Þjóðviljinn - 24.01.1951, Síða 4
1
ÞJ OÐVILJIN N
Miðvikudagur 24. janúar 1951,
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
„Stjórnarðiidstaða" Alþýðuflokksins
,.Stjórnarandstaöa“ AlþýSuflokksins er með mjög
sérstæðum blæ.
Meöan flokkurinn var 1 ríkisstjórn batt hann kaup-
" gjaldsvísitöluna. í stjórnarandstööu þykist hann í orði
vera mjög andvígur vísitölubindingu, en í verkalýðsfé-
lögunum vinnur hann öllum árum aö því að agentar
kaupbindingarmanna fái sem mest völd.
Msðan Alþýðuflokkurinn var 1 ríkisstjórn undirbjó
hann gengislækkunina með veröbólgustefnu sinni og kall
a,ði Benjamín til landsins, í stjórnarandstöðu þykist liann
í orði vera mjög andvígur gengislæklcuninni, en vinnur
um leið að því öllum árum að gengisiækkunaragentarnir
fái sem mest völd í verkalýöshreyfingunni.
Meðan Alþýðuflokkurinn var í ríkisstjórn hóf hann
skipulegar aðgerðir til að draga saman framkvæmdir og
koma á atvinnuleysi. í stjórnarandstööu þykist hann vilja
berjast gegn atvinnuleysi í orði en vinnur aö því í verki
aö hjálpa atvinnuleysisagentunum til aukinna valda í
verkalýösféi ögunum.
Þannig mætti taka eitt dæmið af öðru. Þótt Alþýöu-
flokkurinn þykist vera andvíkur stjórnarflokkunum og
stefnu þeirra. heldur það samstarf áfram sem skipulagt
var í valdatíð fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins. Það eina
sem hefur bieytzt er aö í Alþýöublaðinu er haldið uppi
orðaskvaldri gegn samstarfsflckkunum. Tilgangur þess
er sá einn aö blekkja almenning, að sundra andstööunni
gegn stjórn atvinnuleysis og eymdar. Oröaskvaldrið skipt
ir afturhaldsflokkana engu máli, hitt skiptir hins vegar
öllu máli að rnóta aöstoðar Alþýðuflokksbroddanna til að
tryggja völd atvinnurekendaagenta eins og Friðleifs Frið-
rikssonar og annarra slíkra.
Frarasékti og S.Í.F.
Tíminn tekur í gær upp kaflann um SÍF úr grein
Þjóðviljans um thorsarana og bætir við þessari athuga-
sernd:
„Þess minnist Þjóðviljinn ekki, að meðan Áki Jakobs-
son var sjávarútvegsmálaráðherra, hafði hann ekkert við
einokun SÍF að athuga, heldur samþykkti hana fúslega.“
Þessi- athugasemd Tírnans er alger uppspuni. Meðan
Áki Jakobssón var sjávarútvegsmálaráðherra þverneitaði
hann að staðíesta einokun SÍF á saltfiskútflutningnum,
en hún hefur því aöeins gildi að hún sé staðfest af ráð-
herfa. Þá neyddist Hálfdán Bjarnason einnig til aö gera
samning við helztu saltfiskheildsala Ítalíu um skiptingu
á íslenzka saltfiskinum milli þeirra og stofnaði hringinn
SIR sem þessir aðilar voru þátttakendur í.
Þetta gerbreyttist 1947 þegar Framsóknarflokkurinn
komst í ríkisstjórn, þvl eitt fyrsta verk þeirrar stjórnar
var aö staðfvsía einokun SÍF, og fara'ekki sögur af því
aö Framsóknarráðherrarnir hafi haft nokkuö við það
að athuga. Þá leysti Hálfdán Bjarnason umsvifalaust
upp hring þann sem hann hafði neyðzt til aö stofna og
annast nú sjálfur heiidsölu á öllum saltfiskinum ásamt
ítölskum gróðafélaga sínum. AÖrir áðilar fá ekki að kaupa
saltfisk þó þeir bjóði mun hærra verð en Hálfdán Bjarna-
son eins og margsinnis hefur veriö rakið hér í blaoinu.
En það er hægt aö afnema einokun SÍF með öðru
móti en því aö ráöherra neiti áð staöfesta hana. Ef ákveð
inn hluti saltfiskframleiðenda neitar aö fella sig við hana
íellur hún úr gildi. Samband íslenzkra samvinnufélaga
ræður yfir nægri saltfiskframleiöslu til að rjúfa einokun
SÍF, en gerir þaö ekki. Þvert á móti situr Vilhjálmm’
Þór sem fastast í SÍF-stjórninni og virðist kunna þar
mætavel við sig við hlið Richards Thors. Er svo aö sjá sem
hann hafi einhvern annarlegan hag af því aö taka þátt
í þeirri einokun sem Tíminn telur þyngsta baggann á
útveginum ,
KK. 20.
„Fótafúinn“ skrifar Bæjar-
póstinum eftirfarandi: — „Ég
er orðinn gamall sem á grön-
um má sjá, og hef ekki fylgzt
nægilega vel með tímanum. Þeg
ar ég var ungur þekktist þáð
ekki, að óbreyttir almúgamenn
þyrftu að telja fram til skatts,
enda hef ég aldrei lært þiá list
svo vel sé. Þar sem ég er gigt-
veikur og slitinn á sál og lík-
ama.hugðist ég nú sem oftar að
nota kostaboð skattstofunnar
um aðstoð við framtal og fór
því sem leið liggur í Alþýðuhús
ið, en þar eru skrifstofur henn-
ar. Er þangað kom, var margt
fólk fyrir í sömu erindagerðum.
Sumt voru gamalmenni, eins og
ég, aðrir voru fatláðir o.s.frv.
en eitt var sameiginlegt öllu
þessu fólki, sem , þarna beið.
Allir þurftu að standa upp á
endann frammi á gangi. Ég
geri ekki ráð fyrir að skattstof
an ráði yfir svo miklum húsa-
kosti, að hún geti séð af her-
bergi fyrir biðstofu þessa daga
sem mest er að gera við fram-
tölin, en væri ekki hægt að
koma bekkjum eða stólum fyrir
á ganginum þeim til þæginda
sem lengi þurfa að bíða en erf-
itt er að standa allan tímann?
Fótafúinn".
□
Iívar er vinningaskráin?
Bréf frá SD: — „Ég keypti
happdrættisskuldabréf rikis-
sjóðs í A-flokki, á sínum tíma,
én varð fyrir því óláni að glata
bréfinu. Nú er það komið í leit-
irnar, og fimm sinnum hefur
verið dregið í þessum flokki.
Nú hugði ég gott til glóðarinn-
ar, að grennslast eftir því hvort
ég hefði ekki unnið, og fór til
ríkisféhirðis. Þar gat ég fengið
upplýsingar um þirjú skiptin,
sem dregið hefur verið, en eng-
ar um tvö fyrstu skiptin. Vinn-
ingalisti yfir þau var ekki til,
og ekki gat stúlka sú er af-
greiddi mig gefið neinar upplýs-
ingar um hvar ég gæti fengið
þær. Mér þótti þetta, að von-
um allhart, og vil því biðja
þig bæjarpóstur, að koma á
framfæri fyrir mig spurningu
um, hvar hægt sé að fá þessa
vinningalista. — SГ.
□
Lífvörðurinn til taks.
„Nú fer Eisenhower að koma.
Hann hefur verið í göngum og
eftirleitum um Vestur-Evrópu
þvera og endilanga til þess að
reyna að tryggja framgang fyr
irætlana Bandaríkjanna. Eftir
fréttum að dæma hefur honum
ekki allstaðar verið tekið með
óskiptum fögnuði, því að marg-
víslegar ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að vernda hans
dýrmæta líf. Vonandi verða ís-
lendingar ekki eftirbátar ann-
irra um að gera viðeigandi ráð-
stafanir. Þáð var strax spor í
rétta átt, að fjarlægja úr forn-
sölum alla byssuhólka, riffla,
skammbyssur og fallstykki. Nú
ir líka hægt að grípa til liðsins
'rá 30. marz. Það mun eiga að
/erða einskonar Iífvörður, varla
rétt að kalla heiðursvörð. Senni
lega verður það látið standa
með vissu millibili á leiðinni
frá Keflavík og hingað. En
hvernig er það, væri ekki rétt
að fjarlægja allt grjót sem er
á þeirri leið? Ég man ekki bet-
ur en að nærri stappaði að illa
færi fyrir einhverjum höfðingja
sem þarna þurfti að fara um,
vegna þess að menn voru eitt-
hvað að fitla við grjót, ekki
langt frá veginum. Að vísu
mun hafa komið í ljós, áð grjót-
nemarnir höfðu ^kkert illt í
huga, en allur er varinn bezt-
ur. — Ks“
B' JT
ZW
wlij_zm
Lárétt: 1 furða — 4.+ 5. snjór
— 7 sniðhallt -— 9 bringa — 10
skán — 11 títt — 13 óm — 15 .
auk -— 16 sýður.
Lóðrétt: 1 ending — 2 hik — 3
fer í fiskitúr — 4 menntastofnun
— 4 skrafhreif — 7 eldstæði — 8
hefur eignarréttinn — 12 kaðall —-
14 eldsneyti — 15 snemma.
Lausn á n r. 19.
Lárétt: 1 tákna — 4 sá •— 5 fb
— 7 slæ — 9 ami —• 10 tók — .
11 gat — 13 ai — 15 ið — 16
ógnun.
Lóðrétt: 1 tá — 2 kól — 3 af — ,
4 svara — 6 lokuð — 7 sig —•
8 ætt — 12 ann — 14 ló — 15
in.
ísíisksalan.
Hinn 22. þ.m. seldi Jón Þorláks-
son 3610 kit í Grimsby fyrir 11977
pund. Hinn 23. þ.m. seldi Geir
3354 kit í Grimsbý fyrir 12486
pund og er það þriðja bezta salan
á þessu ári.
Eimsfeip
Brúarfoss er i Reykjavík, fer
í dag 24.1. til Grimsby. Dettifoss
kom til Gdynia 21.1. . fer þaðan
til Kaupmannahafnar, Leith og
Reykjavikur. Fjallfoss er í Reykja
vík. Goðafoss fór frá Reykjavík
17.1. til N.Y. Lagarfoss fer frá
Roykjavík 23.1. austur og norður
um land. Selfoss fór frá Reykja-
vík 15.3. vestur og norður og til
Amsterdam og Hamborgar. Trölla
foss fór frá Reykjavik 15.1. til St.
Johns og N.Y. Audumla hefur
væntanlega farið frá Immingham
22.1. til Reykjavikur.
Rífeissklp
Hekla er væntanleg til Reykja-
víkur í dag að vestan og norðan.
Esja er á leið frá Austfjörðum
til Akureyrar. Herðubreið var vænt
anleg tii Akureyrar í gærkvöldi.
Skjaldbreið var væntanleg til R-
víkur í gærkvöld. Þyrill er i Faxa-
flóa. Ármann fer frá Reykjavík í
dag til Vestmannaeyja.
Fastir liðir eihs og
venjulega. — Kl.
18.15 Framburðar-
kennsla í ensku.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 ísl.-kennsla;
H. fl. -— 19.00 Þýzkukennsla; I.
fl. 20.30 Kvöldvaka: a) Guðmund-
ur M. Þoriáksson kermari flytur
erindi: Frá Þingvallavatni — sið-
ara erindi). b) Karlakór Akureyr-
ar syngur; Áskell Jónsson stjórn-
ar (plötur). c) Þórunn Elfa Magn-
úsdóttir rithöfundur flytur . síðara
erindi sitt um sænsku skáldkon-
una Victoríu Benedictsson. d)
Andrés Björnsson les úr ævisögu
Guðmundar Friðjónssonar skálds
á Sandi, eftir Þórodd Guðmunds-
son. 22.10 Passíusálmur nr. 3. 22.20
Da.nslög, (plötur). 22.45 Dagskrár-
lok.
Kvenkápu stolið á dansleik.
Að kvöldi hins 18. þ.m. var stol-
ið kvenkápu á dansleik, sem hald-
inn var í Tivolí. Kápa þessi er
hinn mesti for-látagripur, græn að
lit með s.tórum lfraga og er perlu-
saumur neðan á kraganum hring-
inn í kring. Vasar eru stórir og
rn^ð perlusaumi. Kápan er við,
ermar víðar um olnboga en þröng-
ár um úlnliði. Ef einhver kynni
að vita hvar kápa þessi er. niður
komin, er hann góðfúslega beðinn
að láta rannsóknarlögregluna vita.
Knattspyrnufélagið Þróttur.
Tafl- og bridgeæfing fellur niður
á föstudaginn, en í stað þess verð-
ur almennur fundur kl. 8.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Alda Hoffritz
á Selfossi og Hilrn
ar. Friðrikss., Mið-
’-u koti í Þykkvabæ.
Rafmagnsskömmtunin.
í dag verður straumlaust, kl.
H-12, á svæði sem nær yfir Hlíð-
arnar, Norðurmýri, Rauðarárholt-
ið, Túnin, Teigana og svæðið þar
norð-austur af,-
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband af
sr. Sigurði Páls
syni í Hraun-
gerði, ungfrú
Guðrún Brynjólfsdóttir á Selfossi
og Árni Sigursteinsson, iðnnemi.
— Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sr. -Jóni Thórarensen
ungfrú Málfríður Jóhannsdóttir og
Sverrir Örn Valdimarsson, prent-
ari.i Heimili þrúðhjónanna verður
að Hofsvallagötu 61.
Menntamál, nóv.—
des.—heftið 1950,
er komið. út. Efni:
,,Það er svo bágt
að standa í stað'*
(Á.H.), Friðrik
Hjartar: Samtengingar — Kommu
reglur, Björn H. Jónsson: Söfnua
gamalla kennslubóka. Mann —
eða hvað? Sira Hermann Hjartar-
son. Dánarminning. Arngrímur
Kristjánsson fimmtugur (Á.H.),
Afmælisvísur til Arngríms Krist-,
jánssonar (S.E. og St. J.), Stein-
þór Guðmundsson sextugur (Á.H.),
Friðrik Bjarnason siötugur, Sitt
af hverju tagi.
Fermingarbcirn, sem fermast
eiga í fríkirkjunni á þessu ári
eru beðin að koma til viðtals í
fríkirkjuna á fimmtudag kl. 6. —-
Sr. Þorsteinn Björnsson.
Næturlæknlr er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum, síml
5030.
Ungbarrtavernd Lílniar, Templara-
sundi 3 er opin þriðjudaga kl. 3.15
til 4 e. h. og- fimmtudaga kl. 1.30
til 2.30 e, h. Einungis tekið á móti
börnum er fengið hafa kíghósta
eða hlotið ónæmisaðgerð gegn hon-'
um. Ekki tekið á móti kvefuðum
börnum.
HVI.flFIN.GUR
F U N D II K veröur haltlúu:
föstudaginn 26. janúar kl.
8.45 á Þórsgötu 1.
Umræðuefni: BÖKMENNT-
IK OG ÞJÖÐFÉLAGSMÁL
F ramsöguinaður: SVEINN
BEKGSVEINSSlON.
Stjórniu.