Þjóðviljinn - 19.12.1950, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.12.1950, Blaðsíða 8
STÖBYÁ C Ekki hægt að hefja vertíð á eðlilegum tíma. Afieiðing: „minni afli, ntinni vinna, minni « a Fundur í Útvegsmannafélagi Reykjavíkur, sem haldinn var :s.l. föstudag, samþykkti eftirfarandi: 1. ,,Fundur í Útvegsmannafélági Reykjavíkur lýsir yfir: Þar sem ríkisstjórn og Alþingi hefur enn ckki tekizt að finna leiðir til að skapa viöunandi starfsgrund- völl fyrir vélbátaútveginn. verður ckki hægt að undirbúa vertíðina né hef ja hana á eðlilegum tíma. Afleiðingin al' • þessu verður óhjákvæmiiega sú, að vertíðin verður styttri, minni afli, minni atvinna og minni gjaldeyrisöflun.1 2. „Fundur haldinn í Útvegsmannaíélagi Reykja- víkur 15/11 1950 skorar á stjórn L.Í.Ú. að kalla hið l'yrsta saman aðalt'und sinn, sem frestaö var í nóvember síðastliðnum“. Fulltrúaráð verkaiýðsfékganna í Reykjavík: MótmæSIr m vrnnu Skorar á Alþingi að lella Irumvarp það um vinnu- miðlun sem mi liggur íyrir Alþingi Á fundi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Rsykja- vík, er haldinn var miðvikudaginn 13. þ. m. var eftirfar- andi samþykkt: „Fundur Fulltrúaráðs verkalýðsfélagamia í Reykja- vík, halclinn 13. des. 1950, mótmælir liarðlega þeirri fyrir- ætlun núverandi ríkisstjórnar að fella nú niður framlag ríkissjóðs til vinnumiðlunar í kaupstöðum iandsins í staó jþess að efla starfsemina og auka, sem þó hefði verið full nauðsyn á, eins og atvinnuhorfur eru nú í landinu. Skorar fundurinn cindregið á Alþingi að fella fram- komið stjórnarfrumvarp um vinnumiðlun, en taka hins- vegar upp í fjárlög ryrir 1951 nægilega fjárveitingu til vinnumiðlunar. “ Alþýðuflokksforingjarnir hafa undanfarið afhent íhald- inu hvert verkalýðsfélagið af öðru, sem afborgun til atvinnu- reikendaflckksins uþp í persónu legar bitlingaskuldir sinar. Ár- angurinn af þessari iðju Al- þýðuflokksforingjanna kom jfra.m í því að tveir íhaldsmenn (komnir í Fulltrúaráðið fyrir tilverknað Alþýðuflokksins og • á ábyrgð hans, greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þeir eru á Óðinslínunni, þeir vilja koma cllum vinnuráðningum undir .hina pólitísku ráðningarskrif- stofu Ihaldsins. . Mætti það verða verkamönnum allra flokka nokkurt umhugsunar- efní. Rannsékn lokið Sakadómari liefur nú lokið rannsókn í útvarpsmálinu svo* kallaða, sem fynrskipuð var út af ákærum Ilelga Hjörvars . á útvarpsstjóra. Hefur sakadóm- ari sent dómsmálafáðherra nið- urstöður ranngóknarimiar til á- kvörðunar. Sýning iifprent- •aöra málverka Á sunnudaginn var opnuð í Listamannaskálanum sýning lit- prentaðra málverka eftir rúm- 3ega 100 þekkta erlenda mál- ara, þ. á. m. Leonardo Da Vinci, Raphael og Pablo Picasso, alls um 200 málverk. Auk þess eru til sýnis svartprentaðar myndir af málverkum frægra máiara. Allar eru myndir þessar til sölu og aðgangur að sýningunni ó- keyþis. Morganræíiir í Stjörnubíá Morgunræður í Stjörnu-bíó, nefnist nýútkomin bók og eru það ræður sr. Emils Björnsson- ar í Stjöfnubíó. Ræðtisafnið er gefið út ,.tíl eflingar kirkjubyggingársjóði Óháða Fríkirkjusafnaðarins, ellr. hefði þáð ekki komið út.“ segir höf. í formála. í formálá segir ennfremur: ,,. Þetta eru fj7rstu ræíurnar cem flutt- ar eru í söfnuðinum, í öðru lagi eru þær fyrstu ræðurnar sem höfundiir semur og flytur, o'g í þriðja lagi eru þær fiuttar í opmberu kyikmyndahúsi, sem mun vera. einsdæmi hér á !andi.“ — Áðsókn nð' þesstnn prédikunum sr. EmiJs hefur ver ið meiri cn dæmi cru til um kirkjusökn hér í bæ — og í þessari bók geta merm séð þann boðskap er haft hefur slíkt nð- dráttarafl. í fyrramorgun, kl. rúmlega 9, fór kcna nokkur frá heimili sínu hér í bænum og hefur ekk- ert af henni frétzt síðau jirátt f.yrir lei.t og eí'tirgrennslanir Uigreglunnar. Kona þessi er frú Ragnhild- ur Halidói’sdóttir, Sólvallagötu 6. Er liún fór að lieiman kvaðst hún ætla að sækja mjólk, en síðan er ekkert um ferðir henn- ar vitað. Ragnhildur er 48 ára að aldri, lágvaxin, ljós yfiriitum og kringiuléit með mikið skolleitt liár. Hún var klædd grárri dragt, með brúnan klút bundinn um höfuðið. Þeir sem kynnu að liafa orðið Ragnhejðar varir eftir kl. 9 í fyrramorgim eru góðfúsiega beðnir að lá.ta ránn- sóknarlögregluna vita. Jólahefti Lífs og iisiar Jólaliefti tímaritsins ,,Lif og list“ er komið út, vandaó að efni og frágangi. Steingrimur Sigurðsson skrifar þar um myndlistarsýninguna, sem nú er nýiokið í Þjóðminjasafninu nýja, og -nefnir hann greinina: Evrópusýning íslénzkrar mynd- listar. Fjlgja greininni margar myndir af málverkum, sem voru á sýningunni og er greinin hin athyglisverðasta. Halldór Kiljan Laxness á.þarna grein er nefn- ist Skáldskaþarhugleiðingar um jólin 1950, og kennir þar margra grasa. Þá eru tvær greinar tun Bernard Shavv, önn- ur eftir H. G. Wells, en hin eft- ir Hesketh Peárson og fjallar um persþnuleika Shaws; Jóla- saga eftii’ Francois Mauriac, Fegurð heimsins og Hreinum er allt hreint eftir Markús Ár- elíus, Sveinn Bergsveinsson skrifar um sýningu Þjóðleik- hússins á leikritinu Jón biskup Arason. Loks er greinarikorn um myndabók Kjarvals og jóla- kort Helgafelís og þátturinn A kaffihúsinu. A forsíðu er litmynd eftir franska málarann Georges Rouault. Heftið er 36 síður eða þriðjungi stærra en venjulega.' Hvalfell kom af ísfiskveiðum á laugardaginn með 185 iestir er fóru í frystihúsin, Það fór aftur á ísfiskveiöar á sunnudag- iijn. Haliveig Fróðadóttir kom í gæi raorgun ; hafði hún losað áð- ,Ur 60 tonn í Skúla Magnússon. Hailveig fer aftur á isfiskveið- ar„ Ilelgafejl kom í gær af ís- fiskveiðum og fér aftur á is- fiskveiðar. Askur kom um helg- ina. Bjarni riddari og Surprice komu til Hafnarfjarðar i gær, veiddu báðir í bræðslu. þlÓÐVILJiMV Stöðvast akstur sérleyfisleiða eftir áramótin? „Allar rekstrarvörur íil biíreiða haía stórhækkað í verði vegna hækkandi verðlags ðrlendis, gengis- lækkunar og síhækkandi tolla og skatta'' W Stjórn Félags sérleyfishafa hefur sent blöðum greinargerð lil almennings fyrir ástæðunum að því að „akstur sérleyfisbifreiða kunni að stöðvast eftlr árámótin, ef sérle.vfíshafar verða neyddir til að grípa til ne.yðarráðstafana vegna þeirra fjárhagsörðugleika, sem rekstur sérléyfisbifréiða er liáður, og sem er bein afleiðing hiima þuiigu skattaálaga sem ríkisvaidið hefur lagt á sérleyfishafana. En skattur þessi og álögur eru langtuni þyngri en á öðrum fliitiiingatækjum landsmanna.“ Greinargerðin er allöng og ekki rúm til að birta hana í heild, en þar segir m.a. svo: „Skattar þeir sem sérleyfis- hafar verða að greiða umfram aðra aðila sem annast flutn- inga eru: þungaskattur, sem er kr. 36.00 á hvern 100 kg. þunga bifreiða < og sérleyfis- gjald er nemur 7cc af öllum seldum farmiðum. Auk þess er sérleyfishöfum gert að skyldu að flytja póst ókeypis. . . . Auk þeirra skatta er sérleyfishafa.r verða að greiða umfram aðra aðila, hafa allar rekstrarvörur’ til bifreiða stórhækkað í verði vegna hækkandi verðlags er- lendis, gengislækkunar og sí- hækkandi tolla og skatta af hálfu liins opinbera. — Loks má geta þess að bifreiðagúmmí það sem flutt var inn frá Tókkóslóvakíu s.l. sumar reynd ist gjörsamlega ónýt vara.“ Þá ræðir um tvær leiðir: fargjaldahækkun eða lækkun skatta og álaga. 1948 var leyfð 25% hækkun fargjalda, en „hefði þá þurft að verða 37fá“. Um fargjaldahækkunina segir svo: „Reynslan frá 1948 leiddi það ótvírætt í ijós, að sú leið að hækka fargjöldin var ekki Happdrætti Sósíalista- flokksins 1 gær þegar Þjóðviljinn hafði tal af Guðmundi Hjartarsyni hafði eftirtalinna vinninga í happdrætti Sósíalistaflokksins verið vitjað: nr. 4708, sem var ryksuga, hana fékk Sigurður Jónsson, kaupmaður i Gróttu, Blönduhlíð 7. miðann keypti hann af Einari Andréssyni. Nr. 9295, matarstellið, fékk Kristín Sigurðardóttir Drápuhlíð 31, miðann keypti hún af Áka Jakobssyni. Nr. 12087, sauma- vélina, fékk Sigurður Guðmunds son Suðurlandsbraut 78. -Mið- ann keypti hann* við glugga KRON í Bankastræti. Nr. 92125, rafhaeldavélina, fékk Er- lendur Erlendsson Bergþóru- götu 45. Miðann keypti hann af Guðbrandi Guðmundssyni. -. Vinninganna sé vitjað til Guðmundar Hjartarsonar, Þórs- götu 1, sími 7510. fæi' þá og því síður nú, því ráðstafanir sem leiða það af sér að fólk yerður að neita sér um að nota þessi ódýrustu flutningatæki sem til eru í landinu, eru engin lausn á þessu vandamáli, því það er engin lausn á málinu að gera ráðstafanir sem banna fóiki að nota sérleyfisbifreiðar. Þó væri miklu fljótvirkara að banna rekstur sérleyfisbifreiða með öllu.“ Félag sérlevfishafa ræddi málið á fundi í gær og 29. þ.m. heídur það aftur fund um málið. væníanlegur í febrúar Það stóð til að sænski tafl- meistarinn-Stálberg kæmi hing- að og tefldi á afmælismóti Tafl- félags Reykjavíkur, og urðu það mörgum vonbrigði að af því gat ekki orðið. Nú hefur borizt skeytj^ um að hann geti komið hingað í febtúar n. k. Það var Guð- mundur S. Guðmundsson sem samdi um þetta við Stálberg á tafimótinu í Hollandi. 300 hjálparbeiðnir 1 gærkvöld höfðu þi'jú hundruð manns snúið sér til Vetrarhjálparirinar með hjálp- arbeiðnir. Af þeim liöfðu 123 þegar hletið úrlausn, og var verið að vinna að aðstoð til hinna. Úthlutað hefur verið and- virði 27 þús. króna. Safnazt hafa ellefu þúsund krónur auk fata og matvæla að verðmæti um 1700 kr. í kvöld fara skátar um Vest- urbæinn að safna gjöfum, á miðvikudagskvöld um Austur- bæinn og á fimmtudagskvöld í Laugarueshverfi. Afmælismót TaílSékgs HafnarfjarSas Afmælismóti Taflfélags Hafn- arfjarðar lauk á sunnudaginn. Úrslit urðu þau áð Friðrik Öl- afsson varð efstur með 4U vinn ing. Næstir voru Guðjón M. Sigurðsson og Sigurgeir Gísla- son með 31/. vinning hvor.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.