
aö hækka tolla og skatta um ca. 10 milljónir, þeir til-
kynna nýjar veröhækkanir dag eftir dag. og nú hafa
þeir kórónað fyrirlitningu sína á alþýðusamtökunum meö
tiilög-u um þaö að vísitalan veröi bundin í 122 stigum og
aukin dýrtið aö engu bætt frá næstu áramótum. Óvíða í
heimi myndu heildarsamtök vinnandi fólks vera óvirt á
jafn gegndarlausan hátt.
En hvaö veldur þessari óvirðingu, hvað veldur þeirri
ró ríkisstjórnarinnar að hún skuli þora að ráðast í slikar
aðgerðir eftir samþykkt Alþýðusambandsþings. Skýringin
er sú aö ríkisstjórn auömannastéttarinnar þykist nú
eínnig drottna yfir heildarsamtökum alþýðunnar. Þaö er
hin svarta samfylking gengislækkunarflokkanna og Al-
þýðuflokksbroddanna sem veldur ró stjórnarherranna.
Sama daginn og ríkisstjórnin flutti frumvarp sitt um
aukna skatta og tolla. á nauðsynjum voru Alþýöuflokks-
broddarnir að afhenda agentum atvinnurekenda meiri-
hluta stjórnar Fulltrúaráös verklýðsfélaganna í Reykja-
vík, og er þá að undra þótt ríkisstjórríin telji sér fært aö
láta alvarlegustu samþykktir Alþýöusambandsins sem
vind um eyru þjóta.
En hversu lengi veröur þessi smán þoluö? Það er
engum efa bundið aö miklum meirihluta fulltrúanna á
Alþýðusambandsþingi var fullkomin alvara með sam-
þykkt þeirri :sem hér hefur verið vitnaö til, og hún er í
samræmi við vilja verkamanna um land allt. En til þess
að fylgja samþykktinni eftir þarf annaö og meira en
undirlægjuhátt og samstarf viö agenta auömannastétt-
arinnar innan verkalýðshreyfingarinnar. Stefna Alþýöu-
flokksbroddanna færir alþýöunni ófarnaö; nú er tími til
kominn að verkairíenn geri uppreisn.
Fa§tir liðir eins .og„
venjulégá. Kl. 2Ö.3Q
Leikþáttu^ „Rósir
allt . áriá“, eftir
Julio Dantas. —1
Leikstjóri: Þói-a
Borg. Leikendur,: Emilia Borg og:
Elín Ingvarsdóttir. 20.55 Upplestr-
ar úr nýjum bókum — og tónleik-
ar. 22.00 Fréttir og veðutfregnir.
22.10 Danslög (plötur). 24.00 Dag-
skrárlok.
EIMSKIF:
Brúarfoss er á Vestfjörðum, lest
ar frosinn fisk. Dettifoss fór frá
N.Y. 10.12. til Reýkjavíkur. Fjall-
foss fór frá Reykjavík 13.12. vest
ur og norður og til útlanda. Goða
foss kom til Gautaborgar 14.12,
fer þaðan til Hull og Reykja-
víkur. Lagarfoss fór frá Reykja-
vik kl. 22.00 i gærkvöld 15.12. til
Akureyrar. Selfoss fór frá Amster
dam 14.12 til Rotterdam og Leith.
Tröliafoss kom til New York 10.12
fér þáðan væntanlega 29.12 til
Reykjavíkur. Laura Dan fór frá
Halifax 7.12, væntanleg um hádegi
á morgun 16.12. til Reykjavíkur.
Vatnajökull fóri frá Kaupmanna-
höfn 11.12, til Reykjavikur.
Skipadeild SIS
Arnarfell er væntanlegt til
Reykjavíkur n.k. mánudag, frá
Spáni. Hvassafell er væntanlegt
til Akureyrar á morgun, frá
Stettin.
Ríkisskip
Hekla fer frá Reykjavik i kvöld
aústur um iand til Akureyrar.
Esja er á Áustfjörðum á austur-
leið. Herðubreið fer frá Reykjavík
á mánudaginn til Breiðafjarðar-
og Vestfjarðahafna. S.kjaldbreið
var væntanleg til Sauðárkróks í
gærkvöld á norðurleið. Þyrill er i •
Reykjavík. Ármann á að fara frá
Reýkjavík í dag til Vestmannar
eyja.
Rafinagnsskömmtunin. I dag
(laugardag) mun ekki verða
straumlaust neinsstaðar á orku-
veitukerfi Sogsvirkjunarinnar þar
eð apennulækkun er að jafnaði
mun minni á laugardögum og
sunnudögum.
BM-
5 á venjulegum stað.
Stundvísi.
SÖLUBÚÖIR verða opnar til kl.
10 í kvöld.
Listsýningin i Sýningarsal Ás-
mundar Sveinssonar við Freyju-
götu er opin daglega frá kl. 2
til 10 e. h.
Norman Krasna:
EISKH EIIT
Sýning í Iðnó annað kvöld,
sunnudag klukkan 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag
frá kl, 4—7. — Sími 3191
Síðasla sýning fynr jól.
Úr fórum Jóns Arnasonar.
„Þafi er gullfallegt.
Það verður undrasafn.“
sagði Guðbrandur Vigfússon um þjóðsögurnar. — Bók-
in segir frá þjóðsagnasöfnuninni og hinum mörgu hjálp-
armönnum Jóns um land allt, er einskonar myndasafn
af mönnum og málefnum síðustu aldar.
Útgefandi er Finnur Sigmundsson.
Af hinum mörgu mönnum, er hér ,koma við sögu, skulu ^
hér aðeins nefnd fjölskylda Sveinbjarnar Egilssonar,
Gröndal og frú Þuríður Kúld, Jón forseti, síra Sigurður
Gunnarsson, síra Björn í Laufási, síra Arni Helgason,
síra Skúli Gíslason, Bólu-Hjálmar, síra. Guðmund'ur á
Kvennabrekku, Matthías, síra Sveinn Níelsson, síra Gunn
ar á Hálsi, Jón á Gautlöndum, Jón Borgfirðingur og
Maurer.
Herra Jón Arason.
Eftir Guðbrand Jónsson. Höfuðrit um ævi Jóns Arason-
ar og aldarbrag siðskiptaaldar. — Hefðarútgáfa gefin
út á 400. ártíð Jóns og sona hans.
Fonnannsævi í Eyjúm.
Eftir Þorstein Jónsson í Laufási. Merkilegur uppdráttur
með örnefnum og bátamiðum Vestmannaéyja fylgir. —
Þetta er öndvegisbók um langa og djarfa og farsæla sjó-
sókn. — Kjörbók allra, er sjónum unna.
Þjóðsagnakver Magnúsar Bjarnasonar
frá Hnappavöllunr
Þetta er gamalt þjóðsagnasaín, sem nú er ]mi prentað í
fyrsta sinn. í safninu er margt óþekktra sagna, og um
sumt harla fornlegar. Jóharin Gunnar Ólafsson skrifar
um höfundinn og merkileg örlög .þans og kversins.
Fornir dansar.
Þetta eru hin gömlu danskvæði, sem þeir Jón Sigurðsson
og Grundtvig söfnuðu, í nýrri aukinni útgáfu eftir Ólaf
Briem með teikningum Jóhanns Briem. Útgáfan er afar
vönduð og mun þetta vera ein fegursta bók síðnstu ára.
Saga mannsandans.
Menningarsaga Ágústs H. Bjarnasonar. „Þetta rit er stór
virki, fróðlegt og, menntantli og alþýðlega skrifað. Bókin
veitir lesandanum kynni af ýmsum mestu liugsuðum og
andans stórmennum, sem uppi hafa verið, og síðast en
ekki sízt, hún fær hann til að hugsa sjálfan,'* segir Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum í ritdómi.
FYRIR YNGRA FÖLKIÐ:
<r ■
Vaskir drengir.
Drengjasaga eftir Dóra Jónsson. Gerist á Vestfjörðum.
Bráðskemmtileg saga við hæfi vaskra drengja.
Kóngsdóttirin fagra.
Ævintýri eftir Bjarna M. Jónsson.
ÁlfaguII.
Ævintýri eftir Bjarna M. Jónsson.
„Frábærar barnabækur," sagði síra Jakob Kristinsson í
ritdómi.
Jólavísur.
Eftir Ragnar Jóhannesson með myndum eftir Halldór
Pétursson. Vísurnar, sem börnin syngja iim jólin.
Vísnabókin.
Valið hefur Símon Jóh. Ágústsson. Teikningar eftir Hall-
dór Pétursons. — Bókin, sem öll bórn vilja eignast.
Sagan af Helgu Karlsdóttur.
Ævintýri úr þjóðsögunum með myndum, gerðum 1867, af
Lorenz Frölich. —Skemmtilcgustu þjóðsagnamyndirnar.
HlaðbúS.